Morgunblaðið - 06.09.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 6. S E P T E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 209. tölublað 107. árgangur
JAFNVÆGI
KOMIÐ Á
MARKAÐINN
VILL FLUG MILLI
ÍSLANDS OG KÍNA
SEM FYRST
FASTEIGNIR 32 SÍÐUR SVARAR MIKE PENCE 6
Keyptu 15 íbúðir
» Fjárfestar keyptu 15 íbúðir á
Frakkastígsreit í lok sumars.
» Fjárfestar eru sagðir horfa
til lækkandi vaxtastigs og fyrir-
hugaðra styrkja til íbúðakaupa.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Síðustu tvo mánuði eða svo hafa selst
um 50 nýjar íbúðir á þéttingarreitum
í miðborg Reykjavíkur. Söluverðið
er ekki undir 2,5 milljörðum. Þá eiga
fjárfestar í viðræðum um kaup á
rúmlega 70 íbúðum á Brynjureit en
þær kosta allt að 85 milljónir.
Pálmar Harðarson, framkvæmda-
stjóri Þingvangs, sem byggir
Brynjureit, segir fleiri aðila hafa
sýnt áhuga á að kaupa íbúðirnar.
Markaðurinn sé að taka við sér.
Salan á miðborgaríbúðum í sumar
sætir tíðindum á fasteignamarkaði.
Þannig var í sumar rætt um of-
framboð nýrra íbúða á svæðinu eftir
gjaldþrot WOW air og óvissu í efna-
hagsmálum. Nú er hátt hlutfall íbúð-
anna selt á sumum reitum. Til dæmis
hafa allar íbúðirnar 11 á Klapparstíg
30 verið seldar.
Sturla Geirsson, framkvæmda-
stjóri Rauðsvíkur, segir útlit fyrir
verðhækkanir eftir áramót. Mikið
framboð hafi haldið niðri verði nýrra
íbúða á svæðinu. Það sé að breytast.
„Verðið mun því hækka um leið og
framboðið minnkar,“ segir Sturla.
Milljarðar í miðbæjaríbúðir
Nýjar íbúðir fyrir minnst 2,5 milljarða hafa selst í miðborginni frá því í lok júní
Markaðurinn tók við sér í lok sumars eftir umræðu um offramboð nýrra íbúða
MMeiri sala á miðborgaríbúðum »10
Vettvangseftirlit Ríkisskattstjóra
tók til skoðunar 1.040 fyrirtæki á
tímabilinu maí, júní og júlí í sumar.
Alls fengu 80 fyrirtæki skrifleg til-
mæli um úrbætur í kjölfar heim-
sóknar frá eftirlitinu. Rekstur var
stöðvaður hjá tveimur fyrirtækjum.
Undanfarin ár hefur verið lögð
áhersla á eftirlit með ferðaþjón-
ustu, einkum á sumrin. Af 1.040
fyrirtækjum á tímabilinu maí-júlí
voru 399 innan ferðaþjónustunnar.
Þar af var 141 skoðað í framhaldi af
umferðareftirliti á vinsælum
ferðamannastöðum. Af 399 málum
innan ferðaþjónustunnar var u.þ.b.
50% lokið án athugasemda. Lang-
flestar athugasemdirnar vörðuðu
reiknað endurgjald eiganda og
tengdra aðila. »4
Stöðvuðu rekstur
tveggja fyrirtækja
Nýrri viðbygg-
ingu við stjórn-
arráðshúsið í
Lækjargötu verð-
ur skipt upp í
mismunandi ör-
yggissvæði og
verður hæsta stig
öryggis í sér-
stöku fund-
arherbergi fyrir
þjóðaröryggisráð
sem verður í kjallara hússins. Fund-
arherbergið verður gluggalaust og
með öruggri tengingu við flóttaleið,
að því er fram í kemur í samkeppn-
islýsingu vegna byggingarinnar.
„Lóð og umhverfi nýbyggingar
þarf að útfæra þannig að sem minnst
hætta sé á að bílar og farartæki geti
keyrt inn á lóðina og á byggingar.
Æskilegt er að bygging sé eins langt
frá almennri umferð og hægt er til
að tryggja öryggissvæði fyrir fram-
an byggingar. Möguleiki þarf að
vera á að loka innkeyrslu í bíl-
geymslu með öruggum hætti
(ákeyrsluvörn) sem næst götu,“ seg-
ir í samkeppnislýsingunni.
Gætt verður að því að möguleikar
verði á óháðum flóttaleiðum vegna
bruna og annarra ógna, til dæmis
ytri sprenginga. Þá verður öryggis-
gler sett í allar hliðar bygging-
arinnar. »4
Fyllsta öryggis
gætt í kjallara
stjórnarráðsins
Teikning af við-
byggingunni.
Stefán Gunnar Sveinsson
Þór Steinarsson
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, for-
maður utanríkismálanefndar og rit-
ari Sjálfstæðisflokksins, tekur í dag
við embætti dómsmálaráðherra eftir
að þingflokkur flokksins samþykkti
tillögu Bjarna Benediktssonar, for-
manns og fjármálaráðherra, þar um í
gær. „Fyrstu viðbrögð eru þau að ég
er afar þakklát fyrir það að vera
treyst fyrir svona stóru og mikil-
vægu ráðuneyti, og ég mun gera mitt
allra besta í þeim verkefnum sem
bíða mín,“ segir Áslaug Arna í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hún bætir við að Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, sýni með ákvörðun sinni og
hafi sýnt það áður að hann treysti
ungu fólki til stórra verkefna. „Það
bíða mín margar áskoranir en ég fer
glöð og spennt í ráðuneytið.“ Áslaug
segist hafa frétt af ákvörðunni um
einni mínútu áður en þingflokksfund-
ur flokksins, þar sem tillaga Bjarna
var samþykkt, hófst en hún var stödd
á ráðstefnu um öryggis- og varnar-
mál í Helsinki sem formaður utanrík-
ismálanefndar í gær.
Er reiðubúin til verka
Áslaug Arna er nú 28 ára gömul og
verður þar með yngsta manneskjan
til þess að taka við ráðherraembætti
frá því að Eysteinn Jónsson varð
fjármálaráðherra árið 1934 á 28. ald-
ursári sínu. Spurð um gagnrýni
vegna ungs aldurs bendir Áslaug á
að hún hafi verið í forystusveit
flokksins undanfarin fjögur ár, setið
á þingi frá árinu 2016 og á þeim tíma
gegnt formennsku í bæði allsherjar-
og menntamálanefnd og síðar utan-
ríkismálanefnd. „Ég tel mig reiðu-
búna til að takast á við embættið,“
segir Áslaug. Boðað hefur verið til
ríkisráðsfundar á Bessastöðum í dag
kl. 16.00 og mun Áslaug þar taka
formlega við embættinu.
Áslaug var kjörin ritari Sjálfstæð-
isflokksins árið 2015 en samkvæmt
skipulagsreglum flokksins er ritara
hans meinað að gegna ráðherraemb-
ætti á sama tíma. Nýr ritari verður
því kjörinn á flokksráðsfundi Sjálf-
stæðisflokksins sem haldinn verður
14. september næstkomandi.
Hefur eflst við hverja raun
Bjarni Benediktsson sagði í sam-
tali við mbl.is í gær að frammistaða
Áslaugar í orkupakkamálinu hefði
sýnt að hún gæti tekist á við stór og
flókin álitamál og haldið vel utan um
þau. „Ég myndi segja að Áslaug
hefði vaxið og eflst með hverri raun.
Hún gaf mjög ung kost á sér sem rit-
ari Sjálfstæðisflokksins og heillaði
landsfund upp úr skónum í mjög eft-
irminnilegri ræðu,“ bætti hann við.
Þá væri Áslaug mörgum kostum
búin og hefði brennandi áhuga á að
láta gott af sér leiða. »2
Áslaug nýr ráðherra
Tillaga Bjarna Benediktssonar um nýjan dómsmálaráðherra samþykkt í þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins Áslaug afar þakklát fyrir traustið sem henni er sýnt
Dómsmálaráðherra Áslaug Arna segist þakklát fyrir traust þingflokksins.
Morgunblaðið/Hari
Valhöll Bjarni Benediktsson ræðir hér við fjölmiðla að loknum þingflokksfundinum í Valhöll en Jón Gunnarsson og
Brynjar Níelsson halda heim á leið. Tillaga Bjarna um skipan Áslaugar var samþykkt einróma á fundinum.
„Ég get ekki séð að við þingmenn
Sjálfstæðisflokksins getum stutt
stjórnarsamstarf sem fer fram með
þessum hætti. Það er best að gera
grein fyrir því strax,“ segir Jón
Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins og fv. ráðherra, í aðsendri
grein í Morgunblaðinu í dag.
Tilefni þessara ummæla er verk-
lag umhverfisráðherra þegar kemur
að friðlýsingum. „Aðferðafræði
hans stenst að mínu mati enga skoð-
un og hafa margir hagsmunaaðilar
fullyrt að ekki sé farið að lögum í
þeirri útfærslu sem hann boðar. Ég
er sammála því að verklag hans
samræmist ekki lögum.“ »19
Þingmaður hótar
stjórnarslitum