Morgunblaðið - 06.09.2019, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.09.2019, Blaðsíða 7
Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Ódýrari & 100% rafmagnaður. Volkswagen e-Golf kemur þér lengra en þú heldur á rafmagninu einu saman. Þú nýtir hreina innlenda orku, tekur aldrei eldsneyti, ert laus við olíuskipti og upplifir magnaðan akstur. Gríptu tækifærið núna og stökktu inn í framtíðina með Volkswagen e-Golf – 100% rafmagnsbíl. Skiptu yfir í rafmagnsbíl. Volkswagen e-Golf. Tilboðsverð: 3.790.000 kr. www.hekla.is/volkswagensalur Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Umræðan um þriðja orkupakkann og þrjú tengd mál á nýliðnu þingi er sú lengsta í þingsögunni. Um- ræðan stóð yfir í nær 160 klukku- stundir og þingmenn tóku 4.137 sinnum til máls. Eins og menn muna fór umræð- an um orkupakkann fram í tveimur lotum. Fyrri lotan var í vor, þegar Miðflokksmenn beittu málþófi, og sú síðari á stuttu þingi um síðustu mánaðamót. Lengsti þingfund- urinn um málið stóð í 24 klst. og 16 mín., sem einnig er met. Svo fór að þingsályktunartillagan um 3. orku- pakkann var samþykkt með 46 at- kvæðum gegn 13. Samkvæmt upplýsingum frá Al- þingi fór langmestur ræðutími í sjálfan 3. orkupakkann, 777. mál. Þingmenn tóku 3.881 sinni til máls. Fluttar voru 492 þingræður í sam- tals 45 klukkustundir og 3.389 at- hugasemdir í samtals 102,32 klukkustundir. Ræðutíminn var því samtals 147,32 klst. Þrjú lagafrumvörp tengd orku- pakkanum voru afgreidd á Alþingi. Um er að ræða 782. mál: raf- orkulög og Orkustofnun, 791. mál: breyting á þingsályktun nr. 26/148, um stefnu stjórnvalda um upp- byggingu flutningskerfis raforku og 792. mál: raforkulög. Þingmenn tóku 256 sinnum til máls um þessi mál, samtals í 12,38 klst. Nýtt þing sett á þriðjudag Starfsáætlun fyrir 150. löggjafarþing hefur verið sam- þykkt af forsætisnefnd. Þingsetn- ing verður þriðjudaginn 10. september 2019 og stefnuræða for- sætisráðherra og umræður um hana verða að kvöldi miðvikudags- ins 11. september. Fyrsta umræða um fjárlaga- frumvarp 2020 fer fram fimmtu- daginn 12. september og föstudag- inn 13. september. Stefnt er að 2. umræðu þriðjudaginn 12. nóvem- ber og 3. umræðu þriðjudaginn 26. nóvember. Jólahlé er áformað 14. desember til 14. janúar. Þing- frestun er áætluð 10. júní 2020. Morgunblaðið/Hari Maraþonumræður Segja má að þingmenn Miðflokksins hafi átt sviðið í um- ræðum um 3. orkupakkann. Löngum stundum voru þeir einir í þingsalnum. Þingmenn töluðu 4.437 sinnum um orkupakkamálin Viðreisn er flokkur sem hefur talað til hægri en hefur í verkum sínum og núna í þessu máli unnið til vinstri,“ segir hann. Eyþór segir einnig greinilegt að þrátt fyrir met- tekjur þá sé borgin ekki södd og vilji hækka álögur á íbúana ennþá meira. Sjálfstæðismenn séu andvíg- ir því. Spurður um þá afstöðu meiri- hlutaflokkanna að samþykkja að taka tillöguna áfram til nánari skoð- unar segir Eyþór að þessir flokkar séu þarna sammála um að skatt- leggja sparnað, „ekki síst eldri borgara, sem þyrftu að borga kannski tvöfalt hærri skatt, þeir bara afhjúpa sjálfa sig“. Öll sveitarfélögin hefðu getað fengið rúma 17 milljarða Spurð um mögulegar tekjur af álagningu útsvars á fjármagns- tekjur segir Sanna að ef skoðaðar séu tölur frá í fyrra sé áætlað að borgin hefði getað fengið tæpa 6,8 milljarða í borgarsjóð og að öll sveitarfélögin í heild hefðu fengið rúmlega 17 miljarða ef útsvar hefði verið lagt á fjármagnstekjur. „Sjálf- stæðismenn tala um þetta sem skattahækkun sem er ekki rétt, þarna er ekki um neina hækkun að ræða, heldur að allar tekjur beri sömu skatta, hvort sem það eru fjár- magnstekjur eða launatekjur. Ég get því ekki séð þetta sem hækkun, heldur að það sama gildi yfir alla,“ segir hún. Sanna bendir á að fjármagns- tekjuskattur sé t.d. lagður á ein- staklinga sem fá greiddan arð frá fyrirtækjum, einstaklinga sem selt hafa fyrirtæki eða hluti í þeim með söluhagnaði, einstaklinga sem hafa miklar leigu- eða vaxtatekjur og ekkert af þessu dragi úr fjárfest- ingagetu fyrirtækja. „Það sem dreg- ur úr fjárfestingagetu fyrirtækja fyrst og fremst er hversu mikinn arð eigendur taka úr rekstrinum til að greiða sér,“ segir Sanna. Þá segir hún um þá gagnrýni að gengið sé á sparnað almennings með slíkri skattheimtu að það séu þrep í fjármagnstekjuskatti „til að halda vöxtum af venjulegum sparn- aði utan skattheimtu og við gerum engar tillögur um að afnema þau, það má jafnvel skoða það að hækka þau lítillega. Til þess skapast svig- rúm þegar ofurtekjur hinna ofsa- ríku verða skattlagðar í sama hlut- falli og lágar tekjur fólks sem er að berjast fyrir að eiga í sig og á.“ á fjármagnstekjur Sanna Magdalena Mörtudóttir Eyþór Arnalds

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.