Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
HVARSEMÞÚERT
SAMSTARFSAÐILI
Öryggiskerfi
09:41 100%
70 ára Laufey er frá
Ytri-Knarrartungu í
Breiðuvík á Snæfells-
nesi. Hún vann ýmis
störf, meðal annars á
Hótel Búðum og keyrði
leigubíl í þrjú ár. Laufey
er búsett í Reykja-
nesbæ.
Maki: Kristinn Arnberg, f. 1946, skipstjóri,
lengst á Gullfaxa SH 125.
Börn: Kristgeir, f. 1966, Hallfreður, f. 1969,
Óðinn, f. 1972, Jón, f. 1976, og Kristinn
Arnberg, f. 1981. Barnabörnin eru fjórtán
og langömmubörn eru þrjú og eitt á leið-
inni.
Foreldrar: Jón Geirmundur Kristinsson, f.
1923, leigubílstjóri í Hafnarfirði og búsettur
þar, og Erla Olsen, f. 1932, húsmóðir í Vest-
mannaeyjum, nú búsett í Reykjanesbæ.
Laufey Dagmar
Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er rétti tíminn til þess að gera
áætlun og kippa því í lag sem hefur farið
úrskeiðis. En alvara lífsins tekur alltaf við
aftur.
20. apríl - 20. maí
Naut Einhver ótti steðjar að þér í sam-
bandi við það að þú náir ekki takmarki
þínu. Sá tími kemur að þú munt geta sagt
hug þinn allan.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þínar þarfir og annarra pasa ekki
jafn vel saman og þú varst að vonast til.
Reyndu að sýna öðrum meiri þolinmæði.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Rétt er að þú vitir að í dag verður
óstöðugleiki á sviðum eigna þinna og fjár-
mála. Hlustaðu á það sem aðrir segja, tjá-
skipti eru þýðingarmeiri en ella í dag.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú finnur löngun hjá þér til að gera
eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til
þess fyrr en síðar. Sinntu verkefnum sem
krefjast einbeitingar og nákvæmni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur lagt hart að þér að und-
anförnu og ert að uppskera laun erfiðis
þíns. Sýndu þínum nánustu skilning og
stuðning í dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er huggun í því að vita hvað
morgundagurinn ber í skauti sér. Víðsýni
þín og innsæi í dag er ótrúlega mikið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þetta er góður dagur til fast-
eignaviðskipta eða annarra útgjalda sem
tengjast heimili þínu. Leggðu áherslu á að
umgangast aðeins jákvætt fólk.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vandamál gæti komið upp
varðandi heimilið sem gæti reynst þér erf-
itt að leysa. Leyfðu vinum þínum að um-
vefja þig kærleika nú.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú ert ekki ánægður með
stöðu mála er kominn tími til að gera eitt-
hvað í því. Ef þér finnst eitthvað ekki rétt
skaltu rannsaka málið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þar sem þú ert á endalausum
þeytingi fyrir vinnuna skaltu huga að þeim
sem heima sitja. Njóttu þess að vera í
sambandi við annað fólk.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að taka þátt í sameig-
inlegum kostnaði og verður að gæta þess
að láta smámunasemina ekki ná tökum á
þér.
undur og skáld. Foreldrar hans voru
Katrín Guðjónsdóttir, f. 27.3. 1935, d.
2.3. 1996, gítarkennari og ball-
ettdansari í Reykjavík, og Erlingur
Gíslason, f. 13.3. 1933, d. 8.3. 2016,
leikari í Reykjavík. Þau skildu.
Börn Kristínar og Friðriks eru
Þórður Kalman Friðriksson, f. 30.10.
2008, og Hjalti Kiljan Friðriksson, f.
5.10. 2012. Stjúpsonur Kristínar og
sonur Friðriks er Patrekur Kári
Friðriksson, f. 13.6. 2006.
Hálfsystkini Kristínar eru Guðrún
Hulda Ólafsdóttir, f. 19.9. 1971, fast-
eignasali og lögmaður, sammæðra,
og systur Kristínar samfeðra eru
Jóna Sigurbjörg Þórðardóttir, f. 16.1.
fjórða stigi og gríp í hljóðfærið af og
til, en framfarir hafa heldur látið á
sér standa.“ Eitt er það áhugamál
sem hefur yfirtekið frítíma fjölskyld-
unnar undanfarin ár og það er fót-
bolti. Drengirnir Þórður Kalman og
Hjalti Kiljan æfa með Knattspyrnu-
félagi Rangæinga (KFR) og sækja öll
mót og leiki sem völ er á. „Í sumar
var að auki haldið á Unglingalands-
mót á Höfn í Hornafirði og er stefnan
að sækja þær frábæru samkomur
áfram.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Kristínar er Frið-
rik Erlingsson, f. 4.3. 1962, rithöf-
K
ristín Þórðardóttir er
fædd 6. september
1979 í Reykjavík en
sleit barnsskónum á
Eyrarbakka, þar sem
foreldrar hennar ráku verslun og síð-
ar útgerð. „Áhugi á hestum blundaði
alltaf í föður mínum frá hans fyrra lífi
í Vestmannaeyjum og stunduðum við
feðgin saman hestamennsku af kappi,
fyrst á Eyrarbakka, en þegar áhug-
inn tók öll völd festi fjölskyldan kaup
á jörð í Hvolhreppi hinum forna og
hóf hrossarækt í smáum stíl sem
kennd er við bæinn Lynghaga.“
Kristín stundaði nám við elsta
starfandi barnaskóla á landinu,
Barnaskólann á Eyrarbakka, og hélt
að því loknu til Reykjavíkur og lagði
stund á nám við Menntaskólann í
Reykjavík. Hún lauk embættisprófi í
lögfræði frá Háskóla Íslands 24.6.
2006.
Með námi stundaði Kristín hesta-
mennsku og vann hefðbundin sumar-
störf á Hvolsvelli, við kjötvinnslu SS
og í Húsasmiðjunni, en sneri sér síðar
að störfum tengdum lögfræðinni. Ár-
ið 2005 varð hún fulltrúi í afleys-
ingum við embætti Sýslumanns á
Hvolsvelli og þá varð ekki aftur snúið.
Kristín starfaði í sveitarstjórn Rang-
árþings eystra frá árinu 2010 þar til
hún varð settur sýslumaður á Suður-
landi 1.5. 2017. Kristín var skipuð
sýslumaður á Suðurlandi þann 1.8.
2018. „Það var lærdómsríkur tími að
starfa í sveitarstjórn og mér var sýnt
traust með kjöri mínu, en það fór auð-
vitað ekki saman að halda áfram þar
og vera sýslumaður. Hins vegar hef-
ur reynslan úr sveitarstjórn komið að
góðum notum enda er sýslumanni
nauðsynlegt að vera í góðum
tengslum við stjórnendur sveitar-
félaga í umdæminu.“ Kristín gegnir
nú formennsku í Sýslumannaráði,
sem er samstarfsnefnd sýslumanna
og dómsmálaráðuneytisins. Auk þess
er hún settur sýslumaður í Vest-
mannaeyjum.
Helstu áhugamál Kristínar eru
hestamennska, tónlist og menning í
hinum víðasta skilningi. „Við mæðg-
urnar erum ennþá með hrossarækt í
Lynghaga, en við fáum eitt til tvö fol-
öld á ári svo við erum ekki stórtækar
í þessu. Ég spila á píanó, lauk námi á
1947, búsett í Reykjavík; Ásdís Þórð-
ardóttir, f. 2.1. 1948, d. 7.7. 1991, flug-
freyja, síðar lögg. fasteignasali í
Garðabæ; Ingibjörg Þórðardóttir, f.
19.3. 1955, lögg. fasteignasali í
Reykjavík; og Þuríður Þórðardóttir,
f. 9.5. 1963, hóteleigandi í Austurríki
og á Akureyri.
Foreldrar Kristínar: Þórður S.
Þórðarson, f. 19.3. 1925, d. 24.9. 1994,
útgerðarmaður og rakarameistari í
Vestmannaeyjum, og Ingibjörg Jó-
hannesdóttir, f. 5.10. 1947, fyrrver-
andi kennari, útgerðarmaður og
bóndi. Þau gengu í hjúskap á að-
fangadag 1979. Ingibjörg er búsett á
Hvolsvelli.
Kristín Þórðardóttir, sýslumaður á Suðurlandi – 40 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Friðrik, Patrekur Kári, Hjalti Kiljan, Þórður Kalman og Kristín heima um áramót.
Vel í sveit sett
Í Öræfum Kristín með sonum sínum við Svínafellsjökul í sumar. Sýslumaðurinn Í hátíðarbúningi.
Sigrún Haraldsdóttir á Lýtingsstöðum varð áttræð 2. sept-
ember sl. Hún er ættuð frá Efri-Rauðalæk, dóttir Haraldar
Halldórssonar og Ólafíu Hrefnu Sigþórsdóttur. Bræður Sig-
rún eru Valur, Runólfur, Halldór og Helgi. Eiginmaður Sigrún-
ar var Eiríkur Sigurjónsson, bóndi að Lýtingsstöðum. Þau
eignuðust fimm börn, Guðrúnu Arndísi, Sigurjón, Harald,
Ólafíu og Guðnýju, öll búsett í Rangárþingi ytra. Barnabörnin
eru tólf og barnabarnabörnin átta. Eiríkur lést árið 1999.
Sigrún vann lengst af sem ráðskona í Laugalandsskóla í
Holtum og á fjöllum. Árið 1965 fór hún fyrst kvenna sem fjallmaður á Landmannaafrétt
og þá á hesti. Sigrún var formaður Kvenfélagsins Einingar í Holtum tvisvar sinnum, var
lengi virk í hestamannafélaginu Geysi og í Hrossaræktarfélagi Holtamanna.
Á morgun, laugardag, fagnar Sigrún tímamótunum með vinum, ættingjum og fjölskyldu
að Laugalandi í Holtum.
80 ára afmæli
60 ára Sif ólst upp á
Hólmavík á Ströndum
en býr í Reykjavík. Hún
er kennaramenntuð
og er með meistara-
gráðu í stjórnun frá
Kennaraháskólanum.
Hún er skólastjóri í
Norðlingaskóla.
Maki: Zophonías Einarsson, f. 1959,
kennari í Hörðuvallaskóla í Kópavogi.
Börn: Vígþór Sjafnar, f. 1981, og Sigríður
Eir, f. 1986. Barnabörnin eru Brími Steph-
en Vígþórsson og Úlfhildur Katrín og Ey-
rún Sigríðardætur.
Foreldrar: Vígþór Jörundsson, f. 1932, fv.
skólastjóri og Sjöfn Ásbjörnsdóttir, f.
1938, kennari. Þau eru búsett í Mos-
fellsbæ. Aukaforeldrar hennar: Guðlaugur
Jörundsson og Guðrún Haraldsdóttir.
Sif
Vígþórsdóttir
Til hamingju með daginn