Morgunblaðið - 06.09.2019, Blaðsíða 32
FJÖLNIR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Sveinn Þorgeirsson, reyndasti leik-
maður handknattleiksliðs Fjölnis, er
bjartsýnn fyrir komandi keppnis-
tímabil í úrvalsdeild karla, þrátt fyr-
ir að nýliðarnir í Grafarvoginum hafi
ekki bætt við sig neinum nýjum leik-
mönnum í sumar. Fjölnismenn eru
eina úrvalsdeildarliðið sem hefur
ekkert styrkt sig fyrir átök vetr-
arins, en liðið hefur leik í Olísdeild-
inni á mánudaginn kemur þegar liðið
fær ÍR í heimsókn. Fjölni er spáð 12.
og neðsta sæti deildarinnar í spá
fyrirliða og þjálfara deildarinnar.
„Stemningin í liðinu er bara nokk-
uð góð fyrir komandi keppnis-
tímabili. Við vitum aðeins betur hvað
við erum að fara út í núna enda fór-
um við flestir upp með liðinu árið
2017 þegar Fjölnir komst í efstu
deild í fyrsta sinn. Klúbburinn lærði
mikið af tíma sínum í úrvalsdeildinni
og þótt við höfum misst nokkra leik-
menn síðan þá hefur okkur tekist að
halda sama leikmannakjarna. Það
var vissulega súrt að falla um deild
og allt það en við erum sterkari núna
en þá, finnst mér. Það er ekki hægt
að segja að spáin hafi komið okkur á
óvart. Við höfum ekki sankað að
okkur nýjum leikmönnum og við er-
um að koma úr deild sem er mun
slakari en úrvalsdeildin, með fullri
virðingu fyrir 1. deildinni. Það er
þess vegna ekkert óeðlilegt að þeim
liðum sem koma upp um deild sé
spáð falli.“
Unnið að langtímamarkmiðum
Þrátt fyrir að Grafarvogsliðið hafi
ekkert styrkt sig hefur því einnig
tekst að halda öllum sínum leik-
mönnum og ítrekar Sveinn að það sé
eitt helsta styrkleikamerki liðsins.
„Ég hef mikla trú á því að við get-
um gert flotta hluti í vetur. Við erum
með marga unga, skemmtilega og
uppalda leikmenn í hópnum sem
geta ekki beðið eftir því baða sig að-
eins í sviðsljósinu. Þeir eiga eftir að
nýta tækifærið vel og leggjast að-
eins fyrir framan myndavélarnar og
þeir eiga eftir að njóta sín vel í efstu
deild. Okkar stærsti styrkur er ef-
laust sá að við höfum náð að halda í
sama leikmannakjarna undanfarin
ár. Frá því að við fórum upp, aftur
niður og svo aftur upp hafa orðið
mjög litlar mannabreytingar í
Grafarvoginum og við þekkjum hver
annan mjög vel. Þótt við höfum ekki
bætt við okkur mönnum hafa leik-
menn eins og Brynjar Óli sem dæmi
farið úr því að lyfta 180 kílógrömm-
um í hnébeygju í 200 kílógrömm. Við
erum að keyra þetta á ungum pjökk-
um sem hafa verið að bæta sig jafnt
og þétt, undanfarin ár, í stað þess að
fá alltaf inn nýja og nýja leikmenn.“
Fjölnismenn féllu úr efstu deild
vorið 2018 en liðið fór strax aftur
upp ári síðar og telur Sveinn að það
hafi verið mikill stígandi í handbolt-
anum í Grafarvogi á undanförnum
árum.
„Þetta er allt á réttri leið í Grafar-
voginum og leiðin hefur legið upp á
við hjá Fjölni frá því árið 2014. Þótt
klúbburinn hafi fallið um deild 2018
spiluðum við samt sem áður okkar
besta handbolta það tímabil að mínu
mati. Við lentum í ákveðnum ógöng-
um utan vallar og það voru nokkur
lítil atriði sem hefði mátt gera betur
sem að lokum urðu okkur að falli.
Fyrsta markmið okkar í vetur er að
sjálfsögðu að halda sæti okkar í
deildinni en þessi deild hefur samt
verið þannig undanfarin ár að það
munar oft litlu á þeim liðum sem
halda sér uppi og þeim sem detta svo
inn í úrslitakeppni, sem yrði auðvit-
að rúsínan í pylsuendanum fyrir
okkur. Markmiðið til langs tíma í
Grafarvoginum er svo að búa til
stöðugt efstudeildarlið með leik-
mönnum sem eru uppaldir hér,“
sagði Sveinn í samtali við Morgun-
blaðið.
Tilbúnir að
baða sig í
sviðsljósinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skytta Breki Dagsson var markahæstur Fjölnismanna í 1. deildinni í fyrra
og næstmarkahæstur þegar þeir léku í úrvalsdeildinni veturinn 2017-18.
Sveinn segir handboltann á mikilli
uppleið hjá Fjölni þrátt fyrir fall 2018
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019
Björgvin Páll Rúnarsson
Breki Dagsson
Brynjar Óli Kristjánsson
Elvar Otri Hjálmarsson
Goði Ingvar Sveinsson
Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha
Sveinn Þorgeirsson
Þjálfari: Kári Garðarsson.
Aðstoðarþjálfari: Guðmundur
Rúnar Guðmundsson.
Árangur 2018-19: Sigurvegarar í
1. deild.
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: Aldrei.
Fjölnir fær ÍR í heimsókn í
fyrstu umferð Olísdeildarinnar á
mánudagskvöldið kl. 19.30.
MARKVERÐIR:
Andreas Örn Aðalsteinsson
Axel Hreinn Hilmisson
Bjarki Snær Jónsson
HORNAMENN:
Bergur Elí Rúnarsson
Brynjar Loftsson
Daníel Freyr Rúnarsson
Viktor Berg Grétarsson
Þorleifur Rafn Aðalsteinsson
LÍNUMENN:
Arnar Máni Rúnarsson
Jón Bald Freysson
Þorvaldur Tryggvason
Þórir Bjarni Traustason
ÚTISPILARAR:
Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson
Lið Fjölnis 2019-20
KOMNIR
Engir.
FARNIR
Engir.
Breytingar á liði Fjölnis
Engar breytingar á leikmannahópi, sem er
kannski ekki eins mikill ókostur og sumir halda.
Hafa mikla hvatningu til þess að afsanna spána
sem setti þá í neðsta sæti.
Fáir vita mikið um liðið og það gæti reynst því
vel í upphafi móts.
Áhugavert: Eru ungu leikmennirnir tilbúnir í
djúpu laugina?
Sebastian Alexandersson
um Fjölni
Inkasso-deild karla
Leiknir R. – Keflavík............................... 1:0
Sólon Breki Leifsson 90.
Haukar – Njarðvík .................................. 4:0
Kristófer Dan Þórðarson 11., 22., 73., Sean
De Silva 41.
Staðan:
Fjölnir 19 11 5 3 41:19 38
Grótta 19 10 7 2 39:25 37
Leiknir R. 20 11 3 6 34:26 36
Þór 19 9 6 4 30:20 33
Keflavík 20 9 4 7 29:24 31
Víkingur Ó. 19 7 7 5 22:16 28
Fram 19 8 3 8 27:29 27
Þróttur R. 19 6 3 10 34:35 21
Haukar 20 4 7 9 28:36 19
Afturelding 19 5 4 10 25:36 19
Magni 19 4 4 11 22:47 16
Njarðvík 20 4 3 13 20:38 15
Undankeppni EM karla
D-RIÐILL:
Gíbraltar – Danmörk .............................. 0:6
Robert Skov 6., Christian Eriksen 34.(víti),
50.(víti), Thomas Delaney 69., Christian
Gytkjær 73., 78.
Írland – Sviss............................................ 1:1
David McGoldrick 85. – Fabian Schär 74.
Staðan:
Írland 5 3 2 0 6:2 11
Danmörk 4 2 2 0 15:5 8
Sviss 3 1 2 0 6:4 5
Georgía 4 1 0 3 4:8 3
Gíbraltar 4 0 0 4 0:12 0
F-RIÐILL:
Færeyjar – Svíþjóð .................................. 0:4
Alexander Isak 12., 15., Victor Lindelöf 23.,
Robin Quaison 41.
Noregur – Malta ...................................... 2:0
Sander Berge 34., Joshua King 45.(víti)
Rúmenía – Spánn..................................... 1:2
Florin Andone 59. – Sergio Ramos 29.(víti),
Paco Alcacer 47.
Staðan:
Spánn 5 5 0 0 13:3 15
Svíþjóð 5 3 1 1 12:7 10
Noregur 5 2 2 1 10:7 8
Rúmenía 5 2 1 2 12:7 7
Malta 5 1 0 4 2:12 3
Færeyjar 5 0 0 5 3:16 0
G-RIÐILL:
Ísrael – Norður-Makedónía.................... 1:1
Eran Zahavi 55. – Arjan Ademi 64.
Staðan:
Pólland 4 4 0 0 8:0 12
Ísrael 5 2 2 1 9:8 8
Austurríki 4 2 0 2 7:6 6
Slóvenía 4 1 2 1 7:3 5
N-Makedónía 5 1 2 2 6:8 5
Lettland 4 0 0 4 1:13 0
J-RIÐILL:
Armenía – Ítalía....................................... 1:3
Alexander Karapetian 11. – Andrea Belotti
28., Lorenzo Pellegrini 78., sjálfsmark 80.
Rautt spjald: Alexander Karapetian
(Armeníu) 45.
Bosnía – Liechtenstein............................ 5:0
Amer Gojak 11., 89., sjálfsmark 80., Edin
Dzeko 85., Edin Visca 87.
Helgi Kolviðsson þjálfar Liechtenstein.
Finnland – Grikkland.............................. 1:0
Teemu Pukki 52.(víti)
Staðan:
Ítalía 5 5 0 0 16:2 15
Finnland 5 4 0 1 7:2 12
Bosnía 5 2 1 2 10:7 7
Armenía 5 2 0 3 8:9 6
Grikkland 5 1 1 3 6:9 4
Liechtenstein 5 0 0 5 0:18 0
ASÍA, 2. umferð, C-riðill:
Kambódía – Hong Kong ......................... 1:1
Þorlákur Árnason er aðstoðarþjálfari
Hong Kong en þetta var fyrsti leikur liðsins
í undankeppninni fyrir HM 2022.
Vináttulandsleikir karla
Japan – Paragvæ ..................................... 2:0
Yuya Osako 23., Takumi Minamino 30.
Georgía – Suður-Kórea .......................... 2:2
Jano Ananidze 40., Giorgi Kvilitaia 90. – Ui-
Jo Hwang 47., 85.
Svartfjallaland – Ungverjaland............. 2:1
Nebojsa Kosovic 32., Stefan Mugosa 75.
(víti) – Filip Holender 2.
Norður-Írland – Lúxemborg.................. 1:0
Sjálfsmark 37.
Danmörk
Bikarkeppnin, 2. umferð:
BK Viktoria – SönderjyskE ................... 0:5
Eggert Gunnþór Jónsson lék í 70 mín-
útur með SönderjyskE en Ísak Óli Ólafsson
er með 21-árs landsliði Íslands í undirbún-
ingi fyrir EM-leiki.
Mót U15 stúlkna í Víetnam
Víetnam – Ísland...................................... 0:2
Snædís María Jörundsdóttir 10., 50.
Ísland vann þar með mótið með 7 stig en
liðið sigraði áður Hong Kong, 8:0, og gerði
jafntefli, 1:1. við Mjanmar.
KNATTSPYRNA
Ísland mætir Lúxemborg í
dag á Víkingsvelli í fyrsta
leik sínum í undankeppni
Evrópumóts 21-árs landsliða
í knattspyrnu. Miðjumað-
urinn Daníel Hafsteinsson
segist spenntur fyrir því að
hefja keppnina, en hann
yfirgaf KA á miðju tímabili
og gekk í raðir sænska úr-
valsdeildarliðsins Hels-
ingborg.
Daníel er í 20 manna
landsliðshópnum sem Arnar
Þór Viðarsson og aðstoð-
armaður hans, Eiður Smári
Guðjohnsen, völdu fyrir
leikina gegn Lúxemborg og
Armeníu. Hann hefur spilað
alla þrjá vináttuleikina á
þessu ári og hafði áður leik-
ið fjóra leiki með 21-árs lið-
inu þótt hann sé enn aðeins
19 ára gamall.
Ísland mætir Armeníu á
mánudaginn og fer sá leik-
ur einnig fram á Víkings-
velli. Hin liðin í riðlinum
eru Ítalía, Svíþjóð og Írland.
„Ég er mjög spenntur að
byrja þessa undankeppni.
Þetta eru kannski ekki
sterkustu liðin sem við mæt-
um í fyrstu leikjunum en við
þurfum að hafa fyrir hlut-
unum og að sjálfsögðu ætl-
um við okkur sigur í þess-
um leikjum. Við ætlum
okkur að berjast um efstu
sætin í riðlinum og reyna að
komast áfram,“ sagði Daní-
el fyrir æfingu 21-árs lands-
liðsins í gær, en viðureign
liðanna hefst kl. 17 í dag.
gummih@mbl.is
Ætlum að berjast um efstu sætin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
U21 Arnar Þór Viðarsson þjálfari fylgist með sínum
strákum á æfingu á Víkingsvellinum í gær.
HANDBOLTI
Þýskaland
Flensburg – Erlangen......................... 24:21
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.
Ludwigshafen – Leipzig..................... 34:27
Viggó Kristjánsson skoraði ekki fyrir
Leipzig.