Morgunblaðið - 06.09.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.09.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mikil áhersla er lögð á öryggismál við hönnun og útfærslu nýrrar við- byggingar við stjórnarráðshúsið í Lækjargötu. Húsnæðinu verður skipt upp í mismunandi öryggis- svæði og verður hæsta stig öryggis í sérstöku fundarherbergi fyrir þjóðaröryggisráð sem verður í kjallara hússins. Í samkeppnislýsingu vegna byggingarinnar kemur fram að líta þurfi á öryggismál í heildar- samhengi. „Lóð og umhverfi ný- byggingar þarf að útfæra þannig að sem minnst hætta sé á að bílar og farartæki geti keyrt inn á lóð- ina og á byggingar. Æskilegt er að bygging sé eins langt frá almennri umferð og hægt er til að tryggja öryggissvæði fyrir framan bygg- ingar. Möguleiki þarf að vera á að loka innkeyrslu í bílgeymslu með öruggum hætti (ákeyrsluvörn) sem næst götu,“ segir í samkeppnislýs- ingunni. „Fundarherbergi þjóðaröryggis- ráðs (Ö3) verði (gluggalaust) í kjallara, með öruggri tengingu við flóttaleið,“ segir ennfremur. Gætt verður að því að möguleikar verði á óháðum flóttaleiðum vegna bruna og annarra ógna, til dæmis ytri sprenginga. Þá verður öryggisgler sett í allar hliðar byggingarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá for- sætisráðuneytinu eru áform um áðurnefnt fundarherbergi óbreytt en endanleg útfærsla allra rýma byggingarinnar muni þó ráðast við fullnaðarhönnun byggingarinnar. Stefnt er að því að útboð vegna verklegra framkvæmda geti átt sér stað vorið 2021 og að byggingar- framkvæmdir hefjist haustið 2021 og verði lokið á vordögum 2023. Hefur fundað sjö sinnum Þjóðaröryggisráð hefur eftirlit með því að þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland sé framkvæmd í sam- ræmi við ályktun Alþingis og skal vera samráðsvettvangur um þjóð- aröryggismál. Ráðinu er enn frem- ur ætlað að meta ástand og horfur í öryggis- og varnarmálum og fjalla um önnur málefni sem varða þjóðaröryggi. Forsætisráðherra er formaður ráðsins en í því eiga einnig sæti utanríkis- og dóms- málaráðherra, ráðuneytisstjórar ráðuneytanna þriggja, fulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, ríkislögreglustjóri, forstjóri Land- helgisgæslunnar auk tveggja þing- manna. Þjóðaröryggisráð hefur ekki fasta fundartíma en lagt er upp með að það hittist 4-5 sinnum á ári. Ráðið hefur alls fundað sjö sinnum frá því það var stofnað, samkvæmt upplýsingum frá Þór- unni J. Hafstein, ritara þjóðarör- yggisráðs. Fundir þjóðaröryggis- ráðs hafa farið fram í Safnahúsinu, á öryggissvæðinu á Keflavíkur- flugvelli og í sérstöku öryggisrými fyrir fundahöld og örugg samskipti í húsakynnum utanríkisráðuneytis- ins. Þá hefur ráðið fundað í fund- araðstöðu á Stjórnarráðsreitnum sem hlotið hefur sérstaka öryggis- vottun ríkislögreglustjóra vegna fundarins. Viðbygging Verðlaunatillaga arkitektastofunnar Kurt og pí um viðbyggingu við stjórnarráðið í Lækjargötu. Sérútbúið fundarherbergi fyrir þjóðaröryggisráð  Fyllsta öryggis gætt í viðbyggingu stjórnarráðshússins Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Alls fengu 80 fyrirtæki skrifleg til- mæli um úrbætur í kjölfar heim- sóknar frá vettvangseftirliti Ríkis- skattstjóra í sumar. Rekstur var stöðvaður hjá tveimur fyrirtækjum. Þetta kemur fram í svari Ríkis- skattstjóra við fyrirspurn Morgun- blaðsins. Samkvæmt upplýsingum frá embættinu var vettvangseftirliti þess í sumar hagað með hefð- bundnum hætti á landsvísu. Fjórir til sex starfsmenn sinntu eftirlitinu og á tímabilinu maí, júní og júlí voru alls 1.040 fyrirtæki og rekstr- araðilar skoðuð. Af þeim er 603 málum lokið án athugasemda. 80 málum var lokið með leiðbeinandi tilmælum en 91 máli lauk með breytingum á reiknuðu endurgjaldi stjórnenda. Þá eru 262 mál enn í vinnslu. Á síðasta ári voru 3.300 fyrirtæki og rekstraraðilar tekin til skoðun- ar. Undanfarin ár hefur verið lögð áhersla á eftirlit með ferðaþjón- ustu, einkum á sumrin. Af 1.040 fyrirtækjum á tímabilinu maí-júlí voru 399 innan ferðaþjónustunnar. Í svari við fyrirspurn Morgun- blaðsins kemur fram að af þessum 399 ferðaþjónustufyrirtækjum var 141 skoðað í framhaldi af umferð- areftirliti á vinsælum ferðamanna- stöðum. Slíkt eftirlit er unnið í samstarfi við lögreglu í viðkomandi umdæmi. „Eftirlitið í sumar hefur aðallega beinst að hópferðarbílum, en einnig að leigubifreiðum t.d. við Leifsstöð og öðrum stöðum þar sem þær hafa biðstöð. Af 399 mál- um innan ferðaþjónustunnar var u.þ.b. 50% lokið án athugasemda. Langflestar athugasemdirnar vörð- uðu reiknað endurgjald eiganda og tengdra aðila,“ segir í svari emb- ættisins. „Þegar eftirlit beinist að hóp- bifreiðum á erlendum númerum og/ eða erlendu starfsfólki á bifreiðum eru teknar niður nauðsynlegar upp- lýsingar til frekari vinnslu og veitt tilmæli um úrbætur eftir atvikum. Hópbifreiðar á erlendum númerum eru þó lágt hlutfall þeirra bifreiða sem vettvangseftirlit hefur beinst að. Hins vegar virðist nokkuð al- gengt að erlendir leiðsögumenn fylgi erlendum ferðamannahópum.“ Skatturinn skellti í lás á tveimur stöðum  Vettvangseftirlit Ríkisskattstjóra skoðaði yfir eitt þúsund fyrirtæki í maí, júní og júlí  80 fyrirtæki þurftu í kjölfarið að gera úrbætur og rekstur tveggja var stöðvaður  Sérstök áhersla á ferðaþjónustu Morgunblaðið/Ómar Ferðamenn við Geysi Ríkisskattstjóri hefur haft eftirlit með fyrirtækjum í ferðaþjónustu í sumar. Brautarholti 24 • 105 Reykjavík • S.: 562 6464 • henson@henson.is SENNILEGA FJÖLHÆFASTA FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI ÍSLANDS OG ÞÓ AÐ VÍÐAR VÆRI LEITAÐ! • FLOTTUSTU BÚNINGARNIR. • ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA FRAMLEIÐSLU EÐA MERKINGAR. • 846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS TIL MERKINGA EÐA EKKI. SÍÐAN 1969 Fyrsta stóra réttahelgi haustsins er um helgina. Í dag verður fé réttað á fáeinum stöðum en víða á laugardag og sunnudag. Sauðfjárbændur víða á Norðurlandi rétta um helgina. Nefna má Hrútatungurétt í Hrúta- firði, Miðfjarðarrétt og Víðidals- tungurétt í Víðidal á morgun, laug- ardag. Af öðrum réttum má nefna Fossrétt á Síðu í dag og Skaftárrétt á morgun. Á sunnudag verður réttað í Hraunsrétt í Aðaldal og Staðarrétt í Skagafirði og í Silfrastaðarétt í Blönduhlíð í Skagafirði á mánudag. Fjárflestu réttir Suðurlands verða um aðra helgi, meðal annars Hruna- réttir í Hrunamannahreppi og Skaftholtsréttir í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi föstudaginn 13. sept- ember, og Reykjaréttir á Skeiðum laugardaginn 14. september. Morgunblaðið/Árni Sæberg Landréttir Göngur og réttir standa nú yfir og tvær næstu helgar. Víða réttað um helgina  Fyrsta stóra réttahelgin er framundan  Réttir í Miðfirði og Hrútafirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.