Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 8

Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 Sósíalistaflokkurinn stóð vörðum háskattastefnuna í borg- arstjórn í vikunni og lagði til að borgarfulltrúar legðu fyrir stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga „tillögu um álagningu út- svars á fjár- magnstekjur“.    Í tillögunnikomu fram áhyggjur af því að á fjármagnstekjur væri ekki lagt útsvar og því þyrfti að fá Samband íslenskra sveitarfélaga til að beita sér fyrir því að Alþingi heimilaði slíka skattheimtu.    Aðrir sósíalistar í borgarstjórntóku undir tillögu borgar- fulltrúa Sósíalistaflokksins og vís- uðu því til borgarráðs til nánari skoðunar.    Áhugavert er að sjá að í þessumskattahækkunarhópi eru ekki aðeins borgarfulltrúar yfirlýstra vinstriflokka á borð við Samfylk- ingu og Vinstri græna, heldur einnig fulltrúi Pírata, sem þykjast stundum vera eitthvað annað en hefðbundinn vinstriflokkur, og fulltrúi Viðreisnar, sem lætur líka stundum eins og flokkurinn sé annars staðar á hinu pólitíska lit- rófi.    Borgarfulltrúar Sjálfstæð-isflokksins voru á hinn bóginn andvígir tillögunni og bókuðu að þeir legðust „alfarið gegn hug- myndum um skattahækkanir, enda eru skattar í Reykjavík í hæstu hæðum.“    Þar kom einnig fram að komiðværi „að þolmörkum fyr- irtækja og heimila í borginni hvað varðar skatta og gjöld,“ sem var fjarri því ofmælt. Sósíalistar allra flokka sameinast STAKSTEINAR Mikil þátttaka er í undirskriftasöfn- un fyrir áskorun á bæjarstjórn Vest- urbyggðar um að hefja undirbúning að byggingu sundlaugar á Bíldudal. Fyrir málinu stendur hópur manna sem hittast í morgunkaffi og spjalli á veitingahúsinu Vegamótum og nefna sig sjálfir „kaffikarlana“ en aðrir uppnefna þá „mafíuna“, væntanlega vegna ítaka þeirra og áhrifa í sam- félaginu. „Það vantar sundlaug hér á Bíldu- dal. Það er ekkert bæjarfélag án sundlaugar,“ segir Hannes Friðriks- son, einn af kaffikörlunum. „Það fyrsta sem ferðamenn spyrja um þegar þeir koma er hvar sundlaugin sé,“ bætir Jörundur Garðarsson við. Rökin fyrir óskinni um sundlaug eru þó þau að það myndi bæta bú- setuskilyrði á staðnum. Gísli Ægir Ágústsson segir að erfitt sé að fá fólk til að flytja út á land og íþróttahús og sundlaug séu meðal þeirra innviða sem fólk vilji hafa aðgang að. Félagarnir benda á að íbúum fjölgi stöðugt vegna uppbyggingar í at- vinnulífinu og börnum þar með og ekki eigi að þurfa að aka þeim í önn- ur byggðalög til þess að kenna þeim sund. Fyrirtækin vilja aðstoða Til stendur að afhenda bæjar- stjórn undirskriftalistana með við- höfn í næstu viku. Hannes segir að tvö stærstu fyrirtækin á staðnum, Arnarlax og Íslenska kalkþörunga- félagið, hafi lýst yfir stuðningi við áskorunina. Nú þurfi bæjarstjórn að kjósa nefnd til að vinna að málinu, meðal annars að kanna hvað fyrir- tækin á staðnum eru tilbúin að leggja af mörkum við byggingu sundlaugar. helgi@mbl.is Vilja fá sund- laug á Bíldudal  „Kaffikarlar“ safna undirskriftum Ljósmynd/Guðmundur Valgeir Magnússon Bíldudals grænar Íbúum á Bíldudal hefur fjölgað mjög á síðustu árum. Students for Liberty Iceland og American Institute for Economic Research halda alþjóðlega ráðstefnu fyrir ungt fólk á öllum aldri í salnum í Kópavogi, Hamraborg 6, föstudaginn 6. september kl. 17 og fram úr með kaffi- og matarhléum. Davíð Oddsson ritstjóri, sem var forsætisráðherra lengst allra manna á Íslandi, setur ráðstefnuna með ávarpi, horfir um öxl og lítur fram á við. Prófessor Hannes H. Gissurarson lýsir blágrænum kapítalisma og ræðir m. a. um fiskistofna á Íslandsmiðum, fíla í Afríku og regnskóga í Suður-Ameríku. Daniel Hannan, leiðtogi Íhaldsflokksins breska á Evrópuþinginu og forystumaður breskra útgöngusinna, rökstyður alþjóðlegt viðskiptafrelsi samfara varðveislu þjóðlegra verðmæta. Prófessor Edward Stringham, höfundur nýrrar bókar hjá Oxford University Press um sjálfsprottið samstarf, rekur dæmi um þá miklu möguleika, sem frjálsir markaðir búi yfir. Halla SigrúnMathiesen, viðskiptastjóri og formaður Stefnis í Hafnarfirði, slítur ráðstefnunni með nokkrum orðum um viðhorf og verkefni ungs fólks. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. FRELSIOGFRAMTÍÐ Davíð Oddsson Halla Sigrún Mathiesen Hannes H. Gissurarson Daniel Hannan Edward Stringham Alþjóðleg ráðstefna Salnum í Kópavogi, Hamraborg 6 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Eisenhower kom 1955 og Nixon 1956 Í grein um heimsókn Lyndons B. Johnson varaforseta Bandaríkjanna til Íslands 1963 í blaðinu í gær var mishermt að svo háttsettur gestur frá Bandaríkjunum hefði ekki áður komið til Íslands. Dwight Eisen- hower forseti hafði tveggja tíma við- dvöl á Keflavíkurflugvelli 16. júlí 1955 og snæddi þar hádegisverð í boði ríkisstjórnarinnar. Á Þorláks- messu 1956 kom hér við Richard Nixon, þá varaforseti Bandaríkj- anna, og hitti forseta Íslands og rík- isstjórn. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.