Morgunblaðið - 06.09.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.09.2019, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 ✝ Einara Magn-úsdóttir fædd- ist í Reykjavík 16. júní 1934. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 29. ágúst 2019. Foreldrar henn- ar voru Kristín Guðmundsdóttir, f. 29. júlí 1888, d. 1. október 1972, og Magnús Magn- ússon, f. 22. október 1874, d. 3. nóvember 1975. Systkini hennar voru Einara Magnúsdóttir, f. 22. júlí 1910, d. 29. ágúst 1933. Guðmundur Stefán Magnússon, f. 28. nóv. 1912, d. 23. maí 1914. Skúli Hafsteinn Magnússon, f. 29. nóv. 1914, d. 1. nóv. 1976. Ingvar Magnússon, f. 27. júní 1918, d. 20. feb. 1920. Guð- mundur Þórir Magnússon, f. 27. júní 1918, d. 21. feb. 2000. Magnús Aðalsteinn Magn- ússon, f. 9. maí 1921, d. 23. apríl 2001. Valtýr Eysteinn Magnússon, f. 12. júlí 1924, d. 8. júní 2019. Gunnsteinn Magnússon, f. 4. des. 1927, d. 12. júlí 2017. Guðríður Bára upp á æskuheimili hennar og var hann í umsjá hennar. Val- ur Magnús Valtýsson, f. 2. ágúst 1952, maki Inga Dóra Jónsdóttir, f. 2. desember 1952, börn þeirra eru Hanna Björk Valsdóttir, f. 22. júlí 1976, maki Björn Viktorsson og eiga þau þrjú börn. Jón Kristinn Valsson, f. 4. maí 1980, maki Vilborg Bjarna- dóttir og eiga þau tvö börn. Kjartan Óli Valsson, f. 24. júlí 1986, maki Elísabet Katla Ey- þórsdóttir og eiga þau tvö börn. Einara ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur í Ánanaustum, Grandavegi og loks í Sörla- skjóli. Að lokinni almennri skólagöngu vann hún ýmis störf í verslun og efnalaug þar til hún gerðist flugfreyja hjá Loftleiðum árið 1956. Árið 1965 flutti fjölskyldan til Bandaríkjanna þar sem Einar starfaði fyrir Loftleiðir og síðar Flugleiðir. Fyrstu ár- in í Bandaríkunum var Einara heimavinnandi en starfaði síð- an m.a. í skólamötuneyti og við skrifstofustörf. Eftir að Einar lét að störfum fluttu þau hjónin til Flórída þar sem þau hafa búið síðustu ár, ásamt því að hafa komið sér upp heimili á Íslandi. ÚtförEinöru fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 6. sept- ember 2019, klukkan 15. Magnúsdóttir, f. 7. mars 1931, d. 3. mars 1999. Einara giftist eftirlifandi eig- inmanni sínum Einari Ásgeirs- syni, f. 5. janúar 1934, þann 15. júlí 1961. For- eldrar hans voru Jónína Sigurð- ardóttir, f. 6. október 1899, d. 2. febrúar 1992, og Ásgeir Guðbjartsson, f. 26. ágúst 1901, d. 28. desem- ber 1977. Börn þeirra eru 1) Ásgeir Einarsson Ásgeirsson, f. 26 mars 1962, maki Patricia Ás- geirsson, f. 23. júlí 1966. Börn þeirra eru Kerrie Anne Ashe, f. 8. júní 1988, Andrew Jón, f. 16. febrúar 1995, og Brandon Einar, f. 13. mars 1997. 2) Anna Lilja Ásgeirsdóttir Bello, f. 24. júlí 1963, d. 30. júní 1995. Synir hennar eru Chri- stopher Einar Bello, f. 7. júní 1988, Stevie Simone Bello, f. 20. september 1993, d. 4. jan- úar 2019. Bróðursonur Einöru ólst Hugurinn leitar leitar aftur til Sörlaskjóls 32, þar bjuggu afi, amma, Gunnsteinn, Ninna og ég en hún kallaði mig litla strákinn sinn. Ég missti móður mína mjög ungur og varð eftir í Skjólunum en hin systkini mín fóru til annarra ættingja. Það var mikið ævintýri að vera í Skjólunum á þessum tíma; Gunnsteinn flugumferðarstjóri og Ninna flugfreyja. Ég var dekurbarnið þeirra sem fékk fullt af nammi, amerísku tyggjói, matchbox-bíla og alls konar dót sem lítið var um á Ís- landi á þeim árum. Seinna kom svo Einar, eiginmaður Ninnu, til sögunar en hann var sjómað- ur á Tröllafossi svo ekki minnk- uðu ævintýrin. Árin liðu, Einar og Ninna fluttu í Goðheima og Ninna hætti sem flugfreyja þegar Ás- geir, fyrsta barn þeirra, fædd- ist. Einu og hálfu ári seinna fæddist svo Anna Lilja og ég var allt í einu orðin hálfgerður stóri bróðir og farinn að passa þau. Árið 1965 breyta þau til, Einar hefur störf hjá Loftleið- um og þau flytja til Bandaríkj- anna. Gegnum tíðina hefur ver- ið mikill gestagangur hjá þeim og fólk dvaldi þar í skemmri og lengri tíma. Ninna hafði gaman af að taka á móti fólki og naut þess að þjóna því. Ninna og Einar ásamt börnunum komu oft heim til Íslands og dvöldu þá í Skjólunum, fyrst hjá afa og ömmu, síðan Gunnsteini. Þá var mikið um að vera og ákveðinn ævintýraljómi fylgdi fjölskyld- unni. Tíminn líður og ég hitti Ingu Dóru og við förum að heim- sækja þau til Bandaríkjannan fyrst í New York og síðan Maryland og loks Flórída. Ávallt vorum við og börnin vel- komin og allt gert til að gera dvölina sem ánægjulegasta. Börnin okkar hafa litið á Ninnu sem ömmu sína enda voru dóta- sendingarnar frá henni og Ein- ari alltaf stórfenglegar. Þau nutu þess að fá þau í heimsókn, vildu allt fyrir þau gera, útvega þeim vinnu og hvað eina. Gegnum tíðina höfum við alltaf verið í mjög miklu og ánægjulegu sambandi við Ninnu. Þar sem minningar mín- ar ná yfir sextíu ár væri hægt að skrifa nærri endalaust. Nú er allt breytt sumarið hefur verið erfitt veikindastríð og komin er kveðjustund. Ég mun- um reyna að létta Einari lífið framundan eins og ég get. Hvíl í friði. Valur Magnús Valtýsson. Ég var aðeins sautján ára þegar ég kynntist Einöru, eða Ninnu eins og hún var alltaf kölluð, en þá hafði ég kynnst bróðursyni hennar, Vali, sem síðar varð eiginmaður minn. Það var ævintýraljómi yfir þessari frænku sem bjó í Bandaríkjunum og kom reglu- lega til landsins. Hún sagði okkur alltaf að Valur væri strákurinn hennar. Hann var þriggja ára þegar móðir hans dó og var hann eftir það hjá föðurforeldrum sínum á æsku- heimili Ninnu en hún var átján ára þegar hann fæddist. Upp- eldið var því svolítið á hennar ábyrgð þessi fyrstu ár. Mér er minnisstætt á þessum upphafs- árum mínum í fjölskyldunni að þegar hún kom til landsins þá spurði hún Val hvort hann hefði farið til tannlæknisins, benti á að hann þyrfti að fara í klipp- ingu eða annað sem henni fannst þurfa að vera í lagi. Hún var kona sem vildi hafa alla hluti á hreinu og hafa stjórn á umhverfinu í kringum sig og þoldi illa óreiðu. Bar virðingu fyrir hlutum og hafði ánægju af að hafa fína hluti í kringum sig. Hún naut þess að fylgjast með fjölskyld- unni, hafði áhuga á og vildi vita hvað börnin væru að gera og hvernig þeim gengi í námi og starfi. Reglulega fórum við með alla fjölskylduna í heimsókn til hennar, hún hafði gaman af að hafa börnin í kringum sig. Einnig naut hún þess að þjóna og dekra við okkur. Ávallt var hún vakandi fyrir því að engan skorti neitt og þegar hún kom til Íslands kom hún færandi hendi og gætti þess að koma með eitthvað sem hún taldi að væri nýtilegt og okkur vantaði. Hún naut þess að geta fært gjafir og taka þátt í lífi okkar. Síðustu ár hefur sambandið milli okkar verið en nánara og voru að minnst kosti vikuleg símtölin til Flórída og þurfi þá margt að ræða og spjalla. Einn- ig nutum við samveru með henni á Flórída og Íslandi síð- ustu ár. Það er sárt að hugsa til þess að þegar hún loksins var farin að leiða hugann að því að dvelja meira á Íslandi en í Flórída þá gafst henni ekki tími til þess. Hún var rétt komin til landsins í vor þegar veikindin byrjuðu og er þetta búið að vera erfitt sumar hjá fjölskyldunni. Hvíl í friði, elsku Ninna. Minning þín lifir. Inga Dóra Jónsdóttir. Ég man eftir að vera barn á Long Island, allt svo nýtt og spennandi í Ameríku. Stuttbux- ur alla daga, endalausar teg- undir af morgunkorni og íste, teiknimyndir í sjónvarpinu alla morgna og Ninna að stjana við okkur. Ég man eftir að þeysa fram og aftur götuna í Hicksville á nýjum hjólaskautum og Ninna sat á tröppunum og fylgdist með í hitanum. Ég man eftir verslunarferð í mollið þar sem ég var dressuð fyrir skólann frá toppi til táar. Þegar ég var krakki átti ég allt það flottasta Barbie-dót sem hægt var að finna, jóla- pakkarnir frá Ameríku voru stórir og í þeim var dót sem var ekki að finna á Íslandi á þeim tíma. Ninna kom aldrei til Ís- lands án þess að vera með far- angurinn fullan af Ameríku- góssi. Hún hugsaði alltaf um okkur og gerði allt fyrir okkur systkinin. Ninna fór með okkur inn í borg og sýndi okkur Radio City og Times Square. Ég var ekki mjög gömul þegar ég ákvað í einni heimsókninni til New York að þar skyldi ég einhvern tímann búa og þegar ég sótti um framhaldsnám kom engin önnur borg til greina. Tenging mín við New York er sterk og ég fyllist þakklæti þegar ég hugsa til gamla hússins í Hicks- ville með tennisvellinum í bak- garðinum og ískrandi ljósflugur í kvöldmyrkrinu. Þegar ég gerðist flugfreyja hjá Icelandair var Einar ennþá að vinna fyrir Icelandair í Balti- more. Ég flaug þangað reglu- lega og fór til þeirra í stoppum, Ninna var alltaf búin að elda og svo var egg og beikon í morg- unmat. Og ein skál af kirsu- berjaís í eftirrétt. Svo var setið við eldhúsborðið og spjallað. Og hún gat sagt endalaust af sög- um. Í dag þykir mér vænt um all- ar sögurnar, fortíðin í Vestur- bænum, lífið í Skjólunum. Þær voru margar sögurnar úr flug- inu, þegar hún var flugfreyja hjá Loftleiðum á gullaldarárum Loftleiða, þá var það það flott- asta sem til var og þó Ninna væri löngu hætt að fljúga var hún alltaf fyrrverandi flug- freyja, smekkleg og fín. Svo bættust við sögurnar af öllum barnabörnunum. Ninna hafði svo gaman af öllum krökkunum og gerði allt fyrir þau, hún hugsaði um sitt fólk og barðist fyrir þeim ef því var að skipta. Hún var ákveðin kona með allt sitt á tæru. Elsku Ninna, þú varst ný- komin heim til Íslands þegar þú veiktist. Þú vildir koma heim og þér tókst það. Nú ertu komin til að vera. Við gerum ráð fyrir að Anna Lilja og Stevie taki á móti þér og umvefji þig. Þú varst orðin mjög veik í lokin en alltaf hélt ég að ég myndi eiga eftir næsta spjall, heyra fleiri sögur, þú fórst snöggt en með svo mik- illi reisn. Við kveðjum þig í dag en þú lifir með okkur. Hanna Björk Valsdóttir. Í dag kveðjum við Ninnu frænku eftir stutta baráttu við hinn illvíga sjúkdóm krabba- mein. Við fengum þær fréttir í vet- ur að Ninna og Einar ætluðu að flytja heim í vor eftir að hafa búið í Bandríkjum mest alla sína tíð. Við hlökkuðum mikið til að fá þau heim, enda var Ninna eins konar amma í mín- um huga og þá langamma strák- ana. Það var því ákveðið reið- arslag þegar hún veiktist nokkrum dögum eftir komuna til landsins. Þegar ég var lítill strákur var alltaf mikill spenningur og eft- irvænting þegar maður heyrði að Ninna og Einar væru á leið í heimsókn eða mamma og pabbi á leið til þeirra. Gjafirnar og pakkarnir sem komu frá Am- eríku voru öðruvísi, allt He-man dótið, fjarstýrðu bílarnir o.fl. sem ekki fékkst á Íslandi. Í minni fyrstu heimsókn til Ninnu og Einars í New York, þá sennilega fimm til sex ára gamall, man ég vel eftir því þegar Ninna fór með mig í búð- ina og leyfði mér að velja morg- unkorn. Ég held ég hafi nánast komið með pakka fyrir hvern dag af öllu mögulegu coco puffsi. Einnig er það mér ferskt í minni þegar ég var úti hjá þeim á unglingsárum og Ninna fór með mig á hamborgarastað. Þar fengum við þann stærsta hamborgara sem ég hafði séð. Ég velti því fyrir mér hvernig ég ætti að koma honum ofan í mig og var farinn að líta eftir hnífapörum þegar ég sé að gamla konan tekur hann bara með höndunum og treður hon- um framan í sig. Ég man ég hugsaði, mega ömmur gera þetta? En gerði svo eins. Í þess- ari sömu ferð þá skrapp ég til frændsystkina minna í Phila- delphiu og kom til Ninnu og Einars aftur með fjólublátt hár og hjólabretti undir hendinni. Mér er það minnisstætt að Ninna var nú ekki alveg viss hvernig hún átti að útskýra þetta fyrir mömmu og pabba. Hún bað aftur á móti flugstjór- ann sem ég sat hjá, fram í, á heimleiðinni, að taka mig með í bæinn ef mamma og pabbi neit- uðu að taka við mér í Keflavík. Haustið 2012 fórum við Villa og Bjarni Valur í heimsókn til Ninnu og Einars, sem voru þá búsett á Flórída og áttum ynd- islega dekur daga. Ninna naut þess að passa og leika við lang- ömmubarnið meðan foreldrarnir kíktu í búðir. Þar fékk Villa að smakka kirsuberjaís sem Ninna bar á borð öll kvöld, besti ís í heimi. Sumarið 2013 eignuð- umst við Villa annan dreng, við ekki búin að vera með hann lengi í fanginu þegar við ákváðum að skíra hann Einar í höfuðið á langömmu í Flórída. Minningin um þig mun fylgja okkur. Hvíldu í friði Jón Kristinn, Vilborg, Bjarni Valur og Einar Ingi. Elsku Ninna! Nú er lífsgöngu þinni lokið og þú kvaddir hægt og hljótt eins og þín var von og vísa. Ég náði því miður ekki að kveðja þig en geri það nú hér og þakka fyrir ánægjustundirnar sem við áttum saman. Ég sá þig fyrst er ég dvaldi sem táningur hjá góðum vin- ahjónum ykkar Einars í New York. Þá voru Ásgeir og Anna Lilja lítil börn og mikið dáðist ég að fegurð og yndis- legheitum ykkar allra. Frá ykkur stafaði ávallt hlýja og kærleikur og naut ég þess að eiga samskipti við ykkur þá og ekki síður seinna í lífinu er þið komuð í ófáar heimsóknirnar til mömmu og Kristins í Haukanesið. Á milli ykkar allra var einlæg og falleg vin- átta sem dýrmætt var að fá að vera þáttakandi í. Alla tíð síð- an hafa verið kærleiksbönd á milli okkar sem aldrei rofnuðu þótt samgangurinn minnkaði hin síðustu ár. Alltaf var jafn ljúft að hitta þig því þú skartaðir ekki síður innri fegurð en ytri. Þú lést þér ávallt annt um fjölskyldu mína og fylgdist með okkur alla tíð. Í þinni fjölskyldu varst þú kletturinn sem allir treystu á. Þú upplifðir mikla sorg þeg- ar dóttir þín féll frá í blóma lífsins frá tveimur ungum son- um og ekki síður þegar sá eldri þeirra lést fyrir stuttu síðan. Alltaf stóðstu þó keik og breiddir út þinn hlýja faðm til líknar öðrum. Þú talaðir um sorgina af skynsemi og vaktir aðdáun okkar allra sem fylgd- umst hnípin með. Elsku Ninna, við Guðmund- ur þökkum þér fyrir ánægju- legar samverustundir og send- um þér fingurkoss út í eilífðina. Einnig vottum við Einari, Ásgeiri, fjölskyldu og vinum innilega samúð vegna fráfalls yndislegrar konu. Þig kveð ég með þessum ljóðlínum: Uppi í himinhvolfi háu hefur flug á bólstri bláu fagur engill, flestum kær, frá honum stafar birta skær. Hann gaf úr sínum gæskubrunni gjöful orð og öllum unni. ég honum færi þakkirnar fyrir allt sem eitt sinn var. Íris Dungal. Með þessum fáu orðum vilj- um við minnast Ninnu, eins og hún var ætíð kölluð. Kynni okkar hófust fyrir um 30 árum í árlegum veiðiferðum með sameiginlegum kunningj- um okkar. Á þessum árum bjó hún í Baltimore en þar starfaði Ein- ar, eiginmaður hennar, fyrir Icelandair. Ninna starfaði sem flugfreyja á sínum yngri árum fyrir sama félag sem þá hét Loftleiðir. Oft sagði hún okkur sögur frá sínum störfum þar og þeim aðbúnaði sem flug- fólkið mátti búa við í þá daga. Eitt árið heimsóttum við þau hjónin til Baltimore ásamt sameiginlegum vinum okkar. Við gistum á heimili þeirra og öllum var tekið opnum örmum. Farið var í ógleymanlegar skoðunarferðir um borgina, meðal annars var Hvíta húsið í Wasington heimsótt. Ninna var einstök kona hafði sínar skoð- anir á hlutunum. Hún var ávallt ljúf og kát, góður gest- gjafi og hafði góða nærveru. Hin síðari ár hittumst við ár- visst, bæði í Flórída og hér heima, og áttum saman margar ánægjulegar gleðistundir. Á þessu ári hefur Ninna tek- ist á við erfiðan sjúkdóm sem smám saman ágerðist uns yfir lauk. Við minnumst hennar með hlýju og þökkum það traust sem hún ávallt sýndi okkur. Að leiðarlokum biðjum við algóðan Guð að styrkja Einar og fjölskylduna á þessari erfiðu stundu. Blessuð sé minning hennar. Guðrún og Magnús. Einara Magnúsdóttir Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GEIR SIGURJÓNSSON lést á sjúkrahúsi Siglufjarðar þriðjudaginn 27. ágúst. Útförin fer fram í kyrrþey laugardaginn 7. september klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitina Stráka, reikn. 348-26-2717, kt. 5510791209 og/eða Töfrateppið hjá skíðafélaginu reikn. 348-13-300108, kt. 4704171290. Steinunn Bergsdóttir Sigurjón Hörður Geirsson Ómar Geirsson Þröstur Geirsson Valgerður Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og stjúpmóðir, JO ANN HEARN þroskaþjálfi, lést þriðjudaginn 27. ágúst á líknardeild Landspítalans. Útför fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 9. september klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á samtökin Sjónarhól. Jón Kristján Brynjarsson Jóhanna Bóel Bergmann Guðjón Bergmann Kjartan Hearn Rannveig Jónsdóttir Þuríður Hearn barnabörn, langömmubörn og stjúpbörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.