Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 27

Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019 ✝ Þórður Krist-inn Karlsson fæddist í Seli í Ása- hreppi 5. október 1942. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Reykja- vík 26. ágúst 2019. Hann var sonur hjónanna Karls Þórðarsonar frá Hávarðarkoti í Þykkvabæ, f. 25. janúar 1915, d. 14. mars 1993, og Svövu Guðmundsdóttur frá Seli í Ásahreppi, f. 1. febrúar 1917, d. 3. ágúst 1993. Þórður kvæntist árið 1966 Auði Þorsteins- dóttur, f. 3. apríl 1949. Börn þeirra eru: Karl Svavar Þórðarson, f. 29. október 1966, í sam- búð með Ástu Gísla- dóttur. Dætur Karls eru Sigurborg Selma, f. 9. mars 1989, og Katrín Hildur, f. 28. júlí 1994. Sonur Ástu og uppeldissonur Karls Svavars er Magnús Kári, f. 8. febrúar 2007. Halldór Magni, f. 16. maí 1970. Börn hans eru Oddný Huld, f. 27. febrúar 1995, og Guðni Már, f. 25. júní 2004. Uppeldisdætur Halldórs Magna eru Kara Björk, f. 10. júní 1993, og Aníta Mjöll, f. 21. ágúst 1997. Elísabet Linda, f. 28. desember 1971, í sambúð með Frosta Friðrikssyni. Börn Elísa- betar eru Auður Ýr, f. 20. febr- úar 1990, Darri, f. 25. desember 1995, og Snorri, f. 7. janúar 2000. Dóttir Frosta og uppeldisdóttir Elísabetar Lindu er Vala, f. 21. júlí 2007. Barnabarnabörn Þórð- ar eru sex. Þórður ólst upp í Miðkoti í Þykkvabæ, en árið 1959 fluttist hann með foreldrum sínum til Reykjavíkur. Hann starfaði alla tíð sem bílstjóri, fyrstu árin hjá Friðriki Friðrikssyni í Þykkva- bæ, en lengst af hjá Strætisvögn- um Reykjavíkur og á leigubíla- stöðinni Hreyfli. Útför Þórðar fer fram frá Þykkvabæjarkirkju í dag, 6. september 2019, klukkan 15. Ég sit og læt hugann reika. Pabbi minn er dáinn. Þótt við fjölskyldan höfum vit- að hvert stefndi er sorgin níst- andi. Pabbi er ekki lengur til staðar en minningin lifir. Ó, leyf mér þig að leiða til landsins fjalla heiða með sælu sumrin löng. Þar angar blóma breiða við blíðan fuglasöng. Þar aðeins yndi fann ég þar aðeins við mig kann ég þar batt mig tryggða band því þar er allt sem ann ég, það er mitt draumaland. (Jón Trausti) Góða ferð elsku pabbi minn. Hvíl í friði. Karl Svavar Þórðarson. Elsku pabbi minn hefur nú kvatt þennan heim. Pabbi ólst upp í Þykkvabæ en flutti ásamt foreldrum sínum til Reykjavíkur árið 1959. Fyrstu árin vann hann við vöruflutninga á milli Reykjavík- ur og Þykkvabæjar og því hélt hann áfram tengslum við æsku- stöðvarnar. Pabbi og mamma giftust árið 1966 og árið 1971 festu þau kaup á íbúð í Breiðholti, þar sem þau bjuggu allt þar til heilsa hans leyfði það ekki leng- ur. Síðustu þrjú árin bjó hann á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, aðeins steinsnar frá gamla heim- ilinu, svo það var stutt fyrir mömmu að líta til hans, sem hún gerði daglega ef heilsan leyfði. Elsku pabbi var hæglátur og ljúfur maður. Hann var ekki mikið fyrir at- hyglina en þó var stutt í stríðn- ina og hann elskaði að karpa um pólitík. Hann kaus gamla Al- þýðuflokkinn en vinur hans til margra ára var Alþýðu- bandalagsmaður og fannst pabba fátt skemmtilegra en að fá hann til að þrasa við sig um hverjir væru nú skárri, krat- arnir eða kommarnir. Pabbi hafði einfaldan smekk, hefði verið hæstánægður með að borða saltað hrossakjöt og soðn- ar kartöflur í hvert mál. Hann sagði gjarnan hróðugur frá því að á öldum áður, þegar hart var í ári og aðrir Íslend- ingar nöguðu skósólana sína, hafi Þykkbæingar borðað hrossakjöt með bestu lyst. En hann kunni nú samt gott að meta. Hann var skeptískur í fyrstu þegar maður reiddi fram rétti sem voru honum framandi, en sagði svo alltaf jafn undrandi að þetta væri nú „bara gott“. Þrátt fyrir meira en hálfrar aldar fjarveru hafði hann alla tíð sterkar taugar til heimahag- anna. Hann hafði unun af að tala um æskuárin, rifja upp hve hræddur hann var þegar Heklu- gosið hófst árið 1947 eða segja flissandi frá því þegar hann stal rófum úr matjurtagarðinum hjá Guðmundi kennara. Hann átti þá ósk heitasta að hvíla heima á æskuslóðunum og því er okkur fjölskyldunni bæði ljúft og skylt að fylgja honum þangað síðasta spölinn. Hvíl í friði elsku pabbi minn. Elísabet Linda. Elsku besti afi. Ég og þú vorum alltaf saman í liði. Það er svona það helsta sem situr í hjartanu mínu þegar ég hugsa um þig. Það voru alltaf ég og þú og svo fullorðna fólkið. Það besta sem ég vissi var að kúra í kotinu hjá þér í sófanum undir brúna teppinu. Eða liggja í millunni uppi í rúmi hjá þér og ömmu þar sem þú last fyrir mig svo margar bækur í gegnum tíðina. Mér eru minnisstæðir bíltúr- arnir þegar ég fór með þér í vinnuna og við fengum fríar pylsur og ég hélt að ég væri fyndnust í heimi þegar ég kveikti á hitanum í sætinu þínu í laumi. Þú kenndir mér að svindla í spilum, reddaðir mér fyrstu vinnunni minni og leyfðir mér alltaf að fá smámál í morg- unmat. Ég elskaði púslkvöldin okkar og Þorláksmessur voru dýrmæt- ar því þá fékk ég alltaf að fara til þín og ömmu þar sem við skreyttum jólatréð saman. Nú ert þú farinn en minning- arnar um þig munu hlýja mér það sem eftir er. Afi minn, þú varst alltaf uppáhalds mann- eskjan mín og ég sakna þín meira en ég get sagt. Þín Auður Ýr. Þórður Kristinn Karlsson ✝ Maj-Lis Tóm-asson, fædd Ahlfors, fæddist í Helsinki, Finnlandi, 24. ágúst 1920. Hún lést 16. ágúst 2016. Faðir: Carl Fre- drik Ahlfors, efna- fræðingur, f. 2. júlí 1891, d. 9. mars 1955. Móðir: Sigrid Forsmann, hús- freyja, f. 13. janúar 1891, d. 9. október 1966. Maki: 18. apríl 1957: Benedikt Tóm- asson, skólayfirlæknir, f. 6. des- ember 1909, d. 10. janúar 1990. Dætur Benedikts og stjúpdætur Maj-Lis eru Ragnhildur, f. 8. maí 1943, og Þorgerður, f. 28. febrúar 1945. Maj-Lis tók stúdentspróf í Lahti, Finnlandi árið 1940. Lauk námi við hjúkrunarskóla í Hels- inki 1944. Hún stundaði fram- haldsnám í heilsuvernd í Hels- inki 1947 til 1948. Hún var hjúkrunarkona á barnadeild borg- arspítala í Tam- pere, Finnlandi, 1945 til 1947, heilsuverndar- hjúkrunarkona í Lahti 1948 til 1954, kennari í barna- hjúkrun við hjúkr- unarskóla í Hels- inki 1950 til 1951 og hjúkrunarkona við barnaspítala í Glasgow, Skotlandi, 1954. Hún var for- stöðukona barnaspítala í Kuop- io, Finnlandi 1954 til 1956, hjúkrunarkona á barnadeild Landspítalans í Reykjavík frá 1957 til 1961 og frá 1970 þar til hún lét af störfum sökum aldurs. Hún kenndi barnahjúkrun við Hjúkrunarskóla Íslands 1962 til 1964. Útförin fer fram frá Foss- vogskapellu í dag, 6. september 2019, klukkan 15. Maja giftist afa Benedikt löngu áður en við systur fædd- umst. Alla tíð hefur hún verið eins og amma okkar og við barnabörnin hennar. Maja átti sér annað líf áður en við kom- um til sögunnar og kom það fyrir að við systur fengum að heyra sögur frá heimalandi hennar, Finnlandi. Maja var barnahjúkrunar- fræðingur og vann á spítala í Vetrarstríðinu og sagði hún okkur frá því þegar sprengjur féllu á spítalann. Það hlýtur að hafa verið mikil lífsreynsla fyr- ir unga konu. Maja átti tvo bræður sem hétu Rolf og Fjalar og munum við systur eftir því hvað okkur þótti æskan hennar ævintýra- leg. Börnin þrjú léku sér gjarn- an í skógi og hétu þessum fal- legu nöfnum sem hljómuðu eins og beint úr skáldsögu, en Maja hét fullu nafni Maj-Lis Ahlfors þótt hún hafi þurft að taka sér íslenska nafnið María. Maja kenndi okkur systrum að telja á finnsku og að syngja nokkur lög. Líklega hafa finnsku orðin tapast með árunum en enn munum við búta úr þessum lög- um. Við systurnar eigum yndis- legar minningar frá góðum stundum á Víðimel og í minn- ingunni standa upp úr sund- ferðir í Vesturbæjarlaugina, göngutúrar í Björnsbakarí að kaupa stóra snúða með súkku- laði og hversu notalegt var að fá sér ristað brauð og kakó við litla eldhúsborðið. Svo var mikið spilað og lagð- ir kaplar og var Marías í uppá- haldi. Það var alltaf var gott að heimsækja afa og Maju og fá fisk í ofni eða lambalæri á sunnudögum. Hildur dvaldi mikið hjá afa og Maju sem lítið barn en Maja passaði hana í mörg ár og má segja að myndaðist afar sér- stakt samband á milli þeirra sem hélst út ævina. Hildur, sem flutti til Bandaríkjanna um tvítugt, bauð Maju margoft í heimsókn og átti Maja þar góð- ar stundir með henni og fjöl- skyldunni í Cleveland. Oft dvaldi hún þar í mánuð í senn og lék við barnabarna- börnin sín en Maja þreyttist ekki á að leika við lítil börn enda barngóð með eindæmum. Afi Benedikt lést árið 1990 og hefur því Maja lifað án hans í tæpa þrjá áratugi. Hún náði næstum 99 ára aldri og átti góða ævi. Alla tíð bjó hún á Víðimelnum, allt frá því að hún flutti til Íslands um miðja síð- ustu öld. Alveg fram til um 97 ára aldurs bjó hún ein þar og var heilsuhraust, enda synti hún nær daglega í hálfa öld og var fastagestur í Vesturbæjar- lauginni en það voru einmitt við systur sem komum henni á bragðið með sundferðirnar. Maja mætti galvösk í öll fjöl- skylduboð og sló ekki slöku við þegar kom að því að leika við barnabarnabörnin. Hún dansaði í kringum jóla- tréð eins og unga fólkið, tók þátt í samræðum og var æv- inlega skapgóð. Hún skildi sjálf ekkert í því hversu háum aldri hún hefði náð og sagðist ekki hafa búist við því. En síðustu tvö árin hefur Maja verið að hverfa smátt og smátt inn í annan hugarheim og bjó hún nú síðast á Grund. Nú er komið að kveðjustund og þökkum við systur fyrir öll góðu árin sem við höfðum Maju í lífi okkar. Það var gott að hún fékk loks hvíldina eftir langa ævi. Nú hefur hún hitt Rolf og Fjalar og er gott að hugsa til þess að þau þrjú séu að leik í finnskum skógi. Hildur, Ásdís og Margrét Ásgeirsdætur. Nú er Maja, elsta vinkona mín, látin í hárri elli. Ég var svo lánsöm að kynnast henni sem unglingur og gekk með henni lífsins veg alla tíð. Hún var stjúpa Raggýjar vinkonu minnar og bjó allt sitt líf í Vest- urbænum. Hún tók aldrei bíl- próf og gekk því flestra sinna erinda. Ég komst ekki hjá því að rekast iðulega á Maju á förnum vegi þegar ég bjó í Vesturbæn- um. Alltaf var Maja brosandi og svo innilega glöð að sjá mig. Maja var bjargvætturinn og stólpinn þegar ég hóf búskap. Alltaf var hægt að hringja í Maju þegar unga móðirin vissi ekki alveg hvernig hún átti að takast á við vandamál ung- barna. Hvort heldur var um melt- ingartruflanir eða útbrot að ræða eða bara hvað sem var sem ung móðir hefur áhyggjur af. Alltaf kunni Maja ráð. Maja vissi allt um börn og sjúkdóma enda sérfræðingur í barna- hjúkrun, hún var hjúkrunar- fræðingur að mennt frá Finn- landi. Maja starfaði um tíma í Skotlandi og þar kynntist hún manninum sínum, Benedikt Tómassyni. Maja var alla tíð mjög heilsugóð enda afburðagóður kokkur og vandlát á hráefni. Maja lagði stund á sund hvern dag og í Sundlaug Vesturbæjar hitti maður hana alltaf. Hún var eitt sinn sem oftar í pott- inum þegar Kekkonen, forseti Finnlands, dembir sér ofan í. Maja býður góðan dag og taka þau upp tal saman og þá spyr forsetinn af hverju hún hafi þurft að fara til Íslands til að ná sér í mann. Ekki stóð á svari frekar en endranær. Jú, sagði Mæja, mennirnir í Finn- landi eru svo ósköp ófríðir. Og svo hló hún sínum sérstaka, skæra og skellandi hlátri. Mikil blessun og vellíðan fylgir minningunni um Maju. Brosið hennar mun fylgja mér alla ævi. Margrét Schram. Maj-Lis Tómasson Vináttan vex eins og blómið. Vináttan vefur þig örmum. Vináttan færir þér gleði og sorg. Vináttan lifir í eilífðarborg. Þegar haustið nálgast fölna litir sumarsins og ákveðinn tómleiki tekur yfir. Það sama gerðist þegar ég frétti að elskuleg vinkona til áratuga hefði kvatt þennan heim og horfið til annarra heimkynna. Lífið missti lit og veröldin virt- ist grá og guggin enda kvatt eitt af sínum fegurstu blómum, Lilju. Það eru forréttindi að eiga vini eins og Lilju. Sama hversu langt er á milli eða hversu oft eða sjaldan við hitt- umst, ekkert breytist. Sama vináttan, traustið og kærleik- urinn og eins og við hefðum Lilja Guðmundsdóttir ✝ Lilja Guð-mundsdóttir fæddist 8. desem- ber 1961. Hún lést 23. ágúst 2019. Útförin fór fram 3. september 2019. síðast hist í gær. Það er langur tími í mannsævi frá 15 ára til 50+. Á þeim tíma breytist margt í lífinu og einnig við sjálf og oftar en ekki rofna eða þynnast þau bönd sem tengdu í upphafi. Í dag eru engin orð, sam- bland af söknuði og þakklæti fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman og ylja um hjartarætur. Spjall um heima og geima, fá að sjá lífið frá sjónarhóli sem við sem er- um heilbrigð sjáum ekki í dag- legu lífi, þakklætið fyrir að fá einn dag enn, þakklætið fyrir fólkið sem okkur þykir vænt um. Það er ekki sjálfgefið og ég þakka þér vinkona. Þú hefur skilið svo margt gott eftir hjá okkur sem kveðjum þig að sinni. Elsku Eggert og fjöl- skylda, þið eigið dásamlegar minningar sem ylja í sorginni og verða einungis fegurri með tímanum – þessi Lilja er mín lifandi trú. Liljan ykkar verður alltaf með ykkur. Guðný Sigurðardóttir. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför SIGURÐAR BOGA STEFÁNSSONAR læknis. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjartadeildar og gjörgæsludeildar Landspítalans fyrir umönnun og hjartahlýju. Ragna Hafdís Stefánsdóttir Guðrún Vala Jónsdóttir Sigurbjörn Bogi Jónsson og fjölskylda Okkar ástkæra ADDA KRISTRÚN GUNNARSDÓTTIR frá Brettingsstöðum á Flateyjardal lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 21. ágúst. Útförin hefur farið fram. Aðstandendur þakka starfsfólki lyflækningadeildar sjúkrahússins fyrir afar góða umönnun. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ingveldur Gunnarsdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR HELGADÓTTUR Sóltúni 3, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Sólvöllum, Eyrarbakka. Hafdís Marvinsdóttir Valdimar Bragason Helgi Kristinn Marvinsson Sarah Seeliger Bergný Marvinsdóttir Steingrímur J. Sigfússon Brynja Marvinsdóttir Magnús Baldursson Sjöfn Marvinsdóttir Hilmar Björgvinsson Kristrún Marvinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.