Morgunblaðið - 06.09.2019, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2019
Myndlistar-
maðurinn Jónína
Björg Helgadótt-
ir opnar sjöttu
einkasýningu
sína, Orlof, í
listarýminu
Kaktus á Akur-
eyri í kvöld kl.
20. „Þetta er
fyrsta einkasýn-
ingin mín í tæp
tvö ár. Ég eignaðist barn síðasta
haust og í byrjun hafði ég nægan
tíma til að hugsa en minni tíma til
að búa til verk. Nú er drengurinn
að verða eins árs og verkin streyma
út. Tímabilið eftir að hann fæddist
var áhugavert, þar sem öll rútína
kollvarpaðist og það þurfti að venj-
ast nýjum hlutum á hverjum degi.
Þá urðu til myndir í kollinum sem
svo eru orðnar að fullunnum verk-
um núna,“ skrifar Jónína.
Jónína opnar Orlof
í galleríinu Kaktus
Jónína Björg
Helgadóttir
Síðasta sýning
gallerísins Lista-
stofunnar verður
opnuð í dag kl.
17 en að sýningu
lokinni verður
galleríinu lokað.
We ruined every-
thing nefnist
lokasýningin,
sem stýrt er af
Martynu Daniel
og Claire Paugam. Sýningin er hóp-
sýning átta listamanna sem allir
búa og starfa hér á landi. Allir nálg-
ast listamennirnir verk sín með
kímnigáfunni og taka fyrir þemað
eyðileggingu.
Listamennirnir eru Sean Patrick
O’Brien, Serge Comte, Drengurinn
fengurinn, Logi Leó Gunnarsson,
Claire Paugam, Martyna Daniel,
Anne Rombach og Þröstur Val-
garðsson.
Lokasýning
Listastofunnar
Sean Patrick
O’Brien
Rut Ingólfs-
dóttir og vinir
hennar leika
kammerverk
eftir W.A. Moz-
art í Hlöðunni
að Kvoslæk í
Fljótshlíð á
sunnudaginn kl.
15.
Á efnis-
skránni verða
Óbókvartett í F-dúr KV 370,
Hornkvintett í Es-dúr KV 307 og
Píanókvartett í g-moll KV 478.
Matthías Birgir Nardeau óbóleik-
ari, Jósef Ognibene hornleikari
og Richard Simm píanóleikari
leika einleik með Rut og Júlíönu
E. Kjartansdóttur á fiðlur, Svövu
Bernharðsdóttur og Rut á víólur
og Sigurði Halldórssyni á selló.
Aðgangseyrir er kr. 2.000 og
verður boðið upp á kaffi í hléi.
Kammerverk eftir
Mozart í Hlöðunni
Rut
Ingólfsdóttir
Ljóðlínur Vilborgar Dagbjarts-
dóttur skálds sem meitlaðar höfðu
verið í stein voru afhjúpaðar við
hátíðlega athöfn í gær. Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri afhjúpaði
ljóðlínurnar, sem er nú að finna á
nýju torgi við steinbryggjuna í
miðbæ Reykjavíkur.
Línurnar eru úr ljóðinu „Vetur“,
sem fyrst birtist í bók Vilborgar
Dvergliljur árið 1968.
Torgið er á horni Tryggvagötu
og Pósthússtrætis. Það dregur
nafn sitt af bryggjunni sjálfri og
heitir einfaldlega Steinbryggja.
Vilborg, sem nýverið fagnaði 89
aldursárum, var viðstödd athöfn-
ina ásamt tveimur öðrum skáldum,
Gerði Kristnýju og Sunnu Dís Más-
dóttur. Við athöfnina héldu þær
erindi um skáldskap Vilborgar og
fluttu ljóð eftir hana.
Fleiri verkefni á döfinni
Vilborg er fyrsta skáldið sem er
heiðrað með þessum hætti. Á
Steinbryggju geta vegfarendur,
auk þess að lesa ljóðlínur Vilborg-
ar, sest á skáldabekk, skannað raf-
rænan kóða með snjallsíma og
hlustað á Vilborgu sjálfa fara með
ljóðið „Vetur“. Einnig verður hægt
að hlusta á ljóðin á ensku.
Fyrsta ljóðabók Vilborgar, Lauf-
ið á trjánum, kom út 1960. Auk
ljóðabóka hefur Vilborg skrifað
barnabækur og er hún mikilvirkur
þýðandi.
Reykjavík bókmenntaborg
UNESCO stendur fyrir verkefninu
í samstarfi við umhverfis- og
skipulagssvið borgarinnar.
Reykjavíkurborg mun halda
áfram að gera bókmenntasögu
borgarinnar skil með slíkum
varanlegum hætti í borgarlandinu
samhliða endurnýjun torga og
gatna.
Ljóðlínur Vilborgar
meitlaðar í stein
Morgunblaðið/Hari
Heiðruð Frá athöfninni í gær þar sem Dagur B. Eggertsson heiðraði Vilborgu á hinu nýja torgi, Steinbryggju.
Vilborg er af mörgum talin eitt merkasta skáld þjóðarinnar en hún er einnig afkastamikill þýðandi.
Ljóðið „Vetur“ að finna á nýju torgi Fyrsti vegsaukinn
venjulegt fólk ræður við, eins og
segir í tilkynningu frá RIFF, og
Advocate fjallar um ísraelska lög-
fræðinginn Lea Tsemel, sem
dregst inn í líf skjólstæðinga
sinna.
For Sama er sögð einlægt og
epískt ferðalag inn í reynsluheim
kvenna í stríði og í henni er rakin
saga sýrlenskrar konu og sonar
hennar, Sama. Í Selfie er sjálfum
tveggja 16 ára drengja frá Napolí
breytt í heimildarmynd en dreng-
irnir búa í héraði þar sem mafían
ræður ríkjum.
Fjórar af þeim heimildarmyndum
sem tilnefndar eru í ár til Evr-
ópsku kvikmyndaverðlaunanna,
EFA, verða sýndar á Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Reykjavík,
RIFF, sem hefst 26. september og
lýkur 6. október. Evrópsku kvik-
myndaverðlaunin verða afhent í
Berlín í desember og í Hörpu á
næsta ári.
Heimildarmyndirnar fjórar eru
Push, Advocate, For Sama og Sel-
fie. Push fjallar um hvernig leigu-
verð og verð á húsnæði er alls
staðar að hækka umfram það sem
Fjórar tilnefndra sýndar á RIFF
Sjálfa Úr ítölsku heimildarmynd-
inni Selfie sem sýnd verður á RIFF.
*Heppinn áskrifandi fær að velja á milli
Corolla Hatchback, Corolla Touring Sports
og Corolla Sedan; þriggja glæsilegra Hybrid-
bíla með 1,8 lítra vél í Active-útfærslu.
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/M
O
R
92
31
6
08
/1
9
ÁENDANUM
VELURÞÚ
COROLLU
HEPPINN
ÁSKRIFANDI
verður dreginn út 16. október.
Allir áskrifendurMorgunblaðsins
erumeð í leiknum. Hérmá sjá
valkostina sem einn af áskrif-
endum okkar fær að velja um
þegar hann fær að gjöf nýja
og glæsilega Toyota Corolla.*
Fylgstumeð.