Morgunblaðið - 11.09.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 11.09.2019, Síða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2019 Þú klæðir allt í gull og glans, þú glæðir allar vonir manns, og hvar sem tárin kvika á kinn, þau kyssa geislann þinn. Þú fyllir dalinn fuglasöng, nú finnast ekki dægrin löng, og heim í sveitir sendirðu æ úr suðrinu hlýjan blæ. Þú frjóvgar, gleður, fæðir allt um fjöll og dali og klæðir allt, og gangirðu undir, gerist kalt, þá grætur þig líka allt. Ó, blessuð vertu, sumarsól, er sveipar gulli dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og heiðarvötnin blá. (Páll Ólafsson) Silja Rúnarsdóttir Sólvangi. Elsku amma mín. Það er svo margs að minnast. Þú hefur alla tíð verið svo stór hluti af mínu lífi og okkar fjölskyldunnar. Þú skil- ur eftir þig stórt skarð í hjarta mínu en á sama tíma er það fullt af ást og kærleik. Ég er þakklát fyrir allt það sem þú hefur gefið og kennt mér, þú gerðir heiminn að betri stað. Þær eru mér sérstaklega kær- ar stundirnar heima á efri bæn- um í Sólvangi. Ömmumolarnir í skúffunni hjá speglinum og spila- stokkarnir í kistlinum þínum. Matar- og bakstursilmur sem teygði sig langleiðina á milli bæj- anna. Stundirnar í stofunni þar sem ég kom mér fyrir í horninu í sófanum hjá þér. Þú sast með prjónana og við horfðum á frétt- irnar í sjónvarpinu. Þú varst svo ljúf og góð, barnakerling eins og þú sagðir sjálf. Þú hafðir svo gaman af börnum. Þú varst besti spila- félaginn, enda spilaðirðu mikið við okkur systkinin. Við spiluðum lönguvitleysu, veiðimann, hæ gosa, ólsen ólsen, í grænni lautu og fela hlut, og það var alltaf gaman hjá okkur. Þú tókst marga þykjustusopa og þykj- ustubita í drullubúinu. Ég minn- ist samverustundanna með þér úti í blómagarði, við bæjarlækinn og í kyrrðinni í Vaglaskógi, Garði og út á Flateyjardal. Það var svo gott að sitja í fangi þínu og vera ruggað við kvæði og þó ég væri orðin stór þá var ég alltaf jafn velkomin. Í holunni hans afa var gott að vera. Þá last þú fyrir mig bækur, sagðir mér söguna af Lóló eða söngst vísur. Síðar þegar ég varð eldri fór ég að lesa fyrir þig. Árin liðu og ég fór því miður að gista sjaldnar en koddastundunum okkar yfir miðjan daginn fjölgaði og þú kall- aðir mig koddastelpuna þína. Til þín kom ég og við lásum saman kvæði, þú kenndir mér svo margt og vegna þessa þá finn ég frið í því að setjast niður og glugga í góðar ljóðabækur. Það minnir mig á þig, amma mín. Eftir að Ásgeir kom til sög- unnar þá minntir þú mig oft á að þú ættir nú samt svolítið í mér. Ég sagði þér alltaf að þú ættir það svo sannarlega. Elsku amma mín, þú átt svo mikið í mér. Þú átt svo mikinn þátt í því hver ég er í dag. Þú ert alltaf með mér í hjarta, huga og orðum. Ég mun aldrei gleyma þinni mjúku hönd, milda hlátri og hlýju. Þú varst svo stolt af þínu fólki. Ég mun aldrei gleyma þínu höfðinglega klappi, sem þú splæstir í þegar tilefni var til og þú varst góð í að finna þér tilefni. Ég sé þig fyrir mér á tröppunum heima á efri bæ. Þar stóðstu svo gjarnan og veifaðir til okkar og kallaðir jafnvel á okkur í kaffi. Ég veifa á móti. Þó síðustu dagarnir hafi verið erfiðir þá náðir þú alltaf að koma því til skila hvað þér þótti vænt um okkur. Þú varst orðin þreytt en þakkaðir endalaust fyrir. Þú gerðir allt af svo mikilli alúð og yfirvegun allt til hinsta dags. Ég var svo glöð að geta sagt þér enn eina ferðina frá draumnum mín- um. Hvað ég ætla að verða þegar ég verð orðin stór, því amma ég er enn litla stelpan þín. Þú splæstir í þitt höfðinglega klapp og brostir. Takk fyrir allt amma mín. Þú ert, hefur alltaf verið og munt alltaf vera mín fyrirmynd. Ég elska þig og lofa þér að ég mun passa upp á fólkið okkar. Þín hjartakolla, Líney Rúnarsdóttir, Sólvangi. Gamla íbúðarhúsið í Sólvangi í Fnjóskadal lætur ekki mikið yfir sér og virðist ekki í neinu sam- ræmi við umfangsmikinn bú- rekstur sem Ásdís og Jón Geir ráku í félagsbúi með sonum sín- um. En á góðum stundum rúmaði húsið fjölskylduna alla; börnin níu og afkomendur þeirra og þótt sum væru flutt að heiman komu þau oft í Sólvang með fjölskyld- um sínum. Þegar við bætist að þar var jafnan gestkvæmt var al- gengt að um helgar sæjust 10-15 bifreiðar á hlaðinu og alltaf voru á boðstólum nægar veitingar sem Ásdís og dætur hennar reiddu fram af rausn. Ásdís fæddist í Bárðardal en fluttist árið 1926 með fjölskyldu sinni í Hallgilsstaði í Fnjóskadal, Sama ár fór hún í fóstur til föð- ursystur sinnar, Herdísar Tryggvadóttur, ljósmóður. Hún dvaldi hjá fóstru sinni til níu ára aldurs, fyrstu tvö árin á Húsavík, þar sem þær bjuggu í því merka húsi Hliðsjálf, en árið 1928 fluttu þær í Breiðumýri í Reykjadal og síðar í Litlu-Lauga í sömu sveit. Ásdís átti góðar minningar frá bernskuárunum með fóstru sinni og hún rifjaði oft upp ýmis atvik, m.a. þegar hún þáði þulur Theó- dóru Thoroddsen úr hendi skáld- konunnar sjálfrar. Það var stór stund enda var Ásdís alla tíð mjög ljóðelsk. Eftir níu ára aldur ólst Ásdís upp hjá foreldrum sín- um og systkinum heima á Hall- gilsstöðum og fór snemma að hjálpa til við umönnun yngri systkina og önnur verk sem vinna þurfti. Hún var einnig í kaupa- vinnu á öðrum bæjum við almenn bústörf og aðstoð á heimilum þar sem konur lágu á sæng eftir barnsburð. Hún starfaði líka mörg sumur við Skógrækt ríkis- ins á Vöglum. Ásdís stundaði nám við Barna- skólann í Skógum í fimm vetur, einn vetur við Húsmæðraskólann á Laugum og var hálfan vetur í kvöldskóla í Iðnskólanum á Ak- ureyri. Þótt skólagangan væri stutt nýtti Ásdís námstímann vel sem kom glögglega fram í heim- ilishaldinu í Sólvangi og frábær- lega vel unnu handverki hennar. Ásdís og Jón Geir reistu nýbýl- ið Sólvang úr landi Hallgilsstaða árið 1946 þar sem þau bjuggu upp frá því. Fjölskyldan og bú- störfin voru Ásdísi hugleikin og hún unni átthögunum og landinu. Hlýlegt viðmót einkenndi Ásdísi og mikil umhyggja fyrir sínum nánustu. Tónlist og söngur voru sameiginleg áhugamál þeirra hjóna sem tóku bæði þátt í kóra- starfi. Þau voru virk í félagsmál- um og létu sig varða málefni líð- andi stundar enda voru umræðurnar við eldhúsborðið í Sólvangi oft fjörugar. Í ræðu sem Ásdís flutti undirbúningslaust í Mjólkursamsölunni í Reykjavík, þar sem hún var á ferð í hópi þingeyskra kvenna, gat hún þess m.a. að sveitafólk mætti vera stolt af því hve landbúnaður skapaði mörg störf í þéttbýli. Hún mátti líka vera stolt af því sem og af löngu og gifturíku ævi- starfi sínu. Ásdís og Jón Geir drógu sig út úr búrekstrinum árið 1991 þegar Þórunn dóttir þeirra og Rúnar maður hennar gerðust aðilar að félagsbúinu. Eftir það áttu þau því láni að fagna að geta búið áfram á heimili sínu og Ásdís áfram eftir að Jón Geir lést en í ársbyrjun 2018 flutti hún á Dval- ar- og hjúkrunarheimilið Hlíð þar sem hún naut alúðar og um- hyggju til hinsta dags. Óskar Helgi Albertsson. ✝ Svanfríður(Svana) Kjart- ansdóttir fæddist 28. apríl 1943 á Flateyri við Önund- arfjörð. Hún lést 2. september 2019 á hjúkrunarheimil- inu Ísafold í Garða- bæ. Foreldrar Svönu voru hjónin Guðrún Pálmfríður Guðna- dóttir, f. 1916, d. 1997, og Kjart- an Ólafsson Sigurðsson, f. 1905, d. 1956. Svana var önnur í röð sex systkina. Eldri bróðir henn- ar er Guðvarður, f. 1941, og yngri systkini Berta Guðný, f. 1945, Hlöðver, f. 1948, Sólveig Dalrós, f. 1951, d. 2005, og Elín Oddný, f. 1956, d. 2013. Svana giftist Grétari Haralds- syni, f. 1935, d. 2017, árið 1974 og eignuðust þau fjórar dætur. Leiðir þeirra skildi árið 1986. Dætur Svönu og Grétars eru: 1) Gréta Hrund Grétarsdóttir, f. 1967. Eiginmaður hennar er Gunnar Bjarki Finnbogason, f. 1965. Börn þeirra eru Andri Geir, f. 1989, Svandís Edda, f. 1991, Birkir Darri, f. 1993, og Grétar Snær, f. 1997. 2) Þóra Steinunn Pétursdóttir, f. 1971. Eiginmaður hennar er Jón Óttar Ólafsson, f. 1974. Börn þeirra eru María, f. 1992, Ragnheiður, f. 1999, Bryndís, f. 2008, og Pét- ur Axel, f. 2010. 3) Heiðrún Grétarsdóttir, f. 1979. Eigin- maður hennar er Kristján Hrafn Guðmundsson, f. 1979. Börn þeirra eru Þórir Leó, f. 2009, Ólöf Svana, f. 2013, og Guð- mundur Grétar, f. 2018. 4) Þór- unn Grétarsdóttir, f. 1980. Eiginmaður hennar er Björn Sighvats- son, f. 1980. Börn þeirra eru Marta, f. 2007, Tryggvi, f. 2010, og Óttarr, f. 2015. Langömmu- börn Svönu eru Ylfa Hrund, Trist- an Máni, Gunnar Snær, Heiðar Örn, Elmar Kári, Ernir Karl og Guð- mundur Gauti. Árið 2007 giftist Svana eft- irlifandi eiginmanni sínum, Gunnlaugi Óskari Ragnarssyni, f. 1943. Börn hans eru: 1) Þorvaldur Gunnlaugsson, f. 1964. Eigin- kona hans er Katrín Guðjóns- dóttir, f. 1964. Börn þeirra eru Sigfríð Elín, f. 1994, Theódór Óskar, f. 1997, Jökull Ingi, f. 2001. 2) Helgi Marteinn Gunn- laugsson, f. 1966. Eiginkona hans er Laufey Hrönn Þor- steinsdóttir. Börn þeirra eru Steinar Logi, f. 1990, og Snævar Már, f. 1999. 3) Heiða Björk Gunnlaugsdóttir. Barn hennar er Þorvaldur Logi, f. 2011. 4) Ragnar Gunnlaugsson, f. 1974. Börn hans eru Friðrikka Eva, f. 2011, og Styrmir, f. 2014. Svana ólst upp á Flateyri en flutti ung að heiman til að vinna fyrir sér. Hún vann ýmis störf, s.s. í síld, í verslun, á kaffihúsi og við veisluþjónustu en var lengst af heimavinnandi. Hún greindist með MS-sjúkdóminn 1992 og sótti í seinni tíð þjón- ustu í dagvist MS-heimilisins. Útför Svönu fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 11. september 2019, klukkan 13. Í dag kveð ég ástkæra Svönu mína eftir langa og viðburðaríka samfylgd. Hún hófst með því að Svana bauð mér upp í dans sem hefur staðið í tæp 30 ár. Var samband okkar frá upphafi og alla tíð kær- leiksríkt og við samtaka í leik og starfi. Eignaðist ég þá fjölskyldu aftur með elskulegum börnum hennar og fjölskyldum þeirra sem varð viðbót við mína fjöl- skyldu. Öll hafa þau kynni og sam- skipti verið góð og þar átti Svana mín ríkan þátt. Það var engin deyfð yfir okkur og mörgu að sinna. Á þessum tíma áttum við ánægjustundir á Stekkjarbóli og voru ferðir okkar þangað fjölmargar. Var þar við margt að brasa. Viðhald og end- urbætur bygginga, veiðiskap og fleira, í góðra vina hópi. Við ferðuðumst bæði innan- lands og erlendis til Evrópu og Ameríku. Fórum í golfferðir sem hún tók þátt í af öllu hjarta og ók með mér á golfvöllunum í golf- bílnum. Þá vildi hún safna köngl- um til handavinnugerðar og hafði einnig gaman af því að versla. Alla tíð var hún hörkudugleg þrátt fyrir að búa ekki við fulla heilsu. Hún var framtakssöm á alla lund og kom fjölmörgu góðu til leiðar sem tengt hefur fjöl- skylduna sterkari böndum og kynnum. Hún veiktist af MS-sjúkdóm- inum ung að árum sem fór þó ekki fór alvarlega að há henni fyrr en fyrir um 20 árum. Hún lagði sig alla fram fyrir sig og aðra við að efla starfsemi MS- félagsins til góðs fyrir þá sem hlut áttu að máli og vann þar meðan heilsan leyfði mikið starf við handavinnu í dagvist sinni þar. Hún tókst á við veikindi sín af miklu æðruleysi og dugnaði eins og allt annað. Þau ágerðust og voru henni þung og erfið lengi, en hún alltaf hughraust til síðustu stundar. Hafði gaman meðan heilsan leyfði og naut þess að skemmta sér. Margt þú hefur misjafnt reynt, mörg þín dulið sárin. Þú hefur alltaf getað greint, gleði bak við tárin. (J.Á.) Það var mér mikil gæfa að eignast Svönu sem lífsförunaut og á ég henni mikið að þakka. Að fá einnig að njóta samfylgdar barna hennar, maka þeirra, barna og barnabarna er mér mikils virði og mér mikill styrkur í lífinu. Þau eru mér öll kær og sam- hryggjumst við og börn mín, tengdabörn og barnabörn nú þegar Svana mín er kvödd hinstu kveðju. Ég þakka henni fyrir dásam- lega samfylgd og minnist með hlýju velvildar hennar í garð barna minna og fjölskyldna þeirra. Sæt er heit og saklaus ást, sárt er hana að dylja. Eins og það er sælt að sjást, sárt er líka að skilja (Páll Ólafsson) Guð varðveiti þig. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Þinn eiginmaður Gunnlaugur (Gulli). Svanfríður Kjartansdóttir Mér var orða fátt þegar ég frétti af andláti góðs félaga og vinar til margra ára, Sigurðar Boga Stefánssonar geðlæknis. Í þau ár sem við unnum saman á geðdeild Borgarspítalans kynntist ég góðum mannkostum Sigurðar og varð ég þá þess jafn- framt áskynja hversu vel gefinn hann var, tryggur og vandaður í alla staði. Sigurður var góður vinnufélagi sem gott var að leita ráða hjá og aldrei sló í brýnu milli okkar. Þegar Sigurður stundaði nám í geðlækningum í Svíþjóð lágu leiðir okkar saman í fyrsta Sigurður Bogi Stefánsson ✝ Sigurður BogiStefánsson læknir fæddist 10. ágúst 1956. Hann lést 20. ágúst 2019. Sálumessa fór fram 2. september 2019. sinn, en á þeim tíma starfaði ég á sjúkra- húsi í Falun þar í landi. Þar áttum við ánægjulegar stund- ir saman í fallegu sumarveðri með samstarfsfólki okk- ar. Sigurður hafði þann vanann á að hringja til mín á af- mælisdaginn minn 28. júlí, en núna síðast barst eng- in kveðja frá mínum góða vini vegna slæmrar heilsu hans. Ég gerði mér grein fyrir því hversu veikur vinur minn var orðinn og að stutt gæti verið þangað til bar- áttu hans lyki. Áfallið var samt mikið við fregnir um andlát hans. Ég trúi því að Sigurður sé kominn á góð- an stað. Góðar minningar um góðan mann lifa. Farðu í friði, kæri vinur. Elín Stefánsdóttir. Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Þökkum samúð og hlýhug vegna fráfalls móður okkar, ömmu og langömmu, HJÖRDÍSAR MAGNÚSDÓTTUR, Hrísrima 4. Sérstakar þakkir fæum við starfsfólki Sóltúns, 1. hæð C, fyrir einstaka og ómetanlega umönnun. Ragnheiður Matthíasdóttir Halldór Halldórsson Kristján Matthíasson Guðrún B. Guðmundsdóttir Magnús Matthíasson Nina Brakmann ömmubörn og langömmubörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINN GUÐMUNDSSON frá Mykjunesi í Holtum, Mánatúni 2, lést 22. ágúst á Hrafnistu í Reykjavík. Útför hans fór fram frá Fossvogskapellu 5. september. Þökkum innilega alla samúð og hlýju sem okkur hefur verið sýnd vegna andláts hans. Trausti Steinsson Kolbrún Steinsdóttir Jón Elvar Björgvinsson Guðmundur Steinsson Berglind Steinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN KONRÁÐ ÚLFARSSON, andaðist 4. september á hjúkrunarheimilinu Boðanum Hrafnistu Kópavogi. Útförin verður auglýst síðar. Margrét Andersdóttir Anders Kjartansson Dagbjört Þuríður Oddsdóttir María I. Kjartansdóttir Andrés Eyberg Jóhannsson Úlfar Kjartansson Ingunn Heiðrún Óladóttir barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.