Morgunblaðið - 11.09.2019, Blaðsíða 27
AFP
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2019
Landsins mesta úrval af
settum
FOSSBERG
Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600
Toppasett 3/8”
Vörunr. BHSL34
Verð áður: 17.366 kr.
Verð nú:
14.761 kr. Topplyklasett 1/4” og 1/2”
Vörurnr. BHS560
Verð áður: 32.250 kr. Verð n
ú:
27.413 kr.
„Frammistaða okkar í fyrri hálfleik
var afar svekkjandi,“ sagði Erik Ham-
rén, landsliðsþjálfari karla í knatt-
spyrnu, þegar Morgunblaðið ræddi
við hann að leiknum loknum í Albaníu
í gær þar sem Albanía hafði betur 4:2.
„Við unnum ekki saman sem lið
heldur voru menn að bauka hver í
sínu horni. Fyrri hálfleikurinn var því
í raun slæmur fyrir okkur. Í síðari
hálfleik tókst okkur að þétta raðirnar
og unnum saman eins og við erum
vanir að gera. Okkur tókst að pressa
þá um tíma og jöfnuðum leikinn í tví-
gang.
Í stöðunni 2:2 vorum við ekki í
slæmum málum miðað við hvernig
leikurinn hafði þróast. Við hefðum
getað skorað þriðja markið og komist
yfir en það voru hins vegar þeir sem
skoruðu og komust í 3:2. Ég verð að
segja að þar vorum við svolítið
óheppnir því boltinn fór af Kára í net-
ið og breytti um stefnu. Í þessum leik
skipti fimmta markið geysilega miklu
máli og það réði nánast úrslitum. Eftir
það opnaðist leikurinn auðvitað og
Albanar fengu mikið pláss. Þeir nýttu
sér það vel og skoruðu fjórða markið.
Á heildina litið er niðurstaðan að sjálf-
sögðu svekkjandi.“
Hamrén breytti leikaðferð íslenska
liðsins á milli leikja. Íslenska liðið lék
4-4-2 á heimavelli gegn Moldóvu um
daginn en 5-4-1 í gær. „Við þurfum að
taka mið af andstæðingunum hverju
sinni. Við mættum að þessu sinni liði
sem er með leikmenn sem eru góðir í
að halda boltanum. Við höfum oft
beitt þessari leikaðferð áður en um
daginn áttum við heimaleik þar sem
líklegt var að sóknarfærin yrðu til
staðar.“
Spurður um framhaldið í riðlinum
þegar fjórar umferðir eru eftir af
undankeppninni sagði Hamrén að í
vissum skilningi væru örlög íslenska
liðsins enn í þess höndum. „Við þurf-
um að vinna marga leiki en erfitt er
að segja til um hvort við þurfum að
vinna alla fjóra leikina til að komast
áfram. Vitaskuld veltur það á öðrum
úrslitum. Ef við vinnum þrjá leiki af
fjórum, til að taka dæmi, myndi ég
halda að það gæti dugað til að komast
í lokakeppnina. Við erum því enn með
örlögin í okkar eigin höndum. Okkur
langaði í þrjú stig í kvöld en eitt stig
hefði verið gott. Það tókst ekki en
samt sem áður eigum við enn mögu-
leika,“ sagði þjálfarinn Erik Hamrén.
sport@mbl.is
„Eigum enn
möguleika“
Erik Hamrén sá möguleika í stöðunni 2:2
AFP
Erfitt Jón Daði Böðvarsson glímir við Albana í leiknum í gær.
Þýski ökuþórinn Michael Schu-
macher er sagður hafa verið lagður
inn á Pompidou-sjúkrahúsið í París á
mánudag. Samkvæmt frétt AFP á
hann að gangast undir stofnfrumu-
meðferð hjá frönskum skurðlækni.
Talsmaður sjúkrahússins neitaði að tjá
sig um málið við AFP.
29. desember árið 2013 hlaut hann al-
varega höfuðáverka í skíðaslysi í
Frakklandi og hefur ekki sést opin-
berlega síðan. Ökuþórinn lá lengi á
sjúkrahúsi þar í landi en var fluttur á
sérútbúna gjörgæslu heima hjá sér í
nágrenni Genf tæpu ári síðar. Lítið
sem ekkert er vitað um ástand Schu-
machers en fjölskylda hans hefur
ítrekað sagt heilsu hans einkamál.
Talið er að meðferð Schumachers á
spítalanum hafi lokið í gær og að hann
muni halda til síns heima í dag.
Axel Bóasson lék best af Íslending-
unum sex sem hófu í gær keppni á 1.
stigi úrtökumótanna fyrir Evrópu-
mótaröðina í golfi sem haldið er í Flee-
sensee í Þýskalandi. Axel lék fyrsta
hringinn á 70 höggum eða á tveimur
höggum undir pari vallarins og er
hann í 3.-10. sæti. Andri Þór
Björnsson og Bjarki Pét-
ursson léku á 72
höggum eða á parinu
og eru í 17.-27. sæti.
Rúnar Arnórsson og
Aron Snær Júl-
íusson léku á
einu höggi yfir
pari og eru í
27.-41. sæti
og Ragnar
Már Garð-
arsson lék á
fjórum
höggum yfir
pari.
Eitt
ogannað
Tyrkland og Frakkland eru með
þriggja stiga forskot á Ísland í H-
riðli undankeppni EM karla í
knattspuyrnu eftir leiki gærkvölds-
ins.
Tyrkir tylltu sér á topp riðilsins
þegar liðið vann 4:0-útisigur gegn
Moldóva á Zimbru-vellinum í Chis-
inau í Moldóva. Cenk Tosun skoraði
tvívegis fyrir Tyrki og þá skoruðu
þeir Deniz Turuc og Yusuf Yazuci
sitt markið hvor en staðan í hálfeik
var 1:0.
Frakkar lentu í litlum vandræð-
um með botnlið Andorra á Stade de
France í París þar sem heimsmeist-
ararnir unnu öruggan 3:0-sigur.
Kingsley Coman kom Frökkum yfir
á 18. mínútu og Clement Lenglet og
Wissam Ben Yedder bættu við
tveimur mörkum til viðbótar í síð-
ari hálfleik.
Tyrkir eru í efsta sæti riðilsins
með 15 stig, eins og Frakkar, þar
sem Tyrkir hafa vinninginn á
Frakka þegar kemur að innbyrðis
viðureignum liðanna. Ísland er í
þriðja sætinu með 12 stig og Alb-
anar koma þar á eftir með 9 stig.
Moldóva er í fimmta sæti með 3 stig
og Andorra rekur lestina án stiga.
bjarnih@mbl.is
Ísland missti topp-
liðin fram úr sér
AFP
Tvenna Cenk Tosun skoraði tví-
vegis fyrir Tyrki gegn Moldóva.
1:0 Kastriot Dermaku 32.
1:1 Gylfi Þór Sigurðsson 47.
2:1 Elseid Hysaj 52.
2:2 Kolbeinn Sigþórsson 58.
3:2 Odise Roshi 79.
4:2 Sokol Cikalleshi 82.
I Gul spjöldSokol Cikalleshi (Tyrklandi),
Kári Árnason (Íslandi).
Dómari: Ivan Kruzliak.
Áhorfendur: Rúmlega 5.000.
Albanía: (4-3-3) Mark: Thomas
Strakosha. Vörn: Elseid Hysaj (Amir
Abrashi 72), Berat Xhimshiti
ALBANÍA – ÍSLAND 4:2
(Freddie Veseli 66), Kastriot Der-
maku, Ermir Lenjani (Odise Roshi
62). Miðja: Klaus Gjasula, Ardian Is-
majli, Keidi Bare. Sókn: Sokol Cikal-
leshi, Ledian Memushaj, Rei Manaj.
Ísland: (4-5-1) Mark: Hannes Þór
Halldórsson. Vörn: Hjörtur Her-
mannsson, Kári Árnason, Ragnar
Sigurðsson, Ari Freyr Skúlason.
Miðja: Rúnar Már Sigurjónsson, Ar-
on Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sig-
urðsson, Emil Hallfreðsson (Kol-
beinn Sigþórsson 56), Birkir
Bjarnason (Hörður B. Magnússon
71). Sókn: Jón Daði Böðvarsson
(Viðar Örn Kjartansson 82.)