Morgunblaðið - 16.09.2019, Page 6

Morgunblaðið - 16.09.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði er ekki allt- af meðvitað um rétt sinn og stöðu sem býður hættunni heim. Okkur sem störfum í verkalýðshreyfing- unni er því mikilvægt að eiga virkt samtal við félagsmenn og virkja þá til þátttöku,“ segir Alma Pálmadóttir, félags og kjara- fulltrúi hjá Eflingu - stéttarfélagi. Jafnhliða störfum hjá Efl- ingu er hún fulltrúi í stjórn ASÍ- UNG; deild ungs launafólks í að- ildarfélögum Alþýðusambands Ís- lands. Er hlutverkið þar að beita sér í málaflokkum sem snerta barnafjölskyldur og standa vörð um sjónarmið ungs fólks gagn- vart stjórnvöldum. Þá er ASÍ- UNG ætlað að tryggja að hugað sé að stöðu ungs launafólks í stefnu verkalýðshreyfingarinnar. Á Lýsu, rokkhátíð samtalsins á Akureyri á dögunum, voru fulltrúar ASÍ-UNG og kynntu áherslumál sín. Alma segir að haldið verði áfram á þessari braut. Sjálf muni hún sem fulltrúi Eflingar - stéttarfélags heim- sækja framhaldsskólana og kynna starfsemi stéttarfélaga, sem sé mjög þarft. Hótelgeirinn er hættusvæði Að brotið sé á rétti ungs fólks á vinnumarkaði er sorglega algengt, að sögn Ölmu, rétt eins og komi fram í greiningu ASÍ frá í sumar. Þar var byggt á niður- stöðum könnunar sem leiddi í ljós að ríflega fjórðungur aðspurðra á aldrinum 18-34 ára taldi sig hafa fengið lægri laun en samstarfs- fólkið, 22% töldu sig ekki hafa fengið greitt fyrir alla vinnu, 18% sögðust ekki hafa fengið yfir- vinnu greidda. 17% sögðust ekki hafa fengið skriflegan ráðning- arsamning og 11% sögðu vanhöld á greiðslu á samningsbundnum uppbótum. „Í sumum atvinnugreinum eru mál yfirleitt í lagi en hótel- og veitingageirinn er hættusvæði að þessu leyti,“ segir Alma. „Að undanförnu höfum við hjá Eflingu lagt okkur sér- staklega eftir því að efla trún- aðarmenn okkar úti á vinnustöð- unum, enda er hlutverk þeirra mjög mikilvægt. Trúnaðarmenn eru tengingin milli fólksins sem vinnur störfin og félagsins sem tryggir rétt þess. Þá höfum við líka verið að kynna lífskjara- samningana sem gerðir voru í vor, en þar náðust áfangasigrar í réttindabaráttu meðal annars fyrir unga fólkið. Þar get ég nefnt að nú miðast svonefnd ung- mennalaun við 18 ára og yngri en ekki tvítugt, eins og var. Átján ára eiga allir að fá greitt skv. kjarasamningum, þó við hefðum við hefðum viljað miðað þar við fjárræðisaldurinn, sem er 16 ár,“ segir Alma sem bætir við að fund- ir Eflingafólks úti á vinnustöð- unum séu skemmtilegir og áhugaverð sjónarmið komi þar oft fram. Fylgið sér og málefnalegt „Á fundum hittum við oft fólk sem er fylgið sér, mál- efnalegt og óskar svara við mik- ilvægum spurningum. Sýnir leið- togahæfileika og velst þannig – nánast af sjálfu sér – í hlutverk trúnaðarmanns – sem þarf að hafa bein í nefinu og vera augu og eyru stéttarfélagsins á vinnu- staðnum. Þannig hóf ég starf mitt í þágu launafólks þar sem margt gott er gert.“ Efling kynnir starfið og eflir trúnaðarmannakerfið á vinnustöðum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kjaramál „Að brotið sé á rétti ungs fólks á vinnumarkaði er sorglega algengt,“ segir Alma Pálmadóttir hjá Eflingu - stéttarfélagi. Virkja fólk til þátttöku  Alma Pálmadóttir er fædd í Reykjavík 1986. Hóf störf við umönnun hjá þjónustuíbúðum aldraðra Dalbraut hjá Reykj- arvíkurborg 18 ára og vann í 14 ár. Hún útskrifaðist með BS í sálfræði frá Háskóla Íslands ár- ið 2014 og seinna með diplóma í öldrunarþjónustu.  Árið 2015 gerðist Alma trún- aðarmaður hjá þjónustuíbúð- unum og varð virk í starfi Efl- ingar – stéttarfélags. Er nú félags- og kjaramálafulltrúi hjá Eflingu og er í stjórn ASÍ-Ung. Hver er hún? Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Heilbrigðisráðherra og landlæknir munu á næsta samráðsfundi funda um nýjar upplýsingar um veikindi vegna rafrettunotkunar í Bandaríkj- unum en fréttir af svonefndum far- aldri alvarlegra lungnasjúkdóma þar í landi, sem virðast tengjast notkun á rafrettum, hafa valdið áhyggjum víða um heim. Fram kemur á vef Embættis landlæknis að rúmlega 450 manns hafi veikst af sjúkdómn- um í Bandaríkjunum og að rekja megi fimm dauðsföll til hans. Að því er fram kemur á fréttavef Politiken gáfu heilbrigðisyfirvöld í Danmörku út opinberlega yfirlýs- ingu gegn rafrettum í ljósi farald- ursins í Bandaríkjunum. Þar kemur fram að dönsk heilbrigðisyfirvöld séu þeirrar skoðunar að enginn ætti að reykja rafrettur í ljósi nýjustu upplýsinga um skaðsemi þeirra. Heilsan njóti vafans Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að rík ástæða sé til að fylgjast með nýjum upplýsingum um heilsufarslegar afleiðingar rafrettna og segir að heilbrigðisráðuneytið muni í samráði við Embætti land- læknis funda um hvort mögulega þurfi að endurskoða nýleg lög um rafrettur sem tóku gildi í byrjun mars á árinu. „Mér finnst þessar fréttir gefa til- efni til þess að skoða hvort löggjöfin sem við erum með hér er fullnægj- andi. Af því það verður alltaf að vera þannig að heilsan njóti vafans,“ segir Svandís. Hún segir að á fundinum verði skoðað hvort ástæða sé til að gera eitthvað sambærilegt við það sem heilbrigðisyfirvöld í Danmörku hafa gert með yfirlýsingu sinni. Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoð- armaður landlæknis, staðfestir í samtali við Morgunblaðið að fundur um málið muni fara fram á næstu vikum. Segir hann að enn sem komið er sé of lítið vitað um faraldurinn í Bandaríkjunum. Hann segir að Embætti landlæknis fylgist vel með þessum málum bæði hérlendis og er- lendis en segir að enn hafi enn engin veikindi komið á borð Landspítala sem megi rekja til notkun rafrettna. „Málið með þessar rafrettur er að þó að þetta hafi fyrst komið fram fyrir einhverjum 10-12 árum er það einfaldlega þannig, eins og svo oft í svona málum, að þróunin í samfélag- inu er miklu hraðari en þekkingin er frá vísindalegum sjónarhóli. Svo við erum bara í eltingarleik við að kom- ast að því hvað nákvæmlega það þýðir fyrir líkamann að nota raf- rettur,“ segir Kjartan. Funda vegna lungnasjúkdóms  Tilefni til að endurskoða rafrettulög Morgunblaðið/Hari Veip Lítið er vitað um afleiðingar þess að reykja rafsígarettur. Lungnasjúkdómur » 450 manns hafa veikst af lungnasjúkdómnum í Banda- ríkjunum. » Fimm dauðsföll sem má rekja til sjúkdómsins hafa ver- ið staðfest » Einkennin líkjast dæmigerð- um veikindum í öndunarfær- um, s.s. hósti, mæði og verkur fyrir brjósti. » Allir sjúklingarnir notuðu rafrettur. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Jón Gunnarsson var kjörinn nýr ritari Sjálfstæðisflokksins á flokksráðs- fundi flokksins á Hótel Nordica á laugardag. „Þetta leggst mjög vel í mig. Ég hlakka bara til að fara að sinna þessu af krafti,“ segir Jón í samtali við Morgunblaðið en hann segir að fyrsti dagurinn eftir kjör hafi verið rólegur. Mjótt var á munum milli Jóns og Áslaugar Huldu Jónsdóttur sem einn- ig bauð sig fram en hún hlaut 45,2% atkvæða á meðan Jón fékk 52,1%. „Þetta var alveg viðbúið. Það var nokkuð hart barist og þetta var fjöl- mennur fundur. Það hafa verið uppi þau sjónarmið að það gæti verið skyn- samlegt að sveitarstjórnarmaður skipaði þetta sæti í forystu flokksins,“ segir Jón. „Við reiknuðum alveg með að þetta yrði ekkert afgerandi á hvorn veginn sem væri.“ Jón segist þó hafa verið vongóður um að ná kjöri og segist hafa frekar reiknað með því en öðru. Jón segir að eitt aðaláherslumál hans sem ritari Sjálfstæðisflokksins verði efling félagsstarfs hans um allt land. Segir hann að sterkur grunnur félagsstarfs flokksins sé einn helsti styrkur hans og sérstaða. „Mitt verkefni verður að vera augu og eyru forystunnar hjá fólkinu okkar og stuðla að góðum samskiptum milli okkar og þessa öfluga félagsstarfs og stuðla að eflingu þess í samvinnu við fólkið,“ segir hann. Jón kveðst sjá fyrir sér að reynsla hans í stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar komi til með að nýtast vel í nýja starfinu auk þess sem rík reynsla hans af félagsstarfi og góðar tengingar hans sem hann segir að hafi styrkst enn frekar í starfi hans sem sveitarstjórnarráðherra muni koma sér vel. „Mín bíður auðvitað ekkert annað en það að reima á mig skóna og leggj- ast í víking að hitta okkar fólk og ég hlakka mjög til þess,“ segir hann. Vill efla félags- starf flokksins  Var vongóður um að ná kjöri Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýkjörinn Jón Gunnarsson er ný- kjörinn ritari Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.