Morgunblaðið - 16.09.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.09.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is Þingmenn allra flokka í Suður-kjördæmi hafa lagt fram til- lögu til þingsályktunar um óháða úttekt á Landeyjahöfn. Þar kemur fram að úttektinni skuli lokið eigi síðar en í lok mars 2020. Með þings- ályktunartillögunni er óskað sér- staklega eftir því að svarað verði spurn- ingum um það í fyrsta lagi hvort hægt er að gera þær úr- bætur á höfn- inni að dýpk- unarþörfin minnki verulega eða hverfi. Í annan stað í hverju slíkar úrbætur fælust og hver áætlaður kostnaður væri. Í þriðja lagi, að ef slíkar úrbætur þættu ekki gerlegar, tæknilega eða fjárhagslega, til hvers konar dýpkunaraðgerða þyrfti þá að grípa til að halda höfn- inni opinni árið um kring.    Biðin eftir Landeyjahöfn varlöng, en svo fylltist hún sífellt af sandi. Þá var beðið lengi eftir nýrri ferju, sem nú er komin, en áhöld eru um hvort hún getur siglt allt árið, ekki síst ef sigla þarf til Þorlákshafnar.    Verulega vafasamt er að nýjaferjan geti siglt þangað og þess vegna er alveg nauðsynlegt að Landeyjahöfn verði haldið opinni allt árið og að ráðstafanir verði gerðar til að tryggja að höfnin fyll- ist ekki af sandi þó að veður eða haf- straumar verði óhagstæð um stund.    Miklu munar fyrir samgöngur tilVestmannaeyja að hafa Land- eyjahöfn en hún þarf líka að vera þannig útbúin, og ferjan sömuleiðis, að hún haldist opin allt árið. Enn sem komið er hefur þetta ekki verið tryggt og þingsályktunartillagan því þörf og ástæða til að hraða af- greiðslu hennar. Sumarhöfn var aldrei markmiðið STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það eru alltaf fleiri og fleiri sem hafa áhuga á hráefnunum sjálfum og uppruna þeirra og vilja áhuga- verðar og framsæknar vörur sem framleiddar eru á heiðarlegan hátt. Við tilheyrum þessum hópi fólks og ég vona að það muni skila sér í framleiðslunni,“ segir Sturlaugur Jón Björnsson bruggmeistari sem er einn aðstandenda Öglu gosgerðar sem nú hyggst ryðja sér til rúms. Fyrsta tilraunalögun Öglu gos- gerðar kallast Djöflarót og hefur verið dreift í afar takmörkuðu upp- lagi. Drykkurinn fæst nú á veitinga- staðnum Skál í Hlemmi mathöll og mun rata á fleiri veitingastaði á næstu dögum. Djöflarót er að sögn Sturlaugs gamalt íslenskt orð yfir engiferrót og drykkurinn sver sig í ætt við engiferbjór (Ginger Beer) sem notið hefur sívaxandi vinsælda síðustu misseri. Sturlaugur segir að öfugt við marga erlenda engiferbjóra séu eingöngu notuð náttúruleg alvöru- hráefni í Djöflarót og engin gervi- eða viðbætt bragðefni. Sturlaugur hefur verið viðloðandi Borg brugghús sem hefur verið leið- andi í gerð handverksbjóra er slegið hafa í gegn hér á landi. Meðfram þeim störfum hefur hann gert til- raunir í að framleiða gos sem nú verður sett á markað. Sama hug- mynd liggur að baki gosgerðinni og bjórgerð Sturlaugs; að vanda til verka og nota hágæða hráefni. „Við erum með allskonar upp- skriftir í pípunum, allt frá endur- gerð á gömlum gosdrykkjarstílum sem ekki hafa sést í áratugi hér- lendis, yfir í nýjar og framsæknari hugmyndir. Við höfum verið að gera tilraunir með íslenskt hráefni og er- um virkilega spennt yfir því að klára þær,“ segir Sturlaugur. Hann segir að Agla framleiði ekki heilsu- drykki en forsvarsmönnum hennar sé annt um leiðréttingu skammta- stærða almennings. „Við veljum gæði umfram magn. Það er bannað að þamba!“ Ný gosgerð lítur dagsins ljós  Íslenskur engi- ferbjór fyrsta var- an á markaðinn Morgunblaðið/Hari Fyrsti sopinn Sturlaugur Jón Björnsson og María Sif Daníelsdóttir á veit- ingastaðnum Skál þar sem Djöflarót, fyrsta vara Öglu, er nú fáanleg. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu á morgun leggja fram tillögu í borgarstjórn um að samþykkt verði að auka sveigjanleika afgreiðslutíma stofnana og fyrirtækja borgarinnar og stuðla að því að aðrir atvinnurek- endur geri hið sama með það að markmiði að minnka álagstoppa í um- ferð. Samkvæmt tillögunni skuli sam- göngustjóri vinna tillögur ásamt svið- um borgarinnar, sérstaklega skóla- og frístundasviði og velferðarsviði. Auk þess skuli vinna með dótturfyr- irtækjum og öðrum stofnunum Reykjavíkurborgar og stórum stofn- unum ríkisins eins og háskólunum og Landspítala. Markvissar tillögur skuli liggja fyrir eigi síðar en í desem- ber 2019. Í greinargerð er fylgir tillögu sjálf- stæðismanna segir að skipulagshalli sé mikill í borginni sem sjáist best á því hversu umferð er þung inn í mið- borgina að morgni og út úr henni síð- degis. „Álagstoppar eru sífellt erf- iðari og er nauðsynlegt að dreifa álagi eins og unnt er. Hugmyndir um auk- inn sveigjanleika hafa verið lengi í umræðunni en ekki hefur tekist að ná þeim árangri sem stefnt var að.“ Álagstopp- ar verði minnkaðir  Vilja auka sveigj- anleika afgreiðslutíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.