Morgunblaðið - 16.09.2019, Page 10

Morgunblaðið - 16.09.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is „Á heildina litið hafið þið góða sögu að segja,“ segir Angel Gurria, fram- kvæmdastjóri OECD, sem staddur er hér á landi í þeim tilgangi annars vegar að taka þátt í ráðstefnunni „Að mæla árangur með hagvexti og hamingju“ sem haldin verður í Há- skóla Íslands í dag. Hins vegar ligg- ur leið hans í fjármála- og efnahags- ráðuneytið í dag þar sem hann kynnir OECD Economic Survey of Iceland, úttekt sem unnin er og kynnt á tveggja ára fresti. Gurria segir það stjórnmálamönnum nauð- synlegt að styðjast við fleiri mæli- kvarða á velsæld heldur en hina hefðbundnu. Ráðstefnan er haldin af forsætis-, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, OECD og Wellbeing Economy Go- vernments, þ.e. Skotlandi og Nýja Sjálandi. Á dögunum gaf nefnd for- sætisráðherra út skýrslu um mæli- kvarða um hagsæld og lífsgæði. Þar eru upptaldir 39 mælikvarðar til þess að auðvelda stjórnvöldum að fylgjast með þróun og breytingum í samfélaginu og styðja við stefnumót- un og ákvarðanatöku. Ísland slæmt dæmi um ójöfnuð „Hingað til hefur aukinn hag- vöxtur þótt eftirsóknarverður í tengslum við aukna velsæld, en fólk hélt að velsæld yrði sjálfkrafa til við hagvöxt og ef framleiðni væri meiri,“ segir Gurria. „Nú vitum við að þegar ójöfnuður er mikill, þá stöðvast hag- vöxtur. Við vitum líka að ef stjórn- arstefna byggist ekki á velsæld, þ.e.a.s. ekki afleiddri velsæld, heldur velsæld sem upphafspunkti, þá er hún ekki mikils virði,“ segir hann og nefnir að í dag liggi fyrir skýr dæmi um afleiðingar ójöfnuðar. „Fólk verður reitt og óhamingjusamt,“ segir Garria, en tekur fram að Ísland sé líklega vont dæmi til að taka um ójöfnuð. „Ísland er það land sem hef- ur einna lægstan Gini-stuðul og hér er lítill ójöfnuður almennt. Hér er launajöfnuður og munur hámarks- og lágmarkslauna er ekki svo mikill. Á vissan hátt er hér jafnréttissam- félag og þess vegna er við hæfi að ríki eins og Ísland kalli eftir fundi um velsældarhagkerfi,“ segir hann. Gurria segir það hlutverk OECD að mæla með skynsamlegum leiðum við stefnumótun ríkja, en hann segir ójöfnuð hafa vaxið gríðarlega í lönd- um OECD eftir efnahagshrunið 2008. OECD hafi fylgst náið með í kjölfarið. „Við hugsuðum með okkur: Við vitum hver óvinurinn er, við þekkjum vandamálin og sjúkdóms- greininguna, en hvað gerum við í stefnumótun? OECD er ekki hug- veita, heldur hreyfiafl sem stingur upp á leiðum til þess að fara í stefnu- mótun. Niðurstaðan var stefna um hagvöxt fyrir alla. Stefna þar sem einblínt var á heilbrigðismál, þ.e.a.s. aðgengi, gæði og kostnað við slíka þjónustu, menntun, með sömu mæli- kvörðum og færni, með sömu mæli- kvörðum. Á því sviði horfðum við líka til þess hvaða færni er spurn eft- ir á tækniöld,“ segir hann. Þá hafi verið horft til stjórnvalda, gagnsæis og spillingar hjá hinu opinbera auk aðgengis fólks að tækifærum, þ.e. hvað varðar atvinnu og menntun varðar, færni og aðstæður á vinnu- markaði. „Síðan eru það kynjajafn- réttismál. Oft er mismunun gegn konum ómeðvituð og óviljandi. Það þarf að horfa til þeirra sem minna mega sín, þ.e. fátækra á öllum ald- ursstigum, en það þarf líka að horfa til velsældar þeirra sem yngri eru, eldri, innflytjenda og fatlaðra,“ segir Gurria sem nefnir að álitamál tengd velsæld séu í raun alltumlykjandi. Einn mælikvarði dugi ekki til þess að setja fingur á velsæld í einu ríki og aðstæður séu mismunandi í ríkj- um OECD. Reiðin birtist í stjórnmálunum „Fyrir nokkrum árum kynntum við til sögunnar lífsbætingarvísitöl- una (e. Better life index). Hún snýst um það að hugsa lengra en sem nem- ur vergri landsframleiðslu. Við vilj- um vita meira um það hvaða hluti við þurfum að skoða handan þessara hefðbundnu talna. Þá er ég að tala um lífsgæði fólks og lífsánægju, jafn- vægi í lífi fólks,“ segir Gurria og nefnir nokkrar áleitnar spurningar: „Þarftu að vinna til að lifa eða lifirðu til að vinna? Hve marga tíma vinnur fólk? Upplifir það sig öruggt? Líður fólki eins og það hafi einhvern til- gang í samfélagi sínu? Að það hafi áhrif? Er fólk ánægt með gæði menntunar barna sinna? Hefur fólk aðgang að menningu í löndum sín- um; tónlist, söfnum, leikhúsum? Trú- ir fólk því að það hafi aðgang að rétt- arkerfi?“ segir Gurria og nefnir að reiði fólks vegna lítillar velsældar sjáist vel í óstöðugu stjórnmála- ástandi í mörgum löndum Evrópu og hve langan tíma hefur tekið að mynda ríkisstjórnir í mörgum þeirra síðustu ár. Eru þessir nákvæmari mæli- kvarðar þá mikilvægir stjórn- málamönnum við stefnumótun sína? „Þeir eru ekki mikilvægir, þeir eru algjörlega nauðsynlegir. Við þurfum að geta mælt þessa hluti og lagað það sem upp á vantar. Að öðr- um kosti munum við aldrei skilja hvers vegna fólk er svona reitt. Af því leiðir að við munum aldrei vita hvað þarf að gera,“ segir Gurria sem segir þó aðspurður að mælikvarðar á borð við verga landsframleiðslu muni áfram nýtast. „Slíkir mæli- kvarðar segja ákveðna hluti um stöðu mála,“ segir hann. „Verg landsframleiðsla gefur ákveðna heildarmynd, en ef hún er há og vel- sæld er lítil, þá sýnir verg lands- framleiðsla augljóslega aðeins hluta af allri sögunni,“ segir Gurria. „Þetta snýst ekki um að segja skilið við verga landsframleiðslu sem mælikvarða, heldur að horfa lengra,“ segir hann. En hvernig stendur Ísland sig? „Staða Íslands er góð með hliðsjón af vergri lands- framleiðslu. Þið hafið endurheimt fyrri styrk eftir efnahagskreppuna 2008. Batinn eftir kreppuna verður aftur á móti ekki mældur með einum mælikvarða. Út frá sjónarhóli fjöl- skyldna, jöfnuðar o.fl. er Ísland eitt allra best stadda land OECD, t.d. hvað varðar atvinnuleysi. Í sam- anburði við önnur OECD-lönd geng- ur Íslandi vel, hér eru lífsgæði mik- il,“ segir hann. Stjórnmálamönnum nauðsynlegt  Framkvæmdastjóri OECD segir nauðsynlegt að horfa til fleiri atriða en hagvaxtar og framleiðni  Tekur þátt í ráðstefnu um mælikvarða á velsæld  Mælitækin geti veitt vísbendingar um rót reiði Morgunblaðið/Árni Sæberg OECD Angel Gurria, framkvæmdastjóri OECD, kynnir í dag úttekt á Íslandi sem gerð er á tveggja ára fresti. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við viljum fá eftirlit með fiskeldi hingað á svæðið, þar sem eldið er stundað. Það yrði betra fyrir laxeld- isfyrirtækin og þau og sveitarfélögin hafa kallað eftir því,“ segir Bjarn- veig Guðbrandsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps. Fjöldi starfa hefur skapast við laxeldi í Tálknafirði og Vestur- byggð. Tvær seiðaeldisstöðvar hafa verið byggðar upp í firðinum, Arn- arlax í Bæjarvík og Arctic Fish í Norður-Botni en Bjarnveig nefnir þá síðarnefndu Costco Tálknafjarð- ar vegna stærðar hússins. Þá hafa bæði fyrirtækin hafið laxeldi í firð- inum og komið sér upp aðstöðu í þorpinu. Geta snúið aftur heim „Fólk fær vinnu við þetta, bæði þeir sem vilja búa hér áfram og þeir sem farið hafa í burtu, til dæmis í fiskeldisnám, og geta nú snúið heim aftur,“ segir Bjarnveig. Hún segir að fiskeldið hafi komið á góðum tíma því það hafi verið áfall þegar Þórs- berg lokaði fiskvinnslu sinni á árinu 2015 og seldi kvótann í burtu. Fólk þurfi að hafa vinnu, annars flytji það sig eitthvað annað. Hún getur þess einnig að mikil umsvif fylgi uppbyggingu fiskeldis- ins sem nýtist öðrum fyrirtækjum. Fólkið sem við það vinnur þurfi að gista og borða og það hafi hjálpað ferðaþjónustunni. Á þönum með posann Bjarnveig er hrifin af hugmynd- inni um að íbúar landsbyggðarinnar fái skattaafslátt. Það yrði hvatning til fólks um að flytja út á land. „Það er orðið svo mikið öngþveiti í Reykjavík en slík hvatning gæti orð- ið til þess að fólk vildi stíga skrefið og flytja út á land,“ segir hún. Bjarnveig er forstöðumaður íþróttamannvirkja á Tálknafirði og rekstur tjaldsvæðisins fellur undir hennar verksvið. Hún segir að ferðaþjónustan hafi gengið mjög vel í sumar. Þannig hafi verið nærri 4.100 gestir á tjaldsvæðinu í júlí, mest Íslendingar. „Ég var á stöð- ugum þönum með posann,“ segir hún. Tjaldsvæðið er við sundlaugina og þykir aðstaðan góð. Þannig hafi verið met í aðsókn að sundlauginni marga daga í sumar. Vilja fá eftirlit með fiskeldinu vestur á firði  Oddviti Tálknafjarðarhrepps vill skattaafslátt fyrir íbúa Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Oddviti Bjarnveig Guðbrandsdóttir sinnir skólabörnum í sundlaug og íþróttahúsi á vetrum og ferðafólki á tjaldsvæði og í sundi á sumrin. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Rúmlega 20 sauðfjárbændur hafa sótt um að gera aðlögunarsamninga við ríkið og hyggjast fækka upp und- ir 5.000 fjár samtals. Í aðlögunar- samningi felst að viðkomandi bóndi dregur saman í sauðfjárrækt og snýr sér að annarri starfsemi á jörð sinni en heldur meginhluta styrkja ríkisins. Búvörusamningum ríkisins og sauðfjárbænda var breytt eftir að verðhrun varð á kindakjöti fyrir tveimur árum vegna erfiðleika í út- flutningi. Tilgangur breytinganna var að stuðla að betra jafnvægi framboðs og eftirspurnar fyrir kindakjöt, meðal annars með því að fækka fé og draga úr framleiðslu. Ákveðið var að bjóða bændum sem vildu hætta búskap eða fækka fé að- lögunarsamninga. Átti að fækka um 10% Markmiðið var að fækka vetr- arfóðruðum kindum um 10% og var miðað við fjöldann haustið 2016. Það þýddi 7.800 fjár. Frestur til að sækja um aðlögunarsamning rann út 10. þessa mánaðar. Síðdegis síðastliðinn föstudag höfðu borist umsóknir frá rúmlega 20 bændum til Framleiðni- sjóðs landbúnaðarins sem annast framkvæmd málsins þar sem lýst er áformum um að fækka um 4.500 til 5.000 fjár í haust og næsta haust. Það þýðir að markmiðin nást ekki í haust en Sigríður Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Framleiðnisjóðs, veltir fyrir sér þeim möguleika að slíkir samningar verði aftur í boði næsta haust, fyrst svona fór. Samningarnir sem bændur gera gilda í fjögur ár, frá næstu áramót- um að telja. Þeir halda stórum hlut- um af þeim styrkjum sem þeir hefðu fengið með áframhaldandi fram- leiðslu. Skilyrðið er að þeir byggi upp nýja búgrein á býlinu, breyti um búskaparhætti eða hasli sér völl á öðrum sviðum, meðal annars til að stuðla að nýsköpun og náttúruvernd. Morgunblaðið/Eggert Kindur Talið er að fækka þurfi fé um tæplega 8.000 í heildina. Bændur vilja fækka um allt að 5.000 fjár  Fá stuðning til að byggja upp nýtt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.