Morgunblaðið - 16.09.2019, Side 11

Morgunblaðið - 16.09.2019, Side 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég hef ekki losnað viðsaltbakteríuna frá því égfékk hana fyrir þrjátíu ár-um þegar ég starfaði hjá Sjóefnavinnslunni á Reykjanesi þar sem framleitt var flögusalt. Margir sem hafa komið nálægt framleiðslu á salti tala um að saltbakterían sé skæð, en engin skýring er til á því hvers vegna fólk verður svo upptekið af saltinu sem raun ber vitni. Ég veit að miklu fleiri eru undirlagðir en við Helgi, en hann fékk bakteríuna um aldamótin 2000 þegar hann leysti mig af í vinnunni. Þá fór hann að fikta með nýja aðferð við að framleiða heilsusalt og datt niður á þá sérstöku aðferð sem við notum núna,“ segir Egill Einarsson en hann og Helgi Sigurjónsson, sem báðir eru efna- verkfræðingar og eigendur fyrir- tækisins Arctic Sea Minerals, hafa sett á markað heilsusalt sem er lág- natríumsalt. „Sérstaðan í sjávarsaltinu okkar Helga er efnasamsetningin, en hlut- fall þeirra steinefna sem eru í hverju saltkorni er það sama og í blóði okkar mannfólksins. Það er því ekki tilviljun að við köllum þetta Lífssalt eða Life Salt. Við erum í raun að búa til sjó í föstu formi, því með vinnsluaðferð okkar fáum við öll steinefnin sem eru í sjónum í sama korni, og öll kornin eru eins. Það er allt öðruvísi en í sam- bærilegu heilsusalti sem er hér á markaði. Okkar salt inniheldur 60 prósent minna af natríumjónum en annað borðsalt, sem skiptir miklu máli fyrir heilsuna, þar sem ofneysla á natríum getur aukið líkur á hjarta- og æðasjúkdómum. Salt sam- anstendur af jónum sem gegna gríð- arlega mikilvægu hlutverki í lík- amanum þar sem þær stýra öllu efnajafnvægi hans. Ef þetta jafnvægi raskast fer vökvajafnvægi líkamans úr skorðum og vökvi safnast fyrir í frumum okkar, en ein afleiðing þess er hár blóðþrýstingur og bjúgsöfnun. Því skiptir máli hvernig saltið er sam- sett og lágnatríumsalt okkar Helga er því innlegg í baráttuna við há- þrýsting og hjarta- og æðasjúkdóma. Þeir sem eru með háþrýsting geta borðað eins mikið og þeir vilja af okk- ar salti, því þeir fá alltaf rétt hlutfall af jónum,“ segir Egill. Hann bætir við að Íslendingar noti mikið salt í mat- reiðslu og meðalskammtur sem fólk á Íslandi innbyrðir á dag er tíu grömm en ráðlagður dagskammtur af salti er fjögur grömm. „Þar sem venjulegt borðsalt er að mestum hluta natríum- klóríð borðum við tvöfalt of mikið af natríum og í ljósi þess geri ég ráð fyr- ir að fólk taki lágnatríumsaltinu fagn- andi.“ Vilja helst fá borholusjó Egill segir þá Helga vera á krossgötum því þeir séu húsnæð- islausir í bili. „Við vorum með verksmiðjuna okkar til húsa í Frumkvöðlasetrinu á Ásbrú en því var lokað í vor. Við pökkuðum verksmiðjunni í gáma en erum með bráðabirgðahúsnæði til að pakka. Við erum að leita að húsnæði og þurfum ekki mjög stórt hús, held- ur af réttri gerð. Helst viljum við að það sé á Suðurnesjum, því við þurfum sjó til saltframleiðslunnar. Við viljum helst fá borholusjó sem er meðal ann- ars aukaafurð hjá orkuframleiðslu- fyrirtækjum, því slíkur sjór er hrein- astur. Allt Reykjanesið er hraun sem er eins og gatasía sem hefur hreinsað sjóinn og hvar sem borað er eftir sjó þar fæst mjög góður sjór. Þess vegna hugsum við Reykjanesið sem fram- tíðarstað fyrir saltframleiðslu okkar, við þurfum einnig ákveðin hráefni til saltgerðar úr jarðsjónum á Reykja- nesi, en 60 prósent af saltinu okkar eru hreinn sjór, afgangurinn er kal- íum sem kemur úr jarðsjónum,“ segir Egill og bætir við að þeir Helgi þurfi verksmiðju sem framleiðir hundrað til þrjú hundruð kíló á dag, til að geta endurnýjað lagerinn reglulega. „Hugsanlega þurfum við svo að stækka eftir tvö ár og fara í að fram- leiða nokkur tonn á dag.“ Nýsköpun og frum- kvöðlastarfsemi þarf sjóði Þeir Egill og Helgi stofnuðu saltframleiðslufyrirtæki sitt Arctic Sea Minerals fyrir sjö árum og fengu einkaleyfi tveimur árum síðar, sem gerbreytti öllu hjá þeim. „Þetta þokast upp á við, en ég hef mestallan tímann verið í fullri vinnu annars staðar og það hefur ver- ið tafsamt að vinna þetta með öðru. Við höfðum líka takmörkuð fjárráð en ástæðan fyrir því að við tórum enn í dag er sú að við höfum fengið styrki frá tækniþróunarsjóði í tvígang. Mik- ill kostnaður fylgir þessu og enn eru litlar tekjur og því eru svona sjóðir nauðsynlegir í nýsköpun. Stofnun tækniþróunarsjóðs er í mínum huga eitt það merkilegasta sem hefur gerst í tengslum við frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun hér á landi,“ segir Egill og bætir við að Lífssaltið þeirra Helga fáist í nokkrum sérbúðum, að- allega ferðamannaverslunum. „Ástæðan fyrir því að við ákváðum að stíla á útlenda ferðmenn er sú að við eigum takmarkað magn af salti, þar sem verksmiðjan er í gámum í bili.“ Undirlagð- ur af salt- bakteríunni „Það skiptir máli hvernig saltið er samsett og lágnatríum- salt okkar Helga er því innlegg í baráttuna við háþrýsting og hjarta- og æðasjúkdóma. Þeir sem eru með háþrýsting geta borðað eins mikið og þeir vilja af okkar salti, því þeir fá alltaf rétt hlutfall af jónum,“ segir Egill Einarsson sem ásamt félaga sínum Helga Sigurjónssyni hefur sett á markað heilsusalt sem inniheldur 60 prósentum minna af natríumjónum en annað borðsalt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Efnaverkfræðingur Egill Einarsson segir sérstöðuna í sjávarsalti þeirra Helga vera efnasamsetninguna. Lífssalt Það er lágnatríumsalt sem skiptir miklu máli fyrir heilsu fólks. BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR SÉRBAKAÐfyrir þig SALATBAR ferskur allan daginn Sunnumörk 2, Hveragerði, og Larsenstræti 5, Selfossi • Sími 483 1919, Almar bakari • Opið alla daga kl. 7-18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.