Morgunblaðið - 16.09.2019, Side 13

Morgunblaðið - 16.09.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019 Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fundar með Jean-Claude Juncker, fráfarandi forseta fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins (ESB), og Michel Barnier, aðal- samningamanni ESB, í Lúxemborg í dag. Forsætisráðherrann fullyrti í samtali við Mail on Sunday í gær að gríðarmiklum árangri í átt að því að ná samningi um Brexit við ESB væri að fagna. Sagðist hann enn fremur vera „mjög öruggur“ um að hann myndi ná útgöngusamningi þegar leiðtogar Evrópusambandsins koma saman 17. október. „Ég mun fara á þennan fund og ná samningi, ég er mjög öruggur um það. Og ef við náum ekki samningi þá förum við út 31. október,“ sagði Johnson. Johnson mun þó mögulega ekki eiga annarra kosta völ en að óska aukins frests á útgöngu Breta, því eins og greint hef- ur verið frá samþykkti lávarðadeild þingsins frumvarp sem skyldar John- son til að sækja um aukinn frest ef samningur er ekki í höfn fyrir fundinn í október. Möguleiki á samningi virðist þó ekki eins fjarlægur og áður en til við- bótar við fullyrðingar Johnsons sagði Stephen Barclay, ráðherra útgöngu- mála í ríkisstjórn landsins, í samtali við Daily Telegraph að mögulegur samningur væri í sjónmáli. Mikið verk væri þó enn óunnið. Bretland eins og Hulk Það vakti athygli þegar Johnson bar Bretland saman við Marvel- myndasöguhetjuna Hulk og sagði að landið myndi brjótast út úr ESB eins og ofurhetjan. „Því reiðari sem Hulk varð því sterkari varð hann, og hann náði alltaf að flýja, sama í hversu krappan dans hann var kominn – og þannig er það í tilfelli þessa lands,“ sagði hann og bætti við: „Við munum fara út 31. október og við munum klára þetta, trúið mér.“ Johnson varð fyrir nokkrum pólitískum höggum um helgina, stærst þeirra var líklega þegar þing- maðurinn Sam Gyimah, sem kosinn var á þing fyrir Íhaldsflokkinn og var um tíma ráðherrra í ríkisstjórn The- resu May, gekk til liðs við Frjálslynda demókrata. Gyimah var í hópi 21 þingmanns Íhaldsflokksins sem Johnson vísaði úr flokknum eftir að þeir greiddu atkvæði með stjórnar- andstöðunni til þess að koma í veg fyrir Brexit án útgöngusamnings. „Ég kýs að halda áfram að berjast fyrir því sem ég hef alltaf trúað á, sem Frjálslyndur demókrati,“ sagði Gyi- mah. Vildi verða uppáhaldið Þá varð Johnson fyrir aukinni gagnrýni þegar endurminningar Davids Camerons, fyrrverandi for- sætisráðherra Bretlands, voru gefnar út í gær. Í bók sinni sakar Cameron Johnson um að styðja Brexit einungis til að auka pólitískan frama sinn. Seg- ir hann að Johnson hafi talið, í að- draganda þjóðaratkvæðagreiðslunn- ar um Brexit árið 2016, að stuðningur hans við útgöngu Breta úr ESB myndi gera hann að „eftirlæti“ íhalds- manna. Þá fullyrðir hann að í laumi telji Johnson að önnur þjóðarat- kvæðagreiðsla eigi að fara fram. Segir Cameron að hann hafi reynt að stöðva Johnson í að ganga til liðs við Brexit-liða með því að bjóða honum embætti ráðherra varnarmála í ríkisstjórn sinni. Johnson hafi hins vegar ekki tekið því, og því „hætt á niðurstöðu sem hann trúði ekki á því það myndi hjálpa honum á frama- brautinni“. AFP Forsætisráðherrann Johnson hefur fullyrt við þjóð sína að samningur náist. Öruggur um að samningur náist  Boris fundar með Juncker í Lúxemborg í dag  Líkti Bretlandi við Hulk  Fyrrverandi ráðherra genginn til liðs við Frjálslynda demókrata  Cameron segir Johnson ekki trúa á eigin málstað Olíufyrirtækið Aramco, sem er í eigu sádi-arabíska ríkisins, lagði í gær allt kapp á undirbúning til að koma framleiðslu aftur í gang á framleiðslusvæðum fyrirtækisins sem urðu fyrir tveimur dróna- árásum á laugardag. Þarf fyrir- tækið tímabundið að leggja niður helming framleiðslu sinnar, sem er um 5% af heildarolíuframleiðslu heimsins, vegna árásanna. Uppreisnarmenn úr röðum Húta í Jemen lýstu yfir ábyrgð á árás- unum. Sagði talsmaður þeirra, Yahia Sarie, að árásum á Sádi- Arabíu yrði haldið áfram ef stríðinu í Jemen lyki ekki, en það hefur nú staðið yfir í á fimmta ár. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur þó hafnað fullyrðingum Húta og bent á Írana. Sagði hann að það væru engin sönn- unargögn sem sýndu fram á að „for- dæmislaus árásin á orkuuppsprettu heimsins“ hefði komið frá Jemen. Íranar hafa í kjölfarið sakað Banda- ríkin um að leika blekkingarleik og sagði utanríkisráðherra Írans, Ja- vad Zarif, að það að kenna Íran um myndi ekki binda enda á hörmung- arnar í Jemen. Olíuverð fer hækkandi Vegna árásanna hafði heims- markaðsverð á olíu byrjað að hækka strax í gærkvöld og hafði verð á Brent-hráolíu hækkað um 18% frá lokun markaða á föstudag- inn. Seint í gærkvöld heimilaði Donald Trump Bandaríkjaforseti að gengið yrði á varabirgðir Banda- ríkjanna af olíu vegna stöðunnar sem upp er komin. teitur@mbl.is Mike Pompeo bendir á Írana  Stærsta olíuframleiðslufyrirtæki í heimi varð fyrir drónaárás  Hútar lýstu yfir ábyrgð  Íranar segja það engan vanda leysa að kenna þeim um AFP Árás Mikinn reyk lagði yfir olíustöðina í Abqaiq í Sádi-Arabíu á laugardag. Bandaríska fánanum var víða veifað á mótmælum í Causeway Bay í Hong Kong um helgina. Millj- ónir innfæddra hafa tekið þátt í mótmælunum sem hafa staðið yfir síðustu þrjá mánuði. Kveikjan að mótmælunum var lagafrumvarp sem hefði heimilað framsal brotamanna til meginlands Kína en mótmælin hafa síðan þróast upp í kröfu um aukið lýðræði. Virðast margir mótmælendur líta upp til lýðræðisríkisins Bandaríkjanna. AFP Bandaríska fánanum víða veifað í Hong Kong Borin hafa ver- ið kennsl á 44 lík sem fund- ust ofan í brunni rétt fyrir utan borgina Guadalajara í Jalisco-ríki í Mexíkó fyrr í mánuðinum. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Líkamsleif- arnar fundust eftir að íbúar í ná- grenninu fóru að kvarta undan óþef en þeim hafði verið komið fyrir í 119 ruslapokum. Samkvæmt heimildum BBC er ofbeldisfyllsta glæpagengi Mexíkó ákaflega virkt í Jalisco-ríki en þetta er í annað skipti á árinu sem fjöldi líkamsleifa finnst í ríkinu. Fram kemur á BBC að líkin hafi verið sundurlimuð og að yfirvöld hafi þurft að setja líkamshlutana saman til að bera kennsl á líkin. Enn eru þó margir líkamshlutar sem ekki hefur náðst að bera kennsl á. MEXÍKÓ Hafa borið kennsl á 44 lík úr brunni Gröf Mikil vinna fór í að grafa upp líkin. Fæðing stúlku í Tennessee í Bandaríkjunum hinn 11. sept- ember hefur vakið nokkra at- hygli en stúlkan fæddist klukkan 9.11 og vó 9 pund og 11 úns- ur. Vakti þessi tilviljun mikla undrun heil- brigðisstarfsmanna samkvæmt fréttavef BBC. 11. september er í daglegu tali kallaður 9/11 eftir árás sem gerð var þann dag fyrir 18 árum á Tvíburaturnana í Bandaríkjunum en um 3.000 manns létu lífið í árásinni. BBC hefur eftir móður stúlk- unnar, sem fékk nafnið Christina Brown, að Christina sé nýtt líf sem komi inn í þá eyðileggingu og tortímingu sem tengist deginum. Er haft eftir foreldrum hennar að þau muni deila merkingu fæðing- ardagsins með henni þegar hún verður eldri. BANDARÍKIN Fæðing 9/11 vakti undrun starfsmanna 9/11 Christina fæddist 11. sept- ember kl. 9.11.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.