Morgunblaðið - 16.09.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019
Til í mörgum
stærðum og ge
Nuddpottar
Fullkomnun í líkamlegri vellíðan
rðum
Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177
60 ára Hlíf er Reykvík-
ingur. Hún er hjúkr-
unarfræðingur að
mennt, með meist-
arapróf í hjúkrun og
diplómu í opinberri
stjórnsýslu frá HÍ, Hlíf
er sérfræðingur í öldr-
unarhjúkrun og vinnur á flæðisviði Land-
spítalans.
Maki: Geir Björnsson, f. 1957, tölv-
unarfræðingur hjá Opnum kerfum.
Börn: Ýrr, f. 1979, Auður, f. 1985, og tví-
burarnir Arnar og Björn, f. 1996, Geirs-
börn. Barnabörnin eru orðin fimm.
Foreldrar: Guðmundur Gunnarsson, f.
1928, d. 2011, byggingaverkfræðingur,
og Anna Júlíusdóttir, f. 1923, d. 2009,
húsmóðir. Þau voru búsett í Reykjavík.
Hlíf verður að heiman í dag með tvíbura-
systur sinni, Hrönn Guðmundsdóttur
Sicari, sem býr í Bandaríkjunum
Hlíf Guðmundsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
HrúturMeð sama áframhaldi mun vinna
þín skila þér arði og ánægju. Leiðbeindu
börnum um hvernig þau eigi að gera
hltuina.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú verður fengin/n til að leysa
vandamál og koma með hagnýtar lausnir.
Margar hugmyndir spretta upp en þú hef-
ur úrslitavaldið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér hefur tekist að halda þér í
góðu formi með reglulegum æfingum.
Slepptu hendinni af kvíðanum og taktu
skref inn í óvissuna miklu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er auðvelt að verða tauga-
trekktur yfir spennandi atburðum, sér-
staklega þegar þeir skipta þig máli. Gerðu
þér far um að hafa samband við gamla vini
í dag.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það vantar eitthvað í þá gátu sem þú
ert að glíma við. Vandamálin hverfa ekkert
fyrir það. Loksins spyr fólk þig .
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu það sem aðrir segja um fyr-
irætlanir þínar sem vind um eyru þjóta.
Beittu þrýstingi til að koma þér á fram-
færi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er alltaf gaman að koma öðrum
skemmtilega á óvart. Hlutirnir eiga ekki að
vera einfaldir, heldur stælir það aðeins
manninn að fá krefjandi verkefni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú skiptir öllu máli að bregð-
ast rétt við aðstæðum. Skrifaðu lista og
þér tekst að koma öllu á honum í verk.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér finnst það skylda þín að
deila vitneskju þinni með öðrum. Þér líður
vel í eigin skinni og láttu engan breyta
þeirri tilfinningu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hugrenningar þínar eru óvenju-
legar í dag. Láttu það ekki á þig fá þótt ein-
hverjir vilji skemmta sér á þinn kostnað.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú stendur fast á skoðunum
þínum í dag og því er hætt við að þú lendir
í deilum. Það er alltaf gaman þegar fólk
hefur mikinn áhuga á manni, sérstaklega
þegar daðrað er.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Straumarnir í vinnunni eru jákvæð-
ir núna. Reyndu að koma hugmyndum þín-
um á framfæri með sem skýrustum hætti.
geta hjálpað og veitt öryggi. Ferða-
lögin juku víðsýni mína og kynntu
mér nýja menningarheima í vestri og
austri. Síðast en ekki síst kynntist ég
fjölda góðra manna um allt land sem
sýndu þessum unga manni með ný-
stárlegar hugmyndir mikinn skilning
Eigin rekstur og sú ábyrgð sem slíku
fylgir er alltaf þroskandi. Nám í ör-
yggisfræðum og síðan mikil ferðalög
og samskipti við erlenda framleið-
endur öryggistækja reyndu á við-
skiptavit mitt, tækniþekkingu og
málakunnáttu. Það er gefandi að
B
aldur Ágústsson fæddist
í Reykjavík 16. sept-
ember 1944. Hann ólst
upp í Hlíðunum, í
Barmahlíð til átta ára
aldurs og síðar í Bólstaðarhlíð þar til
hann stofnaði eigið heimili í Fossvog-
inum. Hann dvaldi á sumrum í sum-
arhúsi fjölskyldunnar á Ölvalds-
stöðum í Borgarfirði og aðstoðaði
bændur í grenndinni.
Móðir Baldurs fórst í hörmulegu
slysi þegar hann var þriggja ára og
hún sjálf aðeins 24 ára gömul. „Að
móðurmissinum frátöldum átti ég
góða æsku og unglingsár. Milli skóla-
vetra vann ég hefðbundin sumarstörf
svo sem byggingavinnu, í frystihúsi
og var til sjós. Á þessum tíma og
fram undir tvítugt starfaði ég mikið í
skátahreyfingunni, síðast sem er-
indreki Bandalags íslenskra skáta.“
Baldur lauk landsprófi og síðan
loftskeytaprófi 1963, lauk grunnprófi
í flugumferðarstjórn 1966, prófi í
vallarstjórn Reykjavíkurflugvallar
1967 og prófi í aðflugsstjórn 1971. Þá
hefur hann stundað nám í þjófavörn-
um, brunavörnum og öðrum öryggis-
málum, einkum í Bretlandi og
Bandaríkjunum.
„Ég var loftskeytamaður á skipum
í nokkra mánuði en réðst síðan til
Flugmálastjórnar Íslands hinn 1.
desember 1963. Ég vann hjá stofn-
uninni í rúm tuttugu ár, síðustu sjö
árin sem varðstjóri í aðflugs- og vall-
arstjórn Reykjavíkurflugvallar.“
Baldur var formaður Félags ís-
lenskra flugumferðarstjóra á tutt-
ugasta og fimmta afmælisári
félagsins.
„Eins og flestir aðrir vaktavinnu-
menn á þeim tíma þurfti ég á auka-
vinnu að halda og varð það til þess að
ég stofnaði eigið fyrirtæki, fyrstu ís-
lensku öryggisþjónustuna, Vara, árið
1969, fyrst sem hlutastarf. Vari gekk
vel og störfuðu um 30 manns hjá
fyrirtækinu þegar mest var. Við
fylgdumst vel með tækniþróun og
innleiddum margar nýjungar, þ.á m.
neyðarhnappa fyrir heimabúandi
sjúklinga sem þá var algjör nýjung
hér á landi en þykir nú sjálfsögð ör-
yggisráðstöfun.
Starfið hjá Vara var lærdómsríkt.
og traust sem ég verð alltaf þakk-
látur fyrir.
Í allmörg ár bjó ég erlendis, aðal-
lega á Englandi og það var góður
skóli. Ég kynntist þjóð- og stjórn-
málum og rak viðskipti með fast-
eignir.“
Baldur var í framboði í forseta-
kosningunum 2004. „Ég hef lengi
haft áhuga á þjóðfélagsmálum. Ég
hef hins vegar aldrei verið í stjórn-
málaflokki heldur reynt að meta
hvert mál út frá þjóðhagslegu sjón-
armiði.
Í dag fylgist ég með þjóðfélags-
málum og skrifa öðru hverju greinar,
oftast í Morgunblaðið.“ Önnur
áhugamál Baldurs eru til dæmis ljós-
myndun, tónlist og ferðalög.
Fjölskylda
Kona Baldurs er Jean Plummer, f.
19.1. 1952, sjálfstæður atvinnurek-
andi. Foreldrar hennar voru hjónin
Arthur Leslie Plummer, f. 7.2. 1907,
d. 19.8. 1958, bifreiðarstjóri í Deal á
Englandi, og Lilian A. Plummer, f.
24.1. 1915, d. 30.6. 1996, kaupkona.
Fyrrverandi eiginkona Baldurs var
Björk Thomsen, f. 28.10. 1945, d. 6.1.
1995, kennari og kerfisfræðingur í
Reykjavík. Þau skildu 1978.
Baldur Ágústsson flugumferðarstjóri – 75 ára
Við Laugaveginn Jean og Baldur árið 2004 þegar Baldur var í forsetaframboði.
Gefandi að geta veitt öryggi
Forstjórinn Baldur við teikniborðið hjá Vara ásamt aðstoðarmanni, en
öryggiskerfin voru hönnuð fyrir hvern og einn viðskiptavin.
40 ára Bjarni fæddist
í Gautaborg og ólst
þar upp og í Lundi og
á Akureyri. Hann er
með doktorspróf í lög-
fræði frá Edinborgar-
háskóla. Bjarni er pró-
fessor í lögfræði við
Háskólann í Reykjavík.
Maki: Hildur Sigurðardóttir, f. 1981,
kennari í Smáraskóla.
Börn: Magnús, f. 2010, Hrafnhildur, f.
2013, Sigurður, f. 2017, og óskírður, f.
2019.
Foreldrar: Magnús Ólafsson, f. 1950,
læknir, og Anna Þóra Baldursdóttir, f.
1950, félagsfræðingur. Þau eru búsett á
Akureyri.
Bjarni Már Magnússon
Til hamingju með daginn
Akureyri Emilía Lexí Birkisdóttir
fæddist 2. janúar 2019. Hún vó 4.300
g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar
eru Þórey Rut Eyþórsdóttir og Birkir
Már Gunnarsson.
Nýr borgari