Morgunblaðið - 16.09.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.09.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019 Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVAÐ VILTU MÉR, HERRA FANGELSISSTJÓRI? ÉG ER ROSALEGA UPPTEKINN!” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að dansa tangó alla nóttina. KONUR ERU ALGER RÁÐGÁTA RÁÐGÁTA SEM ILMAR SÉRLEGA VEL OG HVER ELSKAR EKKI ANGANDI RÁÐGÁTUR? PABBI, ER ÉG GÆDDUR NÆGUM GÁFUM TIL AÐ VERÐA KÓNGUR? SONUR, ÞÚ GÆTIR ORÐIÐ MJÖG GÓÐUR KÓNGUR! EN EF ÞÚ ERT NÓGU GÁFAÐUR, ÞÁ HELDURÐU ÞIG FRÁ STJÓRNMÁLUM! HJÚKRU NARVAK T „RÉTT HJÁ ÞÉR. ÉG VIRÐIST HAFA LÁTIÐ ÞIG HAFA RANGA STÆRÐ. ÞESSAR ERMAR ERU ALLTOF LANGAR.” Dóttir Baldurs og Bjarkar er Dögg, f. 12.11. 1972, framkvæmda- stjóri. Maki: Dominic Nieper, fram- kvæmdastjóri. Sonur þeirra er Theo Nóni, f. 26.4. 2012, þau eru búsett í Reykjavík. Alsystir Baldurs er Helga Ágústs- dóttir, f. 5.5. 1947, kennari í Reykja- vík. Hálfsystkini Baldurs, samfeðra, eru Viðar Ágústsson, f. 9.11. 1950, kennari í Hafnarfirði; Hilmir Ágústs- son, f. 9.2. 1952, kennari í Miami á Flórída, og Auðna Ágústsdóttir, f. 18.7. 1957, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Baldurs voru hjónin Ágúst Sigurðsson, f. 29.4. 1906, d. 9.12. 1977, námsbókahöfundur, stofn- andi og skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur og yfirkennari við Kennaraháskóla Íslands, og Magga Alda Eiríksdóttir, f. 10.11. 1922, d. 6.11. 1947, húsmóðir. Stjúpmóðir Baldurs er Pálína Jónsdóttir, f. 28.7. 1924, kennari og leiðsögumaður. Hún er búsett í Kópavogi. Baldur Ágústsson Rannveig Árnadóttir húsfreyja á Bræðraminni Kristján Jónsson bóndi og sjómaður á Bræðraminni í Bíldudal Sigrún Benedikta Kristjánsdóttir húsfreyja í Réttarholti Magga Alda Eiríksdóttir húsfreyja í Reykjavík Eiríkur Einarsson bóndi í Réttarholti í Reykjavík Ingveldur Eiríksdóttir húsfreyja í Suður-Hvammi og á Kaldrananesi í Mýrdal Einar Þorsteinsson bóndi í Suður-Hvammi í Mýrdal Rannveig Löve kennari í Melaskóla Úr frændgarði Baldurs Ágústssonar Hallgrímur Sveinsson biskup Elísabet Sveinsdóttir húsmóðir í Rvík Sveinn Björnsson fyrsti forseti Íslands Kristjana Agnes Hansdóttir f. Hoffman húsfreyja í Reykjavík Sveinn Sveinsson smiður í Reykjavík Guðrún Metta Sveinsdóttir prestsfrú og húsfreyja í Lundi Magnús Sæbjörnsson læknir í Flatey Sigurður Jónsson prestur í Lundi í Lundarreykjadal Hólmfríður Jónsdóttir húsfreyja á Ormsstöðum Jón Sigurðsson bóndi á Ormsstöðum í Skógum, S-Múl. Ágúst Sigurðsson skólastjóri og stofnandi Námsfl okka Rvík Afmælisbarnið Baldur sem ungur flugumferðarstjóri. Ég hitti karlinn á Laugaveginumá horninu við Vegamótastíg- inn, hann tvísté þar og hallaði höfð- inu fram og aftur en alltaf til vinstri. Og hann var órólegur, sagð- ist hafa skroppið austur á land. „Þeir tala skrýtilega þar,“ sagði hann. „Segja dömpa í staðinn fyrir dumpa og slömp fyrir slömm.“ Hann klóraði sér í höfðinu og taut- aði: Ef þú dumpar þeir kalla það dömp og dömp á siðferði er slömp, – og ósköp af slíku eru‘ í Ameríku. Mér ekki líkar við Trump. Hann horfði upp á holtið þegar ég kvaddi og hristi höfuðið, – kerl- ingin var ennþá á Vogi. Mér sýndist hann hafa elst. Ólafur Stefánsson skrifar á Leir: „Náðarsól pólitíkurinnar er ótrygg og gengur fljótt undir. Þingmenn eru varla vaxnir upp úr ferming- arfötunum, þegar þeir fá á sig glós- ur um að þeir séu staðnaðir, mið- aldra og til einskis nýtir. Önnur kynslóð upp er risin, ung og fersk, sem vera ber. Hin til grafar gengur visin, grætur enginn, þá hún fer. Nýir vendir núna sópa; ná í horn og upp í þök. Ellibelgir upp til hópa undir verða og missa tök.“ Dagbjartur Dagbjartsson yrkir á Boðnarmiði: Vísum ég ýti hér stundum af stað stuðlað þó geti ég varla. Ætti því sjálfsagt að yrkja um það sem andlegan hönnunargalla. Magnús Halldórsson svarar: Um Bjart skal vitna baðvörður, braglist seint mun þverra, andans þroski ágætur, annað langtum verra. Kötturinn Jósefína Meulengracht Dietrich yrkir í sinni góðu ljóðabók Jósefínubók, sem ég hef á náttborð- inu, – og ekki leynir sér að Jósefína er smekkköttur á góðan fisk!: Hafðu bæði haus og sporð, hugsa um ræðu mína, sjóddu fisk og settu á borð segir Jósefína. Ef úr borði færi fiskinn finnst mér vera alveg kjörið að hita tólg á hálfan diskinn og hella floti yfir smjörið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Trump og náðarsól pólitíkurinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.