Morgunblaðið - 16.09.2019, Blaðsíða 26
Á AKUREYRI
Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
KA og HK áttust við í stórskemmti-
legum leik á Akureyri í gær. Var
þetta fyrsti leikurinn í 20. umferð
Pepsi Max-deildar karla og var lið-
unum afar mikilvægur. Bæði lið
áttu enn á hættu að falla úr deild-
inni en áttu jafnframt möguleika á
að klifra alla leið upp í þriðja sætið
með sigri í lokaleikjunum sínum.
KA var með pálmann í höndunum
þar til í blálokin. Staðan var 1:0 og
HK-ingar manni færri. HK fékk
hornspyrnu á lokasekúndunum og
eftir hana skoraði Emil Atlason
með skalla af markteig, nánast með
síðustu snertingu leiksins. Leik-
urinn fór því 1:1 og HK tók því 5.
sætið sem KA var búið að tylla sér
í.
Ásgeir Sigurgeirsson skoraði
snemma leiks fyrir KA og var það
fyrsta mark kappans í sumar. Lengi
leit út fyrir að það yrði sigurmarkið
í leiknum en tíu HK-ingar blésu til
sóknar á lokakaflanum og upp-
skáru. KA fór illa með nokkur upp-
lögð færi og sóknir þegar HK var
að taka áhættu í restina og þeir gul-
klæddu geta kennt sjálfum sér um
að hafa misst leikinn í jafntefli.
Reyndar var uppbótartími leiksins
löngu liðinn þegar HK jafnaði svo
svekkelsi KA-manna hlýtur að vera
meira en ella.
HK er klárlega eitt allra besta
fótboltaliðið sem mætt hefur á
Greifavöllinn í sumar. Liðið ber
boltann hratt upp völlinn og er með
marga stórskemmtilega og skeinu-
hætta leikmenn. Liðin buðu upp á
fína spilamennsku og hraða og gekk
boltinn oft teiga á milli á örskömm-
um tíma.
Besti maður HK í leiknum var
Arnar Freyr Ólafsson í markinu en
hann átti nokkrar lykilvörslur.
Framlínan var spræk og alltaf ógn-
andi með táninginn Valgeir Val-
geirsson í miklu stuði. Elfar Árni
var frábær í liði KA og miðað við
þennan leik þá gæti hann dansað og
hlaupið með mann á bakinu langar
leiðir.
Emil jafnaði á
lokasekúndu
Tryggði HK dýrmætt stig gegn KA
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri Bjarni Gunnarsson úr HK og Alexander Groven úr KA í baráttu.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
SANGSIN gæðavara frá Kóreu
BREMSU
VÖRUR
í flestar gerðir bíla
1:0 Ásgeir Sigurgeirsson 7.
1:1 Emil Atlaason 90.
I Gul spjöldHrannar Björn Steingrímsson
og Kristijan Jajalo (KA), Ásgeir Börk-
ur Ásgeirsson og Björn Berg Bryde
(HK).
I Rauð spjöldBjörn Berg Bryde (HK) 75.
KA – HK 1:1
Dómari: Erlendur Eiríksson, 6.
Áhorfendur: 690.
M
Callum Williams (KA)
Hallgrímur Mar Steingrímss. (KA)
Almarr Ormarsson (KA)
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Andri Freyr Ólafsson (HK)
Ásgeir Marteinsson (HK)
Arnþór Ari Atlason (HK)
Valgeir Valgeirsson (HK)
Spánverjar urðu í gær heimsmeist-
arar karla í körfuknattleik í annað
skipti þegar þeir unnu sannfærandi
sigur á Argentínumönnum, 95:75, í
úrslitaleiknum í Peking.
Spánverjar, sem unnu Grikki í
úrslitaleik árið 2006, voru tólf stig-
um yfir í hálfleik og sigur þeirra
var aldrei í hættu í fjórða leikhluta.
Ricky Rubio, sem var valinn besti
leikmaður mótsins, skoraði 20 stig
fyrir Spánverja, Sergio Llull 15,
Marc Gasol 14 og þeir Rudy Fern-
andez, Juancho Hernangómez og
Willy Hernangómez gerðu 11 stig
hver. Hjá Argentínu var Gabriel
Deck með 24 stig og Nicolas Lapro-
vittola 17. Argentína, sem varð
fyrsti heimsmeistarinn árið 1950,
fékk sitt annað silfur á HM en hitt
kom árið 2002.
Frakkar hrepptu bronsið í ann-
að skiptið í röð og jöfnuðu því sinn
besta árangur á HM með því að
vinna Ástrala, 67:59, í leiknum um
bronsið. Fjórða sætið er besti ár-
angur Ástrala frá upphafi.
vs@mbl.is
AFP
Meistarar Spánverjar fagna með heimsmeistarabikarinn í leikslok.
Annar heimsmeist-
aratitill Spánverja
Pepsi Max-deild karla
KA – HK.................................................... 1:1
Staðan:
KR 19 13 4 2 38:20 43
Breiðablik 19 11 3 5 42:27 36
FH 19 9 4 6 29:29 31
Stjarnan 19 7 7 5 32:30 28
HK 20 7 5 8 28:26 26
Valur 19 7 4 8 34:31 25
Víkingur R. 19 6 7 6 29:28 25
ÍA 19 7 4 8 24:25 25
Fylkir 19 7 4 8 32:35 25
KA 20 7 4 9 27:30 25
Grindavík 19 3 9 7 14:22 18
ÍBV 19 2 3 14 16:42 9
ÍBV er fallið niður í 1. deild.
Inkasso-deild karla
Fjölnir – Leiknir R................................... 1:1
Haukar – Keflavík .................................... 3:1
Njarðvík – Grótta ..................................... 1:2
Afturelding – Víkingur Ó......................... 0:1
Magni – Þróttur R.................................... 3:1
Fram – Þór................................................ 3:0
Staðan fyrir lokaumferðina:
Fjölnir 21 12 6 3 49:21 42
Grótta 21 11 7 3 41:31 40
Leiknir R. 21 11 4 6 35:27 37
Fram 21 10 3 8 32:30 33
Þór 21 9 6 6 31:30 33
Víkingur Ó. 21 8 7 6 24:18 31
Keflavík 21 9 4 8 30:27 31
Haukar 21 5 7 9 31:37 22
Afturelding 21 6 4 11 30:37 22
Magni 21 6 4 11 27:49 22
Þróttur R. 21 6 3 12 36:40 21
Njarðvík 21 4 3 14 21:40 15
Fjölnir er kominn upp í úrvalsdeild og
Njarðvík er fallin í 2. deild.
2. deild karla
Leiknir F. – Vestri ................................... 4:0
Selfoss – Völsungur.................................. 4:1
KFG – Fjarðabyggð................................. 4:1
Tindastóll – Kári....................................... 3:2
Þróttur V. – Víðir...................................... 0:1
Dalvík/Reynir – ÍR................................... 0:0
Staðan fyrir lokaumferðina:
Leiknir F. 21 13 4 4 44:21 43
Vestri 21 14 0 7 34:26 42
Selfoss 21 13 2 6 53:26 41
Víðir 21 11 3 7 38:25 36
Þróttur V. 21 8 6 7 36:34 30
Dalvík/Reynir 21 7 8 6 29:30 29
ÍR 21 7 7 7 30:31 28
Völsungur 21 8 3 10 27:32 27
Fjarðabyggð 21 6 7 8 39:43 25
Kári 21 7 3 11 41:49 24
KFG 21 6 0 15 31:52 18
Tindastóll 21 3 3 15 22:55 12
KFG og Tindastóll eru fallin í 3. deild.
Rússland
Tambov – CSKA Moskva ........................ 0:2
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA og skoraði seinna mark-
ið. Arnór Sigurðsson er meiddur.
Kasakstan
Astana – Shakhtar Karagandy.............. 2:1
Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leik-
inn með Astana.
KNATTSPYRNA
Fjölnismenn eru komnir aftur í úr-
valsdeild karla í fótbolta eftir jafn-
tefli, 1:1, gegn Leikni úr Reykjavík
í toppslag liðanna í næstsíðustu um-
ferð 1. deildar í Grafarvogi á laug-
ardaginn. Ingibergur Kort Sigurðs-
son kom Fjölni yfir seint í leiknum
en Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
jafnaði fyrir Leikni.
Grótta náði þriggja stiga forskoti
á Leikni í öðru sætinu með 2:1 sigri
í Njarðvík þar sem Pétur Theódór
Árnason skoraði sigurmarkið.
Gróttu dugar jafntefli við Hauka í
lokaumferðinni á laugardaginn til
að fara upp en Leiknir þarf að
vinna Fram og treysta á að Grótta
tapi til að ná öðru sætinu.
Njarðvík féll með tapinu en bar-
áttan á botninum er gríðarlega tví-
sýn fyrir lokaumferðina. Þróttur
tapaði sínum sjötta leik í röð, 3:1
fyrir Magna, og Þróttarar sitja nú í
fallsætinu. Þeir mæta Aftureldingu
í nánast hreinum úrslitaleik um
sæti í deildinni á laugardag en
Haukar og Magni geta líka fallið.
vs@mbl.is
Fjölnir í úrvalsdeild og
Grótta er í góðri stöðu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úrvalsdeild Fjölnismenn eru komnir upp á ný eftir eins árs fjarveru.