Morgunblaðið - 16.09.2019, Qupperneq 29
Fótfesta Natalie Portman leikur geimfara í Lucy in the Sky
sem á erfitt með að fóta sig aftur á jörðinni eftir geimferð.
»Kvikmyndastjörnur
hafa síðustu daga
dvalið í Toronto þar sem
fram fór alþjóðleg kvik-
myndahátíð. Stjörn-
urnar mættu á rauða
dregilinn til að kynna
nýjustu myndir sínar.
Meðal þeirra eru Judy í
leikstjórn Ruperts Goold
sem fjallar um stjörnuna
Judy Garland og Harriet
sem Kasi Lemmons leik-
stýrir og fjallar um Har-
riet Tubman sem barðist
fyrir réttindum þræla.
Svipmyndir frá alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto
AFP
Hæfileikarík Renee Zellweger mætti á frumsýningu Judy.
Hún hefur hlotið mikið lof fyrir túlkun sína á Judy Garland.
Sjálfa Breska leikkonan Cynthia Erivo, sem fer með titilhlut-
verkið í Harriet, gaf sér tíma til að ræða við aðdáendur.
Hress Willem Dafoe mætti á frum-
sýningu á Motherless Brooklyn.
Glæsileg Isabelle Huppert mætti á
frumsýninguna á Frankie.
Gestur Luke Wilson mætti á frum-
sýninguna á Guest Of Honour.
Stjarna Bruce Springsteen mætti á
frumsýningu Western Stars.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Tónsmíðar Ísólfs Pálssonar, al-
þýðutónskálds sem uppi var á ár-
unum 1871 til 1941, eru nú að-
gengilegar almenningi á rafrænu
formi fyrir tilstilli afkomenda Ís-
ólfs. Útgáfan er einstök að því leyti
að bæði má skoða einstök lög,
prenta þau út og hlýða á þau í
tölvutækum píanóleik, að sögn
Bjarka Svein-
björnssonar tón-
listarfræðings,
fyrrverandi for-
stöðumanns Tón-
listarsafns
Íslands og nú-
verandi fagstjóra
yfir hljóð- og
myndsafni
Landsbókasafns
Íslands.
„Gögn Ísólfs lágu varðveitt í
bankahólfi í áratugi en voru dregin
fram af fjölskyldunni þegar höfund-
arrétturinn féll úr gildi. Þá lagðist
fjölskyldan á eitt um að ná utan um
tónsmíðar Ísólfs og fékk Gylfa
Garðarsson nótnasetjara og Snorra
Ólafsson tónlistarfræðing til þess
að gera heildarúttekt á lögunum og
tölvusetja þau,“ segir Bjarki.
Listsköpun forrennara fær líf
Hann er mjög ánægður með
framtak fjölskyldunnar. „Þetta er
virðingarvert dæmi um það hvernig
afkomendur geta gefið listsköpun
forrennara sinna líf. Þetta ætti að
vera öðrum til eftirbreytni því ég
veit að það eru til handrit að ýms-
um lögum eftir hina og þessa höf-
unda sem aldrei hafa komið út eða
eru til í einhverjum heftum sem
eru ekki fáanleg lengur.“
Bjarki segir ómetanlegt að fá
tónverk sem þessi á rafrænt form.
„Þegar þetta er í einhverjum ófá-
anlegum heftum, handritum, söfn-
um og heima hjá fjölskyldum þá
veit enginn hvað er til. Það er það
sem er í þessu þannig að það þarf
að opna þessa gátt,“ segir Bjarki
sem bætir því við að tónlistarmenn
nútímans vilji helst einungis spila
verk sem hafa verið tölvusett.
Bjarki þekkir ekki fleiri dæmi
þess að tónlist íslenskra alþýðu-
skálda hafi verið komið á framfæri
á þennan hátt. „Menn hafa verið
ötulir að gefa þetta út í bókum en
ég þekki ekki til þess að að sam-
bærilegt efni hafi áður verið gert
svona aðgengilegt bæði til hlust-
unar og útprentunar. Fleiri alþýðu-
tónskáld á svæðinu eins og Pálmar
Þ. Eyjólfsson og fleiri hefðu þurft
að fá sömu meðferð.“
Ísólfur þögull hugsuður
Ísólfur var einn af hinum svoköll-
uðu Selsbræðrum, fæddur á Syðra-
Seli á Stokkseyri. Allir bræðurnir
þrír tengdust tónlist á einn eða
annan hátt. Ísólfur lærði orgelsmíði
í Kaupmannahöfn og ferðaðist að
því loknu um landið og sinnti við-
gerðum á orgelum. „Hann var mik-
ill uppfinningamaður og áhuga-
samur um náttúruna en hann
skrifaði mikið um hana. Hann þótti
svolítið sérstakur og næmur á nátt-
úruna, sagði ekki mikið en hugsaði
djúpt,“ segir Bjarki.
Ákvörðunin pólitísk
Tónlistarsafn Íslands var lagt
niður árið 2017 og safnkosturinn
færður yfir í Landsbókasafn Ís-
lands – Háskólabókasafn í Þjóðar-
bókhlöðu. „Safnið er ekki lengur
safn. Munasöfnun, sýningarhald og
annað hefur fallið alveg niður,“ seg-
ir Bjarki sem bendir á að ákvörð-
unin um að leggja safnið niður hafi
verið af pólitískum toga og að póli-
tísk vá geti steðjað að söfnum.
Þegar blaðamaður náði tali af
Bjarka var hann að vinna að spenn-
andi verkefni. „Nú sit ég hér með
dótturdóttur Victors Urbancic sem
var okkar leiðandi maður í tuttugu
ár og erum við stödd í bílskúr til
þess að fara í gegnum öll hans
gögn, handrit, bréf og ýmiskonar
gögn sem við munum svo afhenda
Landsbókasafni.“
Alþýðutónskáld
lagað að nútímanum
Tónskáld Ísólfur Pálsson var uppi
á árunum 1871 til 1941.
Tónsmíðar Ísólfs Pálssonar aðgengilegar rafrænt
Bjarki
Sveinbjörsson