Morgunblaðið - 18.09.2019, Síða 15

Morgunblaðið - 18.09.2019, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019 Lætur til sín taka Flestir láta sér duga að hvíla bílinn eða flokka plast fyrir endurvinnslu. Umhverfishetjan gengur skrefi lengri og plokkaði rusl við Miklubrautina í fullum skrúða í gær. Hari Ég hlakka alltaf til að mæta á landsfundi og flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins. Þeir eru uppsprettur hugmynda og skapa vettvang rökræðna. Ekki skemmir að eiga þess kost að hitta hundruð vina og kunn- ingja frá landinu öllu. Flokksráð Sjálf- stæðisflokksins kom saman síðast- liðinn laugardag. Ekki verða þeir sem þar komu saman sakaðir um hugsjónaleysi eða tilraunir til að forðast nýjar hugmyndir, skiptast á skoðunum eða takast á með rök- ræðu. Um 20 hugveitur – hringborð – tóku fyrir afmörkuð málefni en fókusinn var á orkumál og rík- isrekstur. Afraksturinn endurspegl- ast í stjórnmálaályktun fundarins en um leið var lagður traustur grunnur að starfi málefnanefnda flokksins fyrir landsfund á komandi ári. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í ríkisstjórn frá 2013. Frá þeim tíma hefur margt breyst til betri vegar á Íslandi og árangurinn er óumdeild- ur:  Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað um 320 milljarða króna á árunum 2013 til ársloka 2019.  Miðgildi kaupmáttar ráðstöf- unartekna hefur aukist um 27% á milli 2013 og 2018.  Tekjuskattur einstaklingar hefur lækkað um 25 milljarða. Skatturinn lækkar um 21 milljarð á ársgrunni á næstu tveimur árum.  Tryggingagjald hefur lækkað um 18 milljarða og lækkar enn frekar á næsta ári.  Almenn vörugjöld hafa verið felld niður.  Framlög til heil- brigðismála hafa hækkað um 51% að raunvirði.  Framlög til al- mannatrygginga hafa hækkað um 76% að raunvirði.  Vextir eru í sögu- legu lágmarki og eru 1,9 prósentu- stigi lægri nú en þeir voru í árslok 2013. Þótt hægt sé að gleðjast yfir góð- um árangri á umliðnum árum eru mörg verk óunninn. Í stjórnmálum er nauðsynlegt að halda til haga því sem vel hefur verið gert en það er jafnvel enn mikilvægara að átta sig á þeim verkefnum sem þarf að ráð- ast í og viðurkenna að ekki hafi náðst árangur á öllum sviðum. Kerfið of flókið Í skýrslu OECD um Ísland sem kynnt var síðastliðinn mánudag kemur fram að efnahagslífið sé heil- brigt, jöfnuður óvíða meiri og staða ríkissjóðs traust. Sérfræðingar stofnunarinnar eru bjartsýnni á gang efnahagsmála næstu misserin en einkennt hefur umræðuna hér á landi. Auðvitað þurfum við ekki erlenda sérfræðinga til að segja okkur hið augljósa. Staðan er góð – jafnvel öf- undsverð fyrir margar þjóðir – en við getum gert betur. Margar ábendingar OECD eru þarfar og næstum augljósar. Aðrar eru um- deilanlegar. Að mati sérfræðinga OECD er regluverk hér á landi óþarflega íþyngjandi. Stjórnsýslan búi til þröskulda fyrir ný fyrirtæki og hefti nýsköpun. Einfalda eigi rekstr- arumhverfi fyrirtækja, sérstaklega í þjónustu- og flutningsgreinum og draga úr hindrunum fyrir beinni er- lendri fjárfestingu. Samhljómur er í gagnrýni OECD á regluverk og starfsumhverfi fyr- irtækja og stjórnmálaályktunar flokksráðsfundar Sjálfstæðisflokks- ins, en þar segir að skattkerfi og regluverk atvinnulífsins eigi að vera einfalt og sanngjarnt: „Með sameiningu eftirlitsaðila, útvistun verkefna og einföldun regluverks styrkist samkeppn- ishæfni íslenskra fyrirtækja, verð til neytenda getur lækkað, svigrúm til hærri launa eykst og stuðlað er að aukinni hagkvæmni, framleiðni og skilvirkni í atvinnulífinu.“ Engum á að koma á óvart að sjálfstæðismenn vilji að „ríkið dragi sig út úr rekstri á fjármálamarkaði“ né að ráðist verði „í frekari sölu á hlutum ríkisins í öðrum fyr- irtækjum sem eru í samkeppn- isrekstri“: „Við endurskoðun samkeppn- islaga er nauðsynlegt að búinn verði til skilvirkur farvegur fyrir einka- aðila til að verjast óréttlátri og ósanngjarni samkeppni opinberra aðila. Samkeppnislög eiga að byggjast á þeirri grunnhugsun að hlutverk samkeppnisyfirvalda sé að stuðla að eðlilegri og sanngjarnri samkeppni á mörkuðum með hagsmuni neyt- enda og atvinnulífsins að leiðarljósi. Við endurskoðun laganna skal því lögð áhersla á leiðbeinandi hlutverk Samkeppniseftirlitsins.“ Einföldun kerfisins Flokksráðið er skýrt: Kerfið er of flókið og það verður að stokka upp spilin. Draga á ríkið út úr sam- keppnisrekstri og tryggja sanngirni á markaði. Forsenda þess að við náum ár- angri í þessum efnum er að við kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins viðurkennum að okkur hefur miðað lítt áfram og jafnvel færst aftur á bak á undanförnum árum. Eitt stærsta verkefni komandi miss- era og ára er að einfalda allt reglu- verk og gera það skilvirkara; draga úr kostnaði og auka samkeppn- ishæfni atvinnulífsins. Við getum orðað þetta skorinort: Gera lífið ein- faldara, þægilegra og ódýrara. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa þegar brett upp ermarnar. Í atvinnuvegaráðuneytinu, undir for- ystu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur og Kristjáns Þór Júl- íussonar, er uppskurður í undirbún- ingi og hefur tímasett aðgerð- aráætlun þegar verið kynnt í ríkisstjórn. Í umræðum um stefnu- ræðu forsætisráðherra tilkynnti Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, að fyrsti áfangi í einföldun regluverks- ins kæmi til framkvæmda innan nokkurra vikna: „Við ætlum að endurskoða leyf- isveitingar, einfalda stjórnsýslu og endurmeta hlutverk og nauðsyn nefnda sem heyra undir ráðuneytið. Við tökum til heildarendurskoðunar eftirlitsreglur sem heyra undir ráðuneytið með það að markmiði að einfalda og lágmarka nauðsynlega reglubyrði. Við ætlum að spyrja grundvallarspurninga um hlutverk stjórnvalda. Við munum leggja áherslu á útvistun verkefna og höfn- um aldagömlum hugmyndum um að opinberar stofnanir og fyrirtæki séu bundin af því að eiga lögheimili í steinsteypu í Reykjavík. En um leið göngum við úr skugga um að fjár- munum íslenskra skattgreiðenda, fyrirtækja og almennra launa- manna, kennara, skrifstofufólks, sjómanna, bænda og annarra laun- þega sé vel varið. Ég er sannfærður um að afrakstur þessarar vinnu verði öflugri og einfaldari stjórn- sýsla til hagsbóta fyrir almenning og atvinnulíf. Allir munu njóta góðs af, almenningur og fyrirtæki, rík- issjóður og sveitarfélögin.“ Með skýr markmið að leiðarljósi eru góðar líkur á að árangur náist. Þegar búið er að grisja reglugerð- arfrumskóginn og koma böndum á eftirlitsiðnaðinn, verður líf allra landsmanna þægilega og lífskjörin betri. Og þá geta allir hlakkað til morgundagsins, eins og sagði í yfir- skrift flokksráðsfundar Sjálfstæðis- flokksins. Eftir Óla Björn Kárason » Flokksráðið er skýrt: Kerfið er of flókið og það verður að stokka upp spilin. Draga á ríkið út úr samkeppn- isrekstri og tryggja sanngirni á markaði. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hlökkum til morgundagsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.