Morgunblaðið - 18.09.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 18.09.2019, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019 ✝ Guðrún Sig-urðardóttir fæddist 27. apríl 1925 í Hafnarfirði. Hún lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 8. september 2019. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Kristjánsson vél- stjóri, f. 23. apríl 1900, d. 6. sept- ember 1965, og Valgerður Jóna Ívarsdóttir hús- móðir, f. 28. júlí 1901, d. 27. ágúst 1987. Guðrún átti sjö systkini. Þau voru Ingveldur, Kristján, Auður, Valgerður Guðlaug, Ingibjörg og Sigurður Ívar. Þau eru öll látin. Eiginmaður Guðrúnar var Ásbjörn Guðmundsson pípu- lagningameistari, f. 12. ágúst 1925, d. 21. ágúst 2017. Ásbjörn og Guðrún giftust 14. júlí 1945. Börn þeirra eru Fjóla, Ásbjörn og Lilja. Barnabörnin eru 13, lang- ömmubörnin 28 og langalang- ömmubörnin þrjú. Afkomendur þeirra eru þar með orðnir 49. Ásbjörn og Guðrún bjuggu lengst af í Ytri-Njarðvík á Tunguvegi 12 og síðar á Borg- arvegi 40. Árið 1992 fluttu þau til Hafnarfjarðar og bjuggu fyrst á Vesturvangi 10 en lengst af bjuggu þau á Herjólfsgötu 38. Frá unga aldri ólst Guðrún upp hjá afa sínum og ömmu í Arnarbæli í Grímsnesi. Að lokn- um barnaskóla í Hafnarfirði var hún kaupakona í sveit í Hvammi í Hvítársíðu og á Búrfelli í Grímsnesi. Hún vann um tíma á sauma- stofu í Hafnarfirði og Keflavík. Einnig vann hún hjá Íslenskum aðalverktökum á Suðurnesjum. Guðrún tók virkan þátt í félags- starfi í Njarðvík og söng í kirkjukór Njarðvíkurkirkju og svo síðar í kór eldriborgara í Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag, 18. sept- ember 2019, klukkan 13. Börn þeirra eru: 1) Guðrún, tón- menntakennari, f. 25. janúar 1945, d. 13. maí 2007, eig- inmaður Páll Hann- esson. Börn þeirra eru Ásbjörn og Margrét. Sonur Guðrúnar er Björn Rúnar. 2) Guðbjörn Helgi, bygginga- fræðingur, f. 31. mars 1946, d. 23. desember 2015, eiginkona Guðrún Guð- mundsdóttir. Börn þeirra eru Sigurður og Ingibjörg Júlí. 3) Sigurður Valur tæknifræðing- ur, f. 13. mars 1950, eiginkona er Hulda Stefánsdóttir. Börn þeirra eru Ásbjörn, Höskuldur, Stefán Valur og Lárus Kristinn. Sonur Sigurðar er Hjálmar. 4) Guðmundur Ásbjörn húsasmið- ur, f. 11. júlí 1958, eiginkona er Svanhildur Benediktsdóttir. Móðir okkar fæddist í Hafnar- firði en hún ólst upp hjá afa sín- um og ömmu í Arnarbæli í Gríms- nesi. Ástæðan fyrir veru hennar fyrir austan fjall var e.t.v. óvissa í atvinnumálum á millistríðsárun- um og mörg voru börnin á hennar æskuheimili. Hún talaði ávallt vel um upp- vaxtarárin og taldi það sína gæfu að hafa fengið að alast upp á slík- um stað, hjá afa sínum og ömmu. Síðar kom áhugi hennar á sveitadvöl í ljós þegar hún keypti land í Þrastaskógi og byggði þar sumarbústað með pabba. Hún nefndi staðinn Birkihvamm. Pabbi og mamma gengu sam- an í skóla en þau kynnast fyrst fyrir alvöru þegar pabbi ræður hana í sveit að Hvammi í Hvít- ársíðu. Mikið var hún ánægð með þá dvöl og ávallt var mikill vinskap- ur á milli fólksins í Hvammi og þeirra, enda var farið þangað á hverju sumri. Mamma var einnig kaupakona á Búrfelli í Grímsnesi og þangað fórum við bræðurnir síðar í sveit til Laufeyjar og Páls. Mamma lærði að sauma í Hafnarfirði eftir kaupakonuárin en pabbi lærði pípulagnir í Reykjavík eftir nokkur ár á sjó. Þeirra kynni hefjast fyrir alvöru þegar hann býður henni á síð- kjólaball í Hafnarfirði. Þegar þetta á sér stað þá er síðari heimsstyrjöldinni að ljúka. Þau hefja búskap 1945 þegar þau gifta sig með forsetabréfi. Guð- rún systir, Guðbjörn Helgi og Sigurður Valur fæðast í Hafnar- firði en Guðmundur Ásbjörn í Keflavík eftir að þau flytjast suð- ur með sjó. Flutt er að Tunguvegi 12 í Ytri-Njarðvík árið 1954 og upp- byggingin á Keflavíkurflugvelli, á Straumnesfjalli við Ísafjarðar- djúp, á Gufuskálum á Snæfells- nesi, á Langanesi og á Hornafirði eru viðfangsefni þeirra næstu ár- in. Sumarhús mömmu var ávallt hennar hvíldarstaður frá miklu amstri sem fylgdi starfi og fé- lagsstarfi pabba. Mamma hélt ávallt vel utan um sinn mann í blíðu og stríðu. Nú þegar við kveðjum móður okkar þá er efst í huga þakklæti fyrir umburðarlyndi hennar og festu sem hefur mótað okkur á vissan hátt. Við vorum vissulega mikið í sveit og á heimavistarskólum á þessum uppvaxtarárum en for- eldrar okkar voru ávallt til stað- ar. Mamma var heiðarleg og dug- leg til allra verka. Hún var vissu- lega ákveðin og hvatvís kona en henni þótti vænt um sín börn og barnabörn. Hún var mikill tón- listarunnandi, spilaði mikið á hljóðfæri og lagði áherslu á tón- listarnám. Hún var hannyrða- kona og liggja eftir hana margar myndir saumaðar og málaðar sem prýða nú heimili afkomenda. Hún var glæsileg í klæðaburði og heimili hennar var fallegt, tók vel á móti fólki. Rétt er í lokin að rifja upp frábærar stundir í jóla- boðum og aðrar góðar samveru- stundir í Birkihvammi. Í þessum boðum var lögð áhersla á veisluborð, góða sam- veru við leik og störf. Harmon- ikkan var ávallt til staðar en mamma, Guðrún og Guðbjörn Helgi sáu um undirleik og pabbi tók undir í söng. Nú eru þau fallin frá. Söngur þeirra og harmonikkan hljóma ekki lengur. Hún móðir okkar lifði heil- brigðu lífi og er sú staðreynd gott leiðarljós fyrir afkomendur henn- ar. Sú minning er ofarlega í huga okkar allra á þessari kveðju- stund. Sigurður Valur Ásbjarnarson, Guðmundur Ásbjörn Ásbjörnsson. Elsku amma Guðrún, eins erf- itt og það getur verið að kveðja veitir það manni hlýhug og sátt að nú ertu komin til afa Ása. Það er eiginlega ómögulegt að tala um ömmu án þess að tala um afa, allt sem þau gerðu var í svo mikilli nánd þeirra tveggja. Fyrstu sterku minningar okk- ar bræðra um ömmu eru frá Borgarvegi 40 en þar skapaðist sú fjölskylduhefð að hittast á annan í jólum ár hvert. Ekkert var til sparað og svona risa „kjúk- ling“ höfðum við aldrei séð. Þó svo að við hjálpuðumst að var það amma sem stýrði þessari samkomu listavel. Fjölskyldan eyddi síðan mörg- um minnisstæðum stundum sam- an uppi í bústað hjá ömmu og afa í Birkihvammi. Amma var mjög listræn og unni þeirri vinnu vel, margt fal- legt hefur hún skilið eftir sig. Njótum við börn, barnabörn og komandi kynslóðir þess. Ég var svo lánsamur að fá að búa hjá ömmu og afa eftir að þau fluttu í Hafnarfjörð rétt fyrir aldamót og bjó hjá þeim í kjall- aranum á Vesturvangi 10. Margar skemmtilegar minn- ingar sköpuðust þar, mikið var spjallað um heima og geima. Oft var gripið í spil þegar ég kom upp til þeirra. Manni var í miklu uppáhaldi hjá okkur þremur, og með spilamennskunni var nauð- synlegt að fá sér smá harðfisk með og ef hann kláraðist var roð- ið ristað og nýtt. Elsku amma. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Ásbjörn Sigurðarson og bræður. Í dag kveðjum við í hinsta sinn okkar elskulegu ömmu sem hefur nú fengið sína kærkomnu hvíld. Amma var glæsileg, ákveðin og dugleg kona. Hún var alltaf vel til höfð í fallegum kjólum og var bleikur eða gylltur litur oft þar ríkjandi. Gott var að koma til ömmu sem tók alltaf brosandi á móti okkur með kossi og hlýju faðmlagi. Guðrún amma skilur eftir sig ótal margar, hlýjar og skemmti- legar minningar. Amma hafði einstaklega gam- an af söng og tónlist og hvatti okkur áfram í tónlistarnámi sem hefur gagnast okkur vel. Hún spilaði á píanó og minnumst við þess hve yndislegt henni þótti að heyra afkomendur sína syngja og spila á flygilinn sinn. Jólaboðin á Borgarveginum voru einstök. Þar var sungið og dansað í kring- um jólatréð með undirspili Guð- rúnar frænku. Við systkinin eigum margar ljúfar minningar um ömmu og afa í Birkihvammi, sumarbústaðnum þeirra. Þar var alltaf notalegt, ar- ineldur og endalausar kræsingar á borðum. Amma elskaði sveitina sína, naut sín við að gróðursetja og rækta sælureitinn þeirra. Þar passaði hún upp á alla, þar á með- al litlu fuglana sem böðuðu sig í fuglaböðum sem hún hafði útbúið fyrir utan eldhúsgluggann. Yfir- leitt var nóg um að vera í sum- arbústaðnum og oft mikið um gestagang. Enginn fór svangur úr sveitinni hennar ömmu því kræsingarnar voru endalausar. Á kvöldin fórum við oft í kvöld- göngu með ömmu og þá var nota- legt að koma aftur í Birkihvamm og fá nýbakaða brúnköku eða hjónabandssælu. Guðrún amma passaði vel upp á fjölskylduna og fór alltaf síðust að sofa og var fyrst á fætur. Sat hún þá í rólunni sinni með prjón- ana í höndunum og grauturinn tilbúinn. Í kringum ömmu og afa var alltaf nóg um að vera og mikil framkvæmdagleði fylgdi þeim. Byggðu þau nokkur hús og búa foreldar okkar í einu þeirra í dag. Á eftirlaunum ákváðu þau að flytja á æskuslóðir sínar í Hafn- arfirði. Þar keyptu þau stórt ein- býlishús en þótt þau væru tvö í heimili, þá þurftu þau nú samt að byggja tvær stofur við húsið. Alltaf stóðu þau þétt saman í öll- um þessum framkvæmdum. Gaman er að minnast þess að þó svo að afi hafi alltaf setið í bíl- stjórasætinu þá var amma hinn raunverulegi bílstjóri í einu og öllu. Amma var alltaf hrein og bein og hikaði ekki við að segja skoðun sína. Nýmóðins rifnar gallabuxur voru sko ekki buxur að hennar skapi. Fjóla var svo lánsöm að fá að búa hjá þeim á Vesturvanginum. Eftir standa ómetanlegar minn- ingar. Amma var snillingur í matar- gerð, en stundum fékk Fjóla ekki að vita hvað væri á boðstólum fyrr en að mat loknum. Þá hafði amma framreitt mat sem unga kynslóðin myndi eflaust ekki samþykkja sem mat í dag. Ömmu þótti ánægjulegt að fylgjast með fjölskyldunni stækka, var alltaf þakklát og montin yfir stórum hópi afkom- enda sinna. Við kveðjum ömmu með mikl- um söknuði en erum um leið svo þakklát fyrir allt sem við áttum saman. Við trúum því að móttökurnar hafi verið góðar í Sumarlandinu og þið afi sameinuð á ný. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Guð geymi þig, elsku Guðrún amma okkar. Fjóla, Ásbjörn og Lilja. Eins undursamleg sem sólar- upprásin er, þá er sólarlagið íðil- fagurt. Þannig var æviskeið ömmu. Ung að árum dvaldi hún í faðmi ömmu sinnar og afa á Arn- arbæli sem hún jafnan hugsaði til af ástúð og hlýhug. Á sama hátt varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp í öruggu skjóli henn- ar og afa fyrstu æviárin. Þannig fékk ég notið hlýju hennar og ást- úðar en einnig var hún óhrædd að lesa drengnum pistilinn þegar það átti við. Amma var afar listfeng og söngelsk, en auk þess kunni hún ótal ljóð og kvæði, en af þessum gæðum var hún örlát að veita öll- um þeim er að henni stóðu. Eins og hennar kynslóð sæmdi var hún gríðarlega vinnusöm. Man ég ekki eftir henni öðruvísi en að vera að fást við eitthvað, hvort sem það var píanóleikur, handa- vinna eða önnur þau verk sem sinna þurfti á stóru heimili. Af þessum guðsveigum náðu afa- drengirnir mínir, langalang- ömmubörn hennar, einnig að njóta. Amma var glæsileg kona, það var því ekki að undra að jafn myndarlegur maður og afi var skyldi verða hennar lífsförunaut- ur í farsælu hjónabandi sem stóð yfir í 72 ár. Þau voru glæsileg hjón, órjúfanleg heild og samhent í þeim fjölmörgu verkefnum sem þau tóku sér fyrir hendur. Þar var Birkihvammur þeirra griða- skjól og sælureitur í Þrastaskógi í fyrirrúmi. Þangað sóttum við öll þar sem amma stjórnaði öllu með hlýlegri röggsemi, þar sem söngur, harm- onikkuspil, gómsætar brúntertur og pönnukökur og hennar dill- andi hlátur voru í öndvegi. Það er mín einlæg von að mér auðnist sú gæfa að veita mínum nánustu þó ekki væri nema brot af þeirri skilyrðislausu væntumþykju og lífsperlum sem hún veitti mér. Því vil ég enda þessi orð með kvæðinu Þakkargjörð: Barn er ömmu sinni ann ljúfan barm þar hallar sínu höfði. Öruggt skjól hönd þín hafði hugljúf ró mig fann. Lífsins hljóm þinn helgur söngur færði undur heims nú þakka þér ég kann. Af fegurð þinni ástareldur brann í hjarta hans sem heitar ástir lagði. Hugar yl þinn söngvaseiður færir ullarprjón nú vermir börnin þín minning kær er markar niðja slóð. Stjörnuskin, ljós á himnum nærir sál er finnur börnin sín þar englar guðs nú flytja þakkarljóð. Blessuð sé minning þín. Björn Rúnar. Guðrún Sigurðardóttir Ég vildi í nokkr- um orðum minnast sveitunga míns og samstarfsmanns til margra ára, Bjarna Kristjánssonar, fyrrverandi rektors Tækniskóla Íslands. Það var á áttunda áratug síð- ustu aldar sem ég kynntist Bjarna Kristjánssyni, þegar ég kom í fyrsta sinn að stunda- kennslu við Tækniskóla Íslands. Foreldra hans þekkti ég frá unga aldri og voru þau ágæt- isfólk. Voru Skaftfellingar langt fram í ættir og bjuggu í Mýr- dalnum sem markast af jöklin- um í norðri, Atlantshafinu í suðri og til austurs og vesturs af illskeyttum jökulám. Þetta um- hverfi hefur óhjákvæmilega mótað það æskufólk sem þar óx upp. Samstarf okkar Bjarna varð síðar nánara þegar ég kom inn í hóp deildarstjóra skólans í upp- hafi níunda áratugarins. Á þess- um árum var tæpast búið að finna upp hugtök eins og verk- ferla eða gæðastjórnun, en undir stjórn Bjarna gekk starfsemi Bjarni Kristjánsson ✝ Bjarni Krist-jánsson fæddist 18. maí 1929. Hann lést 6. september 2019. Útförin fór fram 17. september 2019. Tækniskóla Ís- lands með ágætum. Við bara gerðum það sem til þurfti að láta starfið ganga. Og skólinn útskrifaði fjöl- marga einstaklinga sem hafa unnið samfélaginu gagn og skapað því verð- mæti. Það var gott að vinna með Bjarna. Í embættistíð hans þróaðist Tækniskóli Ís- lands og varð að öflugri mennta- stofnun. Þess sér enn merki þar sem starfsemi skólans er enn til staðar innan vébanda Háskólans í Reykjavík. Allir þeir sem að starfinu komu lögðu sig fram þó að aðstæður væru oft andsnúnar og yfir marga erfiða hjalla að fara. Aldrei bar það við að Bjarni sýndi það sem kallast mættu stjórnendastælar og tók þátt í öllu því sem við samstarfs- menn hans tókum okkur fyrir hendur, í sem utan vinnunnar. Hann var fremur félagi okkar en að hann væri að hreykja sér eða telja sig öðrum meiri. Að leiðarlokum vil ég fyrir mína hönd og samstarfsfólksins í Tækniskóla Íslands þakka fyrir samstarf og samveru í gegnum árin. Öllum aðstandendum sendi ég innilegustu samúðarkveðjur. Guðbrandur Steinþórsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, FRIÐRIKS ÞÓRS EINARSSONAR Raufarhöfn. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarbrekku fyrir kærleiksríka umönnun, hlýhug og virðingu. Rósa Lilja Þorsteinsdóttir Guðný Sigrún Baldursdóttir Jón Eiður Jónsson Þór Friðriksson Sigrún Hrönn Harðardóttir Olga Friðriksdóttir Ragnar Axel Jóhannsson Berglind Mjöll barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA SÆRÚN VILMUNDARDÓTTIR, Hjúkrunarheimilinu Eir, áður Mýrargötu 23, Neskaupstað, andaðist laugardaginn 14. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 23. september klukkan 15. Smári Björgvinsson Kristín Arnardóttir Þorsteinn Örn Björgvinsson Hulda Sigurðardóttir Vildís Björgvinsdóttir Charles Magnússon barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.