Morgunblaðið - 18.09.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 18.09.2019, Síða 22
(Hedda Gabler, Brúðuheimili, Aft- urgöngur, Pétur Gautur) og Strind- berg (Faðirinn, og sviðsettur leik- lestur á Dauðadansinum); enn fremur Matthías Jochumsson (Útilegumenn- irnir), Davíð Stefánsson (Gullna hlið- ið), ennfremur í sjónvarpi, m.a. Sú sterkasta (Strindberg), Hedda Ga- bler (Ibsen) og Galdra-Loftur (Jó- hann Sigurjónsson) og Stríðsárablús (Jónas Árnason); ennfremur Ára- mótaskaup 1988 og Bubba kóng (Herranótt Menntaskólans í Reykja- vík 1968). Hann hefur stýrt yfir 70 út- varpsleikritum. Sveinn hefur stýrt leikritum og óp- erum á Íslandi, Norðurlöndum og hefur verið leikstjóri frá 1965 og rit- höfundur frá 1970. Sveinn sat í stjórn Norræna leik- listarsambandsins og var þar varafor- maður til margra ára, sömuleiðis í fjölda norrænna nefnda á menningar- og leiklistarsviðinu (Vasanefndinni, RKK o.fl.) Hann var varaforseti Al- þjóðasamtaka leikhúsmanna (ITI) um skeið og formaður ýmissa nefnda á vegum Evrópuráðsins, meðal ann- ars í stjórn Evrópska menningarset- ursins í Delfi. Sömuleiðis hefur hann verið í forystu nefnda um menningar- mál hér heima, t.d. var hann hvata- maður að stofnun Íslenska dans- flokksins, Leiklistarsambands Íslands ( nú Sviðslistasambands) og Félags leikstjóra á Íslandi og var stjórnarformaður Leiklistarsafns Ís- lands. Hann hefur flutt fyrirlestra um íslenska leiklist og menningarmál við fjölda erlendra háskóla. Hann á að baki yfir 400 útvarps- og sjónvarps- þætti og er þá fátt eitt talið. Leikstýrt yfir 100 sýningum Sveinn hefur stýrt rúmlega 110 leiksýningum á sviði, ef allt er talið, þ.á m sviðsettur leiklestur, revíur, barnaleikrit og samsett dagskrár- verk. Má m.a. nefna verk eftir Sóf- ókles (Antígóna), Shakespeare (Ham- let), Molière (Ímyndunarveikin, Aurasálin), Racine (Fedra), Ibsen S veinn Einarsson fæddist 18. september 1934 í Reykjavík. Hann ólst upp á Laugavegi og síðan flutti fjölskyldan í há- skólahverfið. Þegar Sveinn kom heim eftir dvöl erlendis bjuggu hann og kona hans fyrst á Fjölnisvegi en hafa verið í Tjarnargötunni í 43 ár. „Minn ættliður er sá fimmti í Reykjavík, langalangafi minn var með borg- arabréf um jörð þar sem Hans Pet- ersen var, í Bankastræti, Ég vildi að ég ætti þetta bréf núna.“ Sveinn lauk stúdentsprófi frá MR 1954, fil. kand. í almennri bók- menntasögu, leiklistarsögu og heim- speki frá Stokkhólmsháskóla 1958, og fil. lic. í leikhúsfræðum frá sama háskóla 1964. Hann fór í framhalds- nám í samanburðarbókmenntum og leiklistarfræðum við Sorbonne- háskóla 1958-59 og 1961 og stundaði nám í frönsku og sænsku við Háskóla Íslands 1959-60, auk námsdvalar í Oxford 1971 og í þrjá mánuði í Kaup- mannahöfn 1972-73, auk fjölda styttri námskeiða. Hann varð dr. phil. frá Háskóla Íslands 2006. Hann stundaði enn fremur nám í leiklist- arskóla Leikfélags Reykjavíkur 1952-53. Sveinn var aðstoðarleikstjóri við Riksteatern í Svíþjóð 1962, lærlingur við Stokkhólmsóperuna 1955-57 og þátttakandi í starfi sænska stúdenta- leikhússins (sömu ár). Hann vann eitt sumar (1958) í Drottninghólmsleik- húsinu í Svíþjóð. Hann var blaðamað- ur við Alþýðublaðið sumrin 1955-57, leikgagnrýnandi þess blaðs 1959-60, fulltrúi í dagskrárdeild Ríkis- útvarpsins frá júlí 1959 til áramóta 1960-61 og sumrin 1961 og 1962. Hann var fyrsti leikhússtjóri Leik- félags Reykjavíkur 1963-72, skóla- stjóri og kennari við Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur 1963-69 og þjóðleikhússtjóri 1972-83. Sveinn var menningarráðunautur í mennta- málaráðuneytinu 1983-89, 1993-95 og 1998-2004 og dagskrárstjóri inn- lendrar dagskrár Sjónvarps 1989-93. Hann var formaður stjórnar Lista- hátíðar í Reykjavík 1998-2000, settur forstöðumaður Þjóðmenningar- hússins í sex mánuði 2002 og sat í að- alstjórn UNESCO 2001-2005. Sveinn Bretlandi og leiksýningar hans verið sýndar á Norðurlöndum, Þýskalandi og víða annars staðar. Hann hefur stýrt frumflutningi á verkum m.a. eft- ir Halldór Laxness (Kristnihald undir Jökli), Jökul Jakobsson (Sjóleiðin til Bagdad, Í öruggri borg), Árna Ibsen (Afsakið hlé), óperunum Silkitromm- unni eftir Atla Heimi Sveinsson (Reykjavík og Caracas), Fredkulla eftir Udbye (Þrándheimi, ásamt Stein Winge), Gretti eftir Þorkel Sig- urbjörnsson (Bayreuth, Bonn og To- ronto) og Baldursbrá eftir Gunnstein Ólafsson (50 ára leikstjórnarafmæli 2015). Hann hefur einnig stýrt óp- erum eftir Mozart, Verdi, Puccini, Mascagni og Leoncavallo á Íslandi og í Noregi. Hann var leikstjóri leik- flokksins Bandamanna frá 1992-2012 og hefur ferðast með sýningar Bandamanna í þrjár heimsálfur á 22 leiklistarhátíðum. Hann hefur verið forystumaður Vonarstrætisleikhúss- ins (ásamt Vigdísi Finnbogadóttur) frá 2009. Sveinn hefur sent frá sér fjölda rita, þar á meðal verkið Íslensk leik- list í þremur bindum, bók um Kamb- an, um leiklistina í veröldinni og bæk- ur um vinnu sína í leikhúsunum. Sömuleiðis hafa verið leikin leikrit eftir hann á sviði og í útvarpi og sjón- varpi, og hann hefur skrifað talsvert fyrir börn, bæði skáldsögur og leikrit. Hann hefur þýtt yfir 20 leikrit, meðal annars eftir Molière, Ibsen, Strind- berg, Pinter og Dario Fo. Sveinn hefur hlotið fjölda viður- kenninga fyrir störf sín, m.a. heið- ursverðlaun Grímunnar 2003, í fyrsta sinn sem þau voru veitt og er Heið- ursfélagi Norræna leiklistar- sambandsins 2008, sömuleiðis í fyrsta sinn sem sú nafnbót var veitt. Sveinn sendir frá sér bókina Lítið óvísindalegt leiklistarkver í tilefni af- mælisins. „Ég er að fylgja þeirri gömlu reglu að maður gaf oft bækur til fólks sem nennti að koma í afmæli til manns. Þetta er hugleiðing um leiklistina og ég vil gefa hana vinum og vandamönnum.“ Svo er að koma út bók frá Sveini í næsta mánuði í til- efni af því að 100 ár eru liðin frá dauða Jóhanns Sigurjónssonar. Nefnist hún Úti regnið grætur. Sveinn er enn að leikstýra og var Sveinn Einarsson, leikstjóri og rithöfundur – 85 ára Morgunblaðið/Eva Björk Hjónin Sveinn og Þóra stödd í Þjóðleikhúsinu á listahátíð árið 2015. Enn á fullu í leikhúsinu og skrifum Morgunblaðið/Golli Leikhúsmaðurinn Sveinn. 22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019 50 ára Erla er Hafn- firðingur en býr í Kópavogi. Hún er sjóntækjafræðingur að mennt frá Þýskalandi og tók framhalds- menntun frá Noregi. Hún hefur rekið gler- augnaverslunina Ég c frá 1996 ásamt eiginmanni sínum. Einnig sinnir Erla hlutastarfi hjá Þjónustu- og þekking- armiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Maki: Siguróli Sigurðsson, f. 1967, sjóntækjafræðingur. Börn: Magnús Óli, f. 1995, Dagur Óli, f. 2000, og Guðrún Edda, f. 2003. Foreldrar: Magnús Hjörleifsson, f. 1947, ljósmyndari, búsettur í Garðabæ, og Guðný Stefánsdóttir, f. 1950, d. 1997, kennari. Erla Magnúsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ferill þinn fær byr undir báða vængi á næstunni. Ef þér er alvara með þetta ástarsamband verður þú að vinna í því. 20. apríl - 20. maí  Naut Notaðu daginn til þess að gera áætl- anir fyrir framtíðina með maka og vinum. Mundu eftir þeim sem lögðu hönd á plóg með þér þegar þú þurftir þess með. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þjáist af ferða- og ævintýra- þrá. Vinur í vandræðum kemur til þín og biður um ráð. Reyndu hvað þú getur að hjálpa. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Viðræður við vin um vonir þínar og drauma fyrir framtíðina gætu borið óvæntan ávöxt. Slappaðu af og njóttu þess sem þú hefur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert uppfull/ur af nýjum hug- myndum og ættir að koma þeim á fram- færi hvar sem þú getur. Sannleikurinn er sagna bestur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú sýnir ást þína að hluta til með því að gefa ráð. Reyndu að komast að hvers vinir þarfnast og útvegaðu það. 23. sept. - 22. okt.  Vog Kauptu bara það nauðsynlegasta og frestaðu öðrum innkaupum til morguns. Þér hættir til að hafa áhyggjur af öllu og öllum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert tilbúin/n til að leggja hart að þér í dag og jafnvel til í að takast á við verkefni sem þú hefur lengi ýtt á und- an þér. Hugarró verður seint ofmetin. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það lítur út fyrir að draumur þinn um ferðalag rætist. Reyndu að finna þér tíma til að sinna sjálfri/sjálfum þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er eitt og annað sem þig langar til þess að framkvæma en lætur ógert vegna þess að þú veist ekki hvar þú átt að byrja. Vinir og kunningjar eru til staðar fyrir þig. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft umfram allt að beina sköpunarþrá þinni á jákvæðar brautir. Lífið krefst þess að þú gerir þitt besta, meira er ekki hægt að fara fram á. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ættir að huga að því hvernig þú getur samræmt líf þitt hugsjónum þínum. Lyftu þér stundum upp. 40 ára Baldur er fæddur og uppalinn í Keflavík en býr í Reykjavík. Hann er verkfræðingur að mennt, kláraði meist- aragráðu í verkfræði árið 2013 en hafði áð- ur náð sér í réttindi sem pípulagningameistari en hann starfaði sem pípari í 10 ár. Baldur er fagstjóri á lagna- og loftræstisviði Eflu verkfræðistofu. Maki: Karen Jónsdóttir, f. 1981, við- skiptafræðingur. Börn: Jóel Baldursson, f. 2007, og Kári Baldursson, f. 2008. Foreldrar: Kári Gunnlaugsson, f. 1954, yfirtollvörður og Kolbrún Skagfjörð Sig- urðardóttir, f. 1957, náms- og starfs- ráðgjafi, búsett í Keflavík. Baldur Kárason Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is Blár vinur í stofunni, yndislegur litur sem nýtur sín vel í flestum rýmum. Skoðaðu litaúrvalið okkar á slippfelagid.is Notalegur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.