Morgunblaðið - 18.09.2019, Side 24

Morgunblaðið - 18.09.2019, Side 24
STJARNAN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Sólveig Lára Kjærnested, leikmaður Stjörnunnar í handknattleik, er full tilhlökkunar fyrir komandi keppn- istímabili í úrvalsdeild kvenna en hún lék ekki með liðinu á síðustu leiktíð þar sem hún var í barneign- arleyfi. Stjarnan missti af sæti í úr- slitakeppninni á síðustu leiktíð en liðið hafnaði í sjötta sæti deildar- innar. Liðinu er spáð þriðja sæti í ár af fyrirliðum og þjálfurum deild- arinnar. „Það er bara létt yfir fólki í Garða- bænum og léttara en í fyrra myndi ég halda þótt ég hafi reyndar ekki leikið með liðinu á síðustu leiktíð. Ég hef góða tilfinningu fyrir komandi tímabili og við ætlum okkur að koma okkur inn í úrslitakeppnina. Ég get samt alveg viðurkennt að það kom mér aðeins á óvart að hafa verið spáð í þriðja sæti deildarinnar, sér- staklega ef við horfum á gengi liðs- ins í fyrra. Að sama skapi höfum við mikla trú á okkur og það er gaman að sjá að það eru fleiri sem hafa sömu trú og við því við ætlum okkur að vera að berjast í efri hluta töfl- unnar.“ Miklir möguleikar í stöðunni Margir reynsluboltar frá síðustu leiktíð eru horfnir á braut og hafa Garðbæingar bætt við ungum og efnilegum leikmönnum í staðinn. „Við höfum bætt við okkur mjög flottum ungum leikmönnum og svo höfum við líka fengið pólskan mark- vörð, Klaudiu Powaga, sem lítur mjög vel út. Ég á von á því að hún muni vaxa mikið eftir því sem líður á tímabilið. Við fengum góða sendingu úr Breiðholtinu frá ÍR og þótt þetta séu kannski ekki beint stórstjörnur sem hafa verið að koma eru þetta allt leikmenn sem eru gríðarlega efnilegir og styrkja liðið mikið. Við ætlum okkur að spila á öllum leik- mönnum í vetur og hópurinn er mjög jafn. Við hefðum kannski alveg þegið eina stórskyttu eða svo en við erum með stóran hóp sem eykur möguleika okkar mikið. Við höfum vissulega misst reynda leikmenn sem við munum sakna en heilt yfir hafa þetta bara verið nokkuð góð skipti.“ Sólveig segir að mikil uppbygging sé að eiga sér stað í Garðabænum þessa stundina og félagið sé með há- leit markmið fyrir komandi keppn- istímabil. „Stefna félagsins í dag er fyrst og fremst að koma Stjörnunni aftur í fremstu röð og á þann stað sem liðið var eitt sinn á. Við erum að yngja upp leikmannahópinn og það er unn- ið jafnt og þétt í því að auka faglega þáttinn hjá félaginu með til dæmis utanaðkomandi styrktarþjálfun og íþróttasálfræðingi. Þetta er allt á réttri leið og umgjörðin í kringum liðið er alltaf að verða betri og betri. Markmið númer eitt tvö og þrjú hjá okkur í vetur er að enda í topp fjór- um og koma okkur í úrslitakeppnina. Að sama skapi viljum við einnig fara langt í bikarnum því það er helgi sem allir vilja taka þátt í. Þetta er ein skemmtilegasta helgi ársins og það skiptir félagið miklu máli, fjár- hagslega séð, að fara langt í bikar,“ sagði Sólveig við Morgunblaðið. Stefnan að komast aftur í fremstu röð Morgunblaðið/Hari Skorar Þórey Anna Ásgeirsdóttir var langmarkahæsti leikmaður Stjörn- unnar síðasta vetur og hún gerði átta mörk gegn Haukum í 1. umferðinni.  Sólveig telur Stjörnuna fullfæra um að berjast í efri hluta töflunnar í vetur 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019 Hildur Guðjónsdóttir Ída Bjarklind Magnúsdóttir Karen Tinna Demian Ólöf Ásta Arnþórsdóttir Sigrún Tinna Siggeirsdóttir Sólveig Lára Kjærnested Thelma Sif Sófusdóttir Þórey Anna Ásgeirsdóttir Þórhildur Gunnarsdóttir Þjálfari: Sebastian Alexand- ersson. Aðstoðarþjálfari: Rakel Dögg Bragadóttir. Árangur 2018-19: 6. sæti. Íslandsmeistari: 1991, 1995, 1998, 1999, 2007, 2008, 2009. Bikarmeistari: 1989, 1996, 1998, 2005, 2008, 2009, 2016, 2017.  Stjarnan sigraði Hauka á úti- velli, 25:22, í 1. umferð deild- arinnar og mætir KA/Þór á heimavelli á sunnudag kl. 16. MARKVERÐIR: Hildur Öder Einarsdóttir Írena Björk Ómarsdóttir Klaudia Powaga HORNAMENN: Ásthildur Bjarkadóttir Dagný Huld Birgisdóttir Hanna Guðrún Stefánsdóttir Stefanía Theodórsdóttir Steinunn Guðjónsdóttir LÍNUMENN: Birta María Sigmundsdóttir Elena Elísabet Birgisdóttir Hanna Jóna Sigurjónsdóttir Katrín Tinna Jensdóttir Sigrún Ása Ásgrímsdóttir ÚTISPILARAR: Arna Þyrí Ólafsdóttir Auður Brynja Sölvadóttir Brynhildur B. Kjartansdóttir Lið Stjörnunnar 2019-20 KOMNAR Arna Þyrí Ólafsdóttir frá Fram Elena Elísabet Birgisdóttir frá Förde (Noregi) Ída Bjarklind Magnúsdóttir frá Selfossi Karen Tinna Demian frá ÍR Klaudia Powaga frá Start Elblag (Póllandi) Ólöf Ásta Arnþórsdóttir frá Fjölni Sigrún Ása Ásgrímsdóttir frá ÍR Sólveig Lára Kjærnested, úr barnsburðarfríi FARNAR Auður Ómarsdóttir, hætt Elísabet Gunnarsdóttir, hætt Guðrún Ósk Maríasdóttir, hætt Kristín Guðmundsdóttir í HK Laufey Ásta Guðmundsdóttir, hætt Rakel Dögg Bragadóttir, óvíst hvort hún spilar Breytingar á liði Stjörnunnar  Stjarnan er með mjög stóran leikmannahóp og marga nýja unga leikmenn.  Sólveig Lára og pólskur markmaður hafa bætst í hópinn. Þær munu styrkja liðið mjög mikið.  Lykilleikmenn hafa átt við meiðsli að stríða, skiptir miklu máli að allar séu heilar.  Áhugavert: Að sjá hvort (hvenær) Rakel kemur inn í liðið til að stjórna vörninni. Guðríður Guðjónsdóttir um Stjörnuna  Bæði KR og norska knattspyrnu- félagið Brann vísuðu í gær á bug frétt- um um að forráðamenn Brann vildu fá Rúnar Kristinsson þjálfara Íslands- meistara KR til að taka við liðinu eftir þetta keppnistímabil. „Eftir okkar bestu vissu þá er engin breyting á högum Rúnars hjá KR,“ sagði Kristinn Kjærne- sted, formaður knattspyrnudeildar KR, við mbl.is í gær. Hann sagði jafnframt að KR-ingar myndu að óbreyttu halda öllum sínum leikmönnum nema Skúla Jóni Friðgeirssyni sem leggur skóna á hilluna eftir tímabilið.  KR-ingar verða formlega krýndir Ís- landsmeistarar eftir heimaleikinn gegn FH á Meistaravöllum á sunnudaginn kemur og um helgina verður jafnframt mikil sigurhátíð á 120 ára afmælisári félagsins.  Leikbann brasilíska knattspyrnu- mannsins Neymars í Meistaradeild Evr- ópu hefur verið stytt úr þremur leikjum í tvo af Alþjóðaíþróttadómstólnum í Sviss. Neymar fékk bannið fyrir skrif sín um dómgæsluna á Instagram eftir ósigur París SG gegn Manchester Unit- ed í sextán liða úrslitum keppninnar snemma á þessu ári. PSG og Neymar áfrýjuðu úrskurði UEFA til Alþjóðaíþróttadóm- stólsins. Neymar leik- ur ekki með PSG gegn Real Madrid í kvöld og ekki gegn Gala- tasaray í ann- arri umferð en getur spilað gegn Club Brugge 22. októ- ber. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.