Morgunblaðið - 18.09.2019, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL:
Napoli – Liverpool................................... 2:0
Dries Mertens 82. (víti), Fernando Llo-
rente 90.
Salzburg – Genk ...................................... 6:2
Erling Braut Håland 2., 34., 45., Hee-Chan
Hwang 36., Dominik Szoboszlai 45., Andr-
eas Ulmer 66. – Jhon Lucumi 40., Mbwana
Samata 52.
Staðan:
Salzburg 1 1 0 0 6:2 3
Napoli 1 1 0 0 2:0 3
Liverpool 1 0 0 1 0:2 0
Genk 1 0 0 1 2:6 0
F-RIÐILL:
Dortmund – Barcelona ............................ 0:0
Inter Mílanó – Slavía Prag ...................... 1:1
Staðan:
Inter Mílanó 1 0 1 1 1:1 1
Slavía Prag 1 0 1 1 1:1 1
Barcelona 1 0 1 1 0:0 1
Dortmund 1 0 1 1 0:0 1
G-RIÐILL:
Lyon – Zenit Pétursborg......................... 1:1
Benfica – RB Leipzig ............................... 1:2
Staðan:
RB Leipzig 1 1 0 0 2:1 3
Zenit 1 0 1 1 1:1 1
Lyon 1 0 1 1 1:1 1
Benfica 1 0 0 1 1:2 0
H-RIÐILL:
Ajax – Lille ............................................... 3:0
Quincy Promes 18., Edson Alvarez 50.,
Nicolas Tagliafico 62.
Chelsea – Valencia .................................. 0:1
Rodrigo 74.
Staðan:
Ajax 1 1 0 0 3:0 3
Valencia 1 1 0 0 1:0 3
Chelsea 1 0 0 1 0:1 0
Lille 1 0 0 1 0:3 0
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Kaplakriki: FH – ÍBV .......................... 16.45
Würth-völlur: Fylkir – Víkingur R ..... 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Austurberg: ÍR – ÍBV U...................... 18.30
Framhús: Fram U – Grótta................. 20.15
Í KVÖLD!
Spánn
Barcelona – Huesca............................. 49:26
Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir
Barcelona.
Ungverjaland
Budakalasz – Pick Szeged ................. 27:33
Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki í
leikmannahópi Pick Szeged.
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Þótt margir setji sig í alls kyns spá-
mannsstellingar í aðdraganda Ís-
landsmótsins í knattspyrnu, og telji
sig geta séð margt fyrir, þá verða allt-
af ýmis atriði sem koma á óvart. Fyr-
ir þetta keppnistímabil sá líklega eng-
inn fyrir að miðvarðapar KR megnið
af sumrinu yrðu hinn 18 ára gamli
Finnur Tómas Pálmason og Arnór
Sveinn Aðalsteinsson sem leikið hef-
ur sem bakvörður stærstan hluta fer-
ilsins.
Stóðu þeir vaktina vel og sam-
starfið var nógu farsælt til þess að
KR er orðið Íslandsmeistari þegar
tvær umferðir eru enn eftir. Finnur
steig sín fyrstu spor á Íslandsmótinu
þetta sumarið og hefur leikið fimm-
tán leiki í deildinni. Morgunblaðið
hafði samband við Finn í gær og
ræddi við hann um sumarið og hans
frammistöðu. Finnur tók það rólega í
fagnaðarlátunum á mánudagskvöldið
og var mættur í tíma snemma í gær-
morgun en hann er á þriðja ári í
Verzlunarskólanum.
„Þetta var snilld,“ sagði Finnur,
spurður um upplifunina að verða Ís-
landsmeistari, en KR tryggði sér tit-
ilinn eins og fram hefur komið með
1:0 sigri á Val á Hlíðarenda. „Þessu
fylgdi einnig smá léttir því það hafði
tekið okkur smá tíma að klára dæmið.
Frekar erfið fæðing eftir að við höfð-
um komið okkur í mjög góða stöðu í
deildinni. Eins og Óskar (Örn Hauks-
son fyrirliði KR) sagði þá var þetta
næststærsti völlurinn til að vinna tit-
ilinn á. Því var geggjað að verða
meistari á Valsvellinum þótt ég hefði
alveg verið til í að vinna á KR-
vellinum.“
Finnur fékk tækifæri þegar
meiðsli og leikbönn herjuðu á varn-
armenn KR snemma í sumar og hann
sleppti ekki takinu af miðvarðarstöð-
unni eftir það, ef frá er talinn stuttur
tími þegar hann glímdi við ökkla-
meiðsli sem reyndust ekki alvarleg.
Þegar KR undirbjó sig fyrir keppn-
istímabilið síðasta vetur, var Finnur
þá með væntingar til þess að komast í
byrjunarliðið í sumar?
„Væntingar og ekki væntingar.
Mér leið alla vega vel og reyndi mitt
besta til að sýna hvað ég get. Ég bjóst
ekki við því að byrja inn á í öllum
leikjum og ég var ekki í byrjunarlið-
inu í fyrsta leiknum í deildinni. Síðan
fékk ég tækifæri og þjálfararnir Rún-
ar og Bjarni treystu mér fyrir þessu.
Ég var ekki með væntingar um að
vera í byrjunarliðinu og ákvað að sjá
bara hvernig þetta myndi þróast. Ég
meiddist reyndar á ökkla í apríl eða
fyrir fyrsta leik. Síðar meiddist ég
aftur á ökkla í útileiknum á móti
Molde í Evrópukeppninni. En ég
jafnaði mig fljótt á því og síðan þá hef
ég ekki fundið fyrir neinu. Ég missti
af heimaleikjum gegn Molde og
Stjörnunni en kom að mig minnir aft-
ur inn í liðið eftir það.“
Afslappað viðhorf
Dæmi sem þessi eru heldur
óvenjuleg, að svo ungur leikmaður
spjari sig strax í miðvarðarstöðunni
hjá toppliði. KR er stórt félag á ís-
lenskan mælikvarða og oft er nokkur
spenna í kringum liðið og pressa á
leikmönnum. Miðvarðarstaðan er af-
ar mikilvæg hjá liðum sem vilja ná ár-
angri og mistök á þeim hluta vallarins
geta verið dýr. Spurður um hvort
ekki hafi verið erfitt að fóta sig í slík-
um aðstæðum segist Finnur ekki
hafa fundið fyrir því og bætir því við
að menn þurfi ekki að taka íþróttir of
hátíðlega.
„Leikmennirnir í liðinu eru nátt-
úrlega reyndir og þeir hjálpuðu mér
mikið. Sennilega náði ég ekki að pæla
í því hvort þessu fylgi pressa eða
ekki. Mér fannst þetta ekkert mál
þannig séð. Það má kannski segja að
þetta sé bara íþrótt og eigi að vera
skemmtileg. Maður á ekki að stressa
sig á svona hlutum.“
Aldrei slakað á
KR er nú með níu stiga forskot á
Breiðablik og hefur liðið aðeins tapað
tveimur leikjum í deildinni af tuttugu.
Hvað fannst Finni KR-liðið hafa um-
fram önnur lið í sumar?
„Ég held að höfum einfaldlega ver-
ið með bestu liðsheildina. Öll lið í
deildinni eru með fína breidd í leik-
mannahópnum og það var því ekki
úrslitaatriði. Ég held að þetta hafi
spilast svona út af stemningunni í
okkar hópi. Hún var mjög góð alveg
frá því í fyrsta undirbúningsmótinu í
vetur. Við tókum því aldrei rólega.
Allar æfingar og allir leikir voru tekn-
ir af 100% krafti, sama hvort það var í
vetur eða í sumar.“
Er ekki á hraðferð út
Finnur Tómas er hinn rólegasti
þegar talið berst að framtíðarsýn
hans í sparkinu. Ekkert er í pípunum
eins og er. Hann hefur þegar hafnað
því að fara utan í atvinnumennsku og
því ljóst að hann ætlar sér að vanda
valið.
„Ég veit ekki alveg hvað ég vil gera
og mun bara sjá til. Ég hef ekki sett
mér nein sérstök markmið varðandi
boltann. Ég tek einn dag í einu. Mig
langar að klára stúdentsprófið sem
fyrst. Ég veit ekki hvort það verður
hérna heima eða í fjarnámi úti en ég
mun alla vega ljúka því á tilsettum
tíma. Ég hef ekkert heyrt hvort er-
lend lið hafi áhuga á mér enda sér
umboðsmaðurinn um það. Ég einbeiti
mér bara að því að spila með KR.
Hann heyrir kannski í mér eftir tíma-
bilið en ég er ekkert að velta því fyrir
mér núna,“ útskýrði Finnur en hann
fór fyrir nokkru til skoska stórliðsins
Glasgow Celtic og kannaði aðstæður.
„Já, það passar. Ég fór þangað
haustið 2017 og aftur snemma árs
2018. Ég hafði ekki áhuga á að fara út
svo ungur. Ég hafði meiri áhuga á því
að fara í framhaldsskóla og taldi
miklu sniðugra að spila hér heima. Á
þeim tíma var það alla vega sniðugra
fyrir mig,“ sagði KR-ingurinn Finnur
Tómas Pálmason í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Ungur en jarðbundinn
Íslandsmeistari
Finnur Tómas, miðvörður KR, var ekki að mikla hlutina fyrir sér í sumar
Morgunblaðið/Hari
Á Meistaravelli Finnur Tóms þjarmar að Elfari Árna Aðalsteinssyni í leik gegn KA í sumar.
Finnur Tómas Pálmason
» Varð Íslandsmeistari í knatt-
spyrnu með KR á mánudaginn.
» Fæddist hinn 12. febrúar ár-
ið 2001.
» Fékk tækifæri í byrjunarliði
KR snemma sumars og lét það
ekki af hendi þó eldri og reynd-
ari menn séu til staðar í leik-
mannahópi liðsins.
» Æfði með Glasgow Celtic
fyrir tæpum tveimur árum.
Taldi skynsamlegast að
mennta sig og spila hér heima,
alla vega fyrst um sinn.
NÝTT – Veggklæðning
Rauvisio Crystal
• Mikið úrval lita og áferða
• Auðvelt í uppsetningu og umgegni
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is