Morgunblaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Hin sérstæða reynsla að vaxa úr
grasi og standa á eigin fótum er
aðalviðfangsefni fyrstu breiðskífu
Marteins Sindra Jónssonar, Atlas.
„Á plötunni er ég að reyna að fanga
býsna margt en aðallega það að
standa á eigin fótum og finna sinn
stað í heiminum. Það gengur enginn
annar fyrir þig, þú þarft að læra að
ganga sjálfur,“ segir Marteinn.
Lög breiðskífunnar er nú þegar að
finna á helstu streymisveitum en
Marteinn gefur Atlas einnig út sem
vínylplötu og heldur samhliða því út-
gáfutónleika í Iðnó í kvöld, 18. sept-
ember, kl. 20.30.
Titillinn Atlas er merkingar-
þrunginn. „Útgangspunkturinn er
þessi kortagerð, það er það sem tit-
illinn vísar ekki síst í. Þótt þú fáir
kort af heiminum þarftu síðan að
fara sjálfur út í heiminn og upplifa
hann. Kortið er í sjálfu sér bara
tómt.
Hin hliðin á þessu Atlas-nafni er
goðsögnin um títaninn Atlas sem
fékk það hlutverk að halda á heim-
inum. Það er ekki öfundsvert hlut-
skipti og einmanalegt að standa utan
við heiminn og ég held að einmana-
leikinn sé eitt af sterkum stefjum
plötunnar,“ segir Marteinn og bætir
við að fleiri vísanir í mikilvægar per-
sónur bókmenntasögunnar sé að
finna á plötunni.
„Ég hef alltaf lesið mikið svo ég er
líka í samtali við bókmenntir og listir
í textunum og leita mér fanga hingað
og þangað. Það eru fleiri goðsagna-
stef á plötunni en Atlas. Lagið
„Odyssey“ vísar í Ódysseif sem er
mikil einmanaleikavera. Hann er á
leiðinni heim til sín alla Ódysseifs-
kviðu.
Svo er ég líka að reyna að snúa
upp á þessar hugmyndir; Ódysseifur
er gjarnan talinn hetja en ég velti
fyrir mér hvað það þýði nákvæm-
lega. Sérstaklega í síðasta lagi plöt-
unnar sem heitir „Promotheus“ eða
Prómóþeifur á íslensku. Prómóþeif-
ur er títaninn sem færði mannkyn-
inu eldinn, stal eldinum frá guðunum
og var harkalega refsað fyrir það.“
Margræðir textar og laglínur
Á plötunni er að finna víðfeðman
hljóðheim og er hljóðheimur ein-
stakra laga ekki alltaf sá sami. „Tón-
listin endurómar hugsunina í text-
unum sem er margræð. Lögin eiga
ekki endilega að hafa eina merkingu
því hlutir hafa sjaldnast eina merk-
ingu. Mér finnst rosalega skemmti-
legt, einhvern veginn, að vera ekki
með sama einhlíta popphljóðheiminn
í öllum lögunum,“ segir Marteinn.
„Mikið af tónlist í dag gengur út á
að mögulegt sé að endurframleiða
hana á sviði algjörlega eins, dauð-
hreinsað. Þessi hljóðheimur er til-
raun til að búa hverju lagi búning
sem má síðan taka breytingum.“
Textar laganna á plötunni eru allir
á ensku. Marteinn segir enskuna al-
þjóðlegt tungumál tónlistar í dag.
„Ég hef líka ort mikið á íslensku en
að einhverju leyti er auðveldara að
yrkja á ensku, mikið af því sem ómar
í hausnum á manni er á ensku.“
Marteinn segir að lögin komi til
sín á ensku. „Samt standa þau mörg
sterkum fótum í einhverri skynjun á
íslensku. Það er lag þarna sem heitir
„Spring Comes Late Sometimes“
sem er ort í samtali við ljóðið „Fag-
urt er í fjörðum“ eftir Látra-Björgu
sem lýsir því hversu fallegt sumarið
er og hversu fjandsamlegur vetur-
inn getur verið.“
Tónlist á vínyl traustvekjandi
Útgáfa á íslensku er í kortum
Marteins.
„Ég hef verið að koma fram und-
anfarið og sungið ljóðaefni eða söng-
lagaefni á íslensku. Ef allt gengur
eftir þá kemur það líka einhvern
daginn fyrir sjónir fólks.“
Eins og áður segir er platan gefin
út á vínyl. Marteinn segir ástæðuna
að baki þeirri útgáfu þá að hann
kunni að meta að geta handleikið
tónlistina sína. „Það er margt svo
óáþreifanlegt í tónlist, ekki síst í orð-
unum. Mér finnst eitthvað traust-
vekjandi við að vera með textana í
höndunum og vera með grip í hönd-
unum sem þú getur handleikið, sér-
staklega þegar útgáfunni er fagnað.“
Áttavitinn hefur
fengið sjálfstætt líf
Útlit plötunnar er einstakt, miðja
hennar er áttaviti og teikningar á
plötuumslaginu meðal annars inn-
blásnar af kortagerð. Um útlit henn-
ar sáu Ólafur Þór Kristinsson og
Katrín Helena Jónsdóttir.
„Það er nokkuð sem mér fannst
ekki vera hægt að koma fyllilega til
skila stafrænt. Við höfum leikið okk-
ur með plötuna, áttavitinn á henni
hefur fengið einhvers konar sjálf-
stætt líf sem myndefni á plötunni.
Það er heilmikil virkni í efnis-
hlutnum, þú færð þetta ekki í tölv-
unni með sama hætti. Þótt maður
geti framleitt hvað sem er og náð
ótrúlegri fullkomnun í hinu sjón-
ræna rafrænt finnst mér frumstæð-
ari aðferðir líka afar heillandi, að
platan snúist á spilaranum og þar sé
áttavitinn í miðju listaverksins, plöt-
unnar,“ segir Marteinn og bætir því
við að hljóðfærin sem skapi Atlas
séu að stórum hluta áþreifanleg.
„Tónlistin er meira og minna spil-
uð á akústísk hljóðfæri þótt það sé
heilmikil tölvugerð tónlist þarna líka
en ég er að upplagi píanóleikari svo
ég er mjög vanur því að hafa hljóð-
færið fyrir framan mig, að það sé
áþreifanlegt.“
Miða á útgáfutónleikana í kvöld
má nálgast á vefnum Tix.is og kosta
þeir 2.900 krónur. Vínylplötuna
verður hægt að nálgast á tónleik-
unum, í helstu plötubúðum landsins
eða hjá Marteini sjálfum sem segist
glaður taka við pöntunum í einka-
skilaboðum á Facebook.
Morgunblaðið/Eggert
Leit „Á plötunni er ég að reyna að fanga býsna margt en aðallega það að standa á eigin fótum og finna sinn stað í
heiminum,“ segir Marteinn Sindri um fyrstu breiðskífu sína, Atlas. Hann heldur útgáfutónleika í kvöld.
„Það gengur enginn annar fyrir þig“
Fyrsta breiðskífa Marteins Sindra Jónssonar, Atlas, gefin út á vínylplötu Uppvöxtur helsta
viðfangsefnið Sækir titilinn í kortagerð og títaninn Atlas sem fékk ekki öfundsvert hlutskipti
Breska dagblaðið The Guardian
hefur birt lista yfir bestu myndlist-
arverk það sem af er öldinni og er
verk Ragnars Kjartanssonar, „The
Visitors“, í fyrsta sæti og því besta
myndlistarverk aldarinnar að mati
sérfræðinga blaðsins. Af því tilefni
er tekið viðtal við Ragnar og undir
lok þess er hann minntur á að verk-
ið sé talið það besta það sem af er
öldinni. „Hvað í fjandanum á það að
þýða?“ segir Ragnar þá og skelli-
hlær, bætir við að auðvitað þyki
engum svona listar skipta máli
nema þegar þeir séu á honum.
Verkið „The Visitors“ er níu rása
myndbandsinnsetning og var frum-
sýnt í Migros-safninu í Zürich árið
2012. Hefur það æ síðan hlotið ein-
róma lof og mikla athygli og þegar
það var sýnt hér á landi, í Kling &
Bang árið 2013, sóttu sýninguna
um 17 þúsund manns sem er
óvenjugóð aðsókn þegar kemur að
myndlistarsýningum hér á landi.
Sagði myndlistarrýnir Morgun-
blaðsins í uppgjöri um myndlistar-
árið 2013 að Ragnar hefði stolið
senunni með hrífandi og marg-
ræðum óði til listarinnar þar sem
saman færu sögulegar skírskotanir
og samtímalegur bræðingur.
Í verkinu er sama lagið síendur-
tekið og flutt í ólíkum rýmum
sveitaseturs í nágrenni New York
og er rómantískur söknuður alls-
ráðandi, eins og gagnrýnandi
komst að orði. Ragnar flytur lagið
auk sjö tónlistarmanna og hóps
fólks sem er úti á veröndinni.
Ragnar er ekki eini Íslendingur-
inn á lista dagblaðsins því Ólafur
Elíasson er þar í 11. sæti með verk
sitt „The Weather Project“ sem
hann sýndi í túrbínusal Tate Mod-
ern í London árið 2003. Var þar
sem sólin sjálf skini inni í salnum og
trekkti að mikinn fjölda gesta.
Ragnar á besta mynd-
listarverk aldarinnar
„The Visitors“ efst á lista Guardian
Morgunblaðið/Einar Falur
Heimsfrægur Ragnar Kjartansson
hefur vakið heimsathygli fyrir hug-
vekjandi listsköpun sína.
Í blaðinu verður fjallað um tísku,
förðun, snyrtingu, heilsu, fatnað,
umhirðu húðarinnar, dekur og fleira.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 30. sept.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
SMARTLAND
BLAÐ
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 4. október