Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 36
36 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
Hugsaðu vel um
húðina þína – alltaf
Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir
andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan.
ÁRBÆJARKIRKJA | Taizé-guðsþjónusta kl.
11. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur
undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár org-
anista. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í
safnaðarheimilinu í umsjá Jennýjar og Krist-
ínar. Kaffi og spjall eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Kristný Rós Gústafsdóttir djákni og Jens Elí
Gunnarsson annast samverustund sunnu-
dagaskólans. Séra Sigurður Jónsson prédikar
og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Áskirkju
syngja, organisti er Bjartur Logi Guðnason.
Kaffisopi í Ási eftir messu.
Ástjarnarkirkja | Messa sunnudag 22. sept-
ember kl. 17. Sr. Bolli Pétur Bollason, Kári All-
ansson stýrir safnaðarsöng og heitur kvöld-
matur í boði að messu lokinni, að
kostnaðarlausu.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl.
11 í Brekkuskógum 1. Umsjón með stundinni
hafa Sigrún Ósk, Þórarinn og Guðmundur
Jens.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Stein-
unn Þorbergsdóttir, nývígður djákni, sett inn í
embættti. Prestur er Magnús Björn Björnsson.
Örn Magnússon, organisti, og félagar úr Kór
Breiðholtskirkju munu syngja og leiða safn-
aðarsöng. Sunnudagaskólinn hefst á sama
tíma í kirkjunni, en síðan fara börnin niður og
eiga stund með Steinunni Leifsdóttur. Eftir
messu fáum við okkur bita. Ensk bæna- og
lofgjörðarstund kl. 14. Prestur er Toshiki Toma
og Örn Magnússon mun spila og leiða safn-
aðarsöng.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Daníel
Ágúst, Sóley Adda, Jónas Þórir og Pálmi færa
þér metnaðarfulla dagskrá. Stund fyrir alla
fjölskylduna með hressingu á eftir.
Guðsþjónusta kl. 14. Daníel Ágúst, nývígður
djákni, prédikar og þjónar með Hólmfríði
djákna, sr. Maríu, sr. Pálma og messuþjónum.
Jónas Þórir og kórinn flytja tónlist. Hressing
og heitt á könnunni eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Haustmessa Eldriborg-
araráðs verður haldin í samvinnu við Hjalla- og
Digranessöfnuði kl. 11. Séra Karen Lind
Ólafsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
Þóreyju Dögg Jónsdóttur djákna. Organisti er
Lára Bryndís Eggertsdóttir. Einsöngvari er
Anna Sigríður Helgadóttir. Eftir messuna verð-
ur boðið upp á veitingar í safnaðarheimili kirkj-
unnar.
DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30
á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau.
kl. 16 er vigilmessa á spænsku og kl. 18 er
vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Prestur er Elínborg Sturludóttir, Dóm-
kórinn og organisti er Kári Þormar.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunn-
arsson þjónar og prédikar. Fermingarbörn og
foreldrar eru sérstaklega boðuð til mess-
unnar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arn-
hildar Valgarðsdóttur organista. Eftir messu er
fundur með foreldrum fermingabarna. Mola-
sopi og hressing eftir messu.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Margrét Lilja Vilmundardóttir guð-
fræðinemi leiðir stundina. Hljómsveitin
Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða
tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni organ-
ista.
Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött
til að mæta.
GLERÁRKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11 í umsjá Sunnu Kristrúnar djákna og Mar-
grétar Árnadóttur kórstjóra. Undirleik annast
Vlamar Väljaots organisti. Stundin verður með
óhefbundnu sniði. Kirkjukaffi að stund lokinni.
GRAFARVOGSKIRKJA | Uppskerumessa kl.
11. Þar verður uppskeru sumarsins safnað
saman og hún boðin upp eftir messu. Kirkju-
gestir mega gjarnan koma með eitthvað sem
tengist uppskeru haustsins. Góðgætinu verð-
ur stillt upp í kór kirkjunnar, það borið út að
lokinni messu og síðan boðið upp. Ágóðinn af
uppboðinu rennur í líknarsjóð Grafarvogs-
kirkju. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar, org-
anisti er Hákon Leifsson og Kór Grafarvogs-
kirkju leiðir söng.
Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hefur Hólm-
fríður Frostadóttir.
GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng |
Selmessa kl. 13. Séra Sigurður Grétar Helga-
son prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar
Örn Agnarsson og Vox Populi leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er
María Ágústsdóttir, organisti er Ásta Haralds-
dóttir. Félagar úr Kirkjukór Grensáskirkju leiða
almennan söng, messuhópur þjónar ásamt
fermingarfjölskyldum. Myndlist Sigrúnar Sig-
urðardóttur til sölu eftir messu til styrktar
innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar.
Heitt á könnunni. Kyrrðarstund og opið hús á
þriðjudag kl. 12-14, núvitund á fimmtudag kl.
18.15-18.45.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjón-
andi presta klukkan 14 í hátíðasal Grundar.
Prestur er Vigfús Ingvar Ingvarsson og Grund-
arkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Jó-
hannesdóttur organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta og barnastarf kl. 11.
Prestur er Karl V. Matthíasson, organisti er
Ester Ólafsdóttir og kór Guðríðarkirkju syngur.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og
Pétur Ragnhildarson mun kenna börnunum að
búa til litabók. Kirkjuvörður er Lovísa Guð-
mundsdóttir, kaffisopi í boði eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Fermingarbörn og fé-
lagar í unglingakór kirkjunnar taka virkan þátt í
messunni. Prestar kirkjunnar leiða stundina.
Helga Loftsdóttir stjórnar kórnum. Sunnu-
dagaskóli með fjölbreyttri dagskrá hefst í
safnaðarheimilinu. Kaffisopi og djús á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Umhvefismessa. Dr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Hóp-
ur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er
Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barna-
starfs Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árna-
dóttir. Bænastund mánud. kl. 12.15. Fyrir-
bænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30.
Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrðarstund
fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskyldu-stöðvamessa
kl. 11. Í messunni göngum við um kirkjuna og
upplifum það heilaga með þátttöku, bragð- og
lyktarskyni og dýfum fingrunum í vígt vatn.
Messugestir fá jafnvel að setjast við orgelið,
sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar og Guðný
Einarsdóttir organisti spilar á orgel og píanó.
Samskot renna til Hjálparstarfs kirkjunnar.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Haustmessa
Eldriborgararáðs verður haldin í samvinnu við
Hjalla- og Digranessöfnuði í Digraneskirkju
sunnudaginn kl. 11. Séra Karen Lind Ólafs-
dóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Þór-
eyju Dögg Jónsdóttur djákna. Organisti: Lára
Bryndís Eggertsdóttir. Einsöngvari: Anna Sig-
ríður Helgadóttir. Eftir messuna verður boðið
upp á veitingar í safnaðarheimili.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Translation into English. Sam-
koma á spænsku kl. 13. Reuniónes en esp-
añol. Samkoma á ensku kl. 14. English
speaking service. Samkoma Fíló+ kl. 20.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudagaskóli og
messa kl. 11. Arnór Vilbergsson organisti og
kór Keflavíkurkirkju sjá um að leiða okkur í
tónlist og söng. Séra Fritz Már Jörgensson
þjónar fyrir altari. Messunni verður útvarpað.
Súpa eftir messu.
Miðvikudaginn 25. sept verður kyrrðarstund í
Kapellu vonarinnar. Súpa í boði eftir stundina.
Föstudaginn 27. sept. er kyrrðarbæn kl. 12 í
kapellunni.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sighvatur Emil Karlsson, settur héraðs-
prestur, prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar
úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn
Hrafnkels Karlssonar. Sunnudagaskóli á
sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11, léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir
þjónar, Magnús Ragnarsson organisti og Gra-
dualekór Langholtskirkju undir stjórn Þorvald-
ar Arnar Davíðssonar.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. El-
ísabet Þórðardóttir organisti og Ragnar Árni
Sigurðarson tenór leiða tónlistarflutning. Sr.
Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og prédik-
ar. Sunnudagaskóli á meðan. Kirkjukaffi á eft-
ir.
24.9.: Kyrrðarbæn kl. 20. Kristin íhugun.
25.9.: Félagsmiðstöðin Dalbraut 18-20. Helgi-
stund kl. 14.
26.9.: Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Opið
hús, sameiginlegt félagsstarf Laugarnes- og
Ássókna, strax á eftir.
Betri stofan, Hátúni 10. Helgistund kl. 16
með sr. Davíð Þór og sr. Hjalta Jóni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Kristín Pálsdóttir. Kirkjukór Lága-
fellssóknar syngur og leiðir safnaðarsöng und-
ir stjórn Þorvaldar Davíssonar, organista.
Kirkjuvörður er Hildur Salvör Backman. Sunnu-
dagaskóli kl. 13. Umsjón Berglind Hönnudóttir
og Þorvaldur Davíðsson.
sjá www.lagafellskirkja.is
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11, barnakór Lindakirkju kemur í heim-
sókn. Messa kl. 20. Fermingarbörn og fjöl-
skyldur þeirra sérstaklega boðin velkomin.
Kór Lindakirkju leiðir lofgjörð undir stjórn Ósk-
ars Einarssonar en auk þess fáum við tón-
listaratriði frá fermingarbörnum. Sr. Dís Gylfa-
dóttir þjónar.
NESKIRKJA | Uppskerumessa kl. 11.
Messan er helguð gjöfum jarðar. Þakkir færð-
ar í tali og tónum. Sunnudagaskólinn á sama
tíma. Kór Neskirku syngur. Organisti er Stein-
grímur Þórhallsson. Prestur er Skúli S. Ólafs-
son. Barnastarf. Umsjón Katrín Helga Ágústs-
dóttir, Margrét H. Atladóttir og Ari Agnarssson.
Grænmetissúpa í boði eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Messa 22. sept-
ember kl. 14. Séra Pétur Þorsteinsson þjónar
fyrir altari, Óháði kórinn leiðir messusöng und-
ir stjórn Kristjáns Hrannars. Uppskerumessa.
Maul eftir messu. Messugutti er Petra Jóns-
dóttir og mun Ólafur Kristjánsson taka vel á
móti kirkjugestum. Barnastarf í safnaðarheim-
ilinu.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar
samkomur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga
í Kristinboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.
Barnastarf. Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Kristín
Anna Guðmundsdóttir syngur einsöng, kór
kirkjunnar syngur og leiðir safnaðarsöng undir
stjórn Editar Molnár. Sr. Ninna Sif Svavars-
dóttir þjónar. Sunnudagaskóli í safnaðar-
heimilinu á sama tíma í umsjón Jóhönnu Ýrar
og leiðtoganna. Súpa gegn vægu gjaldi að
messu lokinni.
Kvöldmessa kl. 20. Unnur Birna Bassadóttir,
Sigurgeir Skafti og Tómas Jónsson bjóða upp
á tónlistarveislu. Sr. Ninna Sif þjónar.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11,
Biblíusaga, brúðuleikhús, söngur og gleði.
Guðsþjónusta kl. 14, Sigurbjörg Hannesdóttir
fræðslustjóri og Vilborg Gunnarsdóttir fram-
kvæmdastjóri flytja erindi og kynna Alzheimer-
samtökin í tilefni af alþjóðlegum degi alzheim-
er þann 21. september. Prestur er Bryndís
Malla Elídóttir, Tómas Guðni leikur á orgel og
Kór Seljakirkju syngur. Messukaffi í lokin.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Bjarni Þór Bjarnason
sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir Stefáns-
son er organisti. Félagar úr Kammerkór Sel-
tjarnarneskirkju syngja. Sveinn Bjarki og leið-
togar sjá um sunnudagaskólann.
Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Messa
kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir
stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prest-
ur er Sigurður Kr. Sigurðsson. Hressing í safn-
aðarsalnum á eftir.
ORÐ DAGSINS:
Tíu líkþráir.
(Lúk. 17)
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonEyjafjarðarsveit Kaupangskirkja.