Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 52

Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019 Hér er gripið niður í bókinni og birtir nokkrir kaflar. Myndbrot 13 „Þið eruð sjálf skrýtin, ég er alveg eðlilegur“ Joakim Thåström Það sem henti eldri dóttur okkar er ekki hægt að skýra að öllu leyti með greiningum hennar eða að hún sé öðruvísi. Þegar upp var staðið kom hún veröldinni bara ekki heim og saman. Við sem lifum á tímum ofgnóttar og höfum aðgang að meiri lífs- gæðum en hægt er að gera sér í hugarlund höfum ekki efni á að hjálpa fólki á flótta undan stríði og hörm- ungum – fólki eins og mér og þér sem hefur glatað öllu. Í skólanum horfir bekkurinn hennar Gretu á myndband um hversu mikið rusl fellur til á Vest- urlöndum. Heil eyja úr plastrusli flýtur um Suður-Kyrrahafið og þessi eyja er stærri en Mexíkó. Greta grætur á meðan myndin er sýnd. Bekkjarsystkini hennar eru líka snortin. Áður en kennslustund- inni lýkur segir kennarinn þeim að á mánudaginn komi forfallakennari af því að hún sé að fara í brúðkaup um helgina – í Connecticut fyrir ut- an New York. „Vá, en þú heppin,“ segja nem- endurnir. Frammi á ganginum er ruslaeyj- an úti fyrir strönd Chile þegar gleymd. Nýir snjallsímar eru dregnir upp úr vösum dúnúlpna með loðkrögum og þeir sem hafa verið í New York segja frá öllum flottu búðunum þar og í Barselóna er líka frábært að versla og á Taí- landi er allt svo ódýrt og einhver er að fara með mömmu sinni til Víet- nam í páskafríinu og Greta fær þetta ekki til að ganga upp. Það eru hamborgarar í matinn en hún getur ekki borðað. Það er heitt og þröngt í matsal skólans. Hávaðinn er ærandi og skyndilega er fitugur kjötbitinn á disknum ekki lengur matur. Hann er hakkaður vöðvi úr lifandi veru með tilfinningar, meðvitund og sál. Hún getur ekki máð ruslaeyjuna úr huga sér. Hún brestur í grát og vill fara heim en það er ekki í boði því hér í matsal skólans verður maður að borða dauð dýr og tala um merkja- vöru, andlitsfarða og snjallsíma. Maður á að taka fullan disk af mat, segja að hann sé ógeðslegur og narta mátulega mikið í hann áð- ur en maður hendir öllu í ruslið – án þess að sýna nein merki um ein- hverfu eða lystarstol eða neitt ann- að óþægilegt. Greta er með greiningu en það útilokar ekki að hún hafi rétt fyrir sér og að við hin séum algjörlega í ruglinu. Því hvernig sem hún reyndi tókst henni ekki að fá þessa jöfnu til að ganga upp, jöfnuna sem allir hinir virtust þegar hafa leyst, jöfnuna sem var aðgöngumiði okkar að eðli- legu hversdagslífi. Hún sá nefnilega það sem við hin vildum ekki sjá. Greta tilheyrði þeim litla hópi sem sá koltvísýringinn með berum augum. Hún sá hið ósýnilega. Lit- lausa, lyktarlausa og hljóðlausa hyldýpið sem okkar kynslóð hafði valið að líta fram hjá. Hún sá þetta allt, að sjálfsögðu ekki bókstaflega en hún sá hvernig gróðurhúsa- lofttegundirnar streymdu upp úr reykháfum okkar, bárust upp með vindunum og breyttu andrúmsloft- inu í risavaxinn, ósýnilegan rusla- haug. Hún var barnið og við vorum keisarinn. Og við vorum öll nakin. Myndbrot 62 Stafrænn sigur „Nei, ekki svara. Þá muntu sitja allt kvöldið og rífast við eitthvert rússneskt vélmenni sem er forritað til að þreyta fólk eins og þig.“ Greta hefur skráð sig inn á einn af dýravelferðarreikningunum sín- um á Instagram og dælir út uppá- haldsröksemdafærslunum sínum til uppáhaldsóvina sinna. Þeirra sem efast um loftslagsvána. Þeirra sem hafa ofurtrú á tækni og sérstaklega grænmetisætanna sem fljúga langt og oft til þess að bjarga heiminum með nýjum og framandlegum upp- skriftum. Hún er ánægð með sig núna. „Hah!“ segir hún drýgindalega og sperrir upp augun. „Nú þaggaði ég sko niður í honum.“ „En þú átt ekki að svara þeim,“ segir Svante. „Það er bara tíma- sóun. Hvað skrifaðir þú?“ „Þetta var bandarískur flug- maður sem var grænmetisæta af dýraverndunarástæðum … eins og dýrin þurfi ekki líka lofthjúp?“ svarar dóttir okkar. „Og hann sagði að loftslagsváin væri til komin af því að við værum of mörg.“ „Ókei. Svaraðir þú því sama og venjulega?“ „Jamm …“ Greta kinkar kolli og brosir út að eyrum. Hún er með mörg stöðluð svör sem hún hefur vistað á sænsku og ensku og eitt af þeim tekur á síend- urtekinni röksemdafærslunni um fólksfjöldavandann: „Losunin er vandamálið. Ekki fólkið. Því ríkari sem við erum, þeim mun meiri losun. Þannig að ef þú vilt draga úr fólksfjölda til þess að spara auðlindir ættir þú að hrinda af stað herferð til þess að losa okkur við alla milljarðamær- ingana. Þú getur notað slagorðið: „Myrðum Bill Gates og bönnum öll- um forstjórum og kvikmynda- stjörnum að eignast börn!!“ En það verður kannski svolítið erfitt að fá Sameinuðu þjóðirnar til að taka það upp sem heimsmarkmið svo að ég mæli með því að þú dragir úr þinni eigin losun í staðinn. Eða styðjir við menntun stúlkna í þróunarlönd- unum því að það er skilvirkasta leiðin til að draga úr fólksfjölgun.“ „Hverju svaraði hann?“ spyr ég. „Engu,“ segir Greta. „Eða bíddu … hann lokaði á mig,“ segir hún og hlær svo hátt að Roxy sprettur upp úr sófanum og byrjar að gelta. Myndbrot 67 Einræða Gretu Greta situr á gólfinu með Moses og Roxy. Hún kembir feld þeirra með gömlum bursta, rólega og skipulega. „Ég man eftir því þegar ég heyrði fyrst talað um gróðurhúsa- áhrifin,“ segir hún. „Ég man að ég hugsaði með mér að þetta gæti ekki verið satt. Því ef það væri satt væri ekki talað um neitt annað. Og það var enginn sem sagði neitt.“ „Þið munuð bjarga heiminum,“ segi ég við dóttur mína. Hún hnuss- ar alveg eins og pabbi minn er van- ur að gera, maður sem hefur verið fullkomin Asperger-klisja allt sitt líf. En auðvitað án greiningar. Þau eru svo hlægilega lík. „Þetta segja allir kennararnir líka,“ svarar Greta. „Ykkar kynslóð á eftir að bjarga heiminum. Þið munuð hreinsa til eftir okkur og laga allt, segja allir, og svo fljúga þau til útlanda í hverju einasta fríi. Það eruð þið sem eigið eftir að bjarga heiminum. Ókei, við erum búin að heyra það. En myndi það drepa ykkur að hjálpa aðeins til?“ Hún stendur á fætur og eltir Mo- ses sem hefur komið sér fyrir á mottunni í nokkurra metra fjar- lægð. Hún heldur áfram: „Og nei, mamma, fólk eins og ég mun ekki bjarga heiminum. Því það heyrist ekki í fólki eins og mér. Við getum kannski lesið okkur til, en það skiptir ekki máli lengur. Líttu bara á vísindamennina. Það heyrist ekki í þeim. Og jafnvel þótt heyrð- ist í þeim skiptir það ekki máli af því að fyrirtækin ráða bara fullt af eigin „sérfræðingum“ sem þau senda til Bandaríkjanna á ógeðs- lega dýr námskeið um hvernig á að koma fram í fjölmiðlum svo að þeir geti staðið í fréttatímanum og sagt að það sé í raun gríðarlega jákvætt að saga niður öll trén og myrða öll dýrin. Og þegar vísindamennirnir mótmæla heyrist það ekki því að fyrirtækin eru búin að setja upp auglýsingar um alla Svíþjóð af því að sannleikurinn er bara enn eitt af öllu því sem hægt er að kaupa fyrir peninga.“ Moses lyftir hausnum þegar lyft- an fer af stað frammi á stigagang- inum. Greta lítur í sömu átt. „Þið hafið búið til samfélag þar sem það eina sem er metið að verð- leikum er félagsfærni, útlit og pen- ingar. Ef þið viljið að við björgum heiminum verðið þið fyrst að gera breytingar. Af því að núna er það þannig að allir þeir sem hugsa að- eins öðruvísi og dettur eitthvað í hug sem hinir hafa ekki hugsað út í brotna saman fyrr eða síðar. Ann- aðhvort eru þeir lagðir í einelti eða sitja heima. Eða þá að þeir verða að ganga í sérskóla eins og ég og þar eru engir kennarar.“ Hún snýr sér að mér og horfir beint í augun á mér. Það gerir hún næstum aldrei. „Þú ert alltaf að tönnlast á því að ég hafi fengið stórt bókaforlag til að lofa að breyta landafræði- kennslubókinni á gagnfræðastiginu eftir að ég sagði þeim frá villu í bókinni. Og svo var skrifuð grein um það í blaðið. Ég hef ekki farið í náttúrufræði- tíma í næstum heilt ár. Af því að við erum ekki með neinn kennara. Ef þið viljið verja þennan heim verðið þið að breyta honum. Því eins og staðan er núna virkar ekki neitt.“ Greta dregur djúpt andann og leggur nefið upp við þykkan feld Mosesar. Þefar. Eins og staðan er virkar ekkert Í bókinni Húsið okkar brennur segir Greta Thunberg og fjölskylda hennar, Malena Ernman, Svante Thunberg og Beata Ernman, frá lífi Gretu og baráttu hennar fyrir aðgerðum í lofts- lagsmálum sem gert hafa hana heimsþekkta. AFP Barátta Greta Thunberg sigldi til Bandaríkjanna til að ræða við yfirvöld og almenning þar í landi. Hún hitti meðal annars Barack Obama að máli og fleiri framámenn og kom fyrir loftslagsráð öldungadeildar Bandaríkjaþings.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.