Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019
MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóraSigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FréttirGuðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
ViðskiptiStefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
UM PANAMASKURÐINN
& COSTA RICA
NÁNAR Á UU.IS/SIGLINGAR EÐA Í SÍMA 585 4000
VERÐ FRÁ 429.900 KR.
ÁMANNM.V. 2 FULLORÐNA
6. - 18. MARS 2020
LÚXUS SIGLING Á ISLAND PRINCESS
FARARSTJÓRI
BJÖRN ÁGÚST JÓNSSON
Mikil verðmæti færast aftur í hérað
með ávinningi þeim sem FISK Sea-
food og Kaupfélag Skagfirðinga hafði
af hlutabréfaviðskiptum í Brimi hf.
Þetta segja fulltrúar í sveitarstjórn
Skagafjarðar í grein sem birtist á vef
héraðsblaðsins Feykis í gær. Aðal-
atriðið segja þeir þó að hagnaður af
viðskiptunum nýtist nyrðra.
Í Feykisgreininni er farið yfir við-
skiptasöguna. Hún er sú að eftir að
Kaupfélag Skagafirðinga seldi hlut
sinn í Högum hf. um miðjan ágúst sl.
keypti dótturfélagið FISK Seafood í
Brimi hf. og varð hluturinn 10,18%.
Fyrir voru greiddir ríflega 6,6 millj-
arðar króna. Hinn 8. september voru
Útgerðarfélagi Reykjavíkur, sem ná-
tengt er eignarhaldi Brims, seldir
sömu hlutir fyrir tæplega átta millj-
arða króna. Hagnaðurinn var um 1,4
milljarðar króna.
Ríflega 4,6 milljarðar króna af hlut
FISK Seafood greiddi Brim með ríf-
lega 2.600 tonna aflaheimildum í
þorski, ýsu, ufsa og steinbít. Það þýð-
ir um 10% aukningu aflaheimilda
FISK Seafood í tonnum talið. „Við
viljum sjá styrk fyrirtækisins nýttan
sem mest til uppbyggingar í Skaga-
firði … Það er því afar ánægjulegt
þegar slíkum „útrásarverkefnum“
lýkur með vel heppnaðri sölu og um-
talsverðri verðmætasköpun sem skil-
ar sér beint inn í sveitarfélagið,“ segir
í Feykisgreininni sem er eftir Sigfús
Inga Sigfússon sveitarstjóra, Gísla
Sigurðsson, oddvita Sjálfstæðis-
flokksins í sveitarstjórn, Stefán Vagn
Stefánsson, Framsóknarflokki,
Bjarna Jónsson frá VG og óháðum og
Ólaf Bjarna Haraldsson, oddvita
Byggðalistans.
Viðskipti þessi og hagnaður af
þeim segja sveitarstjórnarmennirnir
að séu „mikilvægur búhnykkur“ fyrir
byggðina. FISK Seafood sé nú orðið
annað stærsta sjávarútvegsfyrirtæki
landsins. Muni um og fagna beri að
hafa slíkt fyrirtæki í sveitarfélaginu.
sbs@mbl.is
Búhnykkur fyrir
byggð í Skagafirði
Ágóðinn og kvótinn nýtist í héraðinu
Sauðárkrókur Drangey togari Fisk
Seafood hér í heimahöfn.
Líf sela virðist alveg ljómandi ljúft. Urtur og kópar
flatmöguðu á þangskeri Kollafjarðarmegin við byggð-
ina í Grafarvogi síðdegis í gær og létu ljósmyndarann í
engu raska ró sinni þegar geislar haustsólarinnar
helltu sér yfir svæðið. Um síðir fóru skepnurnar svo
aftur í sjóinn í leit að æti og ævintýrum.
Morgunblaðið/Hari
Septemberselirnir eru sællegir að sjá
Kóparnir kúra á skeri í Kollafirði
Vilji er fyrir því innan fjárlaga-
nefndar að frekari úttekt verði gerð
á starfsemi Íslandspósts.
Þetta segir Willum Þór Þórsson,
þingmaður Framsóknarflokksins og
formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Málefni Íslandspósts voru til um-
ræðu hjá nefndinni í gær.
Björn Leví Gunnarsson, þing-
maður Pírata og nefndarmeðlimur,
segir mikilvægt að sú úttekt verði
gerð af óháðum aðila.
„Mín hugmynd er að þetta fari í
rannsóknarnefnd því allir eftirlits-
aðilar eru í raun orðnir aðilar máls,“
segir hann.
Björn vill því að málinu verði vísað
inn í stjórnskipunar- og eftirlits-
nefnd sem færi þá yfir skipun rann-
sóknarnefndar. „Ég sé í raun enga
aðra lausn til að klára fortíðarvand-
ann. Svo þarf líka að glíma við fram-
tíðarvandann og það er frekar flókið
að glíma við tvenns konar vanda
samtímis. Þess vegna væri mjög
gott að setja fortíðarvandann í
rannsóknarnefnd til þess að klára
það. Nýju lögin um afnám einka-
réttar eru að fara að taka gildi um
áramótin og þá er hægt að fara að
huga að framtíðarmúsíkinni.“
Ráðstöfun fjár skýrð eftir á
Willum segir að mikilvægt sé að
læra af þessum fortíðarvanda. Í kjöl-
farið sé svo hægt að taka pólitískar
ákvarðanir um framtíð Íslandspósts.
Björn Leví er ósáttur við það að
fjárlaganefnd hafi ekki fengið að vita
neitt um ráðstöfun aukins fjármagns
til fyrirtækisins fyrr en eftir á.
„Fjárlaganefnd setti skilyrði á
þetta fé sem laut að því að látið yrði
vita hvað ætti að gera við peninginn
áður en það væri gert. Við fengum
ekki að vita það fyrr en nú,“ segir
Björn sem segist þó sýna þröngri
stöðu þeirra sem ráðstöfuðu fjár-
magninu skilning.
Ríkisendurskoðun gerði úttekt á
Íslandspósti í sumar og varpaði
skýrsla ríkisendurskoðunar ljósi á
margvíslegan vanda Íslandspósts.
ragnhildur@mbl.is
Fjárlaganefnd vill ítarlegri út-
tekt á starfsemi Íslandspósts
Willum Þór segir mikilvægt að læra af vanda fortíðar
Lögreglumenn á landinu eru alls 779
samkvæmt nýjum tölum og hefur
fjölgað nokkuð á síðustu árum. Tals-
verð umræða hefur verið að und-
anförnu um skipan lögreglunnar, svo
sem um fjölda manna í yfirstjórn hjá
Ríkislögreglustjóra og embættunum
hringinn í kringum landið, sem eru
níu alls. Yfirlögregluþjónar og að-
stoðaryfirlögregluþjónar á landinu
öllu eru í dag 42, borið saman við 44
árið 2015. Á höfuðborgarsvæðinu eru
15 nú með þessa starfstitla, 11 hjá
RLS og fjórir á Suðurnesjum.
Hjá Lögreglustjóranum á höfuð-
borgarsvæðinu eru í dag 43 aðalvarð-
stjórar og lögreglufulltrúar sam-
anborið við 31 í fyrra. Hjá sama
embætti eru 137 varðstjórar og rann-
sóknarlögreglumenn, níu færri en ár-
ið á undan. Almennir lögreglumenn
eru 78 en voru 87 árið 2018.
Á síðasta ári voru lögreglumenn á
landinu, að afleysingafólki meðtöldu,
645. Í ár eru þeir 682. Misjafnt er
milli embætti hve margir hafa numið
lögreglufræði. Þannig eru allir 107
sem starfa hjá Ríkislögreglustjóra og
sinna þar löggæslustörfum búnir með
skólann, sömuleiðis 100 sem vinna hjá
Lögreglustjóranum á Suðurnesjum
sem og þeir tíu menn sem standa
vaktina í Vestmannaeyjum.
Hjá embættum eru í dag 63 lög-
reglunemar í starfsnámi. Á höfuð-
borgarsvæðinu eru þeir 31 og níu á
Norðurlandi eystra. Héraðslögreglu-
menn á landinu eru 23 en þeir eru
bakverðir menntaðra lögreglumanna
í dreifbýlinu.
Lögreglumönnum fjölgar
42 í stöðum yfir- og aðstoðaryfirlögregluþjóna 43 aðalvarðstjórar og
lögreglufulltrúar á höfuðborgarsvæði Héraðslögreglumenn eru í dreifbýlinu
Au
st
ur
la
nd
Hö
fu
ðb
or
ga
rs
v.
N
or
ðu
rla
nd
ey
.
N
or
ðu
rla
nd
ve
.
Rí
kis
lö
gr
eg
lu
st
j.
S
uð
ur
la
nd
Su
ðu
rn
es
Ve
st
fir
ði
r
Ve
st
m
.ey
ja
r
Ve
st
ur
la
nd
Sa
m
ta
ls
Lögreglustj. og aðstoðarlögreglustj. 1 2 1 1 1 1 1 1 1 1 11
Yfirlögregluþjónn 1 4 1 1 3 2 1 1 1 1 16
Aðstoðaryfirlögregluþjónn 0 11 2 0 8 0 3 1 0 1 26
Aðalvarðstjóri/lögreglufulltrúi 3 43 7 3 49 3 19 3 1 2 133
Varðstjóri/rannsóknar-lögreglum. 6 137 15 8 20 21 30 7 4 22 270
Almennur lögreglumaður 8 78 15 1 27 17 47 3 4 1 201
Menntaðir lögreglumenn samtals 18 273 40 13 107 43 100 15 10 27 646
Afleysingamenn 8 6 5 4 0 4 0 7 0 2 36
Samtals lögreglum. m. afleysingam. 26 279 45 17 107 47 100 22 10 29 682
Lögreglunemi sem afleysingamaður 2 31 9 4 0 7 1 2 2 5 63
Héraðslögreglumaður 5 0 5 5 0 2 0 4 0 2 23
Samtals 34 312 60 27 108 57 102 29 13 37 779
Fjöldi yfirmanna og
lögreglumanna við
lögreglu embættin
Morgunblaðið/Eggert
Vakt Með lögum skal land byggja.
Svo virðist sem sólarhrings-
úrkomumet fyrir árið hafi verið
sett á einni mannaðri veðurathug-
unarstöð, Hjarðarfelli á Snæfells-
nesi, í rigningunni sem varði frá
miðvikudegi til gærdagsins. Þar
mældist sólarhringsúrkoman í gær-
morgun 140,7 mm, eldra met 120,7
mm er frá 28. mars 2000. Trausti
Jónsson veðurfræðingur greinir frá
þessu á vefsetri sínu.
Sólarhringsúrkomumet fyrir
september voru nú í vikunni sett á
sjö stöðvum til viðbótar, Kirkjubóli
við Akranes, Neðra-Skarði í Svína-
dal, í Hítardal, á Bláfeldi í Staðar-
sveit, í Ásgarði í Dölum, Dalsmynni
í Hjaltadal í Skagafirði og í Vogsós-
um í Selvogi. »6 sbs@mbl.is
Ljósmynd/Einar Sveinbjörnsson
Vesturland Grjóteyrará við Hafnar-
fjall var vatnsmikil og úfin í gær.
Úrkomumet