Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 49

Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 49
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Hún er einstök, sýnin sem Valgeir Sigurðsson og félagar í bedroom community hafa á hlut- ina. Aðkoma þeirra að útgáfu á tónlist er með slíkum glæsibrag að ég veit um a.m.k. tvo fræðimenn sem hafa skrifað sérstaklega um þessa útgáfu/merki/listasamlag sem stofn- sett var árið 2006. Með aðalstöðvar í Breið- holtinu, margir galdrar hafa verið seiddir fram þar, bæði með innlendum sem erlendum tónlistarmönnum og er útgáfuskráin ansi tilkomumikil orð- in. Nú hefur merkið gefið út plöt- una VAST, sem er samstarfsverk- efni þeirra Viktors Orra Árnasonar og Yairs Elazars Glotmans. Tónlist- in lýsir kvöldstund, hvar þeir félag- ar spunnu saman á fiðlu, lágfiðlu og kontra- bassa. Lögin eða öllu heldur verkin fimm voru öll tekin upp í einni töku og grunnurinn látinn standa. Tónlistin er drungaleg, hendist fram og til baka og veltist upp og niður, en er formuð engu að síður. Strengjahljóðfæri þessi fá að orga og öskra á annan hátt en Samband í Berlín Nútímamenn Yair Elazar Glotman og Viktor Orri Árnason. venjulega, strengirnir eru klóraðir, plokkaðir, þeir rekast í búkana og sumt af þessu er skítugt, hrátt, „ekki í lagi“. Reynt er á þanþolið en reynsla og innsæi listamannanna hleypir framvindunni hins vegar aldrei út í tóma vitleysu ef svo mætti að orði komast. Báðir eru þeir félagar búsettir í Berlín en þegar tónlistin var gerð voru þeir að hitt- ast í fyrsta skipti. Í efnisheimum það er. Hins vegar lögðu þeir gjörva hönd á plóg í samein- ingu er Jóhann heitinn Jóhannsson endur- hljóðblandaði „Solari“ eftir japanska meist- arann Ryuichi Sakamoto. Viktor, sem maður varð fyrst var við í pönksveitinni Búdrýg- indum, svo í Hjaltalín, starfaði náið með Jó- hanni síðustu misserin sem hann lifði. Var það Jóhann sem hvatti dúettinn til að hittast og starfa frekar saman að tónlist. VAST var tekin upp í hljóðveri Viktors í Kreuzberg-hverfinu, þar sem Jóhann bjó og starfaði einnig. Viktor og Yair stilltu sér upp hvor í sínum endanum í hljóðverinu og settu svo upp hljóðnema á milli sín. Engin áætlun lá fyrir; lagt var upp með hreinan spuna en áhersla á að bregðast við spilamennsku hvor annars. Parið sá um hljóðblöndun en Valgeir blandaði einnig og sá líka um hljómjöfnun, hér heima í Gróðurhúsinu. En að platan hafi verið tekin upp í Berlín, það er eitthvað hár- rétt við það, enda skýlir borgin mjög svo rótgróinni spunasenu sem er heimsþekkt. Platan kom út á vegum bedroom comm- unity eins og áður segir, undir hatti HVALREKA-raðarinnar, og er þegar farin að hala inn spilanir, bæði á Spotify og Apple Music. Þrátt fyrir að bakgrunnurinn sé klass- ískur bendir útgefandinn á að aðdáendur Sunn0))), Swans og Æthenor ættu að geta fundið eitthvað fyrir sig á plötunni og er það barasta laukrétt. Enda eiga Viktor og Yair það sameig- inlegt að standa styrkum fótum í klassík og rokki. Í viðtali við Grapevine segir Yair að „L.A. Woman“ með The Doors hafi kveikt tónlistaráhuga hans og um rokkaðkomu Viktors þarf ekki að fjölyrða. Blaðamaður Grapevine ber það undir tónlistarmennina, að tónlistin hljómi eins og kvikmyndatónlist, en þeir hafna því. „Þetta átti einfaldlega að vera tilraun með þessi hljóðfæri, ekkert annað,“ segir Viktor. „En förum rólega í þetta orð, „til- raunir“. Það markar ekki verkið. Það er svo miklu meira en það – og fólk á það til að hræðast slíka tónlist (hlær).“ » Tónlistin er drungaleg,hendist fram og til baka og veltist upp og niður, en er formuð engu að síður. VAST er plata eftir þá Viktor Orra Árnason og Yair Elazar Glotman. Samnefnd plata kom út fyrir stuttu á vegum bedroom community. MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Okkur hefur lengi langað til að svið- setja verk eftir Virginiu Woolf sem var svona langt á undan sinni sam- tíð,“ segir Kristín Eysteinsdóttir borgarleikhússtjóri, en haustið 2020 verður ný leikgerð á sjöttu skáldsögu Woolf, Orlando – ævisaga, sem út kom í Bretlandi árið 1928 og í íslenskri þýðingu Soffíu Auðar Birgisdóttur árið 2017, sett upp á Nýja sviði Borgarleikhússins. „Woolf er einn fremsti rithöfundur 20. aldar og brautryðjandi á sviði módernískra bókennta. Skáldsögur hennar bera vitni um nútimalega og róttæka lífsafstöðu. Woolf var áhrifa- valdur í kvennasögu, skrifaði um kynferði og stöðu kvenna innan bók- menntaheimsins,“ segir Kristín og tekur fram að spurningar og vanga- veltur höfundar um kyn, sjálfskoðun og sannleika kallist sterklega á við samtímann. Áhugaverðar hugleiðingar um mannlegt eðli, ást og kynferði „Hér eru á ferð gríðarlega áhuga- verðar hugleiðingar um skáldskap, tímann, náttúruna, mannlegt eðli, ást og kynferði,“ segir Kristín og bætir við: „Við erum nýbúin að fara í mikla vinnu um framtíðarsýn Borgarleik- hússins. Sem vakandi leikhús viljum við bregðast við og vera í samtali við málefni sem eru í deiglunni,“ segir Kristín og bendir á að Orlando hafi í auknum mæli ratað á svið erlendis. Sem dæmi má nefna að fyrr í mán- uðinum frumsýndi Schaubühne í Berlín verkið í leikstjórn Katie Mitchell og leikgerð Alice Birch. „Það eru til ótal leikgerðir á þess- ari skáldsögu, en við viljum vinna okkar eigin leikgerð,“ segir Kristín og tekur fram að enn sé of snemmt að nefna mögulegan leikstjóra eða hverjir komi að leikgerðarvinnunni. Í ljósi þess að skáldsagan Orlando spannar næstum fjögur hundruð ár af lífi aðalpersónunnar, sem eldist samt aðeins um 36 ár í gegnum verk- ið og breytir um kyn á leiðinni, liggur beint við að spyrja hvort leikhúsið hafi augastað á tilteknum leikara eða leikkonu fyrir hlutverkið eða hvort allur leikhópurinn muni skipta með sér hlutverkinu. „Það verður sennilega leikkona sem fer með hlutverkið,“ segir Krist- ín og rifjar upp að Tilda Swinton, sem fór með hlutverk Orlando í kvik- myndinni frá 1992 sem Sally Potter leikstýrði, hafi verið fullkomin í hlut- verkið. Að sögn Kristínar er hug- myndin sú að leika verkið í mikilli ná- lægð á Nýja sviðinu og vera aðeins með fimm leikara í uppfærslunni. Einnig sé leikhúsið að skoða mögu- leikann á því að sami leikari leiki alla elskhuga Orlando, enda spennandi verkefni fyrir einn og sama leikara. „Orlando dregur upp óhefðbundna og lausbeislaða lýsingu á manneskju. Bókin er þroskasaga sálar, uppvaxt- arsaga ungs manns sem breytist í konu, andleg skoðun á mannsálinni þar sem ekki skiptir máli hvað við er- um heldur hver við erum. Mannssálin getur ferðast óháð tíma og mann- eskja er einfaldlega sú sem hún er. Orlando er við öll,“ segir Kristín að lokum. „Woolf langt á undan sinni samtíð“  Borgarleikhúsið setur upp Orlando – ævisögu haustið 2020 Morgunblaðið/Eggert Samtal Kristín Eysteinsdóttir vill að leikhúsið sé í samtali við samfélagið. Framsýn Virginia Woolf. Glæsilegir skartgripir innblásnir af íslenskri sögu G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.