Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 22

Morgunblaðið - 21.09.2019, Side 22
BÆJARLÍFIÐ Guðrún Vala Elísdóttir Borgarnes Hjá Sláturhúsi Vesturlands stefnir í 3.000 dilka slátrun og hefur sláturhúsið auk þess verið í nokkuð samfelldri stórgripaslátrun, en framkvæmdastjóri er Guðjón Krist- jánsson. Slátrunin er ekki stór í sniðum en með gæði og markaðs- drifni hefur fylgt þessu frekari úr- vinnsla við mötuneyti, s.s. hamborg- aragerð o.fl. Stöðugildin eru orðin 8 til 10 og það merkilega er að starfs- mennirnir eru næstum allir vanir menn, annaðhvort bændur eða fyrr- verandi bændur. Þetta minnir á blómaskeið sláturhúsa áður fyrr þegar starfsemin byggðist á heima- fólki. Það er óskandi að þetta fram- tak hjá Sláturhúsi Vesturlands blómstri því að baki núverandi stöðu liggur mikil þrautseigja, því það tók eigendur fjögur ár bara að fá slátur- leyfi í Brákareyju og að baki liggja nú fjögur ár í rekstri eða samtals átta ár.    Í fyrsta sinn er nú boðið upp á raunfærnimat í búfræði á Íslandi. Þetta er samstarfsverkefni Sí- menntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi og Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Raunfærni- matið er ætlað þeim sem eru eldri en 23 ára og hafa starfað við landbúnað í þrjú ár eða lengur. Gert er ráð fyrir að 10 einstaklingar fari í gegn í þess- ari lotu og hafa þeir þá möguleika á að stytta nám sitt ef þeir hyggjast nema búfræði við LBHÍ. Það blund- ar bóndi í mörgum Íslendingum og verður gaman að fylgjast með hvernig þetta verkefni gengur.    Skallagrímur er í botnsæti þriðju deildar í knattspyrnu og er fallinn í fjórðu deild. Ég reyndi að fara á flesta heimaleiki Skallagríms í fótbolta í sumar. Framan af var ég þess fullviss að Skallagrímur væri með lið til að vera að minnsta kosti um miðja þriðju deild. Þegar maí- mánuður var liðinn voru tveir sigrar og tvö töp að baki, liðið hafði spilað ágæta knattspyrnu og allir leikir í jafnvægi. Í júní fór að síga á ógæfu- hliðina, leikir sem áttu að vinnast töpuðust, vítaspyrnur glötuðust og fleira. Eins og formaður deildar- innar, Páll S. Brynjarsson, sagði: „Við vorum óheppnir, misstum svo- lítið dampinn og í framhaldi af því misstum við leikmenn. Hefðum kannski viljað fá aðeins fleiri leik- menn úr 2. flokki ÍA því við þá var gott samstarf og verður vonandi áfram. Í þessari stöðu safna menn saman vopnum sínum á ný og hlúa að yngri flokka starfi og styrkja þjálfarateymið, gömul saga og ný í þessum bransa.“ Ekki gefast upp, Skallagrímsmenn!    Myndlistarsýningin Litabæk- ur og litir verður opnuð laugardag- inn 28. september kl. 13 í Hall- steinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar. Þetta er fyrsta einkasýning Önnu Bjarkar Bjarnadóttur sem er fædd og uppalin í Borgarnesi og fram- kvæmdastjóri hjá Advania. Megin- uppistaðan á sýningunni verður myndir úr Borgarnesi, og hefur Anna Björk sagt frá því að hún minnist þess þegar hún var lítil stúlka alltaf að teikna og lita. Vatns- litir voru fyrstu litirnir sem hún prófaði sem barn. Sýning Önnu Bjarkar verður opin kl. 13.00-16.00 á opnunardaginn 28. september og eftir það kl. 13.00- 18.00 alla virka daga fram að 29. október. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Ekki gefast upp Skallagrímsmenn! Sláturhús Vesturlands Nú í haust stefnir þar í 3.000 dilka slátrun. Starfsmenn eru flestir vanir menn; annaðhvort bændur eða fyrrverandi bændur. 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2019 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Allir þingmenn Miðflokksins, níu að tölu, hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi álykti að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að láta gera ítarlega athugun á kostum þess að gera Alexandersflugvöll á Sauðárkróki að varaflugvelli fyrir aðra flugvelli á landinu. Í greinargerð benda þeir á að Alexandersflugvöllur sé vel stað- settur þar sem aðflug er gott, fjörðurinn víður og lítið um hindr- anir. Flugvöllurinn vísi í norður/ suður, sem eru einnig ríkjandi vindáttir á þeim slóðum. Þá sé staðsetning vallarins hagstæð með tilliti til snjóa og einnig sé hún góð sé litið til færðar og samgangna á landi. Í ljósi þessa er því beint til ráð- herra að ráðast í nauðsynlega undirbúningsvinnu og rannsóknir til að hægt sé að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd og er lagt til að ráðherra láti kanna kosti þess að gera Alexanders- flugvöll á Sauðárkróki að vara- flugvelli fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykjavíkurflugvöll, Akureyrar- flugvöll og Egilsstaðaflugvöll. Ráð- herra kynni Alþingi niðurstöður þeirrar könnunar eigi síðar en í janúar 2020. Svo vill til að sami ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, svaraði fyrirspurn í mars í fyrra frá Bjarna Jónssyni varaþingsmanni VG um varaflugvöll við Sauðár- krók. Margra milljarða endurbætur Fram kom í svari ráðherrans að nauðsynleg fjárfesting á Alexand- ersflugvelli við Sauðárkrók, svo hann geti tekið á móti stórum far- þegaþotum með litlum fyrirvara, verði á bilinu 4,0-5,1 milljarður króna. Sagði ráðherra að ekki væri þörf á því að fjölga varaflugvöllum og flugvellirnir á Akureyri og Egilsstöðum myndu þjóna hlut- verki varaflugvalla eins og þeir hefðu gert hingað til. Það kom einnig fram í svari Sig- urðar Inga að til þess að Alexand- ersflugvöllur uppfyllti allar kröfur þyrfti að ráðast í miklar og kostn- aðarsamar framkvæmdir þar sem flugvöllurinn var ekki hannaður sem millilandafluvöllur. Sem dæmi um þætti sem byggja þyrfti upp megi nefna flugverndar- aðstöðu, slitlag á vellinum og að- flugsbúnað. Kostnaður við endur- nýjun yfirborðs flugbrautar og breikkun hennar auk malbikunar er t.d. metinn á 1,5-2,0 milljarða króna. Þá er fjárfesting í flugstöð, sem uppfyllir allar kröfur til hús- næðis, tækjabúnaðar, landamæra- vörslu og móttöku allt að 200 far- þega, metin á 1,0-1,5 milljarða króna. Rekstrarkostnaður flugvallarins á ári, án afskrifta og kostnaðar vegna fjárbindingar, væri áætlaður á bilinu 400-600 milljónir króna. Morgunblaðið/Eggert Keflavíkurflugvöllur Ráðast þarf í mjög kostnaðarsamar endurbætur á Alexandersflugvelli ef hann á að geta tekið á móti stórum farþegaflugvélum. Að auki væri rekstrarkostnaður á ári áætlaður á bilinu 400-600 milljónir króna. Alexandersflugvöllur verði varaflugvöllur  Í svari í fyrra taldi ráðherra enga þörf á nýjum varaflugvelli Kristján Þór Júlíusson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað starfshóp vegna átaks til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Ís- landi. Starfshópnum er ætlað að gera aðgerðaráætlanir vegna sýklalyfjaónæmra baktería í dýr- um, sláturafurðum og matvælum. Jafnframt að setja fram mismun- andi valkosti við stefnu sem miðar að því að koma í veg fyrir dreif- ingu matvæla sem í greinast sýklalyfjaónæmar bakteríur, að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þetta er hluti af átaki til að draga úr útbreiðslu sýklalyfja- ónæmra baktería á Íslandi sem Kristján Þór og Svandís Svavars- dóttir heilbrigðisráðherra settu af stað 8. febrúar síðastliðinn. Jafn- framt er þessi vinna hluti af að- gerðaáætlun um að efla matvæla- öryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu inn- lendrar matvælaframleiðslu sem unnið er eftir í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Starfshópnum ber að skila mats- gerð um mismunandi valkosti við stefnu sem miðar að því að koma í veg fyrir dreifingu matvæla sem í greinast sýklalyfjaónæmar bakt- eríur eigi síðar en 1. febrúar nk. Þá ber hópnum að skila loka- skýrslu ásamt tillögum eigi síðar en 1. maí 2020. Skipar hóp gegn sýkla- ónæmum bakteríum Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.