Morgunblaðið - 28.09.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
Mikil og vaxandi umsvif eru hjá
Stefnu hugbúnaðarhúsi á Akureyri
sem er ört vaxandi fyrirtæki. Á síð-
asta ári voru þar fimm forritarar
ráðnir til starfa, strax eftir að þeir
luku námi í tölvunarfræðum við
hugbúnaðardeild Háskólans á Ak-
ureyri. „Fimm störf á stað eins og
Akureyri eru mikið; það skiptir
svæðið fjárhagslega máli á marg-
víslegan hátt þegar vel menntað
fólk hefur hér störf. Þess vegna er
gríðarlega mikilvægt að Háskólinn
á Akureyri bjóði upp á tölv-
unarfræðinám,“ segir Matthías
Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri
Stefnu.
Sé miðað við íbúafjölda á Akur-
eyri samsvarar ráðning Stefnu á
fimm sérfræðingum því að fyrir-
tæki á höfuðborgarsvæðinu réði
liðlega 50 manns.
Með 1.000 vefi í loftinu
Starfsmenn Stefnu voru tveir í
upphafi en eru nú um 30 – þar af
tveir í Svíþjóð. Fyrirtækið er með
rúmlega 1.000 vefi í loftinu, þjón-
ustar liðlega helming sveitarfélaga
landsins og alls vel á annað hundr-
að opinberra stofnana, auk fjölda
stórra einkafyrirtækja.
Reynslan er góð
Tölvunarfræðinám býðst nú að
nýju við Háskólann á Akureyri og
er það í samstarfi við Háskólann í
Reykjavík. Reynslan er góð, er í til-
kynningu haft eftir Ólafi Jónssyni,
verkefnastjóra námsins. Starfs-
mennirnir fimm, þeir sem ráðnir
voru til Stefnu strax eftir nám, telja
mikilvægt að boðið sé upp á nám í
tölvunarfræðum á Akureyri.
„Mér fannst mjög mikilvægt að
geta lært í heimabyggð, bæði hefur
maður stuðning frá foreldrum og
mér finnst líka skipta máli fyrir
mig sem íþróttamann að þurfa ekki
að yfirgefa félagið sem ég hef spil-
að með,“ segir Garðar Már Jónsson.
„Margir þurfa suður í nám þannig
að íþróttafélögin missa frá sér
menn og ég fór einmitt suður um
tíma; var þar fyrsta árið eftir
menntaskólann. Þegar tölvunar-
námið var svo endurvakið hér
ákvað ég að koma heim. Mér finnst
miklu þægilegra að vera hér í mínu
umhverfi.“
Sterk menntun er jákvæð
Ármann Pétur Ævarsson hafði
lært íþrótta- og heilsufræði, þjálf-
aði eftir það börn í íþróttum og
starfaði við kennslu einn vetur. „Ég
fann að kennslan var ekki það sem
ég vildi vinna við alla ævi og stökk
því á tölvunarfræðinámið þegar ég
sá það auglýst,“ segir Ármann Pét-
ur sem lýsir því sem heillandi
möguleika að geta lært í heima-
byggð.
„Ég var sjö mínútur að ganga í
skólann en þurfti ekki að keyra í
hálftíma eða 40 mínútur, eins og
margir nemendur fyrir sunnan. Ég
er sannfærður um að það er mjög
gott fyrir Norðurland að nám sem
þetta sé í boði hér; öll sterk mennt-
un er jákvæð fyrir viðkomandi
svæði. Það eru ótrúleg forréttindi
að geta lært í heimabyggð og frá-
bært tækifæri að fá strax vinnu hjá
svo öflugu og góðu fyrirtæki,“ seg-
ir Ármann Pétur Ævarsson í til-
kynningu frá Stefnu.
Heillandi möguleiki að
geta lært í heimabyggð
Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson
Tölvunarfræðingar Frá vinstri talið: Arnar Björn Pálsson, Arnar Pétursson, Daníel Örn Stefánsson, Garðar Már
Jónsson og Ármann Pétur Ævarsson. Þeir námu fræðin á Akureyri og fengu svo vinnu í sínu fagi í heimabænum.
Stefna réð 5 tölvunarfræðinga Ávinningur á Akureyri
Hafáherslur í formennskum Íslands í Norðurskautsráðinu,
Norrænu ráðherranefndinni og samstarfi utanríkisráðherra
Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
Norræna húsinu, mánudaginn 7. október 2019 kl. 10.00 – 12.30
Dagskrá:
Kl. 10:00 – 10:10 Afmælisávarp
Björg Thorarensen, prófessor, stjórnarformaður Hafréttarstofnunar
Kl. 10:10 – 10:30 Formennskuáætlun Norðurskautsráðsins og
málefni hafsins
Einar Gunnarsson, sendiherra, formaður embættismannanefndar
Norðurskautsráðsins
Kl. 10:30 – 10:45 Hafið í formennsku Íslands í Norrænu ráðherra-
nefndinni og samstarfi utanríkisráðherra Norðurlanda og
Eystrasaltsríkja
Geir Oddsson, sérfræðingur á Norðurlandadeild utanríkisráðuneytisins
Kl. 10:45 – 11:00 Bláa hagkerfið
Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans
Kl. 11:00 – 11:15 Aðgerðir gegn plastmengun í norðurhöfum
Magnús Jóhannesson, sérlegur ráðgjafi í norðurskautsmálum í
utanríkisráðuneytinu
Kl. 11:15 – 11:30 Sóknarfæri til orkuskipta í höfnum
Sigríður Ragna Sverrisdóttir, verkefnastjóri, Klappir Grænar Lausnir
Kl. 11:30 – 11:45 Pólkóðinn og öryggi í siglingum á norðurslóðum
Sverrir Konráðsson, fagstjóri í siglingamálum á Samgöngustofu
Að loknum umræðum og fyrirspurnum verður boðið upp á léttar veitingar.
Málstofustjóri: Tómas H. Heiðar, forstöðumaður Hafréttarstofnunar
Hafið bláa hafið
Málstofa í tilefni af 20 ára afmæli
Hafréttarstofnunar Íslands
Eydís Arna Líndal og Hreinn
Loftsson hafa verið ráðin aðstoð-
armenn Áslaugar Örnu Sigur-
björnsdóttur dómsmálaráðherra.
Frá þessu er greint í frétt á vef
dómsmálaráðuneytisins í gær.
Eydís Arna lauk MA-prófi í lög-
fræði frá Háskóla Íslands 2016 en
starfaði á lögmannsstofunni Laga-
þingi frá árinu 2011, fyrst í hluta-
starfi með námi, en síðar sem lög-
fræðingur. Hún hefur að undan-
förnu verið starfsmaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Hreinn Loftsson lauk laganámi
við HÍ árið 1983 og öðlaðist rétt-
indi til málflutnings fyrir Hæsta-
rétti árið 1993. Hann á að baki fjöl-
breyttan feril í lögmennsku,
atvinnulífi, stjórnsýslu og sem að-
stoðarmaður ráðherra í nokkrum
ráðuneytum frá árinu 1985 til 1992.
Hann starfaði sem lögmaður fyrst
á eigin stofu og síðan sem meðeig-
andi lögmannsstofunnar að Höfða-
bakka. Frá 2014 hefur hann starfað
sjálfstætt.
Ráðin aðstoðarmenn
dómsmálaráðherra
Eydís Arna
Líndal
Hreinn
Loftsson
Ljósmyndir/Stjórnarráðið
„Við erum ekki komin á þann stað að
útfæra þessa gjaldtöku heldur erum
við einmitt að segja að gjaldtaka á
umferð, ökutæki og eldsneyti sé til
heildarendur-
skoðunar og við
sjáum fyrir okkur
í framtíðinni að
gjald verði frekar
tekið af notkun
samgöngumann-
virkja frekar en
af dísellítrum,“
sagði Bjarni
Benediktsson
fjármálaráðherra
við mbl.is í gær, spurður um út-
færslu flýti- og umferðargjalda sem
eiga að koma í stað bensín- og olíu-
gjalda skv. samkomulagi ríkisins og
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
um samgöngumál
,,Þessi þróun er þegar byrjuð, við
gáfum eftir 3 milljarða króna í virðis-
aukaskattkerfinu í fyrra vegna inn-
flutnings á vistvænum bílum og eig-
endur rafmagnsbíla eru ekki að
mæta á bensínstöðvar eða að greiða
eldsneytisgjald,“ bætir hann við.
Bjarni segir að engin ákvörðun
hafi verið tekin um það með hvaða
hætti umferðarskattar verði lagðir á
enda séu margar útfærslur í boði.
Hann er þó hlynntur því að nota
tæknina sem mest. „Við sjáum
ákveðna leið farna í Vaðlaheiðar-
göngunum, önnur leið var farin í
Hvalfjarðargöngunum og það eru al-
þekktar leiðir víða um lönd með mis-
munandi útfærslum. Þetta er ennþá
óútfært en eftir því sem menn ætla
að fylgjast nákvæmar með mönnum
þá er ljóst að það koma upp persónu-
verndarsjónarmið,“ útskýrir hann
og bætir við:
„Eitt sem ég hef verið að spyrja
mig er hvort eigendur bíla geti
hreinlega skilað af sér stöðu kíló-
metramælis á tilteknum stöðum og
það myndi þá lítið hafa með það að
gera hvar menn hafa verið heldur
bara hversu mikið þeir hafa verið að
aka á vegakerfinu.“
Í samkomulagi ríkisins og sveitar-
félaganna er gert ráð fyrir að fram-
lög ríkisins vegna hluta fjármögnun-
arinnar byrji á árinu 2022. „Þá er
spurningin að hve miklu leyti menn
ætla að treysta á slíka gjaldtöku og
að hve miklu leyti menn ætla að
koma með aðra fjármögnun,“ segir
Bjarni. ,,Þegar menn lesa samkomu-
lagið þá er alveg augljóst að við erum
að halda því opnu að það verði aðrir
möguleikar til fjármögnunar til stað-
ar. Ég hef nefnt dæmi um fjármögn-
unarleið sem ríkið getur augljóslega
sótt í, sem er að losa um eignarhald á
fjármálafyrirtækjum og þannig auka
getu sínu til að fara í stofnvegafram-
kvæmdir,“ segir hann, en Bjarni
sagði í vikunni að hann vildi hefja
sölu á Íslandsbanka strax í næstu
viku.
Gjald af notkun
frekar en lítrum
Möguleg fjármögnun með bankasölu
Bjarni
Benediktsson
Kristín Þor-
steinsdóttir, út-
gefandi og fyrr-
verandi ritstjóri
Fréttablaðsins,
hefur látið af
störfum hjá miðl-
inum. Frá þessu
greindi hún í
færslu á Face-
book-síðu sinni.
Á vef Frétta-
blaðsins segir að eftir einföldun á
starfsemi félagsins við sölu á eign-
um til Sýnar hafi starf útgefanda
einfaldast. Allir rekstrarþættir
starfsins færist til Jóhönnu Helgu
Viðarsdóttur, framkvæmdastjóra
Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins,
og Ingibjörg Pálmadóttir stjórnar-
formaður Torgs taki við öðrum
þáttum sem tilheyri hlutverki út-
gefanda.
Kristín
Þorsteinsdóttir
Hætt hjá
Fréttablaðinu