Morgunblaðið - 28.09.2019, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Landgerð utan Klettagarða í
Sundahöfn er í fullum gangi en
hún hófst síðastliðið vor. Hver
vörubíllinn af öðrum kemur ak-
andi með grjót úr grunni nýja
Landspítalans og sturtar í sjóinn.
Hin nýja landfylling verður alls
2,0 -2,5 hektarar, samkvæmt upp-
lýsingum Jóns Þorvaldssonar, að-
stoðarhafnarstjóra Faxaflóahafna
sf. Í landgerðina þarf um 375.000
rúmmetra af fyllingarefni og stór-
gerðu grjóti til sjóvarna. Um 180-
200.000 m3 fást í heild úr grunni
Landspítalans, um 80.000 m3 af
fyllingarefni eiga Faxaflóahafnir
til í dag á svæðinu utan Klepps og
um 100.000 m3 þarf síðan að fá úr
öðrum verkum, að sögn Jóns.
Efniskeyrsla úr grunni Land-
spítala hófst í vor og reiknað er
með að því verki ljúki á fyrstu
mánuðum næsta árs. Landgerðar-
framkvæmdir munu standa yfir
árið 2020 og þeim líklega ljúka
vorið 2021. Landfyllingin mun
ekki ná út að Skarfaskeri og sker-
ið verður því áfram sýnilegt
kennileiti á þessum stað.
Hafnarhúsi breytt í listasafn
Markmiðið með þessari nýju
landfyllingu við Klettagarða er að
útbúa lóð fyrir framtíðarhöfuð-
stöðvar Faxaflóahafna sf. Þarna
verða skrifstofur, bækistöð og
skipaþjónusta með viðlegu fyrir
dráttar- og hafnsögubáta fyrir-
tækisins. Lóðin þarf að vera vel
staðsett fyrir starfsemi hafnar
jafnt á sjó og landi. Rekstri hafn-
ar fylgir þjónusta við móttöku
skipa í Sundahöfn og Gömlu höfn-
inni.
Höfuðstöðvarnar eru nú í Hafn-
arhúsinu. Reykjavíkurborg
hyggst kaupa hlut hafnarinnar í
Hafnarhúsinu og breyta í lista-
safn. Listasafn Reykjavíkur en
nú þegar með hluta hússins undir
sína starfsemi.
Þá er einnig áformað að Veit-
ur, dótturfélag Orkuveitu
Reykjavíkur, fái hluta landfyll-
ingar undir stækkun skólpdælu-
og hreinsistöðvar við Kletta-
garða, sem tekin var í notkun ár-
ið 2000.
Á undanförnum áratugum hef-
ur gríðarmikið nýtt land orðið til
á landfyllingum á hafnarsvæðum
Reykvíkinga, bæði í Sundahöfn
og við Gömlu höfnina í Kvosinni.
Má vel sjá þær breytingar sem
orðið hafa á strandlengjunni þeg-
ar loftmyndir eru bornar saman.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landgerðin Vel hefur gengið að nema land utan Klettagarða. Hver vörubíllinn af öðrum kemur með grjótið úr Landspítalalóðinni og sturtar í sjóinn. Landgerðinni lýkur væntanlega vorið 2021.
Teygir sig í áttina að Skarfaskeri
Landgerð utan Klettagarða í Sundahöfn gengur vel Grjóti úr Landspítalalóðinni sturtað í sjóinn
Tillaga að landfyllingu að Klettagörðum
Heimild: Faxafl óahafnir Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Landfylling
Um 2 ha, 375 þús. m3
Klettagarðar
Sk
arf
ag
arð
ar
Lau
gar
nes
Um 4.500 nemendur í 4. bekk og
um 4.200 nemar í 7. bekk tóku sam-
ræmd könnunarpróf í íslensku og
stærðfræði undanfarna daga, en
óvenju fjölmennur árgangur er í 4.
bekk að þessu sinni.
Nemendur í 155 skólum tóku
prófin. Um 30% skólanna voru með
10 eða færri nemendur í próftöku,
tæp 60% skóla með 11 til 50 nem-
endur og um 10% skóla með fleiri
en 50 nemendur. Prófin í 7. bekk
voru 19. og 20. september, en 26. og
27. september í 4. bekk.
Samkvæmt grunnskólalögum
skal leggja fram samræmd könn-
unarpróf í íslensku og stærðfræði
fyrir 4. og 7. bekk grunnskóla en
nemendur í 9. bekk eiga að þreyta
samræmd könnunarpróf í íslensku,
stærðfræði og ensku. Tilgangur
prófanna er að meta hvernig mark-
miðum aðalnámskrár hefur verið
náð, vera leiðbeinandi um áherslur í
náminu og veita upplýsingar um
stöðu nemenda í náminu.
Tíu manna aðgerðastjórn
Menntamálastofnunar var til taks
allan prófatímann til að fylgjast
með framkvæmdinni og taka við
fyrirspurnum frá skólunum. Í til-
kynningu frá stofnuninni segir að
samstarfið við skólana hafi gengið
vel og fá erindi séu til marks um að
skólarnir hafi undirbúið fram-
kvæmdina vel.
Nú verður unnið úr niðurstöðum
prófanna og skýrslur teknar saman
um þau. Lögð er áhersla á að um
könnunarpróf sé að ræða og af-
markaðan hluta af fjölbreyttu
námsmati.
Samræmd könnun-
arpróf gengu vel
Nemar í 155 skólum tóku prófin
GRÆNT ALLA LEIÐ