Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Side 4
Umdæmisstj órapistill
Kæru Kiwanisfélagar
Fyrir tæpum tveimur árum
var leitað til mín um að taka
að mér æðstu stöðu sem hreyf-
ingin getur veitt mér hér innan-
lands. Mér þótti fjarstæða að
ég gæti gert þetta, en þegar ég
leitaði til ýmissa félaga innan
hreyfingarinnar sannfærðist
ég um að þetta væri eitthvað
sem ég gæti og ætti að gera. Eg
sló því til með fjölskyldu mína
með mér.
Nú þegar á hólminn er
komið hafa runnið á mig tvær
grímur. Var ég að gera eitthvað
sem ég get ekki eða var rétt að
fara út í þessa vegferð. Eg hef
haft nokkurn tíma til að velta
þessu fyrir mér og hef komist
að þeirr niðurstöðu að ég tók
rétta ákvörðun því hreyfingin
okkar er svo mögnuð og hef-
ur upp á svo margt að bjóða.
Mikið af fólki þekkir okkur af
þeim góðu störfum sem við höf-
um unnið og ekki síst allt fólkið
sem ég hef fengið að vinna með
og kynnast á þessum mánuðum
sem ég hef gengt æðsta embætti
sem þið hafið veitt mér.
Nú stendur Kiwanishreyf-
ingin á tímamótum. Þann 14.
janúar eru 50 ár síðan hreyfing-
in festi rætur hér á landi. Mikið
vatn hefur runnið til sjávar á
þessum árum og margt sem hef-
ur áunnist með störfum okkar.
A þriggja ára fresti hafa félag-
ar sameinast við sölu á K-lykli
og allar götur hefur sala hans
runnið til geðsjúkra. Það voru
Kiwanisfélagar sem sáu um
akstur fatlaðra sem seinna varð
að Ferðaþjónustu faltlaðra. Nú
síðasta áratug hafa Kiwanisfél-
agar séð til þess að öll börn sem
ljúka fyrsta ári sínu í grunn-
skóla hafa fengið reiðhjólahjálm
og hjóla því öryugg um borg
og bý.
Kiwanis er vinátta-Kiwanis er kraftur
Þegar hreyfingin kom fyrst
til landsins voru u.þ.b. tvö ár
í það á ég kæmi í heiminn. En
það var svo um þrjátíu árum
seinna að ég fékk að kynnast
þessari frábæru hreyfingu, en
ég gekk til liðs hana þann 5.5.
1994 þegar klúbburinn minn
Sólborg var stofnaður.
Þann 14.jan. 1964 var Kiwan-
isklúbburinn Hekla stofnaður
og varð strax þekktur af störf-
um og þjónustu við fatlaðra og
eldri borgara.
Kjörorð heyfingarinnar eru
"Þjónum börnum heimsins"
undir þeirri gullnu reglu "það
sem þið viðljið að aðrir menn
gjöri yður, það skulið þér og
þeim gjöra" Þegar skoðað er
allt það sem félagar um land
allt hafa látið renna til þeirra
sem minna mega sín, til
heilbrigðisstofnana af ýms-
um toga, til barna og eða
gamalmenna og teknar eru
saman þær vinnustundir sem
við höfum unnið fyrir börn,
hvort heldur er á íþróttamót-
um, mála veggi sambýla, fara
með þessa hópa í ferðalög,
gróðsursetning trjáa til að
græða upp landið okkar, sjáum
við að samfélagið getur ekki án
okkar verið!
Heklufélagar hafa komið að
öllum störfum á vegum um-
dæmisins okkar hér heima sem
og í Evrópu og á heimsvísu.
Einn þeirra er Eyjólfur Sigurðs-
son. Hann var Evrópuforseti
1982-1983 og Heimsforseti 1995-
1996 og hans er vel minnst hvar
sem maður kemur á ráðstefnur
erlendis. Hann sá um Evrópu-
skrifstofu Kiwanis um árabil.
Ég varð þess heiðurs aðnjót-
andi að fá að sitja fræðslu á
þeim tíma og njóta gestrisni
þeirra hjóna Eddy og Sjafnar.
Eftir 1964 fjölgaði klúbbum
og um leið félögum, hreyfing-
in okkar óx og dafnaði vel.
Þegar við vorum hvað flest,
losuðum við um 1350 félaga í
umdæminu okkar sem nær yfir
Island - Færeyjar.
Nú síðustu ár hefur klúbbum
fækkað sem og félögum umtals-
vert. En ég trúi því og veit að
við höfum náð botninum og nú
mun félögum fjölga og þá sér í
lagi á ég von á að mesta fjölg-
unin verði hjá konum, þó svo
ég viti að mikið af karlmönn-
um komi til með að bætast í
hóp okkar.
Verum ötul að koma verkum
okkar á framfæri, þannig ná-
um við til fjöldans, notum árið
2014 vel, þetta er árið sem hreyf-
ingin okkar hér á landi er 50 ára.
Arið 2015 verður svo enn stærra
hjá okkur öllum, því þá eru 100
ár frá því að Kiwanishreyfingin
var stofnuð í Detroit, en það var
þann 21. janúar 1915.
Að lokum vil ég þakka fyrir
þær stundir sem ég hef átt með
ykkur þau 20 ár sem ég hef ver-
ið í hreyfingunni og þá mánuði
sem ég hef fengið að starfa sem
æðsti embættismaður hreyf-
ingarinnar, en um leið hlakka
ég til að vera með ykkur á
afmælisárinu okkar allra og sér
í lagi á afmæli Heklunnar þann
14. janúar. Njótum vináttunnar,
virkjum kraftinn og þá mun
okkur dafna vel.
Dröfn Sveinsdóttir
Umdæmisstjóri 2013-2014.
4 Kiivanisfréttir Janúar 2014