Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Síða 19

Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Síða 19
Klúbbafréttir - Eldev. Kópavogi Fyrir mig, blindan manninn er það mikil áskorun að taka við sem forseti Eldeyjar, eins öflug- asta klúbb landsins. Það var á aðalfundi Eldeyjar í “Ferðinni út í bláinn í vor, sem ég og stjórn mín var kynnt. Kynni mín á Kiwanis hófust haustið 2004, þegar við konan vorum að fara til Kanarí og lentum í langri seinkun. í biðinni kynntumst við þeim Gunnari og Fiaddy. Okkur varð strax vel til vina sem stendur enn. Gunnar staglaðist stöðugt á klúbbnum sínum og það endaði með að ég fór á fund með honum og er þar enn! Skrýtið var að koma í svona stóran og þölbreyttan klúbb og þekkja engan né sjá, en ekki leið þó lan- gur tími uns mér fór að líða betur í þessum karlahóp. Mér var tekið með kostum og kynjum. Ekki leið á löngu áður en ég var kominn á kaf í félagsstörfin, rétt eina ferðina, en þar hef ég víða komið við, m.a. hjá Blindrafélaginu, Daufblindra- félaginu, Ö.B.Í, Sjómannafélag- inu, Tölvumiðstöð fatlaðra o.fl. Það er gefandi að taka þátt í svo umfangsmiklu star- fi Traust, sammvinna, vinátta einkennir allt starf klúbbsins og nú á ég 60 nýa vini. Starfsemi klubbsins er nokkuð fastmótuð, að sumri höldum við t.d. Eldeyarútilegu í ágúst, en þar mættu nú um 50 manns. 1 sept. var almennur fundur með ræðu- manni og félagsmálafudur skýrslu- skil o.fl. Stjórnarskiptafundur í okt. var mjög virðulegur að vanda, veittir voru bikarar fyrir 100% mætingu og fyrir skemmti- legasta og öflugsta félagann. Kon- ráði Konráðssyni fyrrv svæðis- stjóra var og veitt silfurstjarna fyrir störf í svæði og klúbb. Á fund með ræðumanni í nóv. komu Dyngjufélagar í heimsókn, þar mættu 13 vaskar Kiwanis- konur, mjög skemtilegur fundur. Uppástungur um Ijáraflanir til að fara á heimsþingið 2015 voru rædd- ar og ákveðið að vinna þær áfram Við höfum mikinn hug á að fjöl- menna á þetta 100 ára afmælisþing og kynna klúbbinn og starfsemi hans þar. Einnig er stefnt á Mið- jarðarhafssiglingu “krús” 2016. Félagsmálafundur í nóv. ákvað að styrkja börn á Filippseyjum um $2.500, íþróttafélag fatlaðra um lOOþús kr og Skólabókasöfn Kópa- vogs um 50þús kr og farand- bikar til lestrarkeppni skóla í Kópavogi. Það sem af er vetri hefur Eldey veitt ýmsa styrki að verðmæti um 700þús kr. til viðbótar við um 300þús kr “Model club” framlags til heimsverkefnis Kiwanis “Stöðvum Stífkrampa” Á fundi í des. sagði Örn Árna- son leikari frá sjálfum sér og hver hann væri í raun og veru, vildi verða smiður en ekki hvað, nú byggir hann upp menn bæði á sál og líkama. Með Kiwaniskveðju Friðgeir Þráinn Jóhannesson Forseti Eldeyjar Þátttakendur í árlegu Kristinsmóti í keilu hjá yngri kynslóðinni Kiwanisfréttir janúar 2014 19

x

Kiwanisfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.