Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Síða 18

Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Síða 18
Klúbbafréttir - Os. Hornafírði Góð mæting hefur verið hjá Ós það sem af er starfsári. Tveir nýir félagar voru teknir inn í nóvember og von er á fleirum seinna í vetur. Félagar hafa verið duglegir að heimsækja aðra klúbba og mættu þrír félagar á svæðisráðsfund sem haldinn var á Selfossi í nóvem- ber. Þar mættu núverandi svæðisstjóri Sögusvæðis Geir Þorsteinson sem er félagi í Kiwanisklúbbnum Ós og ritari svæðisstjóra Stefán Brandur Jónsson fyrrverandi svæðis- stjóri og Haukur Sveinbjörns- son forseti og fyrrverandi svæðisstjóri. Um miðjan nóvember fjölmenntu Ósmenn á jólahlaðborð á Hótel Hérað á Egilstöðum. Jólahlaðborðið er mikilvægur liður í að hrista menn saman og gera um leið vel við eiginkonurnar. Okkar árlega jólatréssala hefur gengið vel. En fyrst er hugað að sölu á stórum jóla- trjám í sveitarfélaginu. Nokkr- ir Kiwanisfélagar mættu til að grisja tré í landi Arasels en þar fást stóru trén sem eru seld hér á staðnum. Þar á meðal eru bæjartréð, stórt tré við NETTÓ sem félagar skreyttu sem og tréð við Landsbankann. Síð- ustu tvær vikurnar fyrir jól er aðalsalan en þá eru bæjarbúum seld jólatré og er það aðalfjár- öflun Óss. Til að nálgast jólatré er m.a. farið á slóðir Þorbergs í Steinadal þar sem hann skrifað Bréf til Láru en þar fást stafa- furunnar. Agóða af sölu jóla- trjáa er vel varið en stjórn styrktarnefndar Óss hefur samþykkt að Ós styrki tíu fjölskyldur í samstarfi við Samfélagssjóð Hornafjarðar í jólaúthlutun í ár. Fjórða de- sember var jólahátíðarfund- ur þar sem eiginkonum var líka boðið. Þar fengu nokkrir félagar sem hafa verið forsetar í klúbbnum og eru enn félagar gull- og silfurstjörnur. Stefna Óss er að stofnfélagar og fyrrverandi svæðisstjórar fá gullstjörnur og fyrrverandi forsetar silfurstjörnur. Þetta er kærkomið tækifæri til að heiðra þá sem hafa gegnt ábyrgðarstörfum hjá klúbbn- um og um leið að styrkja gott málefni en hluti af verði stjarnanna rennur í Stífkram- paverkefnið og afgangurinn í styrktarsjóð umdæmisins. Þeir sem fengu gullstjörnur eru núverandi svæðisstjóri Sögu- svæðis Geir Þorsteinsson, en hann er í annað skipti svæðis- stjóri, Haukur Sveinbjörnsson forseti Óss stofnfélagi og fyrr- verandi svæðisstjóri og Gunn- ar Gunnlaugsson stofnfélagi og fyrrverandi forseti Óss. Enn- fremur fékk Stefán Brandur Jónsson fyrrverandi forseti og svæðisstjóri gullstjörnu. Þetta eru fyrstu gullstjörnur sem Ós hefur veitt en áður hefur Ós heiðrað nokkra félaga með silfurstjörnu. Kiwanislykil úr gulli fékk ritari vegna góðs árangurs við fjölgun félaga. í febrúar á nýju ári er fyrir- huguð Groddaveisla en hún hefur verið að skapa sér hefð meðal Hornfirðinga. Þar er boðið upp á ýmsar útgáfur af reyktu og söltuðu hrossakjöti, spikfeitt, soðið og saltað kinda- kjöt og moðsoðið reykt kinda- kjöt og margt annað sem Haukur Sveinbjörnsson yfir- kokkur hefur hanterað sjálfur. Aðsókn að Groddaveislu hefur aukist um tugi prósenta milli ára. Ef aðrir Kiwanisfélagar hafa áhuga á að mæta er þeim bent á að hafa samband Hauk forseta Óss. Þegar líður að páskum er haldið páskabingó sem ávallt er vel sótt af Horn- firðingum. Ekki má gleyma að afhending hjálma til 6 ára barna vekur alltaf mikla gleði hjá Ós félögum og börnunum í Grunnskóla Hornafjarðar en Ós var einn af fyrstu klúbb- um landsins til að byrja á því verkefni. í lokin vil ég nota tækifærið og óska Kiwanisklúbbnum Heklu til hamingju með 50 ára afmælið. Með kveðju Sigurður Einar Siurðsson ritari Kiwanisklúbbnum Ós 18 Kiwanisfréttir Janúar 2014

x

Kiwanisfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.