Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Side 10

Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Side 10
milli félaga og hins vegar þjón- ustustarfið þar sem tekið er á brýnum samfélagsverkefnum. I þessu mikilvæga starfi öðlast Kiwanisfélagar aukinn skilning á fjölbreyttu skipulagi sam- félagsins. Sá skilningur gerir félagana að betri þegnum í okkar samfélagi. Fyrstu áratugina átti Hekla alltaf fulltrúa á Evrópuþingum og oft á Heimsþingum. Við töldum það skyldu okkar að taka þátt í alþjóðastarfinu, stækka sjóndeildarhringinn og öðlast meiri skilning á starfi hreyfingarinnar í samfélagi þjóðanna. Hekla átti fulltrúa í Evrópustjórn hreyfingarinn- ar í mörg ár, þar á meðal tvo Evrópuforseta, Bjarna B. Ás- geirsson og Eyjólf Sigurðs- son. Síðar tók Eyjólfur sæti í heimsstjórn hreyfingarinnar og sat þar í 9 ár og var forseti heimshreyfingarinnar 1995- 1996. Þegar hann lauk starfi í heimsstjórn varð hann fram- kvæmdastjóri Evrópuskrifstof- unnar í Gent í Belgíu. Árið 2003 var hann beðinn að taka við alþjóðaskrifstofu hreyfing- arinnar í Indianapolis í Indiana í Bandaríkjunum og gengdi hann því starfi í þrjú ár. Starfsemi Kiwanislúbbsins Heklu í fimmtíu ár er merkileg að mörgu leiti eins og rakið hefur verið lítillega hér að framan. En starfinu verður ekki gerð ítarleg skil í stuttri blaðagrein þar þarf miklu meira til. Margir hafa hér komið að verki í gegnum árin og sumir eru farnir yfir móð- una miklu en skilja eftir sporin í veginum sem við gengum eftir þessi fimmtíu ár. Þeirra ber að minnast á þessum tíma mótum. Ef ekki hefði verið fyrir þeirra starf værum við ekki að fagna mikilvægum áfanga í Kiwanisstarfinu á Islandi. Eg minntist á það hér að framan að Hekla hefði staðið að stofnun margra Kiwanis- klúbba á íslandi og erlendis hér fyrr á árum. Margir góðir félagar yfirgáfu Heklu á þess- um tíma og gengu til liðs við hina nýju klúbba og er ekkert athugavert við það. Það má vera að við höfum stundum gleymt m óðurkl ú bbnu m, Heklu, þegar við fórum um landið og kynntum Kiwan- ishreyfinguna fyrir væntan- legum Kiwanisfélögum. Við vorum svo uppteknir af því að koma nýjum klúbbum á fót. Félagafjöldi Heklu sem náði yfir 80 félögum þegar best lét, en fór síðan fækkandi. Það er ekki til nein ein skýring á því hversvegna klúbbar detta niður í félagatölu um tíma áður en fjölgar á ný, en ljóst er þó að hættulegasta staðan er þegar mörg ár líða án þess að unnið sé markvist að því að yngja upp hópinn. Ég lít á stöðuna í dag sem tímabundna, ég trúi því ekki að við getum ekki náð til unga fólks- ins með breyttum áherslum og opnari huga. Kiwanishreyfingin á framtíð, það er jafnvel meiri þörf fyrir okkar starf í samfélagi nútímans en áður var. Við skul- um mæta næstu 50 árum með þá von í brjósti að Kiwanisklúbbur- inn Hekla haldi áfram að vinna að málum þeirra sem minna mega sín í íslensku samfélagi. Til hamingju með fimmtíu árin Heklufélagar. Eyjólfur Sigurðsson fyrrv. forseti KI Hrafnistufólk í Strandakirkju, akstur í boði Heklufélaga Afmælisskinn til KC Capital City Eyjólfur Sigurðsson 1972 Forystumenn þjóðarinnar voru fastagestir d Heklufundum. Bjami Benediktsson í pontu 10 Kiwanisfréttir Janúar 2014

x

Kiwanisfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.