Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Side 14
og þau skapa ekki vettvang fyrir
hinn almenna Kiwanisfélaga til að
koma sjónarmiðum og hugmyd-
um á framfæri. Ég skil t.d. ekki
hvers vegna skýrslur sem birtar
eru í blaðinu eru lesnar orðrétt
upp á þingfundi í stað þess að
gefa betri tíma til umræðna,
hugmynda- og skoðanaskipta
um starfið. Umdæmis- og svæðis-
stjórar ættu frekar að sitja fyrir
svörum og reyna að skapa um-
ræður og reyna að ná fram skap-
andi hugmyndum frá félögum.
A síðasta þingi var okkur skipt í
vinnuhópa eftir hádegi á föstu-
deginum og samkvæmt dag-
skrá áttu þeir að kynna sínar
niðurstöður á þingfundi á laug-
ardeginum og þar átti að ræða
þær.Vinnuhóparnir luku sínu
verki, en niðurstöðurnar voru
hvorki kynntar né ræddar og
þessi vinnubrögð eru síður en svo
hvatning fyrir félaga til að koma
skoðunum og hugmyndum á
framfæri. Ef þessi leið er farin er
mikilvægt að ræða niðurstöður og
vinna með þær.
JO: Undirritaður hefur bara setið
eitt þing. Persónuleg skoðun mín
er að einn langur laugardagur
eigi að duga fyrir samkomu af
þessu tagi. Vægt til orða tekið, er
ekki mikill áhugi eða eftirvænting
tengd umdæmisþingi hjá Eldfelli
og verið erfitt að fá félaga til að
sitja það.
“Mér finnst þessi þing
afskaplega þunglamaleg
og óskilvirk og þau skapa ekki
vettvang fyrir hinn almenna
Kiwanisfélaga... “[Guórún]
Mynduð þið gera þetta aftur?
Efjá hverju mynduð þið vilja
breyta?
JE: Ég mundi hiklaust gera þetta
aftur en tel að það þyrftu að vera
2-3 Kiwanisfélagar sem færu
saman í svona verkefni og með
góðar leiðbeiningar í höndunum
GJ: Já ég myndi örugglega gera
þetta aftur en vegna ákveðinna
vonbrigða með Kiwanis er spurn-
ing hvaða félagsskap ég myndi
velja. Tek þó fram að ég er í frá-
bærum hóp og er ekkert að hætta
14 Kiwanisfréttir Janúar 2014
að starfa! Ég hafði mikla trú á að
Kiwanis væri öflug og kraftmikil
hreyfing og ég veit að sumir
klúbbar eru það, en heildin virkar
hvorki kraftmikil né hvetjandi.
JO: Já, ég sé ekki eftir því að hafa
stofnað þennan ágæta félagsskap,
en mér þykir leiðinlegt að taka
það fram, að ég hefði átt að halda
honum utan við Kiwanis fyrsta
kastið. Það voru mistök að stofna
klúbbinn svo fljótt sem raunin
varð. Gjöldin af starfinu fram til
þessa gæti verið ágætis innborgun
í fínt húsnæði! Við hefðum viljað
að bæði Helgafell og Eldey hefðu
ákveðið í upphafi að báðir klúbb-
arnir yrðu móðurklúbbar. Þannig
hefðum við kannski átt mögu-
leika að vera í fríu húsnæði aðeins
lengur og fengið lengri hand-
leiðslu og kannski frekar fundið
okkur hluta af stærri heild. Mér
fannst það að vissu leiti tapast
þegar klúbburinn hafði verið
stofnaður eins fáránlega og það
nú hljómar.
“Einnig finnst mér að
upplýsingastreymi þurfi að
vera öflugra,...” [Jóhanna]
Hverju vilduð þið helst sjá breytt
tumhverfi umdæmisins?
JE: Ég held að við þurfum að færa
starfið meira til nútímans og gera
svæðisráðsfundi og umdæmis-
þing meira áhugavert fyrir hinn
almenna félaga. Hafa fleiri um-
ræðuhópa og málstofur um mál-
efni sem höfða til félaganna og
þeir geta haft áhrif á starfið. Ein-
nig finnst mér að upplýsingas-
treymi
þurfi að vera öflugra og
ætti það ekki vera vanda-
mál að senda út upplýs-
ingar með tölvupósti, þar
sem umdæmið er með
öflugan gagnagrunn.
GJ: Ég myndi vilja sjá
skilvirkara, kraftmeira
og nútímalegra þing þar
sem leitast er við að fá
fram sem flest sjónarmið
og hugmyndir og virkja
félagana. Þingið má ekki
vera þunglamaleg og
gamaldags hallelúja sam-
koma. Ég myndi vilja að við hinir
almennu félagar sæjum meira af
umdæmisstjórninni og að hún
væri hvetjandi bakhjarl klúbb-
anna. Mér hefur fundist frekar
dauft yfir þessu og við sjáum
helst fréttir á Facebook um veislur
og ferðir æðstu embættismanna
innanlands og utan. Ég velti
stundum fyrir mér hvort ekki
mætti spara peninga og hafa hluta
af þessum fundum í fjarfunda-
búnaði eða á Skype. Kiwanis-
félagar ættu líka að vera upplýstir
um þá fundi og ferðalög sem eru
á kostnað umdæmisins, hvað þar
er til umfjöllunar og hverju skilar
það hreyfingunni og umdæminu
okkar.
Mér finnst að það þurfi að nota
bæði kiwanis.is og Facebooksíðu
umdæmisins mikið betur til upp-
lýsingagjafar og hvatningar frá
umdæmisstjórn/svæðisstjórum til
félaga og fyrir fréttir, skoðana-
skipti og allt sem viðkemur
starfinu. Svæðisráðstefnur ættu
líka að vera meiri vettvangur
umræðu, hugmyndavinnu og
skoðanaskipta í stað þess að taka
megnið af tímanum í að lesa upp
skýrslur sem fundarmenn eru
með útprentaðar. Einnig myndi
ég vilja sjá meira samstarf milli
klúbba, t.d. klúbba innan sama
svæðis, þeir ættu að geta tekið
sig saman og unnið að ýmsum
fjáröflunar og styrktarverk-
efnum, það myndi þétta hópinn,
styrkja okkur sem heild og ef
til vill gera okkur sýnilegri. Því
miður er Kiwanishreyfingin á
Islandi mjög illa sýnileg og við