Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Qupperneq 22

Kiwanisfréttir - 15.01.2014, Qupperneq 22
Af fj ölgunarmálum Hvaða KI-EF nefnd er þetta sem þú ert í ? Þessa spurningu fékk ég um daginn frá einum Kiwanisfélaga og í þessari grein ætla ég að útskýra fyrir ykkur kæru félagar út á hvað nefndarstarfið gengur. Eins og eflaust flest ykkar hafa heyrt af þá hefur Kiwanis International hafið 5 ára átak varðandi fjölg- un. Markmiðið er að stofna 1650 nýja klúbba og hvetja alla núverandi klúbba til að fjölga um tvo félaga á ári. Við höfum verið að missa félaga undan- farið á heimsvísu en aftur á móti hefur verið fjölgun í Evrópu, en við þurfum að gera enn betur og fá fleiri félaga til liðs við okkur. I október sl. var haldin fjölgunarráðstefna í Leuven í Belgíu og til hennar voru boðaðir allir umdæmis- stjórar Evrópu, tengiliðir við umdæmi í aðlögun og for- menn fjölgunarnefnda. Dröfn umdæmisstjóri og Guðmund- ur Skarphéðinsson formaður fjölgunarnefnar sátu þessa ráðstefnu. A ráðstefnunni voru fyrirlestrar, umræðuhóp- ar, skipst var á hugmyndum og í lok dagsins skiluðu allir umdæmisstjórar inn mark- miðum sínum varðandi fjölgun í sínum umdæmi. Heim héldu allir uppfullir af fróðleik og áhugasamir um að taka þátt í þessu KI átaki um fjölgun. Ráðstefnugestir voru allir sam- mála um að það væri ekki til nein sérstök alþjóðleg upp- skrift af hvernig eigi að fjölga og Kiwanisfélagar vita hvað virkar best í þeirra umdæmi. Þess vegna skiptir svo miklu máli að í hverju umdæmi sé fjölgunarteymi sem er tilbúið að leggja sitt af mörkum til að markmiðið náist. Ráðstefnan var skipulögð af fjölgunarnefnd Evrópu og í henni eru, formaður Robert Jenefsky frá Sviss, Stepanka Neuschlova frá Tékk- landi, Ralf-Otto Gogoliski frá Þýskaland og Hjördís Harðardóttir frá íslandi. Hver og einn er svo tengiliður við nokkrar þjóðir og er ég tengi- liður við umdæmin, Island- Færeyjar, Norden, Frakkland - Mónakó, Austuríki og Sviss - Liechtenstein. Mitt hlutverk er að vera til staðar ef umdæmis- stjórar, formenn fjölgunar- nefnda eða Kiwanisfélögum vantar upplýsingar eða aðstoð varðandi eflingu klúbba eða upplýsingar um stofnum nýrra klúbba. Eg mun af og til vera í sambandi við hvert umdæmi til að fá fréttir og hvetja áfram. Á fjölgunarráðstefnunni flutti ég fyrirlestur um hvernig eigi að gera klúbba öflugari. Eg sagði frá helstu ástæðum þess að félagar hætta í klribbum og hvað eigi að gera til þess að koma í veg fyrir að þeir hætti. Eins talaði ég um hvað það er nauðsynlegt fyrir klúbba að setja sér markmið eins og um fjölgun félaga. Mig langar að lokum að hvetja ykkur öll til að kíkja öðru hverju inn á heimsíðu KI- EF, (kiwanis.eu). Fjölgunar- teymið er þar með sér svæði og þar má finna ýmsar góðar upplýsingar eins og hvernig á að stofna nýja klúbba, efla klúbba og glærur frá fjölgunar- ráðstefnunni sem var í októ- ber. Eins er að hnna þarna mjög áhugaverðan bækling um eflingu klúbba, bæklinginn er hægt að nálgast á mörgum tungumálum og þar á meðal íslensku, áhugavert fyrir alla að lesa sem hafa áhuga á að efla klúbbinn sinn. Ef ykkur vantar að fá nánari upplýsingar þá endilega hafið samband mig Hjördís Harðardóttir KI-Ef Growth Team 2013-2014 hjordishar@simnet.is 22 Kiwanisfréttir janúar 2014

x

Kiwanisfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.