Morgunblaðið - 04.10.2019, Side 22

Morgunblaðið - 04.10.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ER08 hægindastóll Leður – verð 285.000,- 50 ára Olga býr á Raufarhöfn og er fædd þar og uppalin. Hún er leikskólakennari að mennt og er umsjónarkennari á yngsta stigi í Grunn- skóla Raufarhafnar. Hún er einnig staðgengill skólastjóra. Maki: Ragnar Axel Jóhannsson, f. 1969, útgerðarmaður. Börn: Þórunn Nanna Ragnarsdóttir, f. 1995, og Friðrik Þór Ragnarsson, f. 1998. Foreldrar: Friðrik Þór Einarsson, f. 1936, d. 2019, vélstjóri, og Rósa Lilja Þorsteinsdóttir, f. 1940, húsmóðir og fv. verkakona. Hún er búsett á Raufarhöfn. Olga Friðriksdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Of mikið dekur við aðra er ekki gott. Þér verður boðið í samkvæmi sem á eftir að breyta ýmsu í lífi þínu. 20. apríl - 20. maí  Naut Í dag lítur þú framtíðina björtum augum. Reyndu að sýna skynsemi í eyðsluseminni og kaupa hluti sem endast. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Varastu að gagnrýna aðra um of, það hafa allir sína kosti og galla, líka þú. Daður úr óvæntri átt slær þig út af laginu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hlýjan streymir frá þér og margir sækja í hana. Ástamálin eru í góðum farvegi, ekki rugga bátnum á meðan. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Stattu klár á því hvað þú vilt og hvernig þú vilt ná þeim markmiðum sem þú settir þér. Einhver pirringur verður í stórfjölskyldunni fljótlega. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Fjölskyldumálin eru ekki einföld í dag. Umvefðu þig fólki sem gerir þig glatt og kann að meta þig. 23. sept. - 22. okt.  Vog Taktu stolt/ur við hrósi og gættu þess að gera ekki lítið úr þér eða verk- um þínum. Börn spila stóran þátt í lífi þínu þessa dagana. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Reyndu að meta þá sem standa þér næst því þú munt þarfnast þeirra þegar þú eldist. Ertu farin/n að fara í göngutúrana sem þú varst ákveð- in/n í að gera? 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt þér andstæðinga en enga óvini og ert því ekki í hættu. En hafðu í huga að oft má ná sama marki eftir mismunandi leiðum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú sérð tækifæri fram undan í fjárfestingum sem tengjast ferðalög- um. Láttu áhyggjurnar eiga sig, þær breyta hvort sem er engu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ættir að huga að fjármál- unum í dag. Komdu skipulagi á þau og byrjaðu að safna. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það getur verið hættulegt að ætla fólki krafta sem það býr ekki yfir. Þú ferð í óvænt ferðalag með gömlum vini á næstunni. samfélags-, menningarmál og póli- tík. Auk þess er honum skógrækt, náttúruvernd, áhugavert lesmál og sígild tónlist hugleikin. „Ég fer allt- af á tónleika hjá Sinfóníunni og er formaður Áslaugarsjóðs sem styrk- ir hljómsveitina til utanfarar. Ég fer líka af og til í leikhús.“ Þau hjón eiga sumarhús í Lækj- arbotnum þar sem þau hafa ræktað nokkurra hektara skóg um árabil. Þröstur er virkur greinahöfundur og sinnir enn ýmsum trúnaðar- málum. „Ég hef mikið verið að sinna náttúruvernd og auk þess að vera varaformaður Votlendissjóðs er ég formaður Auðlindar náttúru- sjóðs sem Guðmundur Páll bróðir minn og Vigdís Finnbogadóttir stofnuðu.“ Fjölskylda Eiginkona Þrastar er Þórunn Klemenzdóttir, f. 29.1. 1945, fram- haldsskólakennari. Foreldrar henn- ar voru hjónin Klemens Þórleifs- son, f. 5.7. 1896, d. 12.9. 1982, Hann er formaður Minjaverndar hf. og varaformaður Votlendissjóðs. Helstu áhugamál Þrastar eru Þ röstur Ólafsson fæddist á Húsavík 4.10. 1939: „Í þann tíð var ekki venja að börn svæfu á sig lús. Ég var farinn að stokka línu fyrir fermingu, vinna á síldar- plani, var í sveit og kúskur í vega- vinnu. Foreldrar mínir keyptu Heiðarbót í Reykjahverfi 1952 og þar naut ég lífsins innan um bú- smalann, rjúpuna og sveitungana og hef ætíð haft sterkar taugar til sveitarinnar. Við fluttum síðan suður 1955.“ Þröstur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1960 en á sumrin var hann á síld, í vinnumennsku eða vegavinnu. Hann fór í hagfræðinám í Vestur- Berlín 1961: „Þá var nýbúið að reisa múrinn og skriðdrekar stór- veldanna stóðu hvorir gegn öðrum á borgarmörkunum. Andrúmsloftið var kunnuglegt að heiman, inni- lokað og einangrað, með fortíðar- þrá og þörf á utanaðkomandi við- urkenningu. Kannski voru Berlínarárin frjóustu og skemmti- legustu ár ævi minnar. Afkróun borgarinnar, mikil pólitísk spenna og erjur á borgarmörkunum sem og stórkostlegt menningarlíf gerðu borgina einstaka.“ Heim kominn aðstoðaði hann Magnús heitinn Kjartansson í iðn- aðarráðuneyti 1971, varð fram- kvæmdastjóri Máls og menningar 1973, aðstoðarmaður Ragnars Arn- alds fjármálaráðherra 1980-83, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar 1983, aðstoðarmaður utanríkis- ráðherra, Jóns Baldvins, 1991-94, og var framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitarinnar 1998-2009. Þröstur var formaður SÍNE, sat níu ár í bankaráði Seðlabankans og formaður þess 1994-99, formaður KRON, sat í stjórn Granda, for- maður Máls og menningar 1991- 2008, í stjórn SÍS, formaður Ís- lensks markaðar hf.og ÞSSÍ, sat í stjórnarráði CEB bankans París í níu ár, formaður Félagsbústaða hf., formaður Eddu útgáfu, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur 2007-2018 og hefur setið í ótal stjórnum, nefndum og ráðum. kennari, og Guðríður Árný Þór- arinsdóttir, f. 1.2. 1915, d. 23.4. 1995, húsfreyja. Fyrri kona Þrastar var Monika Büttner, f. 13.10. 1940, d. 13.2. 2013. Sonur Þrastar og Moniku: Eilíf- ur, f. 2.1. 1966, d. 3.4. 1983. Sonur Þórunnar af fyrra hjóna- bandi er Valtýr Björn Thors, f. 29.3. 1965, vaktmaður í Reykjavík, en kona hans er Emma I. Vals- dóttir og á hann tvö börn. Börn Þórunnar og Þrastar eru Klemens Ólafur, f. 27.10. 1975, sér- fræðingur á sendiskrifstofu ESB í Reykjavík og á hann tvö börn- :Brynjar Snær, f. 2.8. 1977, ljós- myndari í Reykjavík, og á hann eina dóttur: Guðríður Lára, f. 4.2. 1982, lögfræðingur hjá Rauða krossinum, en maður hennar er Grímar Jónsson og eiga þau þrjú börn; Eilífur Örn, f. 23.4. 1984, leikstjóri í Reykjavík. Hálfsystkini Þrastar af fyrra hjónabandi móður hans og Karls Þröstur Ólafsson hagfræðingur – 80 ára Ljósmynd/Brynjar Snær Hjónin Þórunn og Þröstur og hjá þeim í sófanum lúrir hundurinn Tryggur. Ennþá virkur greinahöfundur Afmælisbarnið Þröstur. 30 ára Árni er Reykvíkingur og býr í Hlíðunum. Hann er cand. jur. frá Háskóla Íslands og er lögmaður á Mörkinni lögmanns- stofu. Maki: Ragnheiður Guðnadóttir, f. 1990, lögfræðingur hjá Ríkisskatt- stjóra. Systkini: Hólmfríður Gestsdóttir, f. 1973, Geir Gestsson, f. 1978, og Jón Skafti Gestsson, f. 1981. Foreldrar: Gestur Jónsson, f. 1950, lögmaður, og Margrét Geirsdóttir, f. 1951, bókasafnsfræðingur. Þau eru búsett í Reykjavík. Árni Gestsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.