Skátablaðið - 15.10.2007, Blaðsíða 4

Skátablaðið - 15.10.2007, Blaðsíða 4
Úr ýmsum áttum Forvannardagupinn I fyrra var haldinn sérstakurforvarnardagur þarsem lögð var áhersla á þá staðreynd að taki barn þátt í skipulögðu æskulýðsstarfi minnki líkurnar á að barnið leiðist út á óheillabraut. Verkefnið var að frumkvæði Forseta Islands og er hann í forssvari fyrir því. Reiknað er með að verkefnið fari fram í grunn- skólum landsins 21. Nóvember og er skátahreyfing- in aðili að þessu verkefni líkt og í fyrra . Skátablaðið 1. tölublað 2007 Útgefandi: Bandalag íslenskra skóta Ábyrgðarmaður: Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri BIS Áskrift: Breytingar ó póstfangi tilkynnist í síma 550 9800 Ritstjóri: Jón Ingvar Bragason, fræðslustjóri BÍS netfang: jon@skatar.is sími: 550 9800 Prófarkarlestur: Júlíus Aðalsteinsson Útlit og umbrot: Einar Elí Magnússon [ ee.is ] Forsíðumynd: Ármann Ingi Sigurðsson, ó Alheimsmóti skóta 2007 Ljósmyndir: Ymsir skótar Prentun: Steinmark hf. prentar blaðið ó vistvænan pappír ISSN: 1021-8424 Skátablaðið kemur jt tvisvar til þrisvar sinnum ó óri og er sent öllum skátum og styrktarfélögum skáta-hreyfingarinnar. 1 Greinar sem birtar eru undir nafni höfundar þurfa ekki endi- 1 r™ *T“ Bandalag íslenskra skáta Aðsetur: Hraunbæ 123, 110 Reykjavík Sími: 550 9800 Fax: 550 9801 Netfang: bis@skatar.is Heimasíða: www.skatar.is Skrifstofutími: 9-17 alla virka daga Bandalagsstjnrn Skótahöfðingi: Margrét Tómasdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar Aðst.skótahöfðingi: Bragi Björnsson, lögfræðingur Form. fjórmólaróðs Alfreð Atlason, fjármálastjóri Form. dagskrórróðs Jenný Dögg Björgvinsdóttir, ráðgjafi Form. alþjóðaróðs Hulda Sólrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur I Form. upplýsingaróðs Þorsteinn G. Gunnarsson, fjölmiðlaráðgjafi Form. fræðsluróðs MargrétVala Gylfadóttir, kennari Bandalag íslenskra skóta er aðili að WOSM, World Org- anisation of the Scout Movement og WAGGGS, World Ass- ociation of Girl Guides and Girl Scouts. Nýir klútar komnir I tengslum við nýja aldursskiptingu var samþykkt að hvert aldursstig verði með aðgreindan lit á sínum skátaklút. Litirnir verða gulur-rauður-grænn, blárog fjólublár. Þessir klútar eru þegar komnir í sölu í Skátamiðstöðinni (utan sá fjólublái). Klútarnir eru allir með merki BÍS ísaumuðu í hornum klútsins sem snýr fram og verður klúturinn þar með meiri skáta- gripur. Þá var í vor ákveðið að útbúa sérstakan hátíðaklút BÍS sem notaður væri er íslenskir skátar fara á erlenda grund sem og við sérstök hátíðleg tækifæri s.s. í heiðursverði, í fánaborgum, við jarð- arfarir, við Forsetamerkisafhendinguna og viðlíka. Klúturinn var hannaður fánablár með fánalitunum ísaumuðum með langröndunum og merki BÍS, íslenska fánanum og landsheitinu aftan á klútnum. Klúturinn var notaður sem farareinkenni á Alheims- mót skáta í ár og vakti mikla ánægju meðal íslensku skátanna og var mjög eftirsóttur af erlendum skáta- klúta söfnurum enda einn vandaðast skátaklúturinn á markaðinum. Bílnúmerahappdræfli i Endurlundir skóta Fyrstu Endurfundir skáta fóru fram í Skátamiðstöð- inni í Hraunbænum í hádeginu 10. September s.l. Mjög góð mæting var að venju eða um 60 manns. Á boðstólnum var efnismikil sjávarréttasúpa og brauðmeti ásamt ostum og auðvitað kaffi og kon- fekt í lokin. Endurfundurinn var síðan brotinn upp með myndasýningu á nýjum geisladisk um upphaf skátastarfs og æfi Baden-Powell. Til áréttingar eru Endurfundir skáta annan mánudag kl. 1 1:30 í hverjum mánuði yfir veturinn og eru allir eldri skát- arvelkomnir, svona 50 plús. Árlegt áramótahappdrætti þar sem bifreiðaeigend- um eru sendir happdrættismiðar sem númeraðir eru með bílnúmerunum fer að venju í gang í október. Happdrættið styður við bakið á verkefninu Látum Ljós Okkar Skína þar sem öllum sjö ára grunnskóla- börnum í landinu eru sendir endurskinsborðar og umferðaröryggisblað. 4 SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.