Skátablaðið - 15.10.2007, Blaðsíða 10
Sjötta heimsráð- stefna skáta hald- in ÍVÍn ÍAustur- ríki, 44 bandalög mæta. Skátastarf hefst: Liechtensteín ■• Liechtenstein og Haiti ganga í WOSM. Skátastarf hefst: Benin og Heiti ■• Fjórða Alheímsmót skáta haldið í Gödöllö í Ung- verjalandí, 25793 þátttakendur. Sjöunda heímsráðstefna skáta haldín á sama stað, 31 bandalög mæta. Kólombía gengur í WOSM. Skátastarf hefst: Brunei Darus salam og Morocco *• Skátastarf hefst: Túnis ■• Áttunda heimsráð- stefna skáta haldin í Stokkhólmi í Sví- þjóö, 28 bandalög mæta. Skátastarf hefst: Saínt Lucia og Súdan ■• Skátastarf hefst: Botswana, Gabon og Lesotho “• Fimmta Alheimsmót skáta haldið í Hollandi með 28750 þátttakendum. Níunda heimsráðstefna skáta haldin í Haag í Hollandi, 34 bandalög mæta.
1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937
Fopseti íslands í heimsúkn
Forseti íslancls hr. Ólafur Ragnar Grímsson og eigin-
kona hans frú Dorrit Moussaieff heimsóttu íslenska
skáta á Alheimsmóti skáta laugardaginn 4. ágúst.
Þau ferðuðust um svæðið og kynntu sér íslensku
dagskrárpóstana, þar sáu þau breskan skáta leggja
íslending að velli í íslenskri glímu og fengu að gjöf
Þórshamar frá íslenskum skátum sem þeir höfðu
mótað úrtini. Forsetafrúin tók sérsalibunu í sérstakri
rólu sem Slysavarnafélagið Landsbjörg setti upp fyrir
gesti og gangandi. Eftir þessa skoðunarferð var
haldin sérstök móttökuathöfn fyrir alla íslensku
alheimsmótsfarana þar sem boðið var upp á léttar
veitingar í hitanum.
Aðspurður sagðist Olafur vera komfnn hingað
sem verndari skátahreyfingarinnar á Islandi og
honum þætti gaman að sjá hversu mikill krafturværi
í íslensku skátunum. „Svo höfum við bæði verið
skátar, Dorrit og ég, ég á isafirði og í Reykjavík og
Dorrit í Jerúsalem. Við erum búin að fylgjast með
skátahreyfingunni frá því að við vorum ung og
höfum áhuga á því hvað hreyfingin er að gera og
gaman er að sjá skáta frá öllum heimshornum lifa
saman í sátt og samlyndi og skemmta sér."
Sjálfur segist hann aldrei hafa farið á alheimsmót
en á samt margar skemmtilegar og góðar minningar
frá skátastarfinu. Ólafurvar mjög stoltur að heyra að
íslenskir þátttakendur á mótinu eru fleiri en norskirog
sænskirtil samans, þá ekki miðað við höfðatölu.
„Mér finnst skátastarfið líka vera mikilvægt fram-
lag ekki bara til uppeldis og þjálfunar heldur líka í
forvarnarbaráttunni á islandi."
Hr. Ólafur minntist á það að það væri eftirtektar-
vert hvað mikil gleði og fjölbreytni væri á þessu móti
og að það væru mjög sterk skilaboð til heimsbyggð-
arinnar, að þrátt fyrir öll þessi vandamál, átök og
tortryggni sem eru á milli þjóða þá geta skátar frá
um 1 60 þjóðum, ólíkum trúarbrögðum og ólíkum
kynþáttum komið og skemmt sér saman.
10
SKÁTABLAÐIÐ