Skátablaðið - 15.10.2007, Page 6
Á síðum þessa blaðs getið þið
lesið um sögu hreyfingarinnar
og hvernig hún fór um heiminn.
Þetta er byggt á heimildum frá
World Organization of the
Scout Movement (WOSM).
"• Scouting for Boys kemur út.
“• Útilega á
Brownsea
eyjufrá 1.-9.
Ágúst.
Skátastarf hefst
í Bretlandi
Skrifstofa drengjaskáta
opnar í London.
Skátastarf hefst: Ástralíu,
írlandi, Möltu, Nýja Sjá-
landi og Suður Afríku
■• Skátastarf hefst:
Kanada, Chile,
Danmörku, Guyana,
Indlandi, Rússlandi,
Sierra Leone,
Bandaríkjunum og
Zimbabawe
Skátastarf hefst:
Brasilíu, Finnlandi,
Frakklandi, Þýska-
landi, Grikklandi,
Hong Kong, Jamai-
ca, Kenía, Hollandi
og Singapore
"• Skátastarf hefst:
Belgíu, Bleize, Búlg-
aríu, Tékklandi,
Malasíu, Noregi,
Svíþjóð, Tælandi,
Trinidad&Tobago
1907 1908 1909 1910 1911
Mesta ævintýri sem nokkur skáti getur hugsað sár
Fjögurhundruð og þrjátíu íslenskir skátar fóru í fjór-
um áföngum þann 27. júlí í eitt mesta ævintýri sem
nokkur skáti getur nokkurn tímann hugsað sér.
Alheimsmót skáta var í þann veginn að hefjast. Þeir
fyrstu komu um hádegisbilið, þeir síðustu seint
aðfararnótt þess 28. Spennan var nánast áþreifan-
leg því eftireittog hálft ár rættist draumurinn loksins.
Daginn eftir var opnunarathöfn í miðaldarstíl.
Þarna voru riddarar á hestunum sínum, hirðfífl og
eldgleypar. Þá mættu Vilhjálmur bretaprins og
Edward hertoginn af Kent og heiðruðu skátana sem
nærvéru sinni. Þgð var þétt setið í brekkunni og var
ófá gæsahúðin sem hverskátinn fékk þegarhann sá
þennan þvílíka fjölda af fólki sem var saman kom-
inn. 32.000 þátttakendur sem tóku þátt í öllum
dagskrárliðum auk um 10.000 sjálfboðaliða sem
sáu til þess að þetta gekk allt saman vel fyrir sig. Til
samanburðarvoru 11.099 þátttakendurá Olympíu-
leikunum í Aþenu árið 2004.
Dagskráin var byggð upp á nokkrum dagskár-
svæðum sem tóku bæði hálfan og heilan dag. Til
dæmis var boðið upp á dagskrárlið sem hét
TRASH" eða „RUSL" þar sem þátttakendur lærðu að
hægt er að nota tóm ílát, steina og plastpoka til að
búa til fallegt listaverk eða hljóðfæri. Annar dag-
skrárliður var „WORLD VILLAGES" eða „HEIMS-
ÞORP". Þar var hægt að læra ýmislegt um menn-
ingu annara þjóða og t.a.m kenndu íslenskir skátar
rúnalestur og glímu. Það sem vakti þó hvað mestu
lukku voru gervifætur sem Össur hf. hafði sérstak-
lega hannað og smíðað fyrir þetta tilefni. Þetta voru
nokkurskonar stultur eða framhald á fæturnar sem
auðvelt var að smeygja sér í og gaf því fólki hug-
mynd um það hvernig er að vera með gervilim. Til
að nefna hvað aðrar þjóðir voru að gera til að
kynna land sitt og menningu var boðið upp á að
læra tyrkneska barnaleiki, indverskt brúðkaup og
hina ýmsu þjóðdansa. Til dæmis var hægt að læra
hollenska klossadansa, vikivaka og riverdans.
„GDV" sem stendur fyrir Global Development Vil-
lage eða heimsþróunar þorp þar sem unnið var af
krafti við að finna lausnir við alþjóðlegum vanda-
málum með fræðslu. Þar voru ýmsar hjálparstofn-
anir með kynningar á.S'inni starfsemi, meðal annars
Unicef, Rauði krossinn og Survival. Survival hafa
fæstir heyrt um en það eru samtök sem berjast fyrir
réttindum frumbyggja heimsins.
Haldið var upp á l 00 ára afmæli skátahreyfing-
arinnar um allan heim í svokallaðri sólrisuhátíð
þann l. ágúst. Hátíðarhöldin byrjuðu klukkan 8 að
morgni til í öllum löndum og auðvitað var Bretland
ekki skilið útundan og þurfti því að vakna snemma
til að mæta ! veisluna á réttum tíma.
Laugardaginn 4. ágúst fengum við heimsókn frá
forsetanum og auðvitað kom forsetafrúin líka og
skemmtu þau sér konunglega í skoðunarferð um
mótssvæðið. Haldin var svo móttökuathöfn til heið-
urs komu þeirra þar sem öllum íslenskum skátum
var boðið.
Þegar var runnið að lokum þessarar 10 daga
skemmtunar var haldin lokaathöfn þar sem sýnd
voru nokkur af bestu skemmtiatriðunum frá dögun-
um áður. Að lokum þessa skemmtiatriða vartilkynnt
það formlega að Svíþjóð haldi næsta alheimsmót
sem haldið verður árið 2011.
Eftir mótið fóru allir íslensku skátarnir í heimagist-
ingu víðs vegar um Bretland til fjögurra daga. Þann
12. ágúst héldu allir íslensku skátarnir heim á leið
með mikla reynslu og góðar minningar í farteskinu.
Eygló Höskuldsdóttir og
Sigrún Helga Gunnlaugsdóttir
6
SKÁTABLAÐIÐ