Skátablaðið - 15.10.2007, Side 13
!-• 20 heimsráðstefna r# Maltaog 12 Alheimsmót skáta skáta haldin í Skrifstofa W0SM r* 22 Heimsráðsetafna r# Fyrsta ráð-
skáta haldin í Mex- Singa- haldið í Farragut Seattle 1 flytur til Genf I skáta haldín í stefna Afríku
íkóborg í Mexíkó, 59 pore Stae Park í Idaho í Washington í Sviss. Otaniemi í Finnlandi, haldin í
bandalög mæta. ganga í Bandaríkjunum Bandaríkjunum, 70 Suriname oq 60 bandalög mæta. Dakar í Sen-
Líbería, Quatar og WOSM. með 12011 þátt- bandalög mæta. Swaziland 12 milljónir skáta egal.
Zambia ganga í takendum. Guyana gengur í ganga í starfandi í heimin- Bahrain geng-
WOSM. 21 heimsráðstefna W0SM. W0SM. 'um. uríWOSM.
1965 1966 1967 1968 1969 1970
Það hefur mikið verið um að vera ó Útilífsmiðstöð skáta
Úlfljótsvatni þetta árið. Með hverju árinu.fer þeim fjöl-
gandi sem sækja staðinn heim og á það við um
Skólabúðir, Sumarbúðir, skátaviðburði, erlenda skáta-
hópa sem koma til styttri og lengri dvalar yfir sumarið
sem og almenna tjaldgesti.
Skólabúðir eru starfræktará ÚSÚ yfirvetrartímann.
I þær koma nemendur úr grunnskólum landsins, en þó
mest af höfuðborgarsvæðinu. Flestir hafa dvalið eina
nótt og farið í gegnum dagskrá Skólabúða sem starfs-
menn staðarins í félagi við kennara nemendanna hafa
stýrt. Dagskráin hefurtekið smá breytingum í áranna rás,
en að grunni til eru hún keimlík því sem upphafsmaður
þeirra Jónas B. Jónsson setti saman 1990. Skólabúðirnar
hafa átt vaxandi vinsældum að fagna og hefur aðsóknin
verið að aukast síðustu ár. Þá hefurtímabilið einnig verið
að lengjast en fyrr á árum komu flestir skólarnir á tímabil-
inu febrúar - apríl en núna hafa haustmánuðirnir bæst við
og tíminn einnig færst alveg fram í júní.
Sumarbúðir skáta, voru starfræktar í sumar líkt og
gert hefur verið á Úlfljótsvatni á sjötta áratuginn.
Tímabilið í sumar var þó aðeins styttra en áður þar sem
nánast allt starfsfólk staðarins fór á Alheimsmót skáta í
Englandi og var því ákveðið að stytta tímabilið þetta árið.
En öll námskeiðin sem boðið var upp á voru full og eins
og ávallt fyrr voru sumarbúðirnar eintóm gleði og upp-
lifun. Dagskráin er nokkuð lík frá ári til árs þó vissulega
hafi verið bryddað upp á fjölmörgum nýjungum síðari
árin og ekki gerir það verra hversu staðurinn sem slíkur
hefur blómstrað út og afþreyingarmöguleikar þar vaxið
ár frá ári. Til að mynda er bátaflotinn orðinn það veru-
legur að siglingar á vatninu verða sífellt vinsælli í
Sumarbúðunum sem eðlilegt er.
A hverju ári eru ávallt nokkrir skátaviðburðir stórir sem
smáir á Úlfljótsvatni. Stærsti viðburðurinn sem af er
þessu ári er Afmælismót BIS sem haldið var þar í sumar.
Ferðin á Alheimsmótið litaði mótið talsvert enda fjöl-
menntu verðandi þátttakendur á Afmælismótið. Þarna
skemmtu skátar sér langa helgi við hefðbundin skáta-
mótsstörf. Síðasta Ylfingamótið var einnig haldið á
staðnum í júní eins og hefð erfyrirog ekki spillti rigningin
gleði ylfinganna. Skátánámskeið hafa verið fjölmörg
þetta árið á Úlfljótsvatni og nú á haustmánuðum sóttu
um 110 skátaforingjar helgarnámskeið þar sem farið var
í gegnum innleiðingu á nýrri skátadagskrá. Gilwell-
námskeið setja gjarnan skemmtilegan svip á staðinn
þegar þau eru fyrir austan og í vor var seinni helgi
Gilwell-námskeiðs þar sem þáttakendur fóru í gegnum
sína dagskrá yfir langa helgi, sem samanstóð af fyrir-
lestrum og útilífi.
Erlendir skátahópar Skátar í nálægum löndum
hafa ekki bara uppgötvað Island sem skemmtilegt land
til að sækja heim, heldur hafa þeir uppgötvað að það sé
bráðsniðugt að gista á Úlfljótsvatni og fara þaðan í
margvíslegarferðir um nágrennið og víðar. Þannig hefur
erlendum skátahópum farið fjölgandi sem dvelja á
tjaldsvæðum staðarins um lengri eða skemmri tíma.
Fyrir milligöngu starfsmanna ÚSÚ taka þeir síðan þátt í
ýmissi dagská á staðnum, siglingum um vatnið, klifri (
klifurturninum, eða lengri og styttri göngu- eða hjóla-
ferðum út frá staðnum. Þá fara þeir gjarnan með rútum
að Gullfossi og Geysi og í hesta og jöklaferðir. Yfir 20
erlendir skátahópar gistu staðinn í sumar og setja þeir
mjög skemmtilegan svip á mannlífið á staðnum.
Tjaldgestum fer einnig fjölgandi á tjaldsvæðunum
árfrá ári. Hafa margir haft á orði að þarna séu einhver
al vönduðustu og skemmtilegustu tjaldsvæði landsins og
því verið vel varðveitt leyndarmál að þau séu opin
almenningi. Það er allt frá gangandi erlendum ferða-
mönnum upp í stórættarmótsem sjá ástæðu til að sækja
USÚ heim og njóta dvalarinnar og óvíða er þjónustu-
stigið á tjaldsvæðum eins hátt eða möguleikar til
afþreyingar jafn miklir. Viðburðimirsem komið er með á
staðinn er allt frá dagsferðum fyrirtækja upp í brúðkaup
þar sem veislan fer fram í Strýtunni og í sumum tilfellum
gista gestirnir á tjaldsvæðunum.
Nýting skálanna hefur einnig verið góð það sem
af er þessu ári. Má segja að skálarnir séu orðið í útleigu
alla vetrarmánuðina samfleitt um helgarnar meðan
skólabúðirnareru á virku dögunum. Skátafélögin á suð-
vesturlandi eru dugleg að fara í félagsútilegur á staðinn
yfir vetrartímann og eiga nokkur orðið fastar helgar. Þá
hefur færst í vöxt að margvísleg önnur félagasamtök hafi
uppgötvað staðinn og fjölmargar fyrirspurnir berast
vikulega.
Framkvæmdir á árinu hafa verið fjölmargar að
venju. Stærsta framkvæmdin var bygging 80 fermetra
Þjónustuhúss sem staðsett ervið hlið nýja sturtuhússins. I
nýja húsinu er eldunar- og mötuneytisaðstaða sem
sérstaklega er hugsuð fyrir hópa sem dvelja á
tjaldsvæðunum til lengri eða skemmri tíma og þá
sérstaklega erlendu hópana. I húsinu hefur einnig verið
komið fyrir þvottavél og þurrkara. Þarna er einnig að-
staða fyrir afgreiðslu tjaldsvæðanna. Það er ekki spurn-
ing að tilkoma hússins sem er mjög vandað, með raf-
magni, heitu og köldu vatni og upphitað, eykur þjón-
ustustig staðarins enn frekar. Eftir er að setja klæðningu
utan á húsið og gera pall í kringum það, en þessi verk
eru meðal næstu vorverka. Þá hafa göngustígar verið
betrumbættir, sett upp hlið við inngangana að skálunum,
nýtf bátaskýli verið sett niður, og flatimar betrumbættar.
Þessa dagana erverið að undirbúa barna-leikvöll sem er
staðsettur verður á flötunum fyrir framan þjónustu-
kjarnann (sturtuhúsið) og verður það kláraður fyrir
áramótin með öllum viðeigandi leiktækjum.
Skógrækt hefur að venju verið umtalsverð.
Skógarskátar hafa látið til sín taka sem áður og sett niður
umtalsvert af trjám. Nokkur skátafélög mæta reglulega
á staðinn og setja niðurtré og mættu fleiri taka sér þetta
til fyrirmyndar. Höfðingjalundar eru svæði upp frá
Jónasar B. lundi þar sem öllum íslenskum skáta-
höfðingjum sögunnar hefur verið afmarkaður reitur og
verða þeir merktir þeim og er þegarfarið að gróðursetja
í nokkra þeirra. Fyrir utan reit Jónasar B. Jónssonar er
reitur Páls Gíslasonar sennilega mest áberandi en hann
og fjölskylda hans setja árlega niður þar jafn margartrjá-
plöntur og aldur hans segir til um en nýlega mættu þau
á svæðið og gróðursettu 83 trjáplöntur.
Framtíðin lítur vel út. Gengið var frá endurnýjun á
leigusamningi við Orkuveitu Reykjavíkur á árinu og er
hann um sama landssvæði og skátar hafa haft síðustu
áratugina en til 75 ára, þannig að framtíð skáta við
Úlfljótsvatn er björt.
SKATABLAÐIÐ