Skátablaðið - 15.10.2007, Síða 15
Lady Olave Baden-Powell deyr 25. júní. 26 heimsráöstefna skáta haldin í Montral í kanada, 81 bandalög mæta. Hong Kong, Oman, Togo og Samein- uðu arabísku furstadæmin ganga í WOSM. "• World Jamboree Year: Join-in-Jam- boree um alla heimsbyggð. 27 heimsráöstefna skáta haldin í Birmingham í Bretlandi, 81 banda- lög mæta. Burundi og Grenada ganga ÍWOSM. "• Yemen og Zimb- abwe ganga í WOSM. 28 heimsráðstefna skáta haldin í Dakar í Senegal, 74 bandalög mæta. WOSM fær friðarverðlaun UNESCO. Brunei gengur til liðs við WOSM. “• Ár skátans - 75 ára afmæli skátastarfs í heiminum. ■• 15 Alheimsmót skáta haldið í Calg- ary í Alberta í Kanada. 14752 þátttakendur. 29 heimsráðstefna skáta haldin í Dearborn, Michigan í Bandaríkjun- um. 90 bandalög mæta. Mauritania gengur í WOSM.
1977 1978 1980 1981 1982 1983
Geysir 2007
feta-osti, Katrin og Mariana sungu eins og eistlend-
ingum einum er lagið, Islendingarnir byrluðu lýðn-
um hókarl og mysu (og féllu svo sjdlfir á eigin
bragði!) og aðrir buðu að sjálfsögðu upp á álíka
kræsingar.
Laugardagurinn fór vel í gang með kaffihúsa-
stemmningu þar sem þátttakendur sátu á borðum
og ræddu ýmsa titla tengda skátastarfi í alþjóðlegu
samhengi. Þá skellti hópurinn sér í túristaleik, spyrn-
ti sértil sunds í Reykholtslaug, dáðist að Strokki sem
spúði duglega fyrir hópinn, skautaði hálan göngu-
stíginn að Gullfossi og öskraði úr sér líftóruna í
Draugasetrinu á Stokkseyri. Kvöldinu lauk svo með
kvöldvöku þar sem hópurinn kyrjaði ýmis skátalög
og reyndi við flókna hreyfidansa.
A sunnudagsmorgun var markaðssvæði þar sem
þátttakendurog hópargátu framreitt hugmyndirfyrir
aðra þátttakendur. Margar góðar hugmyndir kvikn-
uðu; Gagnabanki með EUF-verkefnum skáta, skát-
atjaldsvæði og fleiru, sameiginleg skátamót, skát-
amót fyrir þjóðir sem búa í útkanti Evrópu og fleiri
þrusugóðar hugmyndir. Að því loknu skiptist hópur-
inn í tvo hópa. Annar hlutinn fór í menningaferð um
Þingvelli og hinn hlutinn hætti sér í Adrenalíngarðinn
þarsem þátttakendur stóðu á sta'urum, klifu stiga og
sveifluðu sér jafnvel á hvolfi í risarólu.
Þá var ráðstefnan að renna sitt skeið, en
eitt er víst að þarna höfðu myndast vinasambönd
sem endast munu ævilangt. Hver veit nema þú eigir
einhverntíman eftir að taka þátt í styrkjaverkefni á
vegum Evrópu unga fólksins sem á rætur sígar að
rekja til hugmyndar sem kviknaði á ráðstefnunni
Geysi 2007?
f.h. skipulagshóps Geysis,
Inga Auðbjörg Kristjónsdóttir
112
EINN EINN TVEIR
Allt landió
-eitt númer
LÖGREGLA - SLÖKKVILIÐ
SJÚKRALIÐ - LÆKNAR
BJÖRGUNARSVEITIR
SKÁTABLAÐIÐ
15