Skátablaðið - 15.10.2007, Qupperneq 20
[-• 11 World Scout Moot Cape Vaerde, r# 23 Alheimsmót Albanía, Guinea og [“• 21 Alheimsmót skáta haldið á Hylands
haldið í Mexíkó með Ethopia og skáta haldið í Malawi ganga í Park, Chelmsford á Englandi með 40000
5000 þátttakendum Seychells Sattahip á WOSM. þátttakendur frá 158 löndum.
from 71 landi. ganga I Tælandi með Skátar innan raða W0SM eru í dag 28
Azerbaijan og Rúss- land ganga I WOSM. 25000 þátt- takendum. milljónir og innan WAGGGS10 milljónir.
WOSM.
2000 2002 2002 2005 2007
100 ára afmæli skátastarfs
Stilrisa 1. tigtist upphaf nýrrar sktilaaldar
Að morgni 1. ágúst fögnuðu skátar því um allan
heim að 100 ár voru liðin frá fyrstu útilegunni á
Bronsea eyju. Á meðan 42000 skátar endurnýjuðu
sitt heiti á Alheimsmótinu á Englandi safnaðist
góður hópur íslenskra skáta saman í Skátamiðstöð-
inni í Reykjavík og endurnýjaði skátaheitið við dögun
nýrrar aldar í skátastarfi. Veðrið var gott og táknrænt
var þegar sólargeislarnir gægðust yfir þakbrúnina á
hópinn í brekkunni meðan á athöfninni stóð.
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, veitti við-
töku áskorun frá skátum til ríkisstjórnarinnar um það
að hún beiti sér fyrir friði.
Hér fyrir neðan koma ávarp Margrétar Tómas- •
dóttur, skátahöfðingja, ávarp frá WOSM og áskor-
unin.
Avarp MT:
Dóms- og kirkjumálaráðherra, Björn Bjarnason,
góðir skátar, gestir og góðir landsmenn nær og fjær.
Velkomin í Skátamiðstöðina við dögun nýrrar
aldar í skátastarfi. Við erum hér saman komin til
Ávarp írti WOSNI:
Sólin rís við upphaf nýrrar aldar í skátastarfi
Um leið og við sameinumst milljónum skáta
við endurnýjun skátaheitisins skulum við minnast
allra þeirra sem gera okkur kleift að taka þátt í
þessu einstaka, spennandi og gefandi ævintýri
sem skátastarfið er og hófst með frumkvöðlinum,
Baden-Powell.
Við lifum á tímum aukinnar mismununar,
alþjóðlegrar minnkunnar á umburðarlyndi og
aukinnar spennu og átaka. Óábyrgur lífsstíll og
óheft neysla eru alvarleg ógnun við umhverfi
okkar á jörðinni.
Sem borgarar þessa heims höfum við skyldur.
Sem skátar er skylda okkar að taka virkan þátt
í því að skapa betri heim.
Látum skátaheitið vísa okkur veginn og tök-
umst á við framtíðina með bjartsýni og hugrekki.
Sem systur og bræður sjáum við vin í hverri
manneskju, hver sem trú hennar eða aðstæður
eru og saman skulum við beita allri okkar orku til
þess að stuðla að friði.
Eduardo Missoni
framkvæmdastjóri WOSM
þess að fagna þvf að á þessum degi fyrir eitthundrað
árum blés Róbert Baden-Powell í KUDU- horn eins
og við heyrðum í hér rétt áðan. Hann blés í hornið
til að tilkynna 20 drengjum að upp væri runninn
fyrsti dagurinn í útilegu sem hann hafði skipulagt á
Brownsea eyju við England. Þar ætlaði hann að
prófa hugmyndir sínar um uppbyggilegt tómstunda-
starf fyrir drengi í borgum.
Við sem erum hér saman komin þekkjum öll sög-
una um það hve skátastarfið breyddist hratt út um
heimsbyggðina og hve mikið skátastarfið hefurgefið
milljónum drengja og stúlkna.
Nú er dögun nýrrar aldar í skátastarfi og hér á
islandi blásum við til sóknar með nýrri skátadagskrá
sem við væntum mikiis af.
Skátahreyfingin hefur frá upphafi lagt mikla
áherslu á frið í sem víðustum skilningi. Það voru
Baden-Powell mikil vonbrigði þegar Heimsstyrjöld
braust út árið 1 914 og þegar henni lauk hófst hann
handa við að undirbúa fyrsta Alheimsmót skáta
skáta, World Jamboree, sem haldið var árið 1 920.
Tilgangurinn var að stuðla að friði með því að skát-
ar frá ólíkum þjóðum kæmu saman til friðsamlegra
leika. Nú stendur yfir 21. Alheimsmót skáta í Eng-
landi og eru þar um 430 íslenskir skátar í hópi rúm-
lega 40.000 skáta frá rúmlega 150 þjóðlöndum.
Enn er meginhugmyndin sú sama, það er að stuðla
að friði rneðal manna og þjóða með því að ungt
fólk kynnist ólíkum þjóðum og menningu.
Góðir skátar, bestu þakkir fyrir stuðning ykkar við
skátastarfið og við væntum mikils af ykkur á nýrri
öld.
Nú skulum við saman endurnýja skátaheitið.
Margrét Tómasdóttir
Skátahöfðingi
Askorun frti BIS:
Reykjavík 1. ágúst 2007
Ríkisstjórn Islands
Áskorun um frið
I dag fagna skátar um víða veröld því að 100 ár
eru liðin frá því að Robert Baden-Powell fór með
hóp drengja í útilega á Brownsea eyju við Eng-
land til þess að prófa hugmyndir sínar um upp-
byggilegt tómstundastarf.
Svo vel reyndust þessar hugmyndir að nú 100
árum síðar erum við hér saman komin til þess að
fagna dögun nýrrar aldar í skátastarfi.
Öll þessi 100 ár hefur einn öflugasti þráðurinn
í skátastarfinu verið hugsjónin um frið milli
manna og þjóða. Baden-Powell trúði því að
aukin samskipti milli ólíkra einstaklinga og menn-
ingarheima myndu brjóta niður múra fordóma
og auka umburðarlyndi. Meðal annars þess
vegna stóð hann fyrir fyrsta Alheimsmóti skáta,
World Jamboree, árið 1 920.
I dag eru einmitt um 430 íslenskir skátar stadd-
ir á meðal um 40.000 skáta frá 150 þjóðlöndum
á 21. Alheimsmóti skáta, sem haldið er í Eng-
landi og enn er tilgangurinn ekki síst sá að stuðla
að friði meðal manna og þjóða.
íslenskir skátar hvetja íslensk stjórnvöld til þess
að vinna með öllum ráðum að því að stuðla að
friði og umburðarlyndi meðal manna og þjóða,
þannig að íbúar jarðarinnar geti lifað saman í
sátt og samlyndi óháð litarhætti, trúarbrögðum
eða menningu.
f.h. íslenskra skáta
Margrét Tómasdóttir, skátahöfðingi
20
SKÁTABLAÐIÐ