Morgunblaðið - 22.10.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Hlýir og
herra inniskór
frá Spáni
Inniskór
5.995
ærðir 40-46
Verð
St
mjúkir
Styrmir Gunnarsson vekur at-hygli á bandarískum vanda,
sem er að nokkru
alþjóðlegur og
snýr að okkur með
nokkrum þunga:
Vandi Boeing-verksmiðjanna
vegna MAX 737-
vélanna hefur ekki
bara áhrif á fyrirtækið sjálft og
þau flugfélög, sem höfðu tekið
þessar vélar í notkun.
Á vef Financial Times birtist í(gær) grein eftir Megan
Greene, sem er kennari við Har-
vard-háskóla, þar sem færð eru
rök að því, að stöðvun á notkun
þessara flugvéla hafi haft nei-
kvæð áhrif á efnahagsþróunina í
Bandaríkjunum, sem nemi 0,2%,
og minnkað framleiðslu og hagn-
að nokkurra bandarískra fyrir-
tækja.
Greinarhöfundur bendir á aðBoeing sé einn stærsti út-
flytjandi í Bandaríkjunum og
jafnframt stór vinnuveitandi.
Fréttaflutningur erlendra fjöl-miðla af þessum vanda-
málum Boeing er orðinn mjög
neikvæður.
Það er ástæða fyrir okkur hérá Íslandi að veita þessu eftir-
tekt vegna þess að Icelandair
skiptir okkur grundvallarmáli í
samgöngum á milli landa.
Samgöngur okkar við útlöndþurfa að byggjast á íslenzku
flugfélagi.
Önnur félög koma og fara eftirþví, hvernig vindurinn
blæs.“
Styrmir
Gunnarsson
Stórmál fyrir okkur
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Brim hf. hefur gert samning um kaup á tveimur
sjávarútvegsfyrirtækjum í Hafnarfirði, Kambi og
Grábrók, sem ráða samtals yfir hátt í þrjú þúsund
tonnum í krókaaflamarki, að mestu í þorski. Fram
kemur í frétt frá Brimi að Kambur verði rekinn
áfram í húsnæði félagsins sem sjálfstætt dóttur-
félag Brims. Aðaleigandi Kambs er Hinrik Krist-
jánsson og fjölskylda hans með 60% hlut. Hjálmar
Kristjánsson, fyrirtæki hans og fjölskylda eiga
tæplega 40% í Kambi og 100% í Grábrók. Hjálmar
er bróðir Guðmundar, forstjóra Brims.
Fiskvinnslan Kambur gerir út krókabátinn
Kristján HF 100, sem var smíðaður í Trefjum hf. í
Hafnarfirði í fyrra. Honum fylgir um 2.000 tonna
krókaaflamark. Þá rekur fyrirtækið fiskvinnslu í
eigin húsnæði við Óseyrarbraut, sem er búin
margvíslegum hátæknibúnaði, m.a. nýrri vinnslu-
línu og vatnsskurðarvél frá Völku hf. Kaupverðið
nemur 2,3 milljörðum og verður greitt að hluta
með hlutabréfum í Brimi hf. sem eru í eigu félags-
ins og nema um 1% af heildarhlutafé Brims að
verðmæti um 835 milljónir, segir í frétt frá Brimi.
Grábrók ehf. gerir út krókabátinn Steinunni
HF 108 sem var smíðaður árið 2007. Honum
fylgir um 850 tonna krókaflamark. Kaupverðið er
772 milljónir króna.
Fara yfir kvótaþakið
Samkomulagið er háð eðlilegum fyrirvörum,
m.a. um fjármögnun, samþykki stjórnar Brims hf.
og samþykki Samkeppniseftirlits og eftir atvikum
annarra eftirlitsaðila. Gangi kaupin eftir fer Brim
yfir lögbundið kvótaþak í krókaaflamarki en hef-
ur lögum samkvæmt sex mánuði til að gera ráð-
stafanir sem koma félaginu undir það þak.
aij@mbl.is
Brim kaupir Kamb og Grábrók
Hátt í þrjú þúsund þorskígildistonn Vinnsla verður áfram í húsnæði Kambs
Dr. Þórður Eydal
Magnússon lést á Vífils-
stöðum 19. október
síðastliðinn, 88 ára að
aldri. Þórður fæddist
11. júlí 1931 í Vest-
mannaeyjum. For-
eldrar hans voru hjónin
Magnús Ingibergur
Þórðarson, verkamaður
í Reykjavík, og Sigríður
Sigmundsdóttir. Hann
ólst upp í Reykjavík,
lauk stúdentsprófi 1951
og tannlæknaprófi frá
Háskóla Íslands 1956.
Framhaldsnám í
tannréttingum stundaði Þórður við
Tannlæknaskólann í Kaupmanna-
höfn 1956-58 og hjá dr. phil. Kaare
Reitan í Ósló 1958-59. Þórður fékk
sérfræðingsviðurkenningu árið
1965, fyrstur íslenskra tannlækna.
Eftir námið starfaði hann við sér-
grein sína óslitið til 1997. Þórður
varð Dr. Odont. frá Háskóla Íslands
7. júlí 1979 fyrir ritgerð sína:
„Maturation and Malocclusion in
Iceland“ og var það fyrsta doktors-
verkefnið sem bæði var unnið og
varið við tannlæknadeild Háskóla
Íslands. Hann skrifaði fjölda vís-
indagreina, endurnýjaði þekkingu
sína stöðugt og sótti námskeið og
ráðstefnur utanlands og innan.
Að loknu námi hóf Þórður kennslu
við Háskóla Íslands og
var prófessor í tann-
réttingum til 1998. Í
starfi sínu lagði Þórð-
ur mikla áherslu á
langtímarannsóknir
og lyfti grettistaki við
skipulagningu, söfnun
og úrvinnslu umfangs-
mikilla gagna. Við-
fangsefni hans var
fyrst og fremst vöxtur
og þroski andlits og
tanna, langtímabreyt-
ingar og áhrif erfða-
þátta. Eftir formleg
starfslok hélt Þórður
tengslum við tannlæknadeildina og
var meðal annars leiðbeinandi
tveggja doktorsnema sem byggðu
verk sín á gagnasafni hans.
Þórður var tvívegis forseti Nord-
isk Orthodontisk Selskab. Hann var
fyrsti formaður Tannréttingafélags
Íslands og einnig formaður Félags
sérmenntaðra tannlækna, en bæði
félögin voru stofnuð að frumkvæði
hans. Þá var Þórður deildarforseti
tannlæknadeildar Háskóla Íslands
um árabil, fulltrúi í háskólaráði og
fyrsti heiðursfélagi Tannréttinga-
félags Íslands.
Eiginkona Þórðar, Kristín Sigríð-
ur Guðbergsdóttir, fædd 1932, lifir
mann sinn ásamt sonunum Magnúsi
og Birni, en sá þriðji, Ari, lést 2007.
Andlát
Þórður Eydal Magnússon