Morgunblaðið - 22.10.2019, Page 10

Morgunblaðið - 22.10.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) vill að Reykjavíkurborg hefji nú þegar undirbúning að viðhalds- framkvæmdum á Laugardalsvelli til að tryggja öruggt og löglegt æf- inga- og keppnishald á vellinum fyrir frjálsar íþróttir. Þetta kemur fram í bréfi sem Freyr Ólafsson, formaður sam- bandsins, hefur sent borgarráði. „Þá vill FRÍ sérstaklega minnast á að ekki fer saman það yfirgrips- mikla tónleikahald sem verið hefur á Laugardalsvelli með mjög löngu og miklu inngripi í starfsemi frjáls- íþróttafélaganna í Reykjavík og óæskilegu álagi á keppnisbrautir vallarins,“ segir enn fremur í bréf Freys. Yfirborð hlaupabrauta ónýtt Með bréfinu fylgir greinargerð mannvirkjanefndar FRÍ. Þar kem- ur fram að Laugardalsvöllur sé ekki í keppnishæfu ástandi, þó að keppt hafi verið á vellinum síðustu ár. Þau frjálsíþróttamót hafi verið haldin með undanþágum. Víða séu sýnilegar hvilftir á yfir- borði sem þurfi að laga, auk þess sem yfirborð hlaupabrauta sé margbætt og ónýtt og merkingar vallaryfirborðs úr sér gengnar. Því sé ljóst að endurnýja þurfi vallar- yfirborð frjálsíþróttasvæðis, fjar- lægja gúmmíyfirborð og farga því. Slétta þurfi með flotun núverandi malbiksyfirborð undir hlaupa- brautarefni þar sem hvilftir hafa komið fram, leggja nýtt gúmmíefni á vallaryfirborð og merkja yfirborð með nýjum merkingum. Um önnur keppnissvæði segir:  Stökkgryfjur eru ólöglegar samkvæmt fyrirliggjandi stöðlum Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins. Þær þarf að endurnýja svo þær uppfylli kröfur til mótahalds.  Lendingarsvæði stangar- stökks þarf að endurnýja svo ör- yggi stökkvara sé tryggt. Nýlega hafa orðið slys í lendingu vegna skorts á rými og frágangi við lendingarsvæði.  Koma þarf upp kastbúri fyrir sleggju- og kringlukast á leikvell- inum til að uppfylla fyrirliggjandi kröfur til keppnisvalla.  Lagfæra þarf núverandi kast- hringi, sem eru farnir að láta á sjá. Hreinsa þarf steypuyfirborð platta, yfirfara gjarðir og endurleggja yfirborðsefni á steypt yfirborð.  Á stökkbrautum þarf að endurnýja núverandi stökkplanka. Mannvirkjanefndin hefur tekið saman áætlaður heildarkostnað við lágmarks endurbætur frjáls- íþróttasvæðisins á Laugardalsvelli. Er kostnaðurinn talinn vera 82,4 milljónir fyrir lágmarksendur- bætur. Árið 1992 var núverandi frjáls- íþróttaaðstaða Laugardalsvallar opnuð. Árið 2011 var aðstaðan svo yfirfarin og bætt. Fólst það í stað- bundnum lagfæringum á yfirborði. Síðan þá hefur verið mikil álag á vellinum. Laugardalsvöllur ekki keppnishæfur  Lagfæra þarf að- stöðu fyrir frjálsar íþróttir  Kostnaður áætlaður 82 milljónir Morgunblaðið/Árni Sæberg Laugardalsvöllur „Yfirborð hlaupabrauta er margbætt og ónýtt og merkingar vallaryfirborðs úr sér gengnar.“ Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferða- mála-, iðnaðar- og nýsköpunarráð- herra, segir aðgerðir sem snúa að því að afnema fjölda reglugerða löngu tímabærar. Hún segir ljóst að íslenskt eftirlitskerfi hafi lengi verið illskiljan- legt og aðgerðirnar muni koma sér vel fyrir almenna borgara. „Við fengum greiningu frá OECD sem sagði okkur að við værum með þyngsta eftirlitskerfi innan OECD. Það viljum við auðvitað ekki hafa. Það er alveg ljóst að við höfum ekki verið nægilega skilvirk í tiltekt og ekki nægilega dugleg að spyrja gagnrýnna spurninga þegar við setjum kröfur, við höfum ekki spurt hvort þetta sé besta útgáfa af regluverki sem hægt sé að finna. Við eigum greinilega margt eftir ólært þar og við erum að demba okkur í það,“ segir Þórdís. Hún og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, kynntu í gær áætl- anir um niðurfellingu yfir þúsund reglugerða og aðgerðir sem beinast að því að gera íslenskt regluverk að- gengilegt og auðskiljanlegt. „Við vinnum þetta bæði saman og alveg hvort í sínu lagi. Mín fyrsta að- gerð var að fella brott konkret leyfi eins og iðnaðarleyfi, leyfi varðandi verslun og atvinnu, leyfi til sölu not- aðra bifreiða og svo framvegis. Í þeim bandormi erum við sömuleiðis að fella brott 16 lagabálka,“ segir Þórdís enn fremur. Eru að taka til „Á sviði landbúnaðar- og sjávarút- vegs erum við með flókið regluverk, í reglugerðum, í lögum og ekki síður í leyfisumsóknum og umgjörðum í und- irstofnunum okkar. Við ætlum að taka til í þessum efnum og reyna að einfalda sem mest það umhverfi sem rekstr- inum er ætlað að starfa innan. Við er- um einfaldlega að taka fyrsta litla skrefið í þeim efnum,“ segir Kristján Þór. Þá segir hann fyrirhugaðar aðgerðir ekki stórtækar. „Þetta eru í raun ekki stórar grundvallarbreytingar. Við er- um fyrst og fremst að taka til, henda út úreltu regluverki sem hefur í raun engan tilgang.“ Þúsund reglugerðir felldar niður  Íslenskt regluverk verði bæði aðgengilegt og auðskiljanlegt Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ráðherrar Kristján Þór Júlíusson og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir kynntu áform sín á fundi í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.