Morgunblaðið - 22.10.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 22.10.2019, Síða 11
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Áformað er að reisa 2-6 vindmyllur í landi Hafþórsstaða og Sigmundar- staða í Borgarbyggð og er áætlað afl þeirra 9,8-30 MW. Framkvæmdar- aðili er félag sem stofnað yrði um framkvæmdina í samstarfi við eig- endur jarðanna. Mat á umhverfisáhrifum er unnið af VSÓ Ráðgjöf. Í drögum að mats- áætlun er m.a. fjallað um helstu áhrifaþætti framkvæmdarinnar og þá umhverfisþætti sem kunna að verða fyrir áhrifum. Þá er gerð grein fyrir því hvernig staðið verður að vinnu vegna mats á umhverfisáhrif- um. Í kynningu á verkefninu er tekið fram að aðgerðir í loftslagsmálum hafi stuðlað að örri framþróun í hag- nýtingu vinds. Tæknilegar framfarir geti gert minni verkefni eins og hér um ræðir hagkvæmari en áður. „Til skoðunar eru nokkrir val- kostir. Minnsti valkostur sem skoð- aður verður er ein vindmylla á hvorri jörð eða tvær alls. Stærsta útfærslan er sex myllur alls með 85 metra turn- hæð, en 150 metra hæð á oddi vængs þegar hann er í hæstu stöðu. Fram- leiðslugeta valkosta er á bilinu 9,8-30 MW. Til samanburðar eru önnur verkefni á Vesturlandi 24-35 vind- myllur hvert,“ segir í kynningunni. Mikill og jafn vindur Síðastliðin þrjú ár hafa lauslegar athuganir verið gerðar og benda ýmsir þættir til að staðsetningin geti hentað fyrir orkuframleiðslu af þessu tagi. Þannig er mikill og jafn vindur á Grjóthálsi stærstan hluta ársins. Fýsileiki staðsetningar felist helst í hagstæðu vindafari og nálægð við dreifilínu, en Hrútatungulína 1 liggur í gegnum jarðirnar sem um ræðir. Þá liggur slóði, Grjóthálsvegur, nú þegar um fyrirhugað framkvæmda- svæði og stefnt er að því að nýta hann í tengslum við framkvæmd. Svæðið er því þegar raskað af mannavöldum. „Fjölmarga þætti þarf hins vegar að rannsaka svo meta megi hvort svæðið henti í raun og veru. Þar má nefna fuglalíf, yfirflug fugla, áhrif á náttúrufar, áhrif á aðra starfsemi og ásýnd. Slíkar rannsóknir eru tíma- frekar en búast má við fyrstu niður- stöðum á næsta ári. Verði rannsókn- arniðurstöður jákvæðar og verkefnið hagkvæmt, þurfa verkefni yfir 10 MW að metast í rammaáætlun, en óvíst er hvenær það yrði. Síðar í ferl- inu reynir einnig á skipulagsþátt málsins og aðra leyfisveitendur eftir atvikum,“ segir í kynningu. Samkvæmt vistgerðakorti Náttúrufræðistofnunar Íslands eru mosi og hraun helstu vistgerðir efst á Grjóthálsinum, innan landareign- anna. Eftir því sem farið er neðar í hlíðina Norðurárdalsmegin verður votlendi ríkjandi en kjarrskógavist þegar farið er niður Þverárhlíðina. Framkvæmdaraðili leggur áherslu á að komist verði hjá raski á vistkerf- um eins og kostur er. Fram kemur að helsta áhrifasvæði verkefnisins yrði Þverárhlíð og Norðurárdalur ofan Grábrókar. Landnotkun á nærliggjandi svæð- um einkennist helst af landbúnaði og ferðaþjónustu. Í nágrenni fram- kvæmdasvæðis eru gististaðir og má þar sem dæmi taka Hótel Bifröst, Hraunsnef, Svartagil og Hreðavatn. Drög að matsáætlun eru auglýst til kynningar á heimasíðu VSO Ráð- gjafar. Frestur til að senda inn ábendingar er til 15. nóvember. Vilja reisa vindmyll- ur í Borgarbyggð  2-6 vindmyllur í landi Hafþórsstaða og Sigmundarstaða Morgunblaðið/Árni Sæberg Myllur tvær Norðan við Búrfell er hraunsléttan Hafið. Þar reisti Lands- virkjun tvær vindmyllur í rannsóknarskyni sem voru gangsettar 2013. Grjótháls Í Norðurárdal Kortagrunnur: OpenStreetMap Bifröst B O R G A R - FJ Ö R Ð U R Reykholt Borgarnes GR JÓ T- HÁ LS Fyrir- huguð stað- setning Vetur konungur er farinn að banka á dyrnar, með kólnandi veðri, frosti og snjó niður í byggð. Norðlendingar vöknuðu við slíkar aðstæður í gær- morgun og strax byrjaði atið á dekkjaverkstæðunum. „Vertíðin er hafin hjá okkur, alveg klárlega,“ sagði Stefán Jónsson, sölu- og afgreiðslustjóri hjá Dekkja- höllinni á Akureyri, í samtali við mbl.is í gær. Löng röð myndaðist fyrir utan Dekkjahöllina í gærmorgun, en fréttir af yfirvofandi hríðarveðri og versnandi akstursskilyrðum á norðanverðu landinu hreyfðu greini- lega við Eyfirðingum þótt götur bæjarins hefðu enn verið auðar í gærmorgun. Veðurspár gera ráð fyrir að það muni breytast á næst- unni, ekki bara á Norðurlandi held- ur víðar um land. Stefán sagði vetrarveðrið í seinna lagi en oft áður. Samt hefði verið töluvert að gera í dekkjaskiptum frá því í síðustu viku. Um tíma í gær náði röðin við Dekkjahöllina frá Draupnisgötu og niður að Hlíðarbraut. „Fólk er svona rétt um klukkutíma í röðinni. Við tökum átta bíla inn í einu,“ sagði Stefán og bætti því við að enn skiptu langflestir ökumenn yfir í negld vetrardekk undir bílana. Það væri óbreytt norðan heiða. Ljósmyndir/Þorgeir Baldursson Akureyri Elín Dögg Gunnars Väljaots (t.h.), framkvæmdastjóri Dekkja- hallarinnar, stóð vaktina í gær ásamt móður sinni, Fjólu Sigurðardóttur. Annríki á dekkja- verkstæðunum Annríki Handtökin voru snör í dekkjaskiptunum í gær.  Vetur konungur fer að minna á sig FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019 Elmar Hallgríms Hallgrímsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Samiðnar af Þorbirni Guðmundssyni sem gegndi því í þrjá áratugi. Samiðn er samband tólf aðildarfélaga iðn- aðarmanna víðsvegar um landið. Þor- björn starfar áfram á vegum Sam- iðnar og er í forystu sambandsins í yfirstandandi kjarasamninga- viðræðum við ríki og sveitarfélög, að því er segir í tilkynningu frá Samiðn. Elmar er lögfræðingur með emb- ættispróf frá Háskóla Íslands og próf- gráðu líka frá University of Pennsylv- ania í Bandaríkjunum. Hann lauk meistaranámi í fjármálum fyrirtækja og viðskiptasiðfræði frá HÍ, einnig prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann hefur leyfi til að starfa sem héraðs- dómslögmaður. Elmar hefur m.a. starfað í stjórnunarstöðu hjá Voda- fone, 365 miðlum og var um árabil lektor við Háskóla Íslands og starfar þar nú sem stundakennari í við- skiptafræðideild. Elmar tekur við af Þorbirni hjá Samiðn Ljósmynd/Samiðn Skipti Elmar Hallgríms (t.v.) tekur við keflinu af Þorbirni Guðmundssyni. „Það veldur mér vonbrigðum að ráðherra hafi á einum sólarhring frá því að hann steig formlega inn í flokksstarf orðið að hinum dæmi- gerða stjórnmálamanni,“ sagði Logi Einarsson, þingmaður Sam- fylkingarinnar, um svar Guð- mundar Inga Guðbrandssonar um- hverfisráðherra í óundirbúnum fyr- irspurnartíma á Alþingi í gær. Guðmundur Ingi var um helgina kjörinn varaformaður Vinstri- grænna og hefur tilkynnt að hann ætli að bjóða sig fram fyrir flokkinn í næstu þingkosningum. Logi beindi máli sínu að þeim málamiðlunum í loftslagsmálum sem þingflokkur Vinstri-grænna hefði þurft að gera vegna veru í ríkisstjórn með Sjálfstæðis- flokknum og spurði hvort Guð- mundur Ingi teldi það mögulegt að fá Sjálfstæðisflokkinn með sér í lið, svo sem til þess að verja 2,5% af landsframleiðslu til loftslagsmála eins og milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna gerir kröfu um. Guð- mundur Ingi svaraði því til að 2,5% viðmiðið ætti ekki við hér á landi þar sem átt væri við við hlutfall af framleiðslu á heimsvísu til breyt- inga á orkukerfum í öllum heimin- um og að Ísland væri þegar búið að ráðast í hluta af þessu. Varð að „dæmigerðum“ stjórnmálamanni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.