Morgunblaðið - 22.10.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.10.2019, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019 22. október 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.64 125.24 124.94 Sterlingspund 160.8 161.58 161.19 Kanadadalur 94.84 95.4 95.12 Dönsk króna 18.568 18.676 18.622 Norsk króna 13.562 13.642 13.602 Sænsk króna 12.867 12.943 12.905 Svissn. franki 126.16 126.86 126.51 Japanskt jen 1.1471 1.1539 1.1505 SDR 171.54 172.56 172.05 Evra 138.71 139.49 139.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.3251 Hrávöruverð Gull 1487.5 ($/únsa) Ál 1728.0 ($/tonn) LME Hráolía 59.78 ($/fatið) Brent ● Framleiðslu- stofan Tjarnar- gatan og forrit- unarfyrirtækið Stokkur hafa hlotið tilnefningu til Digi- day, Evrópsku markaðs- og auglýsingaverð- launanna, fyrir fjórðu Höldum fók- us herferðina, sem unnin var fyrir Sam- göngustofu, Sjóvá og Strætó. Í tilkynn- ingu frá Tjarnargötunni segir að her- ferðin sé tilnefnd í flokknum „besta notkun á gervigreind“. Meðal þeirra fyrirtækja sem hljóta til- nefningar til verðlaunanna í ár eru The Economist, Reuters Plus, Emirates og Merkle. Framkvæmdastjóri Tjarnargöt- unnar, Einar Ben, er ánægður með til- nefninguna. „Við erum einkar ánægð með þessa tilnefningu enda er félags- skapurinn ekki amalegur.“ Hann segir þetta fyrstu herferðina á Íslandi sem nýti sér gervigreind, og jafnframt fyrstu herferðina á heimsvísu sem tvinni saman annars vegar Insta- gram-auðkenni, til að persónugera aug- lýsingu með myndum af hverjum og einum áhorfanda, og hins vegar gervi- greind Google. Tilnefnd fyrir bestu notkun á gervigreind Einar Ben STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Bryndís Kristjánsdóttir skattrann- sóknarstjóri segist í samtali við Morgunblaðið ekki hafa neinar sér- stakar áhyggjur af þeim þremur at- riðum sem upp á vantar til að Ísland fari af gráum lista FATF, alþjóðlegs fjármálaaðgerðahóps ríkja um að- gerðir gegn peningaþvætti og fjár- mögnun hryðjuverka. Búið sé að koma þeim í ákveðinn farveg. Hins vegar sé aðalatriðið að allar þær að- gerðir sem búið er að stilla upp verði að framkvæma. „Hér hefur verið lyft grettistaki á síðustu tveimur árum í þessum málum og búið að setja margt í gang, þ.á m. hefur allt eftirlit verið eflt. Reglu- verkið er nú komið og í framhaldinu þarf að tryggja að framkvæmdin verði farsæl. Það má segja að við séum komin með teikninguna, en svo þarf að vinna á öllum stöðum innan stjórnsýslunnar í samræmi við hana til að sjá hvar skórinn kreppir.“ Bryndís segir að eftir því sem kerfið vinni hraðar, þeim mun betri og fullkomnari verði öll fram- kvæmd.“ Hún kveðst sammála því sem sumir hafa sagt að aðgerðir FATF séu nokkuð harkalegar, eins og hún orðar það, en skýringin liggi kannski að einhverju leyti í því hve hratt Íslendingar hafi unnið málið og færst mikið í fang á stuttum tíma. Áhrif á tryggingafélög Sigurður Sigurbjörnsson trygg- inga- og lífeyrisráðgjafi, og formað- ur sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi, kom varnaðarorðum á framfæri við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfa- dóttur iðnaðar- og nýsköpunarráð- herra á fundi félagsins um síðustu helgi. Þórdís var frummælandi á fundinum. Í kynningu sinni ræddi Sigurður um mögulegar afleiðingar af veru Íslands á gráa listanum. Sagði hann að vera landsins á listan- um gæti haft áhrif á banka og trygg- ingafélög. Nefndi hann þar sérstak- lega áhrif á endurtryggjendur íslensku tryggingafélaganna og þá sem fjármagna íslenska banka. Áhrifin gætu birst í auknum kostn- aði við endurtryggingarnar og fjár- mögnun bankanna. Sigurður sagði í kynningunni að hann hefði enn ekki orðið var við nein viðbrögð hjá lífeyris- og trygg- ingafélögum sem hann starfar fyrir á Íslandi, en hættan væri sú að ef eitt fyrirtæki ákvæði að grípa til að- gerða gætu önnur fylgt á eftir. Þannig ætti þessi hætta eftir að vofa yfir Íslendingum þar til landið fer af listanum. Af listanum á næsta ári Íslensk stjórnvöld vonast til að Ís- land komist af listanum á næsta ári, eins og fram hefur komið í fjölmiðl- um, en Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir dómsmálaráðherra sagði í Morgunblaðinu fyrir helgi að FATF fundaði bæði í febrúar og í júní á næsta ári. Vonir væru bundnar við að fara af listanum í kjölfar þeirra funda. Skattrannsóknarstjóri vill tryggja farsæla framkvæmd Morgunblaðið/Golli Peningaþvætti Íslensk stjórnvöld vonast til að Ísland komist af gráum lista FATF á næsta ári. Atriðin þrjú » FATF telur þörf á að bæta aðgang að upplýsingum um raunverulega eigendur, upplýs- ingakerfi og starfsmannafjölda hjá skrifstofu fjármálagrein- inga lögreglu og eftirlit með eftirfylgni við þvingunar- aðgerðir og yfirsýn yfir starf- semi almannaheillafélaga.  Formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs flutti varnaðarorð vegna gráa listans Eignarhaldsfélagið Festi hefur gengið til samninga við Origo sem samstarfsaðila í upplýsingatækni. Samstarfið nær til reksturs og hýs- ingar á miðlægum innviðum félags- ins, reksturs útstöðva og notenda- þjónustu, að því er fram kemur í tilkynningu. Þá mun Origo meðal annars sjá um rekstur á 1.300 af- greiðslukössum og útstöðvum í fé- lögum Festar, en félagið á N1, Krón- una, Elko og Bakkann. „Í lok síðasta árs fór Festi að huga að því að útvista rekstri og hýsingu á miðlægum innviðum félagsins og að lokinni greiningu varð Origo fyrir valinu. Origo hefur frá ársbyrjun séð um rekstur á netþjónum og netkerf- um fyrirtækisins. Jafnframt mun Origo sjá um alla notenda- og bak- vaktaþjónustu fyrir starfsmenn Festi og rekstrarfélaga þess,“ segir Kolbeinn Finnsson, framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs Festar, í tilkynn- ingunni. Vilja lækka kostnað Hann segir markmiðin með sam- starfinu vera að auka hagkvæmni, lækka kostnað og auka þjónustu við starfsmenn Festar. Með auknu sam- starfi verði unnið að því að auka sjálfvirkni þar sem hægt er að ein- falda og staðla búnað. „Á þessum sviðum hefur Origo náð góðum ár- angri og verður spennandi að að- stoða Festi við að ná sínum mark- miðum,“ segir Ottó Freyr Jóhannsson, forstöðumaður við- skiptastýringar hjá Origo, í tilkynn- ingunni. Origo er með starfsemi á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Neskaup- stað. gso@mbl.is Verkefni Origo mun sinna greiðslu- kössum allra félaga Festar. Origo til samn- inga við Festi  Nær til 1.300 afgreiðslukassa og útstöðva

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.